Morgunblaðið - 15.06.1996, Page 12
12 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETAKJÖR ’96
FORSETI íslands er sem
þjóðhöfðingi yfirmaður
þjóðkirkjunnar. Honum
er hins vegar ekki skylt
að vera í þjóðkirkjunni. Þrátt fyrir
ákvæði stjómarskráinnar um trú-
frelsi ber ríkisvatdinu, og þar með
forseta íslands, að styðja og
vemda þjóðkirkjuna. Forsetanum
er þess vegna ekki heimilt að vinna
gegn þjóðkirkjunni því þar með
væri hann farinn að bijóta embætt-
isskyldu sína.
„A íslandi er þjóðkirkja og ríkis-
valdinu ber að styðja hana og
vemda. Málum kirkjunnar hefur
verið skipað þannig að löggjafar-
og framkvæmdavald fer með
ákveðin ytri málefni kirkjunnar
viðvíkjandi skipun presta, presta-
kallaskipanina og fleira. Innri mál-
efni kirkjunnar em hins vegar al-
veg á hennar valdi sjálfrar í gegn-
um kirkjuþing og prestastefnu,"
segir dr. Einar Sigurbjörnsson,
prófessor við guðfræðideild Há-
skóla íslands.
Forsetanum ber að styðja
o g vernda þjóðkirkjuna
„Að því leyti sem þessi ytri
umbúnaður kirkjunnar heyrir undir
Alþingi og ríkisstjórn varðar þetta
forseta íslands því hann er þjóð-
höfðinginn og handhafi þessa valds
þó að hann feli ráðhermm að fara
með ábyrgðina. Það er því hægt
að kalla hann æðsta yfirmann
kirkjunnar að þessu leyti, en hann
er þó yfirmaður eingöngu í form-
legri merkingu orðsins því það em
engin ákvæði hvorki í stjómarskrá
né lögum, sem binda forsetann við
tiltekna kirkjudeild," sagði Einar.
Staða þjóðhöfðingja Noregs er
allt önnur
Fróðlegt er að bera saman stöðu
norska þjóðhöfðingjans og norska
kirkjumálaráðherrans við _ stöðu
starfsbræðra þeirra á íslandi.
Norsk lög kveða skýrt á um að
Noregskonungur skuli vera í
norsku þjóðkirkjunni. Kirkjumála-
ráðherrann verður sömuleiðis að
vera í þjóðkirkjunni. Þegar fjallað
er um kirkjuleg málefni í norsku
ríkisstjóminni mega þeir einir
standa að ákvörðuninni sem em
skráðir í þjóðkirkjuna. M.ö.o. verða
ráðherrar, sem ekki em í þjóðkirkj-
unni, að vfkja af ríkisstjómarfund-
um þegar ijallað er um málefni
norsku þjóðkirkjunnar.
Á íslandi em engin sambærileg
ákvæði. Bæði forsetinn og kirkju-
málaráðherrann mega koma úr
hvaða trúfélagi sem er. Þannig
má hugsa sér að sú staða komi
upp að forseti íslands sé kaþólsk-
ur, en sé samt yfirmaður íslensku
þjóðkirkjunnar.
Einar sagði að í sjálfu sér væri
hægt að hugsa sér að slík staða
kæmi upp. Það yrði þó að hafa í
huga að yfír 90% þjóðarinnar til-
heyrðu þjóðkirkjunni. „Jafnvel þó
að slík staða kæmi upp myndi það
í engu tilfelli hafa nein áhrif á hið
innra starf kirkjunnar."
Forsetinn sækir ekki
kirlguþing
Það er hefð að forsetinn sæki
ýmsa fundi sem haldnir
era árlega. Forseti ís-
lands er t.d. ætíð við-
staddur setningu búnað-
arþings. En forsetinn er
hins vegar að jafnaði
ekki viðstaddur setningu kirkju-
þings eða prestastefnu. Þess em
þó dæmi að forsetinn hafi verið
viðstaddur þessa fundi við sérstök
tilefni. Þegar herra Sigurbjöm Ein-
arsson biskup lét af biskupsemb-
ætti árið 1981 var prestastefnu
Dr. Gunnar G. Schram lagaprófessor telur
að lýsi forseti íslands því yfír að hann trúi
ekki á guð sé hann að ganga gegn 62. grein
stjómarskrárinnar, en þar segir að ríkisvald-
inu beri að styðja og vemda þjóðkirkjuna.
Eftir sem áður veiti stjómarskráin forseta,
sem og öðmm landsmönnum, rétt til trúfrels-
is. Egill Olafsson skoðaði tengsl forseta-
embættisins og þjóðkirkjunnar.
Forseti form-
lega yfirmaA-
ur kirkjunnar
slitið að Bessastöðum að forsetan-
um viðstöddum.
