Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Tæki í baráttunni
gegn fátækt
Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar
Lára _ Guðrún
Björnsdóttir Ögmundsdóttir
Á UNDANFÖRNUM
misserum hefur nokkur
umræða farið fram op-
inberlega um fjárhags-
aðstoð sem Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur-
borgar veitir einstakl-
ingum og fjölskyldum í
Reykjavík. Er það
væntanlega í fyrsta
sinn á íslandi að opinber
umræða fer fram um
þessa tegund félags-
legrar þjónustu og er
það vel. Alltof lengi
hefur þessi aðstoð sam-
félagsins legið í þagnar-
gildi og jafnvel talin
óþörf, enda oft verið
bundin skömm og
stimplun þeirra sem hennar hafa
notið.
Umræðan hófst þegar upplýsingar
komu fram um mikla íjölgun um-
sækjenda um fjárhagsaðstoð og
aukningu útgjalda til þessa mála-
flokks og einnig í kjölfar þess að
Reykjavíkurborg samþykkti nýjar
reglur um íjárhagsaðstoð 1. maí
1995. Þessar reglur eiga stoð í lögum
um félagsþjónustu sveitarfélaga nr
40/1991 sem leystu af hólmi fram-
færslulög frá 1947. Segja má að
með samþykkt félagsþjónustulag-
anna 1991 hafí ísland komist í hóp
norrænna velferðarþjóða hvað varðar
félagsþjónustu sveitarfélaga einkum
viðhorf og hugmyndafræði sem lögin
byggja á. Meginmarkmið laganna er
að „tryggja fjárhagslegt og félags-
legt öryggi og stuðla að velferð á
grundvelli samhjálpar." Það er þó á
valdi hvers sveitarfélags að setja sér
eigin reglur um framkvæmd og magn
þjónustunnar og þess vegna sitja
ekki allir íbúar landsins við sama
borð sem verður að teljast mikill
galli á lögunum.
Nýjar reglur um
fjárhagsaðstoð
I upphafí nýs kjörtímabils árið
1994 markaði félagsmálaráð Reykja-
víkur þá stefnu að endurskoða bæri
reglur um fjárhagsaðstoð enda
byggðu þáverandi reglur á lögum
sem gengin voru úr gildi. Félags-
málaráð samþykkti nýjar reglur 30.
janúar 1995 og voru þær samþykkt-
ar til reynslu í borgarstjóm í apn'l
og öðluðust gildi 1. maí sama ár.
Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte &
Touche hafði áður verið fengið til
að vinna að viðamikilli úttekt á
„gömlu reglunum" og leiddi hún í
ljós ýmsa ágalla á þáverandi kerfi,
sem nýju reglunum var ætlað að
vinna bót á. Reglumar byggja m.a.
á réttindasjónarmiði í stað einstakl-
ingsbundins mats áður. Stefnt var
að auknu jafnræði með umsækjend-
um og því að einfalda og flýta af-
greiðslu málanna til þess að vinna
mætti gegn biðtíma sem fylgt hafði
í kjölfar gífurlegri fjölgun umsækj-
enda á undanfömum ámm án þess
að starfsfólki fjölgaði að sama skapi.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun
fjárhagsaðstoðar sl. 10 ár þar sem
fjöldi þeirra sem fékk fjárhagsaðstoð
jókst um 73,9% eða úr 2.185 í 3.800.
Þess ber að geta að mun fleiri ein-
staklingar em að baki þessum tölum
því einungis einn úr fjölskyldunni er
skráður fyrir málinu. T.d. var meðal-
fjölskyldan 1995 tæplega tveir. Á
sama tíma hafa útgjöld hækkað mun
meira eða úr 96 milljónum 1986 í
682 milljónir árið 1995.
