Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Máttur til að lifa
Á faraldsfæti
BOKMENNTIR
M i n n i n g a r
ÉGSKAL
Fimm fatlaðir og framsæknir segja
frá. Eftir Onund Björnsson. Bókaút-
gáfan Skjaldborg. Rvík 1996.304
síður.
ÞEGAR litið er útum glugga á
ísiandi bregst ekki að við manni
blasi hlaupandi manneskja í hlaupa-
galla, hlaupaskóm og með húfu og
vettlinga. Einu sinni heimsótti út-
lenskur gestur karlmann hér í bæ
og hékk síðan útí glugga hjá honum
og spurði loksins afhvetju allir væru
svona ofsalega hraustir á íslandi.
íslenski gestgjafinn sagði að það
væri vegna þess að hér væri svo
kalt og ómögulegt annað en að
vera mjög hraustur ef maður ætl-
aði að fara eitthvað á milli.
Þó kuldinn eigi það til að ríkja á
íslenskum götum er alveg óþarfí að
hleypa kuldanum inná sig og inn í
sálina. Það sannar bókin Ég skal
eftir Önund Bjömsson sem talar þar
við fimm fatlaða einstaklinga. Þá:
Gylfa Baldursson, Leif Helga Magn-
ússon, Arnþór Helgason, Jón H. Sig-
urðsson og Guðmund Magnússon.
Þessir menn, þrír þeirra eru
bundnir við hjólastól og tveir þeirra
eru blindir, hafa allir þurft að beij-
ast við óhæft veðurfar en átt og
eignast mátt til að lifa vel og
skemmtilega innan takmarka sinna.
Það er lærdómsríkt og gott að fá
að líta inn í þennan glugga sem
þessi bók er inn í heim fatlaðra hér
á landi.
Höfundur lætur mennina fímm
segja ævisögu sína í fyrstu persónu
og hver saga hefur sína sérstöðu
og hefði engin þeirra mátt missa
sín. Þær skapa heild sem er hvetj-
andi og mannbætandi. Bókin hefur
þess vegna margþætt gildi. Sögur
mannanna eru uppörvandi og já-
kvæðar og hljóta því að gefa öðrum
sem lenda í svipuðum aðstæðum
margt. En hún veitir líka hinum sem
ekki hafa lent í svipuðum aðstæðum
innsýn í heim sem ógerningur er
að ímynda sér að óreyndu. Fóik sem
ekki er fatlað fær hér tækifæri til
að leggja frá sér hrokafullar hug-
myndir sínar þess efnis að ekki sé
hægt að lifa án eiginleikanna sem
það nú þegar er gætt. Svo hefur
bókin skemmtana- og afþreyingar-
gíldi við hliðina á lærdómnum sem
má af henni draga.
Bókin er skrifuð á þægilegu og
léttu máli sem með anda sínum byij-
ar strax í upphafi lestrar að koma
Iesandanum, án þess að útskýra
það, í skilning um eitthvað sem áður
var honum óskiljanlegt. Þó má benda
á tæknileg atriði sem lýta textann.
Orðum er stundum skipt á milli
lína á óvenjulegan hátt:
hræðs-lu (133), óhap-pi (183),
grei-dd (201), beit-ti (201), þeir-ri
(274).
Nokkur dæmi eru um að orðum
sé skipt þegar þau standa inni í
miðri iínu, kannski er við tölvu að
sakast í því máli.
í frásögn Arnþórs Helgasonar
hefði mátt byija strax í fýrstu per-
sónu en ekki á ópersónulegan hátt,
í þriðju persónu: „Árið 1952 ...
fæddist hjónunum ... tvíburar.“ En
höfundurinn snýr yfir í fyrstu per-
sónu nokkrum línum síðar. Þetta
ruglar dálítið lesturinn sem yfirleitt
rennur áfram árekstralaust.
