Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 41
40 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 41 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KRÖFUR ÍSRAELS UM LANDRÝMI OBILGJÖRN STEFNA ríkisstjórnar Benjamíns Netanya- hus í samskiptum við Palestínumenn virðist á góðri leið með að spilla friðarferlinu í Miðausturlöndum. Nýjasta yfirlýsing stjórnarinnar um fjárstyrki til Gyðinga, sem vilja byggja íbúðarhúsnæði á vesturbakka Jórdanár, gengur í berhögg við anda Óslóarsamkomulagsins og getur ekki leitt til annars en frekari átaka ísraelsmanna og Palestínu- manna. Framferði harðlínustjórnar Netanyahus getur kost- að ísrael stuðning helztu vinaríkja á Vesturlöndum, sem hafa unnið hörðum höndum við friðarumleitanir milli ísra- ela og Araba. Þar skiptir þó mestu máli afstaða Bandaríkj- anna. Bandaríkjastjórn hefur verið ómyrk í máli vegna ætlunar Netanyahus um eflingu byggðar ísraelsmanna á hernumdu svæðunum. Clinton forseti hefur látið svo ummælt, að byggðir ísraela þar væru hindranir á leið til friðar. Ljóst er, að Clinton ætlar sér að hafa svipaða stefnu í þessum efnum og forveri hans, George Bush, sem beitti Israela fjárhagslegum þrýstingi til að fá þá til að láta af áætlunum um nýjar byggðir á hernumdu svæðunum. Clinton átti erf- itt með að beita sér í deilum Israelsmanna og Palestínu- manna fyrir forsetakosningarnar vegna vonar um stuðning bandarískra Gyðinga. Aðstaða hans er allt önnur nú eftir kosningasigurinn. Israelsmenn þurfa að átta sig á J>ví. Ljóst er af ummælum varnarmálaráðherra Israels, Yitzhak Mordechai, að ríkisstjórnin hefur ekki í hyggju að sveigja af markaðri stefnu. Ráðherrann sagði, að Israel þyrfti aukið landrými vegna mannfjöljgunar. Þessi orð hefðu betur verið ósögð af forustumanni Israelsríkis, því sagan sýnir, að það eru einmitt kröfur um aukið landrými, sem eru uppskriftin að grimmilegum átökum og styrjöldum. Engum á að vera það betur ljóst en Gyðingum, svo litlu sem munaði að þeim yrði útrýmt fyrir fáum áratugum af þeim einræðisherrum, sem mestar kröfur hafa gert til land- rýmis á þessari öld, þeim félögum Hitler og Stalín. Netanyahu og stjórn hans verða að gera sér grein fyrir því, að yfirgangur við Palestínumenn verður dýrkeyptur. Hagsmunir Ísraelsríkis feiast í friðsamjegri sambúð við nágranna þess. Friðarsamningarnir frá Ósló vísa þar veg- inn og þá ber að halda. VOÐAVERK í TSJETSJNÍJU SEX STARFSMENN Rauða krossins í Tsjetsjníju voru myrtir af vopnuðum, grímuklæddum mönnum aðfara- nótt 17. desember og einn særður lífshættulega. Hinir myrtu voru tveir norskir hjúkrunarfræðingar, spænsk hjúkrunarkona, kanadískur stjórnandi, hollenzkur tækni- fræðingur og nýsjálenzk hjúkrunarkona. Hinn særði er svissneskur sendifulltrúi. Af hinum látnu eru 5 konur. Rauði krossinn er sem kunnugt er líknarstofnun þjáðra, þar sem ósérhlífið fólk hjálpar bágstöddum og tekur þá áhættu að fara inn á ófriðarsvæði. Yfirleitt hafa stríðsaðil- ar virt starfsemi Rauða krossins og starfsmenn hans hafa getað unnið störf sín í sátt við stríðandi aðila. Morðin í Tsjetsjníju eru því svívirðileg árás á starf samtakanna og rof á friðhelgi starfsmanna þeirra. Talið er að þau séu fram- in af aðilum, sem viðji spilla friðarumleitunum í þessu stríðshijáða landi, en þar eiga forseta- og þingkosningar að fara fram hinn 27. janúar næstkomandi. