Morgunblaðið - 15.06.1996, Side 2
2 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ellilífeyrir 2,3% af
iandsframleiðslu
ELLILÍFEYRISGREIÐSLUR sem
hlutfall af vergri landsframleiðslu
voru 2,38% á íslandi árið 1994.
Þetta er mun lægra hlutfall en í
flestum löndum Evrópu. Innan
Evrópusambandsins er þetta hlut-
fall á bilinu 5-14%. Hér eins og
annars staðar fer þetta hlutfall
hækkandi samhliða fjölgun ellilíf-
eynsþega.
Á norrænni ráðstefnu um fram-
tíð velferðarsamfélagsins kom
fram hjá Pádraig Flynn, sem fer
með jafnréttis- og velferðarmál
innan framkvæmdastjómar Evr-
ópusambandsins, að eililífeyrisþeg-
um í ESB íjölgaði stöðugt og því
væri spáð að ellilífeyrisþegar yrðu
þriðjungur íbúa ESB árið 2025.
Flynn sagði að kostnaðurinn
af ellilífeyrisgreiðslum væri
nokkuð mismunandi innan Evr-
ópusambandsins, frá 5% af vergri
iandsframleiðslu á írlandi til 14%
á Ítalíu. í Noregi er þetta hlut-
fall 6,5%, í Danmörku 7%, í Finn-
landi rúm 10% og tæp 10,5% í
Svíþjóð.
Árið 1994 námu ellilífeyris-
greiðslur á íslandi 10.076 millj-
ónum króna eða 3,38% af vergri
landsframleiðslu. Ástæðan fyrir
því að þessi kostnaður er lægri
hér en í nágrannaiöndunum stafar
m.a. af því að ellilífeyrisþegar eru
færri hér á landi, en einnig er líf-
eyrisaldur lægri í mörgum iöndum
en hér. Fólk fær t.d. ellilífeyri 65
ára í Svíþjóð og Finnlandi, en 67
ára á íslandi.
Reykjavíkurborg hættir við erlenda lántöku
1,6 milljarða króna
aflað innanlands
taka lán á erlendum markaði vegna
þess að vextir hefðu lækkað frá því
málið var skoðað í vetur. Þá sagði
hún að einnig væru rýmri möguleikar
á stærri lántöku innanlands núna þar
sem mikið fé yrði í umferð í byijun
júlí þegar þrír flokkar spariskírteina
ríkissjóðs kæmu til innlausnar.
„Þá verða 17-18 milljarðar króna
á lausu og það er meginástæða þess
að þessi leið var valin, auk þess sem
æskilegra er að vera með lántökurn-
ar í innlendri mynt. Ef sá kostur er
fyrir hendi þá er hann betri,“ sagði
Ánna.
REYKJAVÍKURBORG hefur leitað
tilboða hjá fímm verðbréfafyrirtækj-
um í sölu verðtryggðra skuldabréfa
að nafnvirði 1.600 milljónir króna til
20 eða 25 ára, en gert er ráð fyrir
að bréfín verði seld í einum áfanga
og sölu þeirra ljúki 1. ágúst næstkom-
andi. Að sögn Onnu Skúladóttur, fjár-
reiðustjóra Reykjavíkurborgar, á að
nota þetta fjármagn að mestu leyti
til enduríjármögnunar á eldri lánum
sem fyrir eru hjá borginni.
Borgarráð samþykkti í mars síð-
astliðnum heimild til eingreiðsluláns
á erlendum markaði að andvirði
1.600 milljónir króna til 5 ára, en
síðastliðinn þriðjudag samþykkti
borgarráð að fara í staðinn í skulda-
bréfaútboð á innlendum markaði þar
sem það væri orðinn betri kostur en
erlend lántaka. Tilboðsfrestur vegna
skuldabréfaútgáfunnar rann út um
miðjan dag í gær, en að sögn Önnu
lá niðurstaða vegna útboðsins þá
ekki fyrir.
Mikið fé á lausu í byijunjúlí
Anna sagði að ákveðið hefði verið
að fara þá leið að gefa út verðtryggð
skuldabréf innanlands í stað þess að
A húðkeipum yfir Faxaflóa
Flutt með
sjúkra-
fhigi eftír
bílveltu
RÚMLEGA fímmtug kona með
höfuðáverka var flutt með sjúkra-
flugi á Sjúkrahús Reykjavíkur eft-
ir að pallbíll sem hún var farþegi
í valt við Hafnará undir Hafn-
arfjalli. Atvikið átti sér stað um
áttaleytið og var þyrla Landhelgis-
gæslunnar kölluð út þegar í stað.
Að sögn vakthafandi læknis á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
þurfti konan að fara í aðgerð vegna
höfuðáverkanna en hún var ekki í
lífshættu.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti, samkvæmt lýsingu lögregl-
unnar í Borgamesi, að kind ásamt
tveimur lömbum stökk inn á þjóð-
veginn nærri brúnni yfir Hafnará
í veg fyrir bílinn sem var á norður-
leið.