Dr. Gunnar G. Schram lagapró-
fessor sagði að um forsetaemb-
ættið hefðu skapast margs konar
hefðir og ein þeirra væri áð hann
væri að jafnaði hvorki viðstaddur
setningu kirkjuþings né presta-
stefnu. „Forsetinn er ekki starf-
andi sem yfirmaður þjóðkirkjunn-
ar. Hann gegnir ekki kirkjulegu
hlutverki í íslenskri stjórnskipun
og vinnur ekki
kirkjuleg emb-
ættisverk. Það
eru engin lagaá-
kvæði til sem
fela honum slíkt
hlutverk.“
Við margvís-
leg hátíðleg
tækifæri er for-
setinn viðstaddur guðþjónustu.
Hann er t.d. ávallt viðstaddur setn-
ingu Alþingis og biskup íslands
og forsetinn ganga hlið við hlið
úr Dómkirkjunni í Alþingishúsið.
Gunnar sagði að forsetinn ynni
engin embættisverk fyrir kirkjuna.
Kirkjumálaráðherra ynni þau verk
í umboði forseta. Forsetinn gæfi
hins vegar út skipunarbréf presta
og biskupa eins og annarra emb-
ættismanna. Kosning
presta og biskupa öðlað-
ist ekki gildi fyrr en for-
seti hefði undirritað
skipunarbréf þeirra.
Má ekki vinna gegn
þjóðkirkjunni
í 62. grein stjómarskrárinnar
segir: „Hin evangeliska lúterska
kirkja skal vera þjóðkirkja á ís-
landi, og skal ríkisvaldið að því
leyti styðja hana og vemda.“ Að
öðm leyti en þessu er ekki vikið
að skyldum forsetans við þjóðkirkj-
una í stjórnarskrá eða lögum.
„Það er raunvemlega ekki hægt
að krefjast annars af forsetanum
en að hann gangi ekki gegn hags-
munum þjóðkirkjunnar. Honum ber
samkvæmt 62. grein stjómarskrár-
innar að styðja og vemda þjóðkirkj-
una. Þetta era skyldur sem þjóð-
höfðinginn hefur af því að hann er
hluti af ríkisvaldinu. Ég tel að það
gengi ekki að
hann tæki virk-
an þátt í öðram
trúarsöfnuðum
eða mælti gegn
þjóðkirkjunni.
Þá væri hann
farinn að bijóta
embættisskyldur
sínar."
Gunnar var spurður hvort for-
seti sem lýsti því yfir að hann tryði
ekki á guð væri þar með farinn
að vinna gegn þjóðkirkjunni.
„Þetta er matsatriði. Honum ber
samkvæmt þessu ákvæði að styðja
og vemda þjóðkirkjuna. Ef hann
segist vera trúlaus jaðrar við að
hann sé að lýsa vanþóknun sinni
á þjóðkirkjunni og þar með jaðrar
við að hann sé farinn að bijóta
þetta ákvæði og þar með
vanrækjá embættis-
skyldu sína. Það er hins
vegar ekki beinlínis
hægt að banna honum
að gefa yfirlýsingar um
trúleysi vegna þess að við höfum
í stjómarskránni ákvæði um trú-
frelsi. Það er að sjálfsögðu munur
á hvort forsetinn heldur trúieysi
sínu fyrir sig og segir engum frá
því eða hvort hann lýsir yfir trú-
leysi í ræðu og riti. Eg tel því að
Yffrlýsíngar
um trúleysi
ekki bannaðar
yfirlýsingar forsetans um trúleysi
myndu ganga gegn þessu ákvæði.“
Kirkjan vill þjóðkirkjumann á
forsetastóli
Einar Sigurbjömsson sagði að
það skipti að sjálfsögðu máli fyrir
þjóðkirkjuna að forseti íslands
væri sannkristinn og tryði á guð.
„Mér finnst það skipta miklu
máli að forsetinn sé í þjóðkirkjunni
og sé trúaður maður eins og mér
finnst um alla menn í okkar þjóðfé-
lagi. Þetta er æðsta embætti
þjóðarinnar og þess vegna finnst
mér það skipta enn meira máli,“
sagði séra Helga Soffía Konráðs-
dóttir, prestur í Háteigskirkju.
„Ég ætti afar erfitt með að
sætta mig við ef forseti íslands
væri beinlínis andsnúinn kirkj-
unni. Ég trúi ekki að það séu
miklar líkur á að slík staða komi
upp. Ef kosinn yrði forseti sem
væri ekki kristinn maður og ekki
trúaður þá treysti ég því að hann
léti ekki einkaskoðanir sínar á
trúmálum spilla fyrir málefnum
kirkjunnar."
Helga Soffía sagði að forsetinn
væri að þessu leyti í ekki ósvip-
aðri stöðu og prestarnir. Þeir
mættu hafa skoðanir á öllum hlut-
um, en sem embættismenn þjóð-
kirkjunnar bæri þeim að haga
skoðunum sínum og gjörðum í
samræmi við reglur kirkjunnar.
Helga Soffía sagði að þó það
skipti miklu máli fyrir kirkjuna að
forseti íslands væri kristinn bæri
forsetnum að gæta hlutleysis
gagnvart þeim sem stæðu utan
þjóðkirkjunnar. Forseti yrði að ljá
eyra skoðunum annarra trúarhópa
og skoðunum fylgismanna aðskiln-
aðar ríkis og kirkju.
