Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 48

Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ BARNASTIGUR BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955 SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461 Reykvíkingar! Reglulegum fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur sem haldinn verður í dag, fimmtudag kl. 17:00, verður útvarpað á Aðalstöðinni FM 90.9. Skrilstofa ||I korgarstjóra MrtM SP0RTV(»»M«l"N H , Otrulegt vöruúrvai % m ^ 20 \ 12 ■%.w' 19 3 17 Dartpílur 3 stk. verð frá kr. 490 Dartskífur verðfrá kr. 990 Dart- skápar verð frá kr. 3.595 Rafmagnsdart telur sjálfvirkt með 12 pílumf. 220 volt, . . . plastoddar, 4 leikir með 40 leikafbrigðumVGfSlUflI/T Verð aðeins kr. 9.900, stgr 9.405 morgunverkum Hermanns Jónas- sonar, sem forsætisráðherra, var að koma skipulagi á afurðasölumál bænda, sem höfðu lengi verið í hálfgerðum ólestri til tjóns fyrir landbúnaðinn. Átti Hermann þátt í því með afurðasölulögunum að gera bændasamtökin í iandinu voldug, svo að aðrar stéttir gagnrýndu þau og gera enn. Hermann var mikill vinur Sigurðar Jónassonar, sem ýmist vann með Framsókn eða Al- þýðuflokknum. Sigurður var virkja- namaður. Það má heyra á áramóta- ræðum forsætisráðherra frá þess- um tíma, að hann hefur oft rætt við Sigurð, vegna þess að í ræðun- um bar mikið á hugmyndum um virkjanir og önnur framtíðarplön, sem þá voru kannski viðruð í fyrsta sinn og þeir létu sig báðir miklu skipta. Það sagði stöðugt til sín, að erlendir fiskmarkaðir voru erfið- ir. Spánvetjar keyptu af okkur salt- fisk en við áttum að kaupa af þeim fyrir jafnvirði vörur á móti. Spánar- vinin voru einn vöruflokkurinn, sem kunnugt er. Sum árin var ekkert til að kaupa fyrir afgangs frá Spán- arversluninni. Þá voru góð ráð dýr. En á árinu 1937 skýrði Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra, svo frá, að viðskiptajöfnuðurinn væri hag- stæðari en mörg undanfarin ár. Kveldúlfsmálið kom líka við sögu, um það bil sem fór að togna á stjórnarsamstarfinu. Var deilt um aðgerðir innan stjórnarflokkanna, en Alþýðuflokkur vildi þjóðnýta Kveldúlf. Framsóknarfiokkurinn hafði tilkynnt eins og fyrr er saqt, að hann myndi aidrei styðja þjóð- nýtingarstefnu Alþýðuflokksins. Nú var þessi yfirlýsing flokkins endur- tekin. Stjórnarslit voru óhjákvæmi- leg og efnt var til kosninga 1937. Skömmu eftir að Hermann Jón- asson varð forsætisráðherra flutti hann með fjölskyldu sína í ráðherra- bústaðinn við Tjarnargötu og þar bjó hún fram á árið 1943, þegar þjóðstjórnin var failin. Engum blöð- um þarf um það að fletta, að mikið mæddi á Vigdísi Steingrímsdóttur við þær breytingar, sem urðu á högum Hermanns og fjölskyldu hans við stjórnarmyndunina 1934. Börnin voru tvö sem upp komust; Steingrímur og Pálína. Þau hjón bjuggu fyrst í húsi foreldra Vigdís- ar að Amtmannsstíg 4. í þessu húsi fæddust börn þeirra hjóna. Vigdís var mikil húsmóðir og veitti heimili sínu forstöðu með glæsi- brag. Því fylgdu ýmsar skyldur að vera húsmóðir á heimili forsætis- ráðherra, en það leysti hún allt vel af hendi. Sjálf mun hún ekki hafa talið eftir þá miklu vinnu sem hún þurfti að sinna sem kona forsætis- ráðherra um langt árabil, þótt hún hefði stúlkur sér til aðstoðar. Síðar sagði Vigdís að það hefðu verið barneignimar sem hefðu farið verst með sig. Þau hjón eignuðust fjögur börn. Fyrsta barnið var Herdís, fædd vorið 1927. Hún lést aðeins vikugömul. Síðan komu Steingrím- ur, seðlabankastjóri, fyrrverandi þingmaður og forsætisráðherra og Pálína, sem átti tvíburasystur sem lést í fæðingu. Hermann og Vigdís byggðu tvisvar yfir sig. Fyrst byggðu þau hús syðst á Laufásvegi við horn Barónsstígs, og áttu þar heima í stuttan tíma áður en þau fluttu í ráðherrabústaðinn. Úr ráð- herrabústaðnum fluttu þau síðan í Tjarnargötu 42, en það hús hafði Hermann byggt á meðan hann var ráðherra. Fyrrverandi samstarfsflokkar gengu óbundnir til kosninga 20. júní 1937. Ljóst var að Alþýðuflokk- urinn yrði að geta hugsað sér sam- starf við