Morgunblaðið - 16.03.1996, Page 12
12 LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra segir slökkviliðsmenn hafa
farið offari í afstöðu sinni til Neyðarlínunnar hf.
Stefnt að þjálf-
un starfsfólks
íFinnlandi
Líkur eru á að starfsfólk Neyðarlínunnar
hf. hljóti þjálfun í Finnlandi, að því er
fram kemur í samantekt Halls Þorsteins-
sonar um málefni Neyðarlínunnar.
Slökkviliðsmenn hafa gagnrýnt harðlega
áform um Neyðarlínuna og ákveðið að
synja starfsmönnum fyrirtækisins um
þjálfun. Aðstoðarmaður dómsmálaráð-
herra segir afstöðu þeirra eingöngu snú-
ast um kjaramál þeirra sjálfra.
FINNSK stjórnvöld hafa lýst
sig reiðubúin til að hafa
milligöngu um þjálfun
starfsfólks Neyðarlínunn-
ar hf. þar i landi, en dómsmálaráðu-
neytið hafði samband við innanríkis-
ráðuneytið í Finnlandi með ósk um
að fólkið hlyti starfsþjálfun í Finn-
landi. Þórhallur Ólafsson, aðstoðar-
maður dómsmálaráðherra, segir að
í Finnlandi sé líklega besta þjálfun-
araðstaða af þessu tagi í Evrópu.
Hann segir slökkviliðsmenn hér á
landi hafa farið offari í afstöðu sinni
til Neyðarlínunnar og farið langt
út fyrir öll velsæmismörk.
Þórhallur segir að afstaða
slökkviliðsmanna sé liður í kjarabar-
áttu þeirra og málið einfaldlega
snúast um það að slökkviliðsmenn
vilji ekki afsala sér því að vera ríkis-
starfsmenn og færast yfír í Verslun-
armannafélag Reykjavíkur starfi
þeir hjá Neyðarlínunni hf. Hann
segir að þeim hafi verið boðið að
vera í IV2 ár hjá Neyðarlínunni en
hverfa svo aftur til starfa hjá
Slökkviliðinu.
„Við erum búnir að bjóða þeim
hærri laun og við höfum viljað skoða
lífeyrisréttindi þeirra og lengra get-
um við ekki gengið. Núna eru þess-
ir menn í verktöku og verða það
einhvern tíma en það er ekki hægt
endalaust því það er bara of dýrt,“
sagði hann.
Samræmd neyðarsímsvörun til
að uppfylla EES-samninginn
Aðdragandinn að stofnun Neyð-
arlínunnar hf. er sá að dómsmála-
ráðherra skipaði í apríl 1993 nefnd
til að hafa frumkvæði að ---------
tillögugerð um sam-
ræmda neyðarsímsvörun
sem uppfyllti skiiyrði
samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið
um samræmt evrópskt
neyðarnúmer, 112. I nefndinni sátu
fulltrúar frá Pósti og síma, Slysa-
varnafélagi íslands, heilbrigðisráðu-
neyti, Almannavörnum, Reykjavík-
urborg og sveitarfélagi af lands-
byggðinni. Nefndin skilaði skýrslu
með tillögum og á grundvelli hennar
var nefndinni falið að vinna laga-
frumvarp sem síðan var samþykkt
á Alþingi í febrúar 1995 sem lög
um samræmda neyðarsímsvörun.
í lögunum er tekið fram að dóms-
málaráðherra sé heimilt að semja
við opinberar stofnanir, sveitarfélög
og einkaaðila um fyrirkomulag, fjár-
mögnun og þátttöku í rekstri neyð-
arsímsvörunar. Val á rekstraraðil-
um fór síðan fram á grundvelli sam-
Enginn arður
borgaðurút úr
rekstri Neyð-
arlínunnar
starfsútboðs sem Ríkiskaup sáu um,
en Ríkiskaup auglýstu um miðjan
marsmánuð í fyrra eftir umsóknum
þeirra sem sem áhuga hefðu á að
taka þátt í samstarfsútböði um
rekstur vaktstöðvar fyrir neyðar-
símsvörun. Þeir sem skiluðu inn til-
boðum voru Póstur og sími, Borgar-
spítalinn, Rauði kross íslands, Sí-
vaki hf., Nýheiji hf. og Slysavama-
félag íslands, Slökkvilið Reykjavík-
ur, Vari hf. og Securitas hf. sameig-
inlega.
Dómsmálaráðuneytið fól Verk-
fræðistofu Stefáns Ólafssonar hf.
að ganga til viðræðna við þá aðila
sem skiluðu inn tilboðum og var
gerður verksamningur til átta ára
við samstarfshóp Pósts og síma,
Reykjavíkurborgar vegna Slökkvi-
liðs Reykjavíkur, Securitas hf., Sí-
vaka hf., Slysavarnafélags íslands
og Vara hf., en auk þess var Örygg-
isþjónustunni hf. heimilað að gerast
hluthafi í Neyðarlínunni hf. eftir að
tilboðsfrestur var útrunninn og hef-
ur fyrirtækið nýtt sér þá heimild.