Ökumaður bifreiðarinnar,
eiginmaður konunnar, náði ekki
að stöðva bifreiðina heldur ók á
hópinn. Við það missti hann bílinn
út í hægra vegarkant en síðan
rásaði bíllinn þvert á veginn og
lenti á brúarhandriði við Hafnará
með fyrrgreindum afleiðingum.
Bíllinn hafnaði á hvolfi norðan við
brúna. Hjónin voru bæði í beltum.
Þrjú mótorhjólaslys
Þtjú mótorhjólaslys urðu á
hringveginum á Vesturlandi í gær.
Fyrsta atvikið varð við Laxá í Leir-
ársveit en þá skullu tvö hjól saman
við það að lamb stökk inn á þjóð-
veginn.
Annað atvik varð um klukkan
fjögur en þá missti ökumaður bif-
hjóls stjóm á hjóli sínu. Hann var
ásamt farþega á leið norður er
hann mætti lögreglubíl. Ökumað-
urinn reyndi að hemla þegar hann
varð var við lögreglubílinn en ekki
vildi betur til en svo að hjólið rann
til.
Ekki mátti miklu muna að öku-
maður og farþegi yrðu undir lög-
reglubílnum. Ökumaður hans náði
aftur á móti að beygja út á vegar-
kantinn í tæka tíð en brot úr hjól-
inu skullu á bílnum.
Þriðja óhappið varð á mótum
Norðurlandsvegar og Norður-
brautar skammt frá Hvammstanga
en að sögn lögreglunnar á Blöndu-
ósi keyrði fólksbíll af Norðurbraut
inn á þjóðveginn í veg fyrir bifhjól-
ið sem var á leið norður og annan
fólksbíl sem var á suðurleið.
Lögreglan á Blönduósi segir að
umferð hafí verið mjög mikil í all-
an gærdag og að í mörgum tilfell-
um hafí hún verið allt of hröð.
TVEIR grænlenskir ræðarar á
þarlendum húðkeipum reru frá
Reykjavík til Akraness í gær-
kvöldi. Lagt var upp úr Reykja-
víkurhöfn kl. 19 og komu
ræðararnir, Aqqalunngvaq Is-
bosethsen t.v. og Ove Pedersen,
báðir 20 ára, til Akraness laust
fyrir kl. 21. Þessi ferð var í
EF niðurstöður nefndar á vegum
félags- og umhverfísráðherra um
réttindi og skyldur sumarhúsaeig-
enda ná fram að ganga lækkar fast-
eignaskattur af sumarhúsum um 20
til 25%. Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra telur tillögurnar góðan
grundvöll til að byggja á.
Félagsmálaráðherra skipaði í
samráði við umhverfisráðherra
nefnd til að yfírfara réttindi og
skyldur sumarhúsaeigenda, einkum
með tilliti til laga um tekjustofna
sveitarfélaga og bygginga- og skipu-
lagslaga, þann 23. febrúar árið
1996.
Ólafur Öm Haraldsson, alþingis-
maður og formaður nefndarinnar,
kynnti niðurstöður hennar á blaða-
mannafundi í gær. Hann sagði að
nefndin hefði óneitanlega notið góðs
af fyrri vinnu um málefnið og lagði
áherslu á að komist hefði verið að
sameiginlegri niðurstöðu. Nefndin
hefði unnið út frá óskum sumarhúsa-
eigenda um úrbætur. Óskunum hefði
verið skipt í tvo flokka. Annars vegar
þau atriði sem ljós hefðu verið eftir
að ákvseði laga og reglugerða hefðu
verið dregin fram í dagsljósið og hins
vegar þau atriði sem hefðu þarfnast
frekari umijöllunar í nefndinni.
Eitt stærsta úrlausnarefnið
tengdist ósk LS um lækkun fast-
tengslum við sumarhátíðina
Sumar og sandur sem hefst á
Akranesi í dag. Hópur Græn-
lendinga frá Qaqortoq (Juliane-
háb), vinabæ Akraness á Græn-
landi, er staddur á Skaganum
þessa daga.
Að sögn Trausta Gylfasonar,
eins aðstandenda Sumars og
eignaskatts. Nefndin var sammála
um að hæpið væri að umreikna mat
sumarhúsa til markaðsverðs „sam-
bærilegra" eigna í Reykjavík og
stingur upp á því að inn í 2. mgr.
3. gr. laga um tekjustofna sveitarfé-
laga verði bætt orðunum „sumarhús-
um og“ næst á undan orðunum „úti-
húsum í sveitum".