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur fordæmt morðin, sem eru alvarleg- asta áfall, sem samtökin hafa orðið fyrir í áratugi. Morðin í Tsjetsjníju eru hryllilegur og lítilmótlegur glæp- ur, en því miður vill svo verða að ávallt er það nokkur áhætta að takast á hendur störf á vegum Rauða krossins. íslendingar hafa því miður ekki farið varhluta af þeim ógnunum, sem slíku hjálparstarfi fylgja, því að fyrir tæpum fjórum árum féll íslenzkur hjúkrunarfræðingur við Rauða kross-störf í Afganistan. Hann hét Jón Karlsson og féll er hann var að sinna störfum sínum. Erfitt er að sætta sig við slíkar fregnir. Rauði krossinn á að vera friðhelgur. Hann kemur á vettvang sem líknandi hönd, sem flestir taka fagnandi, en því miður slá aðrir á hana og lítilsvirða, svo sem þessi morð í Tsjetsjníu bera vitni um. Nautið seldist en merín sat eftir Uppboð á búvörum hjá Afurðamarkaði Suðurlands á Selfossi virðast vera far- in að hafa óbein áhríf á verðmyndun búvara þó ákaflega lítill hluti afurðanna fari þar í gegn. Mest hefur verið selt af svínakjöti fyrir jólin. Opinber verðlagn- ing ákveðinna kjöttegunda og samningar bænda við afurðastöðvar hafa haml- að þróuninni. Helgi Bjarnason fylgdist með uppboði og kynnti sér starfsemina. Morgunblaðið/Þorkell ÓLAFUR Björnsson, stjórnandi afurðauppboðsins, fylgist með niðurtalningu verðs á tölvuskjá. Við borðið sitja: Helgi Haraldsson, fulltrúi KA, lengst til vinstri, Pétur Hjaltason, fulltrúi Hafnar-Þríhyrn- ings, Kolbeinn Kristinsson og Sigurður Sigurjónsson lögmaður. UPPBOÐ búvara hjá Afurða- markaði Suðurlands á Sel- fossi hafa farið ágætlega af stað, að sögn Ólafs Bjömssonar lögmanns sem stendur fyrir þeim. Mest hefur verið selt af svínakjöti á vegum Hafnar-Þríhyrn- ings og hafa afurðir 30-40 svína selst í hverri viku, oft fyrir gott verð. Einn- ig hefur selst nokkuð af lambaframp- örtum og öðru kjöti. Seldar hafa verið kartöflur, grænmeti og fleiri matjurt- ir, harðfiskur, hey og gripir á fæti, svo nokkuð sé nefnt. A uppboði í fyrra- dag virtist þó botninn detta úr svína- kjötssölunni og töldu menn sem við- staddir voru uppboðið á Selfossi að komið væri of nálægt jólum og kaup- endur væru búnir að birgja sig upp. Aftur á móti seldist lifandi naut. Gamall draumur Lögmenn Suðurlandi, íslands- markaður og Fiskmarkaðurinn í Þor- lákshöfn standa saman að Afurða- markaði Suðurlands til að byija með. Þetta er tölvuuppboð og er uppboðs- forritið Boði notað. Þannig er hægt að bjóða í vörurnar á fimmtán fisk- mörkuðum víðsvegar um landið. Vör- urnar eru hjá seljandanum en oftast er miðað við að afhending fari fram á Selfossi eða í Reykjavík. „Þetta er gamail draumur hjá mér. Ég er úr sveit, frá Úthlíð í Biskups- tungum, og hef hugsað um það frá unga aldri hvernig hægt væri að selja búvörurnar á sem bestan hátt,“ segir Ólafur Björnsson um tildrög þess að farið var að reyna þessa nýju söluað- ferð búvara nú í vetur. Hann segist ávallt hafa verið í miklum samskiptum við bændur í gegn um starf sitt, með- al annars selt mikið af bújörðum og mjólkurkvóta. „Þegar ég fór að ræða þessa hugmynd við bændur og hugs- anlega kaupendur og seljendur á slík- um uppboðum sá ég fljótt að mikil þörf væri á að koma þeim upp,“ segir Ólafur. Hann segist hafa fylgst