Þá kemur Borgarspítalinn einnig
að málinu með samstarfssamningi
við Slökkvilið Reykjavíkur. Hluthaf-
ar Neyðarlínunnar eru því sjö talsins
og eiga þeir allir jafnan hlut í fyrir-
tækinu eða tæp 14,3%. Viðskipti
með hluti í Neyðarlínunni eru bönn-
uð samkvæmt lögum í því skyni að
einhver einn aðili nái meirihlutaeign
í fyrirtækinu.
Reiknað var út að sæi ríkið eitt
um rekstur neyðarsímsvörunarinnar
myndi það kosta 66 milljónir á ári
að reka hana með fjórum mönnum
á vakt allan sólarhringinn. Sam-
________ kvæmt þeim samningi
sem gerður var borga ríki
0g sveitarfélög 36 millj-
ónir á ári og rekstraraðil-
arnir borga afganginn.
Ef kostnaðurinn við
reksturinn verður meiri
þurfa eigendur Neyðarlínunnar að
standa straum af honum og þegar
liggur fyrir að kostnaðurirm verður
um 72 milljónir fyrsta starfsárið.
Varnarleikur öryggis-
þjónustufyrirtælga
Hannes Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Securitas hf. segir að
aðdragandinn að samstarfi rekstra-
raðila Neyðarlínunnar hafi verið sá
að Securitas hafi litið svo á að ef
ríkið ræki neyðarsímsvörunina gæti
skapast samkeppni við vaktþjón-
ustufyrirtækin og því hefði það ver-
ið hreinn varnarleikur að reyna að
komast inn í reksturinn.
„Að betur athuguðu máli töldum
Morgunblaðið/Júlíus
SÍMSVÖRUN neyðarlínunnar. Við borðið situr
Þórður Bogason varðstjóri.
við að við ættum meiri möguleika
í samvinnu við aðra. Ég hafði fyrst
samband við Slysavarnafélagið sem
ætlaði að skoða málið, síðan hafði
ég samband við slökkviliðsstjórann
í Reykjavík, sem var tilbúinn til
samstarfs og síðan talaði ég við
forstjóra Vara sem féllst á þau rök
að svona stöð gæti orðið samkeppn-
isaðili. Slysavarnafélagið kom svo
inn í samstarfíð og ég reikna með
að að allir hafi hugsað þetta eins,
þ.e. að þeir hafi gjarnan viljað vera
með þetta einir en talið líklegra að
samvinna skilaði betri árangri. Síð-
an hefur hver hluturinn rekið annan
og fleiri aðilar komið til samstarfs-
ins.
Aðalatriðið í þessu máli öllu tel
ég vera aukið öryggi sem verður
fyrir alla landsmenn og sparnaður-
inn sem af þessu fyrirkomulagi
hlýst, en hann nemur tugum millj-
óna fyrir ríkið og sveitarfélögin á
ári,“ sagði Hannes.
Hann segir að samtals greiði ör-
yggisþjónustufyrirtækin
20-22 milljónir króna á ári
fyrir þá þjónustu sem þau
fá hjá Neyðarlínunni þar
sem vaktstöðvar þeirra
verða, og þar af greiði
Securitas 9 milljónir vegna
stærðar sinnar. Póstur og sími,
Slökkviliðið og Slysavarnafélagið
greiða síðan afganginn af framlagi
Neyðarlínunnar.
Að sögn Þórhalls Ólafssonar
verður enginn arður borgaður út
úr rekstri Neyðarlínunnar verði
hann hugsanlega einhver í framtíð-
inni. Hann segir að helst megi líkja
fyrirtækinu við sjálfseignarstofnun,
enda með stóra nefnd yfír sér sem
setji því reglur og Ríkisendurskoðun
fylgist með fjárreiðum þess.
Athugasemdir slökkviliðs-
manna bárust of seint
Borgarráð samþykkti um miðjan
desember síðastliðinn að heimila að
byggt verði við Slökkvistöð Reykja-
víkur og að viðbyggingin verði leigð
Neyðarlínunni, en áætlað er að
stjórnstöðin taki til starfa í júlí í
sumar. í árslok samdi Neyðarlínan
við Slökkvistöð Reykjavíkur um
neyðarsímsvörun á höfuðborgar-
svæðinu þar til stjórnstöðin tekur
til starfa og Slysavarnafélagið svar-
ar simtölum sem berast utan af
landi.
Slökkviliðsmenn í Reykjavík
ályktuðu um málið í árslok og átöldu
þeir vinnubrögð stjórnvalda við að
koma á fót samræmdri neyðarsím-
svörun í landinu. í lok janúar lýstu
slökkviliðsmennimir svo yfir að þeir
myndu ekki taka þátt í starfskynn-
ingu og þjálfun starfsmanna Neyð-
arlínunnar og lýsti Guðmundur
Vignir Óskarsson, formaður Lands-
sambands slökkviliðsmanna, því yfir
að móttaka neyðartilkynninga væri
ótvírætt á verksviði slökkviliðs-
manna og svo hefði alltaf verið.
