Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli Rannsóknir á mýlildismeinum Framlag íslenskra vísindamanna hlýt- ur viðurkenningu YPIRLITSGREIN eftir íslenska sér- fræðinga um heilablæðingar vegna svonefndra mýlildisæðameina er birt í nýjasta hefti hins virta fræði- rits Brain Pathology, sem aiþjóðafé- íag taugameinafræðinga gefur út. Þetta hefti tímaritsins er helgað fræðslu um amyloidsjúkdóma, sem á íslensku hafa verið nefndir mýlild- issjúkdómar. Meðal þeirra eru heila- bilunarsjúkdómar eins og Alzhei- mersjúkdómur, arfgengar heila- blæðingar vegna mýlildisæðameina, prionmýlildismein, sem valda Cre- utzfeldt-Jacobsveiki og fleiri sjúk- dómum og riðuveiki í kúm, sauðfé og fleiri dýrategundum. í ofangreindu hefti er að finna yfirlitsgrein um heilablæðingar vegna mýlildisæðameina, sem þekkt eru í íslenskum ættum og rannsak- aðar hafa verið af læknum og öðrum vísindamönnum hérlendis og erlend- is í meira en hálfa öld. Greinarhöf- undar eru ísleifur Ólafsson yfir- læknir, Leifur Þorsteinsson ónæmis- fræðingur og Ólafur Jensson, fyrr- verandi yfirlæknir og prófessor. Erfðaræðideild Blóðbankans hef- ur starfað að rannsóknum á arf- gengum heilablæðingum vegna mýl- ildisæðameina í tvo áratugi í sam- vinnu við taugalækningadeild Land- spítalans, Rannsóknarstofu Háskól- ans í meinafræði við Barónsstíg, Rannsóknarstofu Háskólans í efna- fræði og Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum. Að sögn Ólafs Jenssonar hefur samstarf við erlenda vísindamenn í Bandaríkjun- um og Svíþjóð verið mikið og skipt sköpum fyrir framgang og mikil- vægan árangur á rannsóknartíman- úm. Ríkisspítalar hafa að mestu stað- ið undir kostnaði við rannsóknar- starfið hérlendis. Að sögn Ólafs skipar líknarfélagið Heilavernd sér- stakan heiðursess á meðal styrktar- aðila en árið 1986 safnaði það með aðstoð útvarpsstöðvarinnar Bylgj- unnar milli fimm og sex milljónum króna og var þeirri upphæð að stór- um hluta varið til að tækjavæða erfðafræðideild Blóðbankans. Síð- asta áratug hefur Heilavernd verið sterkasti stuðningsaðili þessara rannsókna hérlendis en mikilvægur stuðningur hefur einnig komið frá Vísindasjóði íslands og Blóðgjafafé- lagi íslands. Ólafur Jensson segir að rann- sóknarstarfi íslenskra og erlendra vísindamanna sé sýnd mikilsverð viðurkenning með birtingu greinar- innar í Brain Pathology um þessar rannsóknir á arfgengum heilablæð- ingum í íslenskum ættum. Göngin orðin 40 metrar STÖÐUGT er sprengt í Hvalfjarð- argöngunum að norðanverðu og undirbúningur undir sprengingar að sunnanverðu gengur sam- kvæmt áætlun. Að sögn Hermanns Sigurðsson- ar staðarverkfræðings er búið að sprengja tæpa 40 metra á rúmum tveimur vikum norðanmegin í Hvalfirði. Að sunnanverðu er ver- ið að styrkja stafninn, þ.e. bergið þar sem byrjað verður að sprengja. Bolta þarf bergið og styrkja til að ekki hryi\ji úr því þegar til sprenginga kemur. Her- mann segir að ekki verði farið að sprengja fyrir neðan sjávarmál fyrr en eftir nokkra mánuði. Hér sést Ulle Poulsen verkfræðingur fylgjast með