með þróun fiskmarkaðanna og fengið góð- ar viðtökur hjá íslandsmarkaði þegar hann nefndi þessa hugmynd. Það hafi síðan verið jákvæð viðbrögð landbún- aðarráðuneytisins sem gerðu það að verkum að talið var óhætt að byija. Opinber verðlagning hamlar Þrennt hefur hamlað þróun þessa sölufyrirkomulags, að mati Ólafs Björnssonar: Opinber verðlagning ákveðinna búvara, andstaða stærstu dreifíngarfyrirtækja grænmetis og garðávaxta og samningar stórmark- aða við afurðastöðvar og sölufyrir- tæki búvara. Ekki er mögulegt að selja á upp- boði afurðir sem opinberar verðlags- nefndir fjalla um, eins og til dæmis nautakjöt og lambakjöt í heilum og hálfum skrokkum. Einnig egg og kjúklinga. Verðlagsákvæði lamba- kjöts verða afnumin í áföngum og falla alveg niður eftir tæp tvö ár. Ólafur segir að það sama muni vafa- laust gerast með nautgripakjöt og verðskráning á afurðum alifugla sé aðeins að nafninu til. Þegar opinbert verð er á búvörum má hvorki selja þær við iægra né hærra verði en því sem verðlagsnefndin hefur ákveðið. Þó frjáls verðlagning sé á meira unnum kjöt- vörum er svigrúmið lítið á uppboðum því seljandinn hefur aðeins úr eigin álagningu að spila. „Það er ekkert að óttast á þessum uppboðum. Seljendur hafa fullt vald á sinni vöru. Þeir geta sett lágmarks- verð eða keypt vörurnar sjálfír ef þær fara niður fyrir það verð sem þeir sætta sig við. Þeir þurfa ekki ríkið til að vetja sig,“ segir Ólafur. Verðskráningin nær ekki til gripa á fæti og eru dæmi um að bændur hafi látið bjóða upp lifandi nautgripi og hross á tölvuuppboðunum. Kaup- andinn verður þá að semja við slátur- hús um slátrun gripanna. Ólafur telur að á næstu árum verði stofnuð lítil sláturhús, óháð sölusamtökum, til að þjóna þessum markaði. Þá er fijáls verðlagning á svína- kjöti. Ólafur segir að svínabændur hafí sýnt uppboðunum mikinn áhuga og vilji koma sem stærstum hluta framleiðslunnar þar í gegn. Með því séu þeir að horfa til þess að fá mark- aðsverð á afurðirnar og einnig til þeirr- ar greiðsluábyrgðar sem kaupendur verða að leggja fram til þess að fá að bjóða í vöruna. Segir hann að svína- bændur leggi mikið upp úr þessu því þeir hafí tapað verulegum fjárhæðum við gjaldþrot viðskiptavina. Grænmetisgeirinn bundinn Frjáls verðlagning er á matjurtum en Ölafur segir að erfiðlega hafi gengið að fá bændur til að bjóða fram vöru sína á uppboðunum. „Grænmet- isgeirinn er bundinn með samningum bænda og stórra dreifingarfyrirtækja og bændur standa vörð um fyrirtæk- in sín. Þetta hefur gengið svo langt að bændur sem hafa komið hingað hafa dregið vörur sínar til baka vegna hótana stóru sölufyrirtækjanna um að þau muni að öðrum kosti hætta að taka við vörum þeirra. Þetta er að mínu mati fullkomlega óðeðlilegt og verið að halda uppi einhveiju öðru verði en markaðsverði," segir Ólafur. Með þessum orðum er hann að vísa til Sölufélags garðyrkju- manna og Ágætis. „Ég held að bændur séu leiksoppam- ir. Þeir fá afganginn og taka á sig afföllin.