Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ fHr L. I.f UUstgr Ferðatæki m/geislaspilara AZ 8052 Úvarpsvekiaraklukka RM 5080 Hárblásari 1650 w HP 4362 Supertech-vekjaraklukka AC 2300 PHILIPS SA%VO Krl&.uHrUsigr Rafmagnsrakvél m/hleðslu Pk HQ 4850 Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt. ______LISTIR___ í hnattferð í leit að Guði BOKMENNTIR Skáldsaga í LEIT AÐ GUÐI Eftir Pétur Guðjónsson, Eyvindur Erlendsson íslenskaði. Útg. bókaút- gáfan Nexus 1996 - 237 bls. ÞAÐ VERÐUR ekki sagt að höfundur ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. í þessari bók sem kölluð er „eins konar skáldsaga" ákveður aðalpersónan John að ieggja upp í hnattferð: tilgangur- inn er að finna guð. Hvorki meira né minna. John er bandarískur kaupsýslu- maður sem vaknar sem sé upp við það einn morguninn að hann langar að vita hvort guð er til, hvern- ig hann er og hvar hann er. John hefur að sögn höfundar ekki velt trúmálum mikið fyrir sér og guð hefur ekki skipt hann miklu máli fram að þessu. Þó hefur hann gluggað í heimspeki og trúarbrögð austur- landa Qær. Hann kveður grátbólgna vinkonu sína með þeim orðum að hann viti ekki fyrir víst hvað að sér gangi en hvað svo sem það sé skipti það miklu máli og hann verði að ráða fram úr því á eigin spýtur. Samt er honum ekki alls kostar rótt, hugsar: „Hvað ef Guð væri til í raun og veru? Hvað nú ef ég gæti komist í samband við þann máttuga anda? Hvað nú ef ég gæti orðið tengdur honum, hvað sem hann nú er; kærleikur, kraftur og viska, býst ég við ...? Hvað ef ég helgaði líf mitt honum?“ Og hann er ekki að tvínóna við neitt, pantar sér farmiða og leggur af stað og fyrsti viðkomustaður hans er Indland, enda er þar vinur hans og spekimaður mikill Linesh sem hann bindur vonir við að geti hjálpað sér við leitina. Mjög af- drífaríkur fundur milli hans og Tönju flugfreyju verður á leið þangað. Það væri of langt mál að rekja ferðalag Johns, en hann kemur við á Sri Lanka líka, Hong Kong, Jap- an, Haiti, Brasilíu og Argentínu. Hann er gagntekinn af leit sinni og er svo lánsamur að allir virðast meira og minna vera að bíða hans og hvert sem hann snýr sér eru sálufélagar sem dreymir um það eitt að tala og hugsa um guð og tilgang lífsins og eru þessar sam- ræður og íhuganir afar fyrirferðar- miklar. Lífsreynslu sem hann verð- ur fyrir á hveijum stað hvort sem er hjá galdramönnum á Haiti, við musteri í Hong Kong eða fjöllum Argentínu leiða til þess að John sér að leitin er að skila árangri. Draumfarir hans eru ekki síður tilþrifamiklar og allt verður þetta tilefni til hástemmdra þenkinga. Undir lokin er hann kominn heim aftur til Bandaríkjanna, nýr maður og tilbúinn að miðla af reynslu sinni við miklar undirtekt- ir, ásamt öllum vinum sínum sem hann kynntist í ferðinni. Sögunni lýkur á því að Tanja kemur til skjalanna á ný og „hann fann fyr- ir guðdóminum allt í kringum sig, í henni og þeirra í millum. Allt var fullgert. Hann var kominn heim.“ Pétur Guðjónsson hefur skrifað nokkrar bækur áður en þær hef ég ekki lesið. Þessi eins konar skáldsaga er skrifuð af innlifun og ákafa og mikilli þörf til að leysa lífs- gátuna - þ.e. að finna guð. En þó viljinn sé ótvíræður hjá höfundi og margt gott og göf- ugt sé hugsað og sagt er hér farið langt yfir markið. Sögupersónan John og allir sem hann hittir á leiðinni eru bara skissur sem virð- ast þjóna því einu að koma því, sem höfundur vill sagt hafa, á framfæri. Uppbygging er einhvers staðar út í móa og einlægnin er svo ein- feldningsleg að mér er ekki ljóst hvað vakir fyrir höfundinum með þessum skrifum. Á kápu segir að bækur Péturs hafi verið gefnar út á mörgum tungumálum. Þessi er sýnilega ekki skrifuð á íslensku því Eyvind- ur Erlendsson þýðir hana. Þýðing Eyvindar er víða mjög sérkennileg. Stundum lætur hann ógert að þýða ensk orð, kallar Bandaríkin til dæmis USA, annars staðar er talað um átfitt - þ.e. klæðnaður - segir að fötin fitti við, orðið fílingur er oft notað og eins „fattar maður ekki upp á e-u, og enn má nefna ranga notkun orða og orðasambanda svo sem setningin „trúfélagið var sem him- inn höndum tekinn" og er þá fátt talið. Sums staðar virðist þýðandi hafa vandað sig ágætlega en í heild þótti mér hún afar skrykk- jótt og ekki til þess fallin að hjálpa textanum. Jóhanna Kristjónsdóttir Pétur Guðjónsson Umboðsmenn: Fljótlegt úr frystinum...........og ó aSeins *7 mínútum, safarík og mjúk með stökkum botni Örbylgjuofninn ... hreint frábær nýjung! ‘ miðað við 3(X Reykjavík: Byggt & Búiö, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfiröinga, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni E. Hallgrímsson, Grundarfirði.Verslun Einars Stefánssonar, Búöardal. Vestfiröir: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauöárkróki.KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA Siglufiröi. KEA, Ólafsfiröi. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Lóniö, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson.Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK Höfn. Suöurland: Án/irkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Ljósboginn, Keflavík. Rafborg.Grindavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.