Morgunblaðið - 19.12.1996, Side 2

Morgunblaðið - 19.12.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 -i MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ný lögregluembætti Bogi og Harald- ur skipaðir FORSETI íslands hefur skipað Boga Nilsson rannsóknarlög- reglustjóra í embætti ríkislög- reglustjóra frá 1. júlí nk. að telja. Þá hefur forseti skipað Harald Johannessen, forstjóra Fangelsis- málastofnunar ríkisins, í embætti varalögreglustjóra í Reykjavík frá sama tíma. Bogi og Haraldur heQa störf að undirbúningi stofn- unar embættanna um áramót. Við stofnun embættis ríkislög- reglustjóra verður rannsóknarlög- regla ríkisins lögð niður og flytj- ast meginverkefni hennar til emb- ættis lögreglustjórans í Reykjavík og til rannsóknardeilda við lög- reglustjóraembætti víða um land. Þær rannsóknardeildir verða jafn- framt styrktar. Helsta viðfangs- efni embættis ríkislögreglustjóra verður rannsókn á brotum í skatta- og efnahagsmálum. Rannsókn allra sakamála, sem hefur verið hjá RLR, færist til embættis lögreglustjórans í Bogi Nilsson Reykjavík. Embættið í Reykjavík mun því stækka verulega og m.a. mun rannsóknadeild þess verða efld. Þá er stefnt að því að færa stóran hluta ákæruvalds frá ríkis- saksóknara til einstakra lög- reglustjóraembætta. Lögreglu- stjóri í Reykjavík mun því gefa út ákærur og vera ákærandi í þeim málum fyrir héraðsdómi. Varalögreglustjóra er ætlað að vera næstráðandi og staðgengill lögreglustjóra. Ákveðið að efna til 4 ára átaks í skóg- og landgræðslu | 450 mílljóna króna framlag1 tíl aldamóta RÍKISSTJORNIN hefur ákveðið að veita 450 milljónir króna í viðbótar- framlag til landgræðslu og skóg- ræktarverkefna á næstu fjórum árum. Opinber framiög til beinna aðgerða í landgræðslu og skógrækt eru í ár um 253 milljónir króna en verða 403 milljónir árið 2000 sem er um 59% hækkun framlaga. Einnig er gert ráð fyrir framlög- um bænda, sökum þess hversu umfangsmikið átakið er, en óljóst er hversu mikið það verður á um- ræddu tímabili. Binding aukin um 100 þús. tonn Guðmundur Bjarnason landbún- aðar- og umhverfisráðherra greindi frá þessum áformum á fundi í gær og sagði markmiðið að auka bind- ingu koltvíoxíðs í gróðri um 100.000 tonn frá því sem var árið 1990, en talið er að bindingin nú nemi um 50-60.000 tonnum. Þetta markmið er í samræmi við rammasáttmála Sameinuðu þjóð- anna um loftlagsbreytingar sem ríkisstjórnin samþykkti í október 1995. Ráðherra minnti á að auknar stóriðjuframkvæmdir á næstu árum hefðu áhrif á loftslag og því væri einkar mikilvægt að efna til átaks af þessu tagi. Einnig er ætlunin að stöðva jarð- vegsrof og gróðureyðingu á svæð- um þar sem brýnustu aðgerða er þörf og er miðað við upplýsingar um jarðvegsrof sem safnað var saman á seinustu tveimur árum. Búist er við að á næsta ári verði 75 milljónum króna varið til þessa átaks, til viðbótar tæplega 150 milljóna króna opinberu framlagi til landgræðsluaðgerða. Þessi upp- hæð á síðan að fara stighækkandi og ná 150 milljónum árið 2000. Nytjaskógar á Suðurlandi Hluta af framlaginu á að veija til ræktunar nytjaskóga á Suður- landi og segir Jón Loftsson skóg- ræktarstjóri að þar sé að fínna stærstu samfelldu svæði sem henta til nytjaskógræktar. Hann segir áfonn um ræktun skyld átaki um Héraðsskóga sem samþykkt var á Alþingi árið 1991 og hafí það verk- efni gefíð dýrmæta reynslu sem nýtist við áframhaldandi ræktun. Sérstaklega megi benda á að á Suðurlandi gæti mikils áhuga bænda og verði áhersla m.a. lögð á landbótaskógrækt, en í því tilviki er viðarvöxtur