Annað atriði sem má setja útá
er ekki tæknilegt heldur hugmynda-
legt. Eftirfarandi klausa finnst mér
skyggja á tóninn í bókinni:
„Því miður er það svo að ótíndur
glæpalýður hefur lagst á ýmsa sem
búa í þessu fjölmenni fatlaðra og
geta þeir illa varið sig. Skýringarnar
eru ýmsar. Sumt fatlað fólk á sér
fárra kosta völ þegar um félagsleg
tengsl er að ræða og tekur því nær
hveiju sem er. Aðrir hafa orðið ör-
yrkjar vegna misnotkunar áfengis
og eiturlyQa og draga því með sér
þann óaldarlýð sem hefur fylgt þeim
og leggst síðan á aðra. Gegn þessu
verður að spoma...“ (s. 201).
Eins og allir vita eru orsakir slysa
óteljandi og stundum er hægt að
finna orsakirnar og stundum er það
ekki hægt. Það getur reynst fólki
lífshættulegt að borða of mikið
smjör og það getur reynst fólki lífs-
hættulegt að neyta áfengis og eitur-
lyfja. Þegar fólk er orðið fatlað
getum við ekki látið fordómafullan
huga okkar stjórna áliti okkar á
fötlun þess; hvort það er betra ef
það varð fyrir bíl en ef það tileink-
aði sér hættulegar lífsvenjur. Eins
má ekki gleyma því að fatlað fólk
á sín vandamál nákvæmlega eins
og ófatlað fólk og ekki hægt að
gera þær kröfur að fatlað fólk
hætti að vera mannlegt og breyskt.
Og einmanaleiki og varnarleysi er
mannlegt vandamál, ef vandamál
skyldi kalla, og því verður ekki
bjargað með útskúfun eða fordóm-
um. Enginn getur komið fötluðum
né ófötluðum fyrir í húsinu þar sem
allt er slétt og fellt og fullkomnun-
in ein ríkir. Og það gerir heldur
ekki þessi bók og fannst mér þess
vegna ofannefnd klausa standa í
hróplegri andstöðu við hinn uppörv-
andi og jákvæða anda hennar.
Kristín Ómarsdóttir
BOKMENNTIR
Fcrðasögur
Á FERÐ
eftir Andrés Guðnason, höfundur
gefur út, 1996 - 204 bls.
ANDRÉS Guðnason ritar minn-
ingabrot og ferðasögur í bók sem
hann nefnir Á ferð.
Þetta eru stuttir þættir
og samdir í tengslum
við ýmsar ferðir höf-
undar innanlands og
utan. Höfundur kemur
víða við, segir frá he-
staferðum um Suður-
land jafnt sem heims-
hornaferðum til Kína.
Hann dregur enn frem-
ur upp myndir af
ferðalögum sínum um
Norðurlönd, Bret-
landseyjar og Vestur-
heim.
Margir fróðleiks-
molar fylgja með frá-
sögninni enda temur
höfundur sér nákvæmni i anda Þór-
bergs Þórðarsonar. Gildir þá einu
hvort verið er að tína til fróðleiks-
mola um hestagötur í Svínahrauni
eða Golden Gate brúna miklu við
San Fransisco.
í stöku frásögn dregur Andrés
upp svipmyndir af fólki. Þó beinist
mestur áhugi hans að landslagi,
staðháttum, lifnaðarháttum og ekki
síst sögulegu baksviði þeirra staða
sem hann heimsækir. Oft einkenn-
ist frásögn hans af frásagnargleði,
einkum þegar kemur að því að rekja
sögu staðanna og hann á jafnvel
til að draga sérkennilega og óvænta
sögulega lærdóma af umíjöllunar-
efni sínu. Til dæmis kastar hann
stríðnislega fram í lok umijöllunar
um eitt mesta hnignunarskeið kín-
versku þjóðarinnar, tímabil þar sem
Chxi keisaraekkja hélt um valda-
taumana: „Og segi svo hver sem
vill að konur séu betri stjórnendur
en karlmenn."