“ Ólafur segir að einstaka bændur séu óbundnir af samningum við stóru sölufyrirtækin og þeir séu farnir að koma með sínar afurðir á uppboðin. Þá séu fleiri á leiðinni, meðal annars stórir kartöfluframleið- endur, og segir hann að töluvert framboð verði af grænmeti eftir ára- mótin. Svínakjötið komið best út Búvömmar em boðnar upp viku- lega, um miðjan dag á þriðjudögum. Dræm sala var á uppboðinu í fyrra- dag en það var síðasta uppboð fyrir jól. „Þetta hefur verið viðunandi til þessa en uppboðið í dag var það lak- asta,“ sagði Pétur Hjaltason hjá Höfn-Þríhyrningi í spjalli eftir upp- boðið á þriðjudag. Höfn-Þríhyrningur hefur verið langstærsti seljandi á uppboðunum til þessa. Pétur segir að svínakjötið hafi komið best út en tilraunir hafí einnig verið gerðar með sölu lambaframparta, úrbeinaðs nau- takjöts og ungkálfa. Erfitt sé að eiga við afurðir sem séu háðar opinberri verðlagningu, í þeim tilvikum hafi fyrirtækið ekki úr öðru að spila en sláturkostnaði og þar sé svigrúmið ekki mikið. Ekki vill Pétur taka undir þau orð að lágmarksverðið sé of hátt og bend- ir á að lítið hafí selst á uppboðinu nú þó lágmarksverðið hafi verið fært mikið niður á einstökum afurðum. Höfn-Þríhyrningur ætli að reyna að vera áfram með á uppboðunum en Pétur segir að það farið auðvitað eft- ir því hvernig þau gangi. „Við höfum keypt svínakjöt, lambaframparta og grænmeti á upp- boðunum,“ segir Helgi Haraldsson hjá verslunum KÁ. Hann var á upp- boðinu á þriðjudag en var ekki í inn- kaupahugleiðingum. „Stórmarkað- irnir eru yfirleitt með góða samninga við afurðastöðvar og verða aldrei stórir kaupendur hér. Við munum þó að sjálfsögðu fylgjast með og kaupum ef við dettum niður á góða hluti. Aftur á móti geta vinnslustöðvar, mötuneyti og smærri verslanir gert góð kaup,“ segir Helgi. Þó viðskiptin hafi verið dauf í fyrradag fóru svína- afurðir meðal annars til kjötvinnslu í Reykjavík, veisluþjónustu í Vest- mannaeyjum og fiskvinnslufyrirtækis á Snæfellsnesi. Tvö naut voru boðin upp á fæti og ein sextán vetra meri. Fiskbúð í Reykjavík keypti annað nautið en hitt nautið og merin héldu tryggð við eiganda sinn að þessu sinni. Beinn aðgangur að afurðunum Ólafur segist vera að mörgu leyti ánægður með fyrstu mánuði afurða- uppboðsins. Framboð hafi verið fjöl- breytt þótt það hefði gjarnan mátt vera meira og salan gengið ágæt- lega, sérstaklega á svínakjöti. Helstu kaupendur eru veitingahús, mötu- neyti og minni verslanir og kjöt- vinnslur. Verslanakeðjurnar eru ekki meðal kaupenda en fulltrúar þeirra hafa þó fylgst grannt með. Ólafur segir að vissulega geti verið erfitt að fá kaupendur til að koma á uppboð þegar vöruframboðið sé svo mikið að þeir hafi engan frið fyrir sölumönnum sem bjóði hver niður fyrir öðrum. „Ég bendi þeim hins vegar á að það er mikill kostur að hafa beinan aðgang að þessum afurð- um og smám saman geta menn farið að velja sér vörur frá ákveðnum fram- leiðendum til að tryggja gæðin, fram- leiðendum sem þeir hefðu annars kannski ekki komist í tæri við. Ég hef heyrt að kaupendur hafi viljað geta gert reyfarakaup af og til, eins og stundum gerist á uppboðum. Hins vegar hefur framboðið til dæmis af svínakjöti ekki verið mikið og seljand- inn því fengið gott verð. Hér ráða markaðslögmálin, verðið ræðst af framboði og eftirspurn. Ég á til dæm- is von á því að verð á svínakjöti lækki eftir áramótin vegna minnkandi eftir- spumar eftir hátíðimar. En aðrar vöru munu hækka.