Greinin myndi því hljóða svo:
„Stofn til álagningar skattsins á hús
og mannvirki, að undateknum sum-
arhúsum og útihúsum í sveitum,
skal vera afskrifað endurstofnsverð
þeirra margfaldað með markaðs-
stuðli fasteigna í Reykjavík sam-
kvæmt matsreglum Fasteignamats
ríkisins. Stofn til álagningar fast-
eignaskatts á aðrar fasteignir skal
sands, fylgdi bátur Slysavarna-
félagsins húðkeipunum yfir fló-
ann. Þeir fengu strekkingsvind
í bakið á leiðinni og meiri öldu
en þeir eiga að venjast. Trausti
átti von á að Grænlendingarnir
heimsæktu Reykvíkinga á þjóð-
hátíðardaginn og sýndu þeim
listir sínar.
vera fasteignamat þeirra." Breyting-
in myndi hafa í fór með sér 20-25%
lækkun á fasteignaskatti af sumar-
húsum. Fasteignaskattur af sumar-
húsum er nú að meðaltali 12 til 14
þúsund kr. á ári og fer hækkandi.
Tekið á merkingum
Ennfremur var nefndin sammála
um að inn í 5. mgr. sömu lagagrein-
ar bættist ákvæði um að sumarhús
nytu sömu réttinda og fasteignir í
þéttbýli. Nefndin telur eðlilegt að
sumarhúsahverfí séu merkt við þjóð-
veg af sveitarfélögunum í samvinnu
við Vegagerð ríkisins og götur og
lóðir séu merktar af framkvæmdaað-
ila, landeiganda, sveitarfélagi eða
félagi sumarhúsaeigenda í hverfinu.
Hjón alvar-
lega slösuð
eftír harðan
árekstur
HJÓN slösuðust alvarlega í árekstri
jeppa og fólksbíls síðdegis í gær á
gatnamótum svokallaðs kísilvegar
og þjóðarvegar nr. 85 sem liggur
um Áðaldal. Gatnamót þessi eru á
móts við Laxamýri, um 10 km fyr-
ir sunnan Húsavík.
Hjónin voru í fólksbílnum og óku
þau til norðurs úr Aðaldal í átt til
Húsavíkur. Jeppinn kom úr austur-
átt niður Reykjahverfi eftir kísilvegi
að gatnamótum hans og þjóðvegar
85. Nota þurfti tæki til að ná mann-
inum, sem var í farþegasæti fólks-
bílsins, út úr bílnum.
Brotin og sködduð í andliti
Hjónin voru flutt með tveimur
sjúkrabílum á Fjórðungssjúkrahús-
ið á Akureyri. Þau eru bæði mikið
slösuð, með beinbrot og sködduð í
andliti, en ekki í lífshættu. Þau
gengust bæði undir aðgerðir í gær.
Ókumaður jeppans fór á heilsu-
gæslustöðina á Húsavík þar sem
gengið var úr skugga um að hann
væri ómeiddur. Jeppinn er eitthvað
skemmdur en fólksbíllinn er gjör-
ónýtur.
Að sögn varðstjóra í lögreglunni
var allt fólkið í bílbeltum og telur
hann fullvíst að mun verr hefði far-
ið ef svo hefði ekki verið.
Nefndin er sammála um að leggja
til við félagsmála- og umhverfís-
ráðuneyti að þau beini þeim tilmæl-
um til sveitarstjórna að fulltrúi/full-
trúar félags eða samtaka sumarbú-
staðaeigenda í sumarhúsahverfum
verði boðaðir á fundi nefnda vegna
hagsmunamála þeirra. Vegna óskar
um ruslagáma telur nefndin að sveit-
arstjórnir skuli í samráði við heil-
brigðisnefnd setja upp ruslagáma í
nánd við sumarbústaðahverfí. Ef
fleiri en 20 sumarhús eru í hverfinu
skuli staðsetning gámsins vera sem
næst hverfinu og/eða þannig að
hentugt sé að losa í gáminn á leið
frá hverfmu.
Nefndin telur eðlilegt að félags-
málaráðuneytið kanni í samráði við
dómsmalaráðuneytið hvort ekki sé
ástæða til að bæta inn í þinglýsing-
arlögin ákvæði þess efnis að kaup-
og leigusamningum um sumarhúsa-
lóðir verði ekki þinglýst nema fyrir
hggi yfirlýsing um veðbandalausn,
þegar það á við, eða yfirlýsing nýs
rétthafa um að hann sætti sig við
veðböndin.
Nefndin leggur til að notað verði
staðlað samningaform vegna kaupa
og leigu fyrir sumarbústaðalóðir og
telur eðlilegt að um sumarhúsa-
hverfí gildi sömu ákvæði, eftir því
sem við á, og um fjöleignarhús.
Nefnd um réttindi o g skyldur sumarhúsaeigenda skilar niðurstöðum
Fasteigiia-
skattur lækki
um 20 til 25%