Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 33
LISTIR
skrá fylgir ekki þesu bindi enda
gerist hennar varla þörf þar sem
æviskrárnar eru í stafrófsröð.
Um tvö þúsund myndir eru í
þessum bókum báðum. Margar
þeirra eru stórfróðlegar og upplýs-
andi. Það er gaman að sjá svip
þessara gömlu garpa og kvenna
þeirra og virða fyrir sér ættarmót
yngri kynslóðanna. Aðrar myndir
af landslagi og störfum eru einnig
mikils virði. Þó held ég að mér
hafi dvalist lengst við að skoða
myndir af hinum gömlu breiðfirsku
bátum. Glæsilegar voru þær litlu
fleytur og listræn smíð. Gaman
hefur verið að sjá þær á siglingu
undir fullum seglum. Mikilla þakka
er vert að hafa náð öllum þessum
myndum saman. Það hefur ekki
verið auðvelt verk.
Enda þótt mest hafí mætt á rit-
stjóranum við gerð þessa ritverks
hafa ýmsir aðrir lagt mikið af
mörkum. Flestra þeirra er áður
getið, en til viðbótar skulu nefndir
Asgeir Svanbergsson og Eggert
Th. Kjartansson.
Ég finn ekki mikla galla á þessu
verki og væri raunar ósanngjarnt
að fara að tína til það litla sem ég
hef komið auga á. Því að ég hika
ekki við að fullyrða að ritverk þetta,
svo efnismikið og glæsilegt sem
það er sé einstætt í sinni röð. Það
er tímamótaverk og verðugur
minnisvarði um þennan „þjóðgarð
Drottins", eins og Jökull Jakobsson
orðaði það svo vel, þetta sérstæða
mannlíf sem nú er horfið. Sá minn-
isvarði mun lengi standa. Og víst
er að Breiðfirðinga þarf ekki að
skorta lestrarefni yfir hátíðirnar.
Sigurjón Björnsson
helst á fyrirbæri í himinhvolfinu;
og bertálknanum fjórrendingi, sem
nýtur sín vel á bókarkápunni. Þá
eru marglytturnar einstaklega
tignarlegar í myndum Pálma.
Langveikasti þáttur bókarinnar
er hönnunin. Síðurnar tvær með
efnisyfirlitinu eru ólæsilegar og
veldur því gleitt og óþægilegt há-
stafaletur sem rennur saman við
blaðsíðunúmerin. Og áfram halda
óþægindin; myndatextar eru iðu-
lega eins langt frá viðkomandi
mynd á opnum bókarinnar og hægt
er, og svo kemur það aftur og aft-
ur fyrir að agnarlitlum myndum
er troðið út í hom á myndatexta-
dálkum, myndum sem eru 4 sm á
breidd og nánast móðgun við le-
sandann, því þótt hann sé allur af
vilja gerður að sjá það sem textinn
segir að eigi að vera á þessum
myndum, þá er það mjög erfitt.
Blessunarlega er meirihluti ljós-
myndanna þó hafður þokkalega
stór þannig að heimurinn sem ver-
ið er að fjaila um njóti sín. Prentun-
in er frekar mött en ágæt að öðru
leyti.
Undraheimur hafdjúpanna við
ísland er eiguleg bók og fróðleg,
og höfundum sínum til sóma, en
hefði getað orðið sterkari og þægi-
legri aflestrar með vandaðri útlits-
hönnun.
Einar Falur Ingólfsson
Viltu tryggja
m e ð
s í m t a I
FJARVANGUR H F.
Bestu kiörin!
Samkvæmt samanburði Morgunblaðsins 17. desemberá greiðslukjörum verðbréfafyrirtækjanna
Hvað býður Fjárvangur ef þú vilt tryggja þér skattafslátt með
kaupum á hlutabréfum í Almenna hlutabréfasjóðnum?
• Lægsta kostnaðinn ef keypt er á boögreiöslum.
• 50% afslátt á mismun kaup- og sölugengis.
• 10% útborgun og eftirstöðvar á 12 mánaða boðgreiðslum.
• Fyrstu afborgun boðgreiðslu f mars 1997.
• Að afgreiða kaupin með einu símtali í síma:
fTTT^
FJÁRVANGUR
lÖGGILT VERÐBflÉFAFYRIRIÆKI
Laugavegi 170,105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
I
I
I
I
Val| húsgöqn
Ármúla 8-108 Reykjavík
Mikið
úrval
húsqaqna í
antÍKstíl
Sófasett 3+1 +1,
ksófaborð og 2 litlir stólar.
Álæði drapplitað,
bleikt og rautt.
Alltþetta
kr. 232.000.- stgr.
L Sími 581-2275 568-5375 Fax 568-5275
Skrifborð
Sófaborð
Sófasett
Kommoður
Hjá
okkureru
Visa- og
Eurorað-
samningar
ávísun á
staðgreiðslu