Morgunblaðið - 15.06.1996, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
VIKU
LWK
MORGUNBLAÐIÐ
Skriplað á
C^h^JvbnE&m*
mkatu
,*» IlNMte r—wáte' yíti/
Tölvugeisladiskar eru
ÞAÐ GEFUR auga-
leið að tölvugeisla-
diskar, sem rúmað
geta hundruð þúsunda
síðna af texta og ógrynni
mynda, eru vel til þess
fallnir að geyma alfræðirit
og þau eru þegar mörg
komin á markað. Fyrir
rokkáhugamenn er þó
ekki um auðugan garð að
gresja, reyndar er ekki
nema einn rokkalfræ’ði-
diskur sem stendur undir
nafni. Sá er úr smiðju
danska blaðamannsins
Jans Sneums, sem margir
íslendingar kannast
við, enda hefur hann
verið iðinn við að
kynna íslenska
rokktónlist í heima-
landi sínu. Diskurinn
hans Sneums heitir
Intemational Rock
Digilex og Erland-
sen Media Publish-
ing gaf hann út fyrir
skemmstu. Þar á er
margt fróðlegt og
segja má að hvaða
rokkáhugamaður
til margra hluta nýti-
legir; það má búa til úr
þeim óróa og glasa-
mottur, en ekki síst má
fræðast með aðstoð
þeirra. Árni Matthías-
son sökkti sér í dansk-
an rokkalfræðadisk og
komst að því að hann á
sitthvað eftir ólært.
UlÉ3M£
«»> timsae ítt-bí* : mWm < „—
sem er geti fundið ýmislegan fróðleik, þvi
sviðin eru mörg og fæstir kunna skil á þeim
öllum; rokk, sýrutónar, þungarokk, rapp,
reggí, popp, rapp, fónkdjass og svo mætti
lengi telja. 2.000 hljómsveitir eru nefndar í
upptalningunni og alls koma 21.000 lista-
menn við sögu og á þriðja tug þúsunda platna
eru nefndar. Fjölmöpg hljóðdæmi eru á
disknum, en aftur á móti minna um hreyfi-
myndir, því þær taka fullmikið rými. Ekki er
minnst um vert að miklir og tæmandi plötu-
listar eru á disknum og svo má nefna ýmsan
fróðleik um rokksöguleg efni, hljóðfæraþró-
un og notkun, sem fram fer á linri Kaup-
mannahafnardönsku.
gaman að sjá hvaða aug-
um sá virti rokkfræði-
maður lítur íslenskt tón-
listarlíf. Þannig nefnir
hann sveitir eins og
Unun, Van Houtens
kókó, Risaeðluna, Ham
og Mezzoforte án þess
að geta frekar um þær,
sýna myndir eða gefa
tóndæmi. Björk er aftur
á móti fyrirferðarmikil,
Sykurmolamir og Kukl.
Bubbi Morthens fær
sinn skammt og tón-
dæmi, Háflóð, eða „Há-
flóó“, eins og það er
skrifað. Megasar er
einnig getið og
heyra má glefsu úr
Pækluðum plómum,
Fjórar myndir eru
sagðar af Sykur-
molunum, en reynd-
ar er ein þeirra af
Unun þegar grannt
er skoðað. Varla er
nema von að skripl-
að hafi á skötu þeg-
ar verið er að raða
inn upplýsingum
um á þriðja tug þús-
GERVIHNATTASIMI
í TÖSKUNNI
Aldrei urtan
þjánustu-
EncyKiopædl
JjSíc/V.
ft
unda listamanna, en fleiri skekkjur má tína
til, til að mynda að Björk er sögð dóttir Guð-
mundar Benediktssonar stórpoppara, en
eins og alþjóð veit er Guðmundur Gunnars-
son verkalýðsfrömuður faðir hennar. Þrjár
myndir eru sagðar af Kuklinu, sem er sér-
staklega getið sem fyrirrennara Sykurmol-
anna, en þær myndir eru reyndar allar af
Þeysurum.
ÍEncvHopEai
■Eisisfrafi
Óþrjútandi
uppspretta upplýsinga
Elaggt er gests augað
Eins og áður er getið hefur aðalhöfundur
ritsins, Jan Sneum heimsótt Island
nokkrum sinnum og fyrir Islendinga er
Að þessum villum frátöldum er diskurinn
óþrjótandi uppspretta upplýsinga og ekki
skemmir að á honum er 2.000 spurninga
leikur sem reynir vissulega á þolrifin, því
innan um léttar spurningar eins og í hvaða
hljómsveit var söngvarinn merki Henning
Stærk trommuleikari, eru erfiðar spurning-
ar eins og þessi: Hve mörg eintök hafa selst
af plötu þýsku hljómsveitarinnar Die Toten
Hosen Ein kleines bisschen Horrorschau.