“ Á uppboðunum til þessa hefur söluverð afurðanna yfirleitt verið rétt yfir lágmarksverði seljandans. Segir Ólafur það eðlilegt á meðan framboð búvara sé umfram eftir- spurn. Þetta muni breytast ef skort- ur verði á einstökum tegundum. Nefnir hann að það hljóti til dæmis að gerast í lambakjötinu. Framleiðsl- an hafi verið minnkuð svo mikið á undanförnum árum og útlit sé fyrir eftir- spurn umfram framboð á grillkjöti næsta sumar og á fersku kjöti um haustið. Þá hljóti verðið að hækka. Telur hann að þá verði uppboðsmark- aður vænlegur kostur. Ólafur viðurkennir að verðmyndun á uppboðsmarkaðnum sé ekki raun- hæf þegar svona lítill hluti afurðanna fari þar í gegn. Hins vegar telur hann að markaðurinn hafi meiri áhrif en nemur sölu á uppboðunum, því kaup- endur og seljendur fylgist vel með og hafi verðið stundum til viðmiðunar í samningum sín í milli. Verðið ræðst af f ramboði og eftirspurn Þeir þurfa ekki ríkiðtil að verja sig A’ RAUFARHÖFN, Reyðar- firði og Seyðisfirði benda menn á, að síldarævintýr- ið hafi gerst þar, en sveit- arfélögin setið eftir með sárt ennið þegar síldin hvarf. Sveitarfélögin létu vinna fyrir sig lögfræðilega álitsgerð, sem styður kröfu þeirra. Formaður sjávarútvegsnefndar Al- þingis kveðst vera fylgjandi byggðakvóta, en skrifstofustjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna er honum andvígur. Vísa til reynslu, hefða og sanngirni Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt að óska eftir því við ís- lensk stjórnvöld að þau úthluti Seyðisfjarðarkaupstað hlutdeild í aflaheimildum úr norsk-íslenska síldarstofninum. Þessi ósk bæjar- stjórnarinnar um byggðakvóta er byggð á greinargerð sem kaupstað- urinn, ásamt Raufarhafnarhreppi og Reyðarfjarðarhreppi lét Jónas A.Þ. Jónsson hdl. vinna fyrir sig. Þar er saga síldveiða við ísland rakin. Fjallað er um hegðun síldar- innar, veiði hennar og verkun og tekið saman yfirlit um helstu lönd- unarstaði síldar á árunum 1960- 1967. Þar kemur fram að á Seyðis- firði var landað 14,10% heildarsíld- veiðinnar á landsvísu og fullyrt jafnframt að hlutfallið gagnvart norsk-íslenska síldarstofninum sé miklu hærra. Krafan um byggða- kvóta byggist á þrenns konar rök- um, sögulegri hefð, sanngirnis- sjónarmiðum og veiðireynslu. Skýrsluhöfundur telur rök um sögulega hefð eiga fullkomlega rétt á sér þar sem byggðarlögin byggja mestalla lífsafkomu sína á sjávarútvegi og rökin séu náskyld þeirri viðmiðun sem beitt sé í lögum um veiðireynslu skipa, sem grund- völl úthlutunar á fiskveiðiheimild- um. Áfallið vegna síldarbrestsins var mikið Sanngirnissjónarmiðin eru talin þau að viðkomandi staðir byggðust að verulegu leyti upp vegna síld- veiða og að áfallið vegna síldar- brestsins var mikið. Þar segir einn- ig: „Ósanngjarnt er í meira lagi að útgerðarmenn, serrt nánast aldrei hafa veitt síld úr þessum stofni (norsk-íslenska) fái úthlutað kvóta á sama tíma og byggðarlög sem hafa byggst upp og þrifist á vinnslu síldarafurða sitja uppi með að fá enga úthlutun úr norsk-íslenska síldarstofninum. Ekki verður sagt að með þessu sé beinlínis verið að verðlauna þá staði sem sköpuðu þjóðinni á sínum tíma gífurlegan gjaldeyri." Um veiðireynslu segir að gerð hafi verið út nokkur nótaveiðiskip frá Seyðisfirði og Reyðarfirði. Þau skip hafi verið seld þegar síldin hvarf og keypt togskip í stað þeirra enda menn tilneyddir vegna afla- brestsins. Á stöðunum sé nú ekk- ert nótaveiðskip gert út og að óbreyttu muni aðrir, sem aldrei hafi veitt úr norsk-íslenska síldar- stofninum, fá hlutdeild meðan þeir sem neyddust til að hætta veiðum hafi engan rétt á hlutdeild úr sama stofni. Einnig er rakin túlkun laga um Síldarverksmiðjur ríkisins og leidd- ar líkur að því að tilvist þeirra hafi orðið til þess að síður voru keypt nótaveiðiskip á þeim stöðum sem bræðsl- urnar voru. Niðurlag Jónasar A.