ekki meginmarkmið heldur aðrar skógarnytjar. Samgönguframkvæmdum frestað Brugðist við þensluhættu STEFNT er að frestun ýmissa framkvæmda við samgöngumann- virki í landinu til að bregðast við þensluhættu, sem við blasir ef af álversbyggingu og virkjunarfram- kvæmdum verður á næsta ári, segir Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra. Frestunin snertir fyrir- hugaðar framkvæmdir, sem ekki hafa enn verið boðnar út. Halldór segist hafa haft mikinn áhuga fyrir að beita sér fyrir því „að ráðast í það að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll á næsta ári,“ enda hafi „allur undirbúningur og samstarf samgönguráðuneytisins við borgarýfirvöld gengið út frá því“. En vegna hinna miklu vænt- anlegu stóriðjuframkvæmda sé talið óhjákvæmilegt að slá því á frest, „um eitt ár kannski,“ segir ráðherrann. Auk Reykjavíkurflugvallar eru stærstu samgönguframkvæmdim- ar, sem frestað verður, að sögn Halldórs, stækkun Leifsstöðvar og hafnarbætur í Grindavík. Vonazt hafí verið til að hægt yrði að ráð- ast í þessar framkvæmdir á næsta ári, en þær muni nú allar frestast a.m.k. fram á árið 1998 og séu því ekki á lánsfjárlögum næsta árs. samningaviðræðna um endurskoð- un vegaáætlunar, sem hefjast í janúar. Telur ráðherra líklegast að verklokum framkvæmda við Ártúnsbrekku í Reykjavík og breikkun Reykjanesbrautar verði frestað, þar sem þær framkvæmd- ir hafi ekki enn verið boðnar út. Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson BJÖRN Sveinbjörnsson ráðuneytisstjóri í landbúnarráðuneyti, Jón Loftsson skógræktarstjóri, Guð- mundur Bjarnason ráðherra, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Magnús Jóhannesson, ráðu- neytisstjóri í umhverfisráðuneyti, kynntu átakið í gær. Greiðslu ferjuskulda flýtt Einnig hefur verið ákveðið að veija 240 millj. kr. af ráðstöfun- arfé vegasjóðs í að flýta greiðslu uppsafnaðra skulda vegna fjár- festinga í feijunum Heijólfí og Baldri og dregst þessi upphæð frá framkvæmdafé sjóðsins. Hvernig frekari sparnaði í vega- framkvæmdum verður náð bíður Gangandi fyrir bíl GANGANDI vegfarandi varð fyrir bifreið á Miklubraut, rétt austan við Lönguhlíð, skömmu fyrir hádegi í gær. Hann hlaut fótbrot og áverka á höfði og var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Umræður á Alþingi um síldarsamninginn Gæti gefíð fordæmi fyiir Smugima NOKKRIR þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu telja að samkomu- lag íslands, Noregs, Rússlands, Færeyja og Evrópusambandsins um heildarstjóm á veiðum úr norsk- íslenska síldarstofninum eigi að geta verið fordæmi fyrir sams kon- ar samningi um stjórn þorskveiða í Smugunni I Barentshafí. Miklar umræður spunnust á Al- þingi um samkomulagið í gær við fyrri umræðu um þingsályktunartil- lögu um staðfestingu samningsins, en ríkisstjómin afgreiddi tillöguna í fyrradag. íslendingar hefðu litla veiðireynslu en Norðmenn gætu ekki neitað þvl að veiðar íslendinga hefðu mikla þýðingu fyrir þjóðarbúið. Á sama máli var Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki, sem taldi samn- inginn gott vopn í frekari samn- ingaviðræðum. Sagði hann að Norð- menn hefðu með samningnum gefíð fordæmi um hvernig á að taka við nýjum aðila með litla veiðireynslu þegar gengið er til samninga um kvótaúthlutanir. Fordæmi gefið fyrir Smugusamninga Lág hlutdeild fest í sessi Jón Baldvin Hannibalsson, Al- þýðuflokki, sagði helsta ávinning nýja samkomulagsins vera að tekist hefði að koma böndum á veiðar Evrópusambandsins en miðað við veiðigetu hefðu skip þess getað veitt mun meira