þar sem verið var að steypuþétta inni í göngunum að. norðanverðu eftir sprengingu. BM Vallá ehf. fær gæðavottun samkvæmt alþjóðlegum staðli Andlát ÞORODDUR TH. SIGURÐSSON BM VALLÁ ehf. og dótturfyrir- tæki þess Vikurvörur ehf. á Þor- lákshöfn fengu gæðavottun sam- kvæmt alþjóðlegum staðli um gæðakerfi er kallast ISO 9001. BM Vallá er fyrsta byggingar- fyrirtækið hér á landi til að fá slíka vottun og einnig það fyrsta sem starfar einungis á innanlands- markaði. Davíð Oddsson forsætisráð- herra afhenti Víglundi Þorsteins- syni, framkvæmdastjóra BM Vall- ár ehf., vottunarskírteinin. Víg- lundur sagði að það væri vel til fundið að fyrirtækið fengi vottun- ina í ár þar sem fyrirtækið ætti 40 ára afmæli. Hann sagði að gæðastjórnun byggist á að farið sé eftir skýrum reglum og menn vinni hlutina eins frá degi til dags svo ekki sé sveifla þar á eða óregla í framleiðslunni. Kjartan Kárason, fram- kvæmdastjóri Vottunar hf., sagði að BM Vallá ehf. og Vikurvörur ehf. væru 14. og 15. fyrirtækin á íslandi sem fengu ISO 9000 gæða- vottun. BM Vallá ehf. væri fyrsta byggingarfyrirtækið og einnig það fyrsta sem starfar eingöngu á inn- lendum markaði sem fengi slíka vottun. Gæðakerfið snúist um að hafa þau tæki og tól sem þurfi til að framleiða góða og gallalausa vöru, í samræmi við þá staðla sem ISO (International Standard Org- anisation) gefur upp. Fylgst verði með þeim fyrirtækjum sem fengið hafa vottunina og vonandi verði ávinningurinn sá að fyrirtækið smiti út frá sér og fleiri fylgji í kjölfarið. Guðmundur Benediktsson, að- stoðarframkvæmdastjóri BM Vall- ár, segir að mikið starf hafi verið unnið í nokkur ár til þess að fá vottunina. „Samstarf hófst með fyrirtækinu Ráðgarði hf. fyrir um 10 árum og stendur það enn. Undirbúningur fyrir vottunina hef- ur staðið sl. 3 ár. Allt framleiðslu- ferli fyrirtækisins hefur verið endurskoðað svo og eftirlit, skipt- ing ábyrgðar, skipulag og þjálfun starfsfólks. Segja má að fyrirtæk- ið hafi verið skipulagt frá grunni.“ Vottun hf. er sjálfstætt hlutafé- lag í eigu 15 hagsmunaaðila, s.s. Samtaka iðnaðarins, Verslunar- ráðs og Félags íslenskra stórkaup- manna. ÞÓRODDUR Thorodds- en Sigurðsson, fyrrum vatnsveitustjóri í Reykjavík, lést í Land- spítalanum í gærmorg- un, á sjötugasta og fjórða aldursári. Þór- oddur fæddist 11. októ- ber 1922 á Geirseyri við Patreksfjörð, sonur Sig- urðar Ándrésar Guð- mundssonar, skipstjóra og bónda, og Svandísar Árnadóttur húsmóður. Þóroddur varð stúd- ent frá Menntaskólanum á Akureyri 1943, lauk fyrrihlutaprófi í verk- fræði frá HÍ árið 1946 og prófi í vélaverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole í Kaupmannahöfn árið 1950. Hann starfaði sem verkfræðingur hjá Atlas A/S í Kaupmannahöfn 1950-51, hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1951-58, en það ár varð hann vatnsveitustjóri í Reykjavík. Þóroddur gegndi því starfi til árs- ins 1993. Þóroddur var for- maður fasteignamats- nefndar Reykjavíkur 1964-71, í millimats- nefnd 1971-73, sat í stjóm Hitaveitu Suður- nesja 1975-82, átti