Þ. Jónssonar hdl hljóðandi: Vilja kvóta fyrir síldina sem hvarf Sveitarstjórnir Raufarhafnar, Reyðarfjarðar og Seyðisfjarðar vilja að tekið verði tillit til fyrri reynslu sveitarfélaganna af síldveiðum og þeim verði veitt sérstök hlutdeild í norsk- íslenska síldarstofninum, byggðakvóti. SVEITARFÉLÖG, þar sem síldarævintýrið gerðist á árum áður, vRja fá sérstaka úthlutun úr norsk-íslenska síldarstofninum. Byggðustupp vegna síld- veiðanna er svo- Það er skoðun undirrit- aðs eftir ítarlega skoðun á sögu síldveiða við íslandsmið og þeirra réttarheimilda sem njóta við á þessu sviði, að það sé fullkomlega réttlætanlegt fyrir byggðarlög þau sem að þessari greinargerð standa, að leita eftir því að byggðarlögun- um verði úthlutað hlutdeild í afla- heimildum vegna norsk-íslenska síldarstofnsins. Hafa verður í huga að hér er um pólitísk mál að ræða, þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Ljóst er að útgerðarmenn eru ekki hrifnir af þessum hugmynd- um, enda engin furða í ljósi þess að í formi aflaheimilda sem fram- seljanlegar eru hafa þeim verið færð gríðarleg verðmæti. Það er löggjafarvaldsins að ákveða hvort eðlilegt sé að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið með framseljanlegum aflaheimildum. Með hliðsjón af orðum stjórnmála- -------- manna undanfarið má álykta sem svo að ekki sé ólíklegt að ýmsir vilji staldra við og huga að einhvers konar breyting- um á fiskveiðilöggjöfinni. Meðal þeirra álitaefna sem hljóta að koma til skoðunar er hvernig skuli farið með aflaheimildir í norsk-íslenska síldarstofninum." SR-staðir fái úthlutun Haft var eftir Gunnlaugi Júlíus- syni, sveitarstjóra á Raufarhöfn, í Morgunblaðinu í gær að úr því að íslensk stjórnvöld vitnuðu mjög gjarnan í sögulega reynslu og hefð- ir í samningaviðræðum um kvóta úr sameiginlegum stofnum, vildu þessi sveitarfélög umfram allt nota sömu hugmyndafræði og kanna möguleika á því að hluta, að minnsta kosti, yrði úthlutað í formi byggðakvóta. Ekkert lægi enn fyrir um það hvað menn teldu hæfilegan kvóta, en formaður sjávarútvegs- nefndar Alþingis hafí nefnt 15-20% í viðtali fyrir skömmu. „Ef það næðist fram, yrði það feikilegur ára_ngur.“ Á fundi hreppsnefndar -------- Reyðarfjarðarhrepps fyr- ir viku var samþykkt samhljóða tillaga oddvit- ans, Þorvaldar Aðal- _____ steinssonar. í tillögunni var lagt til að fela sveitarstjóra, ásamt bæjar- og sveitarstjórnum annarra SR-staða að vinna að því að SR-staðirnir fái úthlutað byggð- akvótum úr norsk-íslenska síldar- stofninum. Þegar vitnað er til SR-staða í til- lögunni er átt við þau byggðarlög, þar sem Síldarverksmiðjur ríkisins reistu verksmiðjur. Auk þeirra þriggja sveitarfélaga, sem óskuðu greinargerðarinnar, er því einnig vísað til Siglufjarðar. Siglufjörður tekur hins vegar ekki þátt í kröfu- gerð sveitarfélaganna. Björn Valdi- marsson, bæjarstjóri Siglufjarðar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að málið hefði verið rætt í bæjarstjórninni og álit lögmannsins skoðað, en engar tillögur hefðu *' komið fram um byggðakvóta. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Réttmætar kröfur Steingrímur J. Sigfússon, for- maður sjávarútvegsnefndar Alþing- is, sagði að sveitarfélög sem færu fram á byggðakvóta hefðu sum verulega mikið til síns máls. Nú stæði til að útdeila aflaheimildum vegna stofns, sem væri í raun ný viðbót við sjávarútveginn og þá væri fullkomlega réttmætt að ein- hver hluti þessara aflaheimilda nýtt- ist til að byggja upp atvinnu á þeim stöðum, sem verst urðu úti þegar síldin hvarf. „Ég hef nefnt að 15-20% af aflaheimildum íslendinga úr norsk-íslenska stofninum mætti útdeila með þessum hætti, enda þyrfti þetta að vera eitthvað sem munaði um. Það mætti líka hugsa sér að sveitarfélögin fengju ákveðið magn núna, sem myndi ekki endi- lega aukast þótt íslendingar fengju aukinn heildarkvóta í síldinni. Þann- ig væri þessum sveitarfélögum tryggður ákveðinn grunnur að byggja á.“ Aðferðinni hefur verið beitt áður Steingrímur sagði að andstæð- ingar hugmynda um byggðakvóta virtust horfa framhjá því að þess- ari aðferð hefði í raun verið beitt áður, til dæmis hvað varðaði inn- fjarðarveiðar á rækju og skelfiski. „Ég sé heldur engan mun á því að taka frá ákveðinn hlut fyrir sveitar- félög eða því, að í fyrra var hluti síldarkvótans tekinn frá fyrir frystitogara." -*í Aðspurður hvort hann myndi leggja fram tillögu um byggðak- vóta í síldinni, kvaðst Steingrímur ekki hafa velt því fyrir sér. „Það þarf breiða pólitíska samstöðu til að koma slíku fram og það verður ekki gert i andstöðu við fram- kvæmdavaldið, sem fer með úthlut- unina. Mér finnst hins vegar eðli- legt að líta til þess, að fáir staðir höfðu mikil umsvif í síldveiðum og vinnslu á árum áður og fóru hroða- lega út úr því þegar hún hvarf.“ Á að úthluta á þá sem veiða Jónas Haraldsson, skrifstofu- stjóri Landssambands íslenskra* útvegsmanna, kvaðst algjörlega mótfallinn hugmyndum um byggðakvóta. „Kvótinn aflast af veiðireynslu skipa og er skipt niður á þau og jafnast niður á byggðar- lög eftir skipaeign þeirra. Þrátt fyrir að miðað .sé við veiðireynslu gegnum tíðina þegar heildarkvóti Islendinga er ákvarðaður, þá hefur það ekkert að gera með hvar aflinn er lagður að landi á hveijum tíma.“ Jónas kvaðst ekki vita hvort sveitarstjórnarmenn vildu að síld- arkvótinn gengi upp í sorphirðu og vísaði þar til þeirra orða Gunnlaugs Júlíussonar í Morgunblaðinu, að þegar síldin hvarf hafi gróðinn ver-# ið hirtur og sveitarfélagið setið uppi með drasl. Jónas sagði að kvótinn væri ekki sorphirðugjald. „Það hlýtur að eiga að úthluta á þá sem veiða og það virðist gleym- ---------- ast að sveitarfélögin höfðu geysilegan gróða af rekstrinum á meðan hann var og hét. Þarna var mikil vinna og miklar tekjur, en atvinnutækin urðu eftir þegar síldin hvarf og enginn getur ráðið við það.“ Jónas sagði að hann myndi enp, eftir því að fyrir 20 árum kom til tals að Suðurlandssíldin ætti að skiptast á Grindavík, Þorlákshöfn, Vestmannaeyjar og Hafnarfjörð, sem veiddu síldina og verkuðu. „Þá benti útgerðarmaður, sem sat í sveitarstjórn, á að hann myndi lenda í að úthluta kvóta innan síns sveitarfélags og þann kaleik yrðf að taka frá honum.“ Kvótinn er ekki sorp- hirðugjald
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.