Úttekt á reynslu af reglunum
Nýlega er lokið ítarlegri úttekt á
meira en 1 ‘A árs reynslu af reglum
um fjárhagsaðstoð. Sigríður Jóns-
vtir SO
brettatýpur
íðBlGiNÍm
Snjobrettaskór
Snjóbrettaúlpur
Snjóbrettabuxur
j Snjóbrettahanskar
Snjóbrettapeysur
Snjóbrettapokar
• -a
4 iillÉSlI
Tiiboð d brettum með bindingum
15 - 55°/c stagr. ajsL
+ bindingar frákr. Z1.47Cstgr.
Link 138/145 + bindingar kr. 28985 stgr.
Noah Brandon + bindingar kr. 34.970 stgr.
+ bindingarfrá kr. 37.905 stgr.
4i Hohmann + bindingar kr. 41.040 stgr.
Verslunin
í Reykjavík búa 38,3%
landsmanna, segja
Lára Björnsdóttir og
Guðrún Ögmunds-
dóttir, en helmingur
einstæðra foreldra, ör-
orkulífeyrisþega og at-
vinnulausra og 45%
ellilífeyrisþega.
dóttir forstöðumaður rannsóknar og
þróunarsviðs Félagsmálastofnunar
vann úttektina sem gefín hefur verið
út í viðamikilli skýrslu. Þar er að
fínna margháttaðan fróðleik og upp-
lýsingar og er einungis hægt að
nefna fátt eitt hér. Helstu niðurstöð-
ur em:
* Afgreiðsla fjárhagsaðstoðar
hefur verið einfölduð og gerð fljót-
virkari, sem kemur bæði neytendum
og stofnuninni til góða.
* Nýjar reglur hafa stuðlað að
auknu jafnræði með umsækjendum.
* Áætluð aukning útgjalda til
fjárhagsaðstoðar milli áranna 1995-
1996 er minni en áður eða 12,5%
samanborið við 26% 1994-1995 og
25% 1993-1994.
* Árið 1996 fækkar þeim sem fá
fjárhagsaðstoð og skýrist það m.a.
af samspili nýrra reglna og greiðslu
húsaleigubóta og fækkun atvinnu-
lausra í styrkþegahópnum.
* Meginástæða fyrir auknum út-
gjöldum til fjárhagsaðstoðar frá
1993 er aukning atvinnulausra í
borginni einkum langtímaatvinnu-
lausra. Helmingur þeirra er algjör-
lega án atvinnuleysisbóta ög enn
aðrir fá skertar atvinnuleysisbætur.
* Á ámnum 1995 og 1996 em
atvinnulausir um 60% af þeim sem
fá fjárhagsaðstoð og fá um 75% af
öllu fjármagni sem varið er til fjár-
hagsaðstoðar.
* Árleg meðalupphæð á hvem
umsækjanda hefur farið hækkandi á
undanförnum ámm en aldrei örar
en milli 1995 og 1996. Hærri meðal-
styrkur árin 1995 og 1996 skýrist
af því að atvinnulausir fá styrk til
lengri tíma en þekkst hefur á undan-
förnum ámm.
Markmið laga um
félagsþjónustu sveitarfélaga:
Barátta gegn fátækt
Margir velta fyrir sér þeirri mót-
sögn að á tímum góðæris í þjóðfélag-
inu aukist útgjöld til fjárhagsaðstoð-
ar. Staðreyndin er samt sú að sam-
kvæmt norrænni samanburðarrann-
sókn sem Félagsvísindastofnun HÍ
vann fyrir íslands hönd hefur fátæk-
um íslendingum fjölgað úr 8% árið
OLNBOGABÖRN
VERÐLAUNASAGA
og aðrar úrvals sögur
Nýjar óbirtar sögur
Kransi
Konungur kattanna
Jólagjöf heilagrar Maríu
Hlautfvrstu verðlaun í alþjóðlegri
samkeppni.
Endurútgefnar sögur
Dóttir Satans
Hús ekkjunnar
Ást og náttúra
Himnabrúður
Blóð, sviti og tár
Leslu og njóttu lrásagnargleði
Hrafnhildar Valnarðsdóllur. ■