Helga Soffía sagðist hlusta eft-
ir því sem frambjóðendur til emb-
ættis forseta íslands segja um
trúmál og sér þætti vænt um að
heyra frambjóðendur lýsa því yfir
að þeir tryðu á guð. Hún sagðist
hins vegar ekki láta það ráða vali
sínu í kosningunum. Að sínu mati
-------- skipti ekki máli hvaða.
skoðun frambjóðendur
hefðu á trúmálum í fort-
íðinni. Kristin trú gerði
________ ráð fyrir því að menn
gætu skipt um skoðun.
Það sem skipti máli væm trúar-
skoðnir forsetans, eftir að hann
hefur verið kjörinn og hvernig
hann kemur fram við kirkjuna.
Hingað til hefðu samskipti forset-
ans og þjóðkirkjunnar verið mjög
góð.
Forseta-
frambjóð-
endur á ferð
og flugi
FORSETAFRAMBJÓÐENDUR
verða á ferð og flugi um helgina til
að kynna sín framboð.
Frambjóðendurnir verða i beinni
útsendingu Junior Chambers í sam-
vinnu við RÚV frá Perlunni milli kl.
14-16.30. Þetta er opinn borgara-
fundur á Rás 1 og Rás 2.
Guðrún Pétursdóttir
Annað kvöld fer Guðrún Péturs-
dóttir á píanótónleika með Evgeny
Kissin á vegum Listahátíðar. Á
sunnudag verður Guðrún á Akureyri
og tekur þátt í Kvennahlaupinu. Kl.
15 verður hún við opnun kosninga-
skrifstofu sinnar á Akureyri. Kl.
16.30 fer hún í viðtal á RÚVAK.
Um kvöldið verður hún í stúdenta-
fagnaði í MA. 17. júní verður hún á
Háskólahátíð í Laugardalshöll sem
hefst kl. 13.30. Milli 16-19 verður
hún í kosningamiðstöðinni við Aust-
urvöll þar sem er opið hús.
Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson verður
með hverfafundi í Garðabæ og Sel-
fossi á morgun. Á sunnudag kemur
hann fram á Rás 1 og síðar sama
dag verða tveir hverfafundir, annar
í Perlunni og hinn um kvöldið í fé-
lagsheimilinu í Kópavogi. 17. júní
taka þau hjón á móti gestum frá kl.
15 í kosningamiðstöðinni á Hverf-
isgötu 33.
Guðrún Agnarsdóttir
Guðrún Agnarsdóttir verður á
Akureyri í dag. Hún heldur fund á
Kaffi Krók á Sauðárkróki kl. 21.
Síðan heldur hún til Siglufjarðar þar
sem hún heldur fund kl. 14 á sunnu-
dag á Kaffí Læk. Guðrún heldur
ásamt eiginmanni sínum, Helga
Valdimarssyni, upp á 40 ára stúd-
entsafmæli hans á Akureyri.
Kl. 16 17. júní verður Guðrún við
opnun kosningaskrifstofu sinnar á
AkranesL Kl. 21-23 verður opið hús
í Sólon íslandus þar sem Guðrún
hittir ungt fólk.
Pétur Kr. Hafstein
Pétur Kr. Hafstein verður með
morgunkaffí frá kl. 10-13 á torgi
verslunarmiðstöðvarinnar á Eiðistorgi
í dag. Seinna um daginn, kl. 17, vérð-
ur hverfafundur í félagsheimili Kópa-
vogs. Pétur verður með hverfafund í
Fjörgyn í Grafarvogi kl. 16. á sunnu-
dag og kl. 20.30 í Félagsbæ í Borgar-
nesi. 17. júní tekur Pétur þátt í hátíð-
arhöldunum í miðborginni og verður
við á kosningaskrifstofunni.
Ástþór Magnússon
Ástþór Magnússon situr fyrir svör-
um á veitingastaðnum Ártúni kl. 22.
Á sunnudag verður Friðarvaka á
Hótel Keflavík kl. 20.30. 17. júní
verður Ástþór við hátíðarhöld í mið-
borg Reykjavíkur og tekur á móti
gestum á kosingaskrifstofunni
Tryggvagötu 26 kl. 16-18.
Borgin lánar
frambjóðend-
um Tjarnarsal
BORGARYFIRVÖLD hafa ákveðið
að lána forsetaframbjóðendunum
fímm Tjamarsal Ráðhússins til fund-
arhalda. Ástþór Magnússon reið á
vaðið á fimmtudagskvöld með fundi
í salnum og þá hefur Guðrún Agnars-
dóttir bókað hann til afnota 26. júní.
„Við viljum með þessu móti koma
til móts við frambjóðenduma því okk-
ur er Ijóst að þetta er kostnáðar-
samt,“ segir Kristín Ámadóttir að-
stoðarkona borgarstjóra. Ákveðið var
fyrir ári að rýmka reglur um notkun
Tjamarsalarins, segir Kristín, og
leigja hann út til opinberra aðila gegn
tilteknu gjaldi. Forsetaframbjóðend-
umir fá salinn hins vegar til afnota
endurgjaldslaust og hafa tveir þeirra
þegar nýtt sér tækifaerið.