Framsóknarflokkinn án þjóðnýtingarstefnu. Þeim áformum Héðins og félaga hafði verið vísað staðfastlega á bug. Ráðherrar sátu áfram fram yfir kosningar og var það almenn skoðun að flokkarnir myndu halda áfram óbreyttu sam- starfi. Kosningabaráttan stóð eink- um á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Kommúnistar buðu fram í ellefu kjördæmum. Þeir komu manni á þing í fyrsta sinn og fengu tvo uppbótarþing- menn. Alþýðuflokkurinn tapaði hins vegar tveimur þingmönnum. Stjórnin frá 1934 hafði verið ötul og kjarkmikil. Alþýðuflokkurinn uppskar svo þakklætið í kosningun- um. Stutt var í helför Héðins yfir til kommúnista og er líklegt að all- ur sá klofningsþytur hafi haft áhrif á fylgi krata. Hermann Jónasson var varla einhamur á meðan kosn- ingabaráttan stóð. Hann tók áskor- un Ólafs Thors um að mæta honum á Hólmavíkurfundi. Fékk hann áskorunina þannig, að maður sat fyrir honum í vegarkanti við Borð- eyri með áskorunarskeyti frá Ólafi. Þannig voru nú fjarskiptin i þá daga. Tilefni þessara kappræðna var Gúttó-slagurinn 9. nóvember 1932, en kosningabaráttan snerist síðustu vikur mest um þetta fimm ára gamla mál. Framsóknarflokk- urinn bætti við sig atkvæðum i nær öllum kjördæmum landsins, en mestur var þá sigur Hermanns í Strandasýslu. Þar fékk hann nærri tvöfalt fleiri atkvæði en 1934. Hvað stjórnarsamstarfið snerti var enn meirihluti fyrir hendi, en Ásgeir Ásgeirsson var genginn í Alþýðu- flokkinn um þessar mundir. Ríkisstjórnin sat áfram eftir kosningar án þess að nýr stjórnar- samningur væri gerður. Hið næsta umhverfi íslands tók örum breyt- ingum og þjóðir deildu um ítök og áhrif eins og jafnan áður. í ára- mótaávarpi Hermanns fyrir kosn- ingar mátti heyra að hann legði næmt eyra við samskiptum Evrópu- ríkja og hefði áhyggjur af landi sínu yrði um frekara umrót að ræða, eins og allt stefndi til. En hann var einn þeirra, sem sagt var um af öðru tilefni, að kvæði líf í freðnar þjóðir. Hann benti hlustendum sín- um á, að hér væri gerð tilraun til að lifa lifi menningarþjóðar og miklu kostað til þess. Þessi tilraun hundrað þúsund manna vekti at- hygli erlendis. Kannski meinti hann ekki þá athygli, sem nú er sóst eft- ir, en hann áleit að þjóðin ætti að- dáun annarra vísa fyrir að hafa lif- að af marga harða vetur og þrauk- að, eignast okkar skáldskap og okkar frægu rit. En vopn smjúga slíka varnarveggi og huliðshjúpa auðveldlega. Og sú varð raunin. En þá var Hermann enn við stjórn- völinn til að koma í veg fyrir ónauð- synlegt tjón. Kannski vegna þeirrar varðstöðu. í byijun árs 1938 var samþykkt á miðstjórnarfundi flokksins að hefja viðræður við Al- þýðuflokkinn um endurnýjun stjómarsamnings, var á þessum sama fundi samþykkt eftirfarandi: Flokkurinn fordæmir alveg sérstak- lega pólitíska starfsemi þeirra manna, sem leita til erlendra vald- hafa eftir fyrirlagi um íslensk stjórnmál. Viðræður við Alþýðu- flokkinn komust aldrei af stað, enda sagði Haraldur Guðmundsson sig úr stjórninni eftir að gerðardómur hafði verið samþykktur á togarasjó- menn. Skúli Guðmundsson varð þá ráðherra og gegndi embætti í rúmt ár. Við vantraust sem Sjálfstæðis- flokkurinn flutti á ríkisstjórnina kom fram í ræðu Hermanns Jónas- sonar, að vegna vaxandi óróleika hér heima og erlendis hefði hug- mynd um þjóðstjórn borið á góma. Alþýðuflokkurinn varði stjórn Her- manns falli. Hermann og Vigdís höfðu tvisvar staðið fyrir móttöku á konungbornu fólki Danmerkur. Fyrst til að heim- sækja landið í ráðherratíð Her- manns voru Kristján tíundi og Alex- andra drottning. Konungshjónin ferðuðust um landið í fylgd Her- manns og Vigdísar og fyrirfólks bæði dansks og íslensks. Meðan þau Jit pro-shop sIðomúla 1. ■ ii® revkjavík Fleece undirfatnaður fyrir dömur oq herra kr. 12.500, Goritex vöðlujakki 5 ára ábyrgð. kr. 29.900, Battenkill fluguhjól frá kr. 11.980 Orvis vöðlur, frá kr. 14.900, Handklæðasett í veiðina kr. 5.900, / / 1 \ / / 1 1 \ \ i I I % \ M I k \ K \ / I 1 lV o/—J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.