Ef til vill kemur þó sögulegur áhugi
Andrésar gleggst fram
í frásögnum hans af
frændþjóðum okkar,
Norðmönnum og írum,
enda er að sjá að ferð-
ir hans þangað hafi
beinlínis verið sprottn-
ar af sögulegum
áhuga.
Andrés kastar
gjarnan fram stökum
eins og tii að ljúka frá-
sögnum sínum. Ekki
þarf þó tilefnið _að vera
svo merkilegt. Á einum
stað segir frá því að
austfirskir hagyrðing-
ar hafi verið með hon-
um í rútu og látið ijós
sitt skína. Sunnlenski sveitamaður-
inn hugsaði þá sem svo:
Austfirðingar eru víst
að yrkja um eigin hagi
um konur ekki kveða síst
kurteislega bragi.
Stundum verður þó frásögn
Andrésar dálítið ágripskennd enda
þótt það verði ekki til verulegra
lýta. Að ósekju hefði einnig mátt
leggja meiri vinnu í prófarkalestur.
Ljóst er þó að lesandi verður nokkru
fróðari um staði þá sem sagt er frá
að lestri bókarinnar loknum og sá
er tilgangur höfundar.
Skafti Þ. Halldórsson
Andrés
Garðarsson
Mjakast mitt fley
Guðs útvalda þjóð
BOKMENNTIR
Lj óð
ÚR HÖLL BIRTUNNAR
eftir Kristin Kristjánsson. Bókaút-
gáfan Pöpull, 1996 - 73 bls.
TIL eru skáld sem hirða lítt um
að birta ljóð sín. Þau yrkja fyrir
tækifærið og skúffuna og stundum
er það best. Aftur á móti eiga sum
þessara skálda erindi
við okkur og það er
ánægjulegt þegar ljóð
þeirra líta dagsins ljós
í bók. Kristinn Krist-
jánsson (Diddi í Bárð-
arbúð) sendir frá sér
safn ljóða, rétt rúm-
lega sjötugur að aldri,
sem hann nefnir Úr
höll birtunnar. Þótt
kvæðasafn hans skeki
ef til vill ekki undir-
stöður bókmennta-
stofnunarinnar er
margt af því laglega
ort enda er hann hag-
yrðingur góður og á
sér ljóðrænan streng.
Mörg ljóða Kristins hygg ég að
flokka megi sem alþýðlegan kveð-
skap. Hér er um að ræða tækifæris-
ljóð af ýmsu tagi; stökur, afmælis-
kvæði og minningarljóð. Annað rist-
ir að ýmsu leyti dýpra hvort sem
ort er um atvinnulíf, æskuminning-
ar, ástir, sorgir eða náttúru. En
yfir þessu öllu vakir hin stórbrotna
náttúra Snæfellsnessins; jökullinn,
Hellnar, Hellissandur og hafið. Þar
að auki á Kristinn sér gamansaman
og dálítið kaldhæðinn tón og hikar
ekki við að gefa samtímamönnum
sínum og samsveitungum selbita.
Bragarlist hefur Kristinn ágæt-
iega á valdi sínu og yrkir þá gjaman
ljóst og af ágætri myndvísi eins og
lesa má í stökunni Nektarsýningu:
Það enga vekur eftirtekt
þótt öll í röðum standi.
Fram á sviðið í fullri nekt
fjöll á ísalandi.
Kristinn á sér sinn fegurðarheim
og kvæði hans einkennast öðrum
þræðinum af „látlausri leit / að ljósi
sem kviknaði forðum.“ í ljóðum
hans kemur þó fram að lukkan
hafi ekki alltaf verið förunautur
hans. Þótt ekki gæti verulegrar
beiskju ræðir hann þetta þó opin-
skátt, m.a. í kvæðinu
Lagskona. Þar segir
ljóðmælandi frá lags-
konu sinni, fátæktinni:
Sú lagskona er lasta-
full
lítil á hún fingurgull.