sæti í Orkuráði 1979-95 og í stjórn Orkustofnunar 1985-95. Hann hlaut heiðursmerki Verk- fræðingafélags íslands í fyrra. Eftirlifandi eiginkona Þórodds er Kristín Guðbjörg Guðmundsdóttir, en þau gengu í hjónaband árið 1947. Börn þeirra eru fjögur, Margrét, Sig- urður Andrés, Guðmundur og Þór- oddur Ari. Morgunblaðið/Ásdís DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, afhendir Víglundi Þorsteins- syni, framkvæmdastjóra BM Vallár ehf., vottunarskírteininí Rannsókn á notkun getnaðar- varnapillunnar hér á landi Notendur yngri en áður NOTKUN getnaðarvarnapill- unnar hefur drégist saman hjá konum eldri en 30 ára en auk- ist hjá yngri konum á árunum 1965 til 1989 að því er fram kemur í grein um rannsókn fjögurra íslenskra lækna í nýút- komnu Læknablaði. Við rann- sóknina var stuðst við upplýs- ingar úr gagnasafni Leitar- stöðvar Krabbameinsfélags ís- lands. Upplýsingarnar gefa til kynna að 20% íslenskra kvenna á barneignaaldri noti getnaðar- varnapilluna. í greininni kemur fram að gagnasöfnun Leitarstöðvarinn- ar hafi hafist árið 1964. Frá upphafi hefur verið spurt um notkun getnaðarvarnapillunnar og frá 1975 um tímalengd notk- unar. Allan tímann hefur verið spurt um núverandi notkun og frá árinu 1971 um fyrri notkun. Frá árinu 1979 hefur tegund veri skráð. Á árunum 1964 og 1971 til 1974 voru upplýsingar um notkun getnaðarvarnapill- unnar ófullnægjandi og er þeim sleppt í rannsókninni. Stuðst var við upplýsingar frá konum á aldrinum 20 til 44 ára eða alls 112.388 svör. Helstu niðurstöður Fram kemur að yfir. 90% kvenna, yngri en 52 ára, höfðu prófað pilluna. Hins vegar hafði fimmtungur hópsins hætt notkun eftir ár eða fyrr. Þriðj- ungur hafði notað getnaðar- varnapilluna lengur en fjögur ár. Notkunin dróst saman hjá konum eldri en 30 ára á tíma- bilinu en jókst hjá yngri kon- um. í aldurshópnum 29 til 36 ára höfðu 80% hafið notkun fyrir tvítugt og 33% fyrir 17 ára aldur. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að með tímanum hefur orðið tilfærsla hjá eldri neytend- um til yngri hópa en á nokkuð misjöfnum tímum eftir löndum. Fyrst eftir að pillan kom á markaðinn var algengt að tak- marka notkun við giftar konur en í Bretlandi jókst. notkun meðal kvenna undir tvítugsaldri hratt á árunum 1970 til 1975. Niðurstöður íslensku rannsókn- arinnar benda til þess að aukin notkun undir tvítugsaldri hafi orðið á svipuðum tíma á íslandi og í Bretlandi. 40 til 50 skammtar á 1.000 íbúa í greininni kemur fram að samkvæmt sölutölum frá heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu hafi eingöngu verið notuð samsett einfasa getn- aðarvamapilla hér á landi á árunum 1975 til 1983. Þá kom raðpillan á markaðinn og hefur sala hennar aukist jafnt og þétt síðan á kostnað samsettu teg- undarinnar. Hlutur hennar af sölunni var orðinn 36% árið 1992. Árið 1989 hófst sala á míní-pillunni og var hlutur hennar orðinn 4% árið 1992. Samanlögð neysla allra tegunda var á bilinu 40 til 50 skammtar á 1.000 íbúa á dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.