Hann telur að neyðarsímsvörun
eigi hvergi annars staðar
heima en hjá opinberum
aðilum og grundvallarat-
riði sé að sá sem tekur
á móti neyðarboðum hafi
til að bera þá menntun
og starfsreynslu sem t.d.
slökkviliðsmenn gangi í gegnum á
vettvangi áður en þeir fari í neyðar-
aknsvörun og það sama ætti við hjá
lögreglunni.
Hafa slökkviliðsmenn átt í við-
ræðum við Reykjavíkurborg um
málið en borgarstjóri hefur bent á
að athugasemdir slökkviliðsmanna
um rekstur Neyðarlínunnar hafi
komið of seint fram þar sem geng-
ið hafi verið frá samningum um
reksturinn. Einnig hefur borgar-
stjóri bent á að engar athugasemd-
ir hafi komið frá slökkviliðsmönn-
um þegar málið var til umijöllunar
hjá allsherjarnefnd Alþingis áður
en það varð að lögum í ársbyijun
í fyrra.
Töldu líklegra
að samvinna
skilaði betri
árangri
Dæmdur í
'/2 árs fang-
elsi fyrir að
stela úr
banka
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
34 ára Reykvíkingi og dæmdi hann
í sex mánaða fangelsi fyrir grip-
deildarbrot. Maðurinn stökk inn
fyrir afgreiðsluborð í Háaleitisúti-
búi Landsbankans 18. október í
fyrra og greip 137 þús. kr. úr pen-
ingaskúffu gjaldkera. Degi síðar
var hann dæmdur í Héraðsdómi
og með sama dómi fundinn sekur
um eldra brot, að hafa stolið áfeng-
isflösku úr verslun ÁTVR þrettán
mánuðum áður.
Skaðaður af
völdum fíkniefna
í dómi Hæstaréttar er vísað til
vottorðs geðlæknis, sem hefur haft
umsjón með manninum frá 4. jan-
úar sl. Þar kemur fram, að hann
sé verulega persónuleikatruflaður
og framheilaskaðaður af völdum
fíkniefna. Hann hafi verið háður
fíkniefnum frá því í æsku og það
hafi skert dómgreind hans. Líklegt
sé að hann hafi verið í vímu þegar
hann reyndi að ræna peningunum
og í slíku ástandi sé hann veru-
leikafirrtur, dómgreindarlaus og
lítt sjálfráður gerða sinna.
Hæstiréttur segir að leggja verði
vottorðið til grundvallar, en ekki
verði dregin sú ályktun af því að
maðurinn hafi verið ósakhæfur í
umrætt sinn. Önnur gögn málsins
bendi ekki til að hann hafi verið
alls ófær um að stjórna gerðum
sinum.
-----♦ ♦ ♦-----
Hlutir úr
kumlinu lán-
aðir austur
ÞJÓÐMINJARÁÐ hefur tekið já-
kvæða afstöðu til bónar Minjasafns
Austurlands um að fá að sýna hluti
úr kumlinu, sem fannst í landi
Eyrarteigs í Skriðdal síðasta haust,
á safninu.
Þór Magnússon, þjóðminjavörð-
ur, sagði að um tímabundið lán
yrði að ræða. Ekki væri heldur
víst að hægt yrði að lána alla hlut-
ina því forvörslu þyrfti að vera
lokið áður en einstakir hlutir yrðu
lánaðir. í kumlinu fundust bein af
hesti, manni og ýmsir hlutir á borð
við sverð, pott og nælu. Kumlið
er talið vera frá 10. öld.
Þór sagði ánægjulegt ef hægt
væri að sýna hluti úr kumlinu þeg-
ar safnið á Egilsstöðum opnaði í
fyrsta sinn í nýju húsi í sumar.
-----♦ ♦ ♦-----
Nýr formaður
Stúdentaráðs
VILHJÁLMUR H. Vilhjálmsson,
laganemi, hefur verið kjörinn for-
maður Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands fyrir starfsárið 1996-97.
Vilhjálmur kemur úr röðum
Röskvu en Röskva hélt meirihluta
í ráðinu í kosningum til Stúdenta-
ráðs og Háskólaráðs í febrúar.
Vilhjálmur tekur við embættinu
af Guðmundi Steingrímssyni sem
hefur gegnt formennsku undar.far-
ið ár.
Á fundi ráðsins sl. miðvikudag
var jafnframt kjörinn fram-
kvæmdastjóri og mun Einar Skúla-
son, nemi í stjórnmálafræði, gegna
þeirri stöðu og tekur hann við af
Kamillu Rún Jóhannsdóttur, sál-
fræðinema.