Hún vakir eins og
vargur yfir
veginum sem ég geng.
Ég undir niðri á mér
þrá
mig langar betri heim
að sjá
en hún vakir eins og
vargur yfir
veginum sem ég fer.
En Kristinn á sér,
sem fyrr getur, einnig ljóðrænan
streng sem hljómar einna skærast
í óbundnum ljóðum hans. i smá-
kvæðinu Mjakast verður honum
æviferðin að yrkisefni og þar finnur
hann forgengileikanum laglega
mynd:
Hægt og þunglega mjakast mitt
fley
inn í óravíddir tómleikans.
Hægt sígur strönd í sæ
þar blóm mitt óx.
Skáldskapur Kristins er að sönnu
hertur í dagsins amstri og raun.
Hann er eigi að síður ljóðrænn og
hlýr. Bókaskreytingar Björns Roths
byggja á skemmtilegri hugmynd og
eru til prýði.
SkaftiÞ.Halldórsson
BÆKUR
Spádómsfræöi
NOSTRADAMUS OG
SPÁDÓMARNIR UM
ÍSLAND
eftir Guðmund S. Jónasson. Reyk-
holt 1996.380 bls.
GRUNAÐI ekki Gvend. Reykja-
vík, hin „merka sjávarborg í Atl-
antshafi" (sem „greinilega" er átt
við með „La grand cité d’Occean
maritime"!), er „einstök borg [...]
kjörin af guði í andlegum tilgangi."
Ekki nóg með það: Islandi er ætl-
að, og þetta kemur engum íslend-
ingi á óvart, að bjarga heiminum.
Hinn Nýi Leiðtogi Évrópu (Fúhrer?)
sem kemur til með að redda öllu
fyrir horn verður frónskur í húð og
hár, af íslenskri „yfirmannkyns-
þjóð.“
Því miður fáum við ekki að vita
mikið meira en ofangreint um
framtíð og ætlunarverk landsins
og landans í Nostradamusi og spá-
dómunum um Island. Þrátt fyrir
titilinn kemur ísland lítið við sögu
í þessari löngu bók en það hlýtur
að teljast undarlegt þegar jafn
merkilegt land og stórbrotin þjóð
á í hlut. Eitthvað virðist hafa geng-
ið brösulega að fá vísurnar hans
Nostra til að vísa í réttar áttir.
Höfundi hefur reyndar ekki tekist
að finna vísanir í Island í mikið
fleiri ferskeytlum en telja má á
fingrum annarrar handar og verð-
ur ekki séð annað en að í þeim
tilfellum sé um vægast sagt um-
deilanlegar túlkanir að ræða. Önn-
ur umfjöllun um ísland, á u.þ.b. 8
blaðsíðum, er spádómum
Nostradamusar óviðkomandi. Þar
fá þó lesendur m.a. að vita að sam-
kvæmt fornum kínverskum spá-
dómi er ísland „hinn ákjósanleg-
asti uppeldisstaður mikiimenna"
og þangað „munu þjóðirnar leita
um framfarir." Varla saga til
næsta bæjar.
í formála kemur fram að höf-
undur hefur áður gefið út tvær
bækur um spádóma Nostradamus-
ar og eitt af markmiðum með út-
gáfu þessarar þriðju bókar er að
endurvinna spádómana, með hlut-
deild íslands og íslensku þjóðarinn-
ar í huga. Fyrir utan þetta mark-
mið, sem ekki stenst, er kosturinn
við nýju bókina sagður sá að spá-
dómsferskeytlum Nostra fylgir
frumtexti svo og orðaskýringar,
þannig að nú getur lesandi gert
samanburð og gengið úr skugga
um rétta þýðingu. Sá hængur er á
að til að ráða af nákvæmni úr spá-
dómsljóðunum þarf til sérfræði-
kunnáttu í miðaldafrönsku og orðs-
ifjafræði. Það kemur reyndar ekki
fram hvort höfundur þýðir beint
úr miðaldafrönsku, frönskum nú-
tímaþýðingum eða jafnvel enskum.