Svarið við fyrri spuringunni vita auðvitað
allir sem eitthvað vita, Gnags, hvað annað,
en í seinni spurningunni eru gefnir fimm
möguleikar, og reyni hver sem betur getur,
ea. 35.000, ca. 75.000, ca. 150.000, ca. 5.000
eða ca. 500.000.
ALGENGT er símnotendur fái þau skilaboð
að farsími sé utan þjónustusvæðis. Nú geta
þeir sem þola ekki að vera sambandslausir
tekið gleði sína svo um munar því hægt er að
fá handhægan farsíma og hringja með honum
um Inmarsat gervihnattakerfíð hvaðan á jörð-
inni sem er og hvert sem er. Það er því lítið mál
að hringja frá Hornströndum til símavina í Sa-
hara-eyðimörkinni eða spjalla við kunningja á
Smuguveiðum í Barentshafi. Eins getur verið
gott að eiga svona tæki í handraðanum ef síma-
kerfið bilar svo um munar.
Vikulokin rákust á símtæki af þessu tagi frá
Magellan fyrirtækinu og nefnist gripurinn
microCOM-M. Tækið vegur tvö og hálft kíló.
Sjálfur gervihnattasendirinn er 17 sentimetra
breiður, 29 sm hár og 7 sm þykkur meðan
skermurinn er samanbrotinn. Eigi að hringja
úr tækinu er skermurinn opnaður líkt og bók.
________________ Við sendinn er tengd
tveggja metra símasnúra
og tækið er knúið af raf-
hlöðum eða tengt við vind-
lingakveikjara í bíl. Hægt
er að fá burðartösku með
ýmsum aukahlutum og
tækinu fylgir áttaviti svo
notandinn viti í hvaða átt
er helst að vænta gervi-
tungla.
Símtækinu fylgir símakort
sem stungið er í tækið, líkt
og kort eru sett í GSM-far-
síma. Munurinn er sá að
símtöl í gervihnattasíman-
um eru greidd fyrirfram og
fylgir þessu tæki kort með
100 mínútna notkun inni-
falinni. Síðan geta ménn
hringt í miðstöð og látið
hlaða kortið gegn greiðslu.
Þessi farsími er ekki alveg gefinn, tækið, 100
mínútna símkort, notkunarhandbók og áttavit-
inn kosta tæpa 10 þúsund dollara, eða um 680
þúsund krónur. Þá er hægt að kaupa sérbúna
tösku með aukahlutum sem kostar tæpa 1800
dollara eða rúm 120 þúsund. Aukarafhlaða
kostar samt ekki nema þúsund dollara eða 68
þúsund krónur! Það er því von um að þessi sími
geti orðið hið bærilegasta stöðutákn í afkimum
heimsins.
hJaiídsk sangeríntte, traisikcr
09 saa»a3kiN'ef.l»jl Bjúfk
GwAmurKis'íónir ?2.navemtw‘'
WSI Rt-ykjttvik. Hunwk-tfdí1
op I et "biþpiekol'eWw” uden
lof HevkiiMk IH’ndostíM vji
Guó’nulKtuf BcfKídMjtíon, &.v
tbagyrHlelson af 70'eine
spuiiede eiflwaf í
Sclitíss-a'tippcfi
8{0/k Ckrvmagot Iiiagl
siRefesseret i aðng og i bado
jaíí, pop oð ktossisk musíK
Hcat 'p deotíe.'eoc 10901 navn
ifWKU1)indsjsi*et *
atigusL'stptemter 197/. t’S
hun ftla. D!okl)»,ic.
11981 bíevBiotk medíefn cl
pun<s*Lq>pen fapp* rðwr.3ss
(4-5), ðw ivmleren i98i 6?
irwíMfhodc I lírrcn f*o*h i
WöjAjjwír, og i augusl 19S3
Mevhun medlemá* KijA/'
J& 7), dof i 1905 ölevtíl 7Ae
Sugarcubes)
Afhverju myndast sólarexem
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Sólarexem
Spurning; Af hverju myndast sól-
arofnæmi og sólarexem og eru
einhver ráð til að koma í veg fyrir
það?
Svar: Útbrotum sem við fáum af
sólarljósi er oft skipt í tvo flokka,
sólarofnæmi og sólarexem. Ekki
er hægt að hafa ofnæmi fyrir sól-
arljósinu sem slíku en sólin getur
haft þannig áhrif á sum efni
(málma o.íl.) að þau tengjast pró-
teinum í líkamanum og valda of-
næmi.