en sem nemur þeim kvóta sem úthlutað hefur verið. Jón Baldvin sagði að ef rök Norð- manna, fyrir þvi að semja við ESB um að ná ábyrgri heildarstjórn á fískveiðum, væru yfírfærð á Bar- entshafíð ættu þeir að vera fúsir til samninga við íslendinga um þorskveiðar. Aðstæður væru sam- bærilegar. í Smugunni væri um að ræða norsk-rússneskan fiskistofn, Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu samninginn fyrir þá sök að verið væri að festa í sessi óviðun- andi hlutdeild íslendinga sem samið hefði verið um í fyrra með sam- komulagi sömu aðila, utan ESB. Össur Skarphéðinsson, Alþýðu- flokki, sagði að söguleg _ veiði- reynsla hefði átt að tryggja íslend- ingum þriðjung síldarkvótans. Steingrímur J. Sigfússon, Al- þýðubandalagi, sagði að yfírlýsing- ar ríkisstjórnarinnar, um að fyrra samkomulag um kvótahlutdeild hefði ekki fordæmisgildi, hefðu ekki reynst á rökum reistar. Nú væri að koma í ljós að erfítt yrði að hnika samningsniðurstöðu sem fengist hefði með milliríkjasam- komulagi. Taldi hann ákvæði í bók- un samkomulagsins um endurmat á kvóta, ef göngumynstur síldarinn- ar breyttist, mjög veikt og væri það ekki grunnur til að byggja á kröfur um endurmat. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði gagnrýni þingmann- anna byggða á misskilningi. Um- rætt ákvæði um heimild til endur- mats á kvótahlutdeild væri þvert á móti mjög mikilvægt fyrir íslend- inga. Staðreynd málsins væri sú að aðstæður hefðu ekki breyst frá því fyrra samkomulag var undirritað og því engar forsendur til breytinga. Halldór sagði óhugsandi að Is- lendingar hefðu getað samið um kvótahlutdeild með vísun til veiði- reynslu og dreifingar síldar fyrir nokkrum áratugum. _ Gagnkvæmar veiðiheimildir íslendinga og Rússa óhugsandi Þingmenn stjómarandstöðunnar gagnrýndu að í samkomulagi þjóð- anna væri samið um veiðiheimildir við Rússa í íslenskri lögsögu án þess að á móti kæmu gagnkvæm veiðiréttindi. Utanríkisráðherra sagði skýringu þess tvíþætta. Ann- ars vegar væri eingöngu smásíld í rússneskri lögsögu og hins vegar væri hefð fýrir veiðum Rússa í ís- lenskri lögsögu. Ráðuneyt- isstjóra boðin lægri staða FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, vill ekki að Bjöm Friðfínnsson, sem verið hefur í leyfí frá störfum ráðuneytisstjóra í ráðu- neyti hans, taki við starfínu aftur. Finnur hefur sent Bimi bréf, þar sem honum er boðið starf skrifstofustjóra í ráðuneytinu eða að gerast forstjóri Löggildingarstofunnar. Ráðherra vill að Halldór Kristjánsson skrifstofu- stjóri, sem er settur ráðuneytisstjóri, verði skipaður í embættið. Björn Friðfinnsson fékk leyfí frá störfum í ráðuneytinu 1993 og hefur undanfarin ár verið einn af æðstu yfirmönnum Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussel. Björn segir í samtali við Morgun- blaðið að sér hafí borizt bréfíð frá ráðherra hinn 9. desember síðastlið- inn. „Þetta kemur mér gersamlega á óvart, því að ég hef einnig í hönd- um bréf frá ráðherra, þar sem hann veitir mér tímabundið leyfí frá störf- um. Hann tók meira að segja fram að hann myndi ekki veita mér lengra leyfí en til ársloka 1996. Ég hef sagt upp mjög góðri stöðu í Brussel til að fullnægja því.“ Björn segist telja að sér beri laga- legur réttur til að halda ráðuneytis- stjórastöðunni. Hann segir það rangt, sem fram hafí komið, að þeir Finnur séu í viðræðum um framtíðar- störf hans hjá iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu. Ekki náðist í iðnaðar- og viðskipta- ráðherra í gær. J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.