Þýðingarfræðin sem notuð eru
orka alltént tvímælis: Stundum eru
ljóð þýdd nokkuð beint en túlkun
sýnd í fyrirsögn og í eftirmáli en
oft er meint líkingarmál spámanns
túlkað beint inn í þýðinguna á spá-
dómsljóðinu. Þannig er t.d. „her-
floti bandamanna" kominn inn í
eitt ljóðið, í öðru er talað um „hug-
myndafræði sameignarinnar“ (fyr-
ir „La loi commune"), í því þriðja
eru „Bandaríkin" sett í staðinn
fyrir orðið „Mabus“ í frumtexta
sem sagt er feluorð og stafavíxl
fyrir U.S.A!.
En nákvæmni í þýðingum á spá-
dómsljóðunum er ef til vill ekkert
aðalatriði. Aðferða- og stílfræðin
sem Nostri notaði við ljóðagerðina
(t.d. brottföll, innskot, styttingar,
úrfellingar, hljóð- eða stafavíxl) er
slík að hægt er að túlka og þýða
býsna frjálslega; sumir mundu
segja eftir vild. Túlkunardæmi:
„Þjóðskörungur fæðist á íslandi.
Alþingi sett á Þingvöllum. Styijöld
í Áusturlöndum." En þessi útlegg-
ing er fengin úr eftirfarandi: Þar
sem þrjú höf liggja að landi fæðist
sá/ sem gerir Þórsdag að hátíðis- I
degi. Frægð hans,/ völd og vegs-
auki mun vaxa þegar Asía/ riðlast
vegna styijaldar á sjó og landi.
Augljóst, ekki satt?
Nostradamus og spádómarnir um
Island hafa á sér yfirbragð fræðirit-
gerðar; sbr. nákvæmar kaflaskipt-
ingar, neðanmálsgreinar, tilvísana-
skrá og ritaskrá. Bókinni er skipt í
3 hluta og 28 kafla. í upphafi hvers
hluta og sumra kaflanna er vitnað J.
í ýmsa andans jöfra, eða þannig,
og eina konu: þ.á m. Einstein,
Ævar Kvaran, Nehru, Hitler, Dr.
Helga Pjeturs, Pétur postula, Maó,
íslenska alþýðukonu og Aleister
Crowley yfirkuklara. Gállinn við
þessar tilvitnanir er sá að þær eru
hver úr sinni áttinni og oft alger-
lega ósamstæðar. Þetta og margt
í sambandi við túlkun á ljóðunum
er dæmigert fyrir þann synkret-
isma, eða hugmyndasamsull, sem ■
einkennir „nýaldarbókmenntir.“ *
Með slíkri „nýaldarfræðimennsku“
er skynsemishyggju og rökstuddum
vinnubrögðum varpað fyrir róða og
ýmiskonar bábilja sett í fyrirrúm á
hæpnum forsendum. Því miður er
undirliggjandi tilgangur oft sá að
halda á lofti skringilegum, ef ekki
hættulegum, messíanisma þar sem |
„yfírmannkynsþjóðarhugmyndir"
liggja til grundvallar. Þó bókin ;
standi ekki við loforð sitt um að |
hafa ísland í brennidepli er engu
líkara en boðskapurinn sé af þessu
tagi. Næst síðasti kafli bókarinnar
heitir Leiðtoginn frá íslandi en sá
síðasti í dögun nýrrar aldar. í þeim
seinni er Nostri látinn boða komu
nýs vitrings og „hina nýju heims-
skipan": Þar mun væntanlega, svo
notuð séu orð Dr. Helga Pétursson- r
ar sem vitnað er í, „heimur allur
fá að sjá hið sanna merki íslands." u
Æ, æ. 1
Geir Svansson
Kristinn
Kristjánsson