Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.12.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Stjórnarfrumvarp um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum Ofanflóðasjóður fær 500 millj. ^ Morgunblaðið/Rax I einum hnapp OFANFLÓÐASJÓÐUR verður framvegis í vörslu umhverfisráðu- neytisins og iðgjald sjóðsins sem lagt er á allar brunatryggðar húseignir í landinu og innheimt ásamt iðgjaldi til Viðlagatryggingar íslands hækk- ar úr 0,2 prómillum af yátrygginga- verðmæti í 0,3 prómill. Á móti fellur niður hlutdeild Ofanflóðasjóðs í ið- gjaldatekjum Viðlagatryggingar og sérstakt aukaálag sem lagt hefur verið á iðgjaldið. I>etta er ein þeirra breytingartillagna sem fram koma í frumvarpi til nýrra heildarlaga um vamir gegn snjóflóðum og skriðu- föllum sem ríkisstjómin hefur sam- þykkt að senda þingflokkum stjóm- arflokkanna til meðferðar. Fmmvarpið er í meginatriðum byggt á núgildandi lögum um vamir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og breytingum sem gerðar vom á þeim í kjölfar snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri á seinasta ári. Þó er gert ráð fyrir ýmsum breytingum í fmm- varpinu, sem samið er af nefnd sem forsætisráðherra skipaði. Tekjur lækka um 80 miiy. kr. Gert er ráð fyrir að gjaldið til Ofanflóðasjóðs færi sjóðnum varan- lega um 500 milljónir kr. tekjur á hvetju ári en það er um 80 milljóna kr. lægri upphæð en sjóðnum hefur verið tryggt tímabundið að undan- fömu. Með þessu fyrirkomulagi vinnst tvennt að því er segir í grein- argerð fmmvarpsins. „í fyrsta lagi eru Ofanflóðasjóði tryggðar nægar tekjur til þess að hann geti staðið undir uppbyggingu á nauðsynlegum vamarvirkjum og í öðm lagi er gerð JÓN Friðriksson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings hf., segir að fyrirtækið muni væntanlega ekki fallast á kröfu frá Atvinnuieysis- tryggingasjóði um að það greiði sjóðnum fjármuni vegna starfsfólks sem sagt var upp kauptryggingar- samningi í haust, komi slík krafa fram. Atvinnuleysistryggingasjóður er að láta kanna gmndvöll fyrir slíkri kröfu. Félagsdómur hefur úrskurðað að vinnslustöðvun Fiskiðjunnar Skag- flrðings í sumar hafi verið brot á aðallqarasamningi. Jón Friðriksson sagðist vera mjög ósáttur við þessa niðurstöðu. Hann sagði athyglisvert að dómurinn úrskurðaði vinnslu- skýr skil á milli Ofanflóðasjóðs ann- ars vegar og Viðlagatryggingar hins vegar. Sá háttur að greiða hluta af iðgjöldum Viðlagatryggingar til sjóðsins stenst heldur varla, þegar til lengri tíma er litið, enda hefur hann verið gagnrýndur, m.a. af end- urtryggjendum Viðlagatryggingar," segir í greinargerð. Reglum um hættumat breytt Reglum um hættumat er breytt í nokkmm atriðum og er lagt til að slíkt mat nái fyrst og fremst til þétt- býlis og svæða þar sem þétt byggð er fyrirhuguð vegna þess hve vinna við slíkt mat er tímafrek og kostnað- arsöm. „Er gengið út frá því að ákveðin verði sú hætta af völdum ofanflóða, sem ásættanlegt getur talist að fólk á byggðum svæðum búi við, með hliðsjón af annarri al- mannahættu sem fyrir hendi er í nútímaþjóðfélagi," segir í greinar- gerð frumvarpsins. Sveitarfélög geti fengið víkjandi lán úr Ofanflóðasjóði í greinargerð kemur fram að for- svarsmenn sveitarfélaga hafa krafist þess að Ofanflóðasjóður beri allan kostnað við uppbyggingu vamar- virkja en í fmmvarpinu segir einnig að það væri mikið óráð að færa for- ræði á hönnun og framