Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ * FRÉTTIR Endurmat tekjuáætlunar ríkissjóðs 700 milljóna hærri skatttekjur Morgunblaðið/Ásdís SÖGUSVIÐIÐ er þýska sendiráðið við Túngötu aðfaranótt 10. mai 1940. Þar var verið að taka upp atriði í heimildarmynd Elínar Hirst, Fangarnir á Mön, í gærmorgun. Heimildarmynd um Þjóð- verja á íslandi við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari SAMKVÆMT endurmati tekjuá- ætlunar fjárlaga fyrir næsta ár er gert ráð fyrir 600-700 milljóna kr. hærri skatttekjum ríkissjóðs á ár- inu 1997 en reiknað hafði verið með í fjárlagafrumvarpinu eins og það var lagt fram í haust. Reiknað er með um eins milljarðs hærri tekj- um ríkissjóðs af tekjuskatti ein- staklinga, en um 300 milljóna lægri tekjum af skattgreiðslum fyrir- tækja. Endurmatið var unnið af fjár- málaráðuneytinu og rætt í þeim fagnefndum Alþingis sem málið varðar í gær, þ.e. efnahags- og viðskiptanefnd og íjárlaganefnd, en nefndirnar vinna að undirbún- ingi þriðju umræðu Ijárlaganna, sem hefst á morgun, föstudag. Að sögn Jóns Kristjánssonar, formanns fjárlaganefndar, er for- senda þess að reikna megi með auknum tekjuskattstekjum ríkis- sjóðs á næsta ári einkum sú, að á þessu ári urðu skatttekjur ríkisins miklum mun hærri en gert hafði verið ráð fyrir á fjárlögum ársins 1996 og miðað við hagspá næsta árs megi reikna með að framhald verði á aukinni veltu, sem muni skila sér í auknum skatttekjum. Hallalaus fjárlög áfram markmiðið Við aðra umræðu fjárlaganna var rúmlega 700 millj. kr. útgjaldaauki samþykktur og nú er gert ráð fyrir að útgjöld til sjúkrastofnana hækki um samtals 400 millj. kr. Á móti þessu kemur sá 600-700 millj. kr. tekjuauki, sem reiknað er með á næsta ári, og með frestun sam- gönguframkvæmda á að nást 240 milljón kr. spamaður til viðbótar. „Markmiðinu um hallalaus fjár- lög höldum við,“ segir Jón Krist- jánsson, en milljarðs tekjuafgang- urinn, sem stefnt var að eins og fjárlagafrumvarpið var sett upp í upphafi, segir hann ekki munu nást að standa við. Hann bendir hins vegar á að í þessum útreikn- ingi sé ekki gert ráð fyrir þeim BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hefur samþykkt fjárhagsáætlun árs- ins 1997. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að ráðstöfunarfé verði rúmir 3,9 milljarðar, sem saman- standa af rúmum 2,7 milljörðum í skatttekjur og rúmum 566,5 millj- ónum i tekjur af málaflokkum. Skuldir bæjarsjóðs í árslok 1996 eru áætlaðar 3,6 milljarðar. 2,5 milljarðar í laun og rekstur í greinargerð með fjárhagsáætl- un bæjarsjóðs 1997 kemur fram að meginmarkmiðið sé að rekstrar- gjöld verði ekki hærri en 70% af heildarskatttekjum þrátt fyrir að ráðist verði í ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir en auk þess er miðað við að greiða langtímalán niður um 260 milljónir umfram lántökur. Bent er á að kostnaðarauka í áætl- uninni vegna yfirfærslu grunnskól- ans en áætlaður kostnaður er um 500 millj. og mun sveitarfélagið fá stærsta hlutann endurgreiddan frá ríkinu. tekjuauka sem muni skila sér í rík- issjóð verði af byggingu nýs álvers og virkjunarframkvæmdum og því sé ekki útséð um hver endanleg niðurstaða ríkissjóðsrekstrarins verði á næsta ári. Aukinn tekjuskattur einstaklinga Ágúst Einarsson, varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar, bendir á að tekjuskattur einstakl- inga hafi verið að hækka að undanförnu og sé orðinn annar stærsti skattstofn ríkisins á eftir virðisaukaskatti. Að viðbættu út- svari var samanlagður tekjuskatt- ur einstaklinga á þessu ári um 43 milljarðar kr., eða álíka og allur virðisaukaskatturinn, sem var um 45 milljarðar. Á þessu ári nam tekjuskattur einstaklinga til ríkisins um 21 millj- arði kr., sem er um fjórum milljörð- um meira en reiknað hafði verið með. Samtals jukust tekjur ríkis- sjóðs á þessu ári umfram forsendur fjárlaga um 6,3 milljarða kr., á meðan útgjöld jukust um 4 millj- arða kr. Halli ríkissjóðs á þessu ári varð þannig tveimur milljörðum lægri en reiknað hafði verið með, eða um tveir milljarðar kr. í stað fjögurra, og er það fyrst og fremst að þakka auknum tekjuskatti ein- staklinga. Samkvæmt endurmati tekjuá- ætlunar ríkissjóðs er reiknað með að tekjuskattur einstaklinga verið um 23 milljarðar, þótt þá muni um 6 milijarðar af þessari upphæð renna til sveitarfélaganna vegna yfírfærslu grunnskólanna til þeirra. Ágúst bendir á, að á sama tíma sé tekjuskattur af fyrirtækjum að lækka; hann hafí verið áætlaður 4,6 milljarðar kr. á þessu ári, en orðið 4,1 milljarður kr. Samkvæmt endurmati tekjuáætlunar næsta árs er gert ráð fyrir að fyrirtækin muni greiða um 4,5 milljarða í tekjuskatt, 300 milljónum kr. minna en fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir. Fram kemur að af rúmum 3,9 milljörðum í ráðstöfunarfé verður varið rúmum 2,5 milljörðum í laun og almennan rekstur, um 14 millj. til greiðslu skammtímavaxta, rúm- um 475 milij. til niðurgreiðslu lána og rúmlega 215 millj. í vexti af langtímalánum. Ráðgert er að veija 11,6 millj. til Hafnarfjarðarkirkju og ljúka við frágang á samkomusal safnaðar- heimilisins. Loks er gert ráð fyrir að 882 þús. fari til hækkunar á hreinu veltufé. Tekjur frá ísal í greinargerðinni kemur fram að við áætlun tekna ársins 1997 er gert ráð fyrir að miðað verði við óbreytt útsvar og að fasteignagjald verði óbreytt. Gert er ráð fyrir að tekjur vegna ísal verði 140 millj. árið 1997 og áætlaðar tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru 121 TÖKUR á heimildarmynd Elínar Hirst, Fangarnir á Mön, eru langt komnar, en myndin verður sýnd í Sjónvarpinu á næsta ári. I gærmorgun voru Elín og samstarfsmenn hennar við tökur á Túngötu 18, þar sem þýska sendiráðið var áður til húsa. „Þarna erum við að setja á svið atburði sem áttu sér stað í þýska ræðismannsbústaðnum aðfaranótt 10. maí 1940. Bretar eru um það bil að hernema land- ið og í baðkari innandyra flýta Þjóðverjar sér að brenna og eyða mikilvægum skjölum sem ekki mega koma fyrir augu óvinar- millj. Þegar hækkun tekna vegna yfirtöku grunnskóla eða 438 millj. hefur verið dregin frá heildartekj- um verða sameiginlegar tekjur um 2,2 milljarðar sem er um 10,6% hækkun frá fyrra ári. Fram kemur að áætlað er að verja 85 millj. til byggingar Hval- eyrarskóla, 6 millj. til kaupa á bún- aði, 5 millj. til undirbúnigs næsta skóla, 70 millj. til byggingar tón- listarskóla og 5 millj. til búnaðar- kaupa í Setbergsskóla. Ennfremur 10 millj. til lagfæringar á lóð við Lækjarskóla, 4,5 millj. til kaupa á búnaði til skóla og 4 millj. til átaks í tölvumálum skólanna. Gert er ráð fyrir 50 millj. til byggingar nýs leikskóla í Mosahlíð og áætlað er að laga lóð leikskólans Hlíðarberg fyrir 450 þús. auk þess sem áætlað er að veija 4,5 millj. til búnaðar- kaupa í leikskólum bæjarins. Til nýs bókasafns er áætlað að ins,“ segir hún. Að sögn Elínar koma fram í myndinni nýjar upplýsingar um hvað gerðist innan veggja þýska sendiráðsins umrædda nótt, en þær hefur hún frá fólki sem þá var að vinna í sendiráðinu. Myndin fjallar um afdrif hinna rúmlega fimmtíuþýsku þegna sem búsettir voru hér á landi við upphaf heimsstyijaldarinnar síð- ari og voru handteknir af Bretum vorið 1940 og flestir færðir til eyjarinnar Manar í írlandshafi, þar sem margir þeirra voru í allt að sex ár. Afi Elínar, Karl Hirst, var einn af þeim. veija 30 millj. auk þess sem gert er ráð fyrir að veija 40 millj. til kaupa á húsnæði fyrir bókasafnið. Gert er ráð fyrir að veija 9 millj. til menningarstyrkja og verður síð- ar gerð nánari grein fyrir með hvaða hætti það verður. I Hafnar- borg er gert ráð fyrir að standsetja gamla Apótekið og er áætlað að veija til þess 10 millj. Ein millj. verður greidd til Kvikmyndasafns íslands samkvæmt samningi milli bæjarins og safnsins. Til byggingar íþróttamannvirkja og skátaheimilis er áætlað að veija 80 millj. sem skipt verður nánar síðar. Til nýbygginga gatna er áætlað að veija 60 millj. og til nýbygginga útrása verður varið 75 millj. Til uppbyggingar grænna svæða verð- ur varið 13 millj. Gert er ráð fyrir að veija 74,5 millj. til Almennings- vagna. Þá er gert ráð fyrir að selja eignir fyrir 160 millj. en kaupa eignir fyrir 40 millj. Helstu eignir sem hugmyndir eru uppi um að selja eru eignarhlutar í Fjarðargötu 13-15 og Aðalstræti 6. Laugavegs- apótek til sölu ODDUR Thorarensen, apótekari í Laugavegsapóteki, hefur auglýst apótekið til sölu. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæðan væri sú að hann væri kominn á eftirlaun og vildi draga sig í hlé frá rekstrinum. Salan hefði ekkert með aukna samkeppni í lyfsölu að gera, að öðru leyti en því að sala á apótekum hefði ekki verið möguleg fyrr en eftir að nýju lyfsölulögin tóku gildi. Hann sagði að margir hefðu sýnt áhuga á að kaupa apótek- ið. Hann sagðist hins vegar ekki vilja fara sér hratt í þessu máli. Teknir með fíkniefni og* tæki til neyslu LÖGREGLAN í Reykjavík handtók tvo menn á þriðjudag og fundust fíkniefni og tæki til neyslu í fórum þeirra. Lögreglan fylgdist með húsi við Hverfisgötu vegna gruns um að í íbúð þar færi fram sala og dreifing á fíkniefnum. í kjölfarið var maður handtek- inn skammt frá húsinu og var hann með fíkniefni og neyslu- tæki á sér. Annar maður var handtekinn skömmu síðar og fékk lögreglan heimild til hús- leitar í íbúð hans. Þar fundust fíkniefni og tæki til neyslu. Andlát JON ERL- INGSSON JÓN Erlingsson, útgerðarmaður og fiskverkandi, lést 13. desember síð- astliðinn. Jón fæddist í Sandgerði 10. júní 1933 og þar bjó hann alla tíð síðan. Foreldrar hans voru Erl- ingur Jónsson og Helga Eyþórs- dóttir og áttu þau sex börn önnur. Jón stundaði sjómennsku frá fimmtán ára aldri en tók síðar vél- stjórapróf frá Fiskifélaginu og einnig var hann með próf í pípu- lögnum. 24 ára gamall hóf hann fiskverk- un í bílskúr við heimili sitt og varð fljótt umsvifamikill. Árið 1972 stofnaði hann fiskverkunina Jón Erlingsson hf. og átta árum síðar útgerðarfyrirtækið Valbjörn sem gerir út samnefndan togara og bátana Erling og Jón Erlings. Jón var kvæntur Jóhönnu Ingi- gerði Siguijónsdóttur, en hún er fædd 6. nóvember 1932. Þau áttu fimm börn; Erling, Sigurjón, Ey- þór, Eygló og Víði. Auk þess ólst upp hjá þeim Jóna Bjarnadóttir, dóttir Jóhönnu. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 1997 Aætlaðar heildartekj- ur rúmir 3,9 milljarðar Áætlaðar skuldir í árslok 1996 3,6 milljarðar : i i I i i : i i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.