Ofnæmi af þessum toga er talið
vera frekar sjaldgæft en sólarex-
em mun algengara. Sólarexem
getur verið af ýmsum toga og
sjaldnast er vitað nákvæmlega af
hverju það stafar. Sólarexem lýsir
séreins og mikill sólbruni og kem-
ur einungis á húðsvæði sem sólin
hefur skinið á, sólarofnæmi getur
þar að auki komið á húðsvæði sem
varin voru fyrir sólinni. Sólarexem
getur verið merki um sjúkdóm og
þar kemur m.a. til greina áblástur
(herpes), helluroði (lúpus eða
rauðir úlfar) eða sóri (psoriasis).
Sóri lagast venjulega við sólböð en
í vissum t.ilvikum getur hann
versnað þannig að hægt sé að tala
um sólarexem. Alltaf verður að
hafa í huga þann möguleika að
sum lyf geta gert húðina við-
kvæma fyrir sólarljósi. Þar er um
að ræða fjölmörg lyf eins og sum
súlfalyf (geta verið sýklalyf, þvag-
ræsilyf og sykursýkilyf), geðlyf,
sýklalyf af tetracýklínflokki, litar-
efni og auk þess ýmis lyf sem bor-
in eru á húðina eins og sum sól-
varnarkrem og tjörulyf. Sumar
matjurtir geta eirmig stuðlað að
sólarútbrotum (steinselja, selju-
rót, gulrætur, sinnep, gráfíkjur,
o.fl.) og einnig mætti nefna sætu-
efnið cýklamat og fjöldann allan af
snyrtivörum. Sólvamarkrem gera
venjulega lítið gagn við sólarút-
brotum og sum þeirra geta jafnvel
valdið þeim eins og nefnt hefur
Verkur
í mjaðmalið
verið. Þá er fátt eftir til vamar
annað en að forðast sólböð og
klæða af sér sólarljósið.
Spurning: Ég er 53 ára karlmað-
ur og þegar ég geng mikið fæ ég
verki í mjaðmaliðinn. Getur verið
að ég þurfi að láta skera mig upp?
Svar: í fyrsta lagi er ekki víst að
um sjúkdóm í sjálfum mjaðmar-
liðnum sé að ræða. Annað sem vel
kemur til greina er t.d. bólga í
sinaslíðrum eða vöðvafestingum,
svo kallað festumein. Til að fá
þetta greint þarf að fara til læknis
og oftast verður að taka röntgen-
myndir af liðnum til að fá staðfest
að um sjúkdóm í sjálfum liðnum sé
að ræða. Ef þetta er í mjaðmar-
liðnum er líklegast (skv. lýsingu
bréfritara) að um slitgigt sé að
ræða. Þegar þannig er ástatt hjá
ekki eldri einstaklingi gæti verið
um að ræða aíleiðingar af meiðsl-
um eða bólgu í liðnum, kannski
fyrir löngu síðan; ekki er þó nærri
alltaf um slíka sjúki-asögu að
ræða. Við slitgigt þynnist lið-
brjóskið og yfirborð þess verður
hrjúfara. Liðurinn verður stirðari
og vegna brjóskþynningarinnar
dempar brjóskið ekki eins vel og
áður þau högg sem verða þegar
maður gengur.
Meðferð við þessu er margvís-
leg og ekki er gripið til skurðað-
gerðar fyrr en ýmislegt annað hef-
ur verið reynt. Venjuleg meðferð
við slitgigt í mjöðm er æfingar til
að styrkja vöðva og sinar um-
hverfis liðinn, hitaböð og hita-
bakstrar, mikið getur munað um
að viðkomandi létti sig jafnvel þó
það séu einungis örfá kíló, verkja-
lyf og að síðustu skurðaðgerð. Af
skurðaðgerðum koma ýmis af-
brigði til greina, stundum er lær-
leggurinn tekinn í sundur og ein-
ungis snúið upp á hann eða hann
skekktur, Ef skipt er um lið er
stundum einungis skipt um kúluna
efst á lærlegg en stundum er
Blettur
fyrir auga
einnig skipt um skálina sem situr í
mjaðmargrindinni.
Spurning: Ég fór í smáaðgerð
fyrir ári og missti talsvert blóð.
Síðan þá sé ég dökkan blett fyrir
öðru auganu, en augnlæknirinn
minn sagði fyrir u.þ.b. hálfu ári að
það myndi lagast. Það hefur hins
vegar ekkert breyst?
Svar: Blettur fyrir auga er eitt-
hvað sem þarf athugunar við og er
sjálfsagt fyrir bréfritara að fara
aftur til augnlæknisins og láta at-
huga þetta betur. Læknirinn á að
geta lýst nánar hvað þetta er,
hvort einhver meðferð sé til og
hverjar séu batahorfurnar.
* Lcsendur Murgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á
hjarta og er tekið á móti spurningum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 5691100 og bréfum eða sfmbréf-
um merkt: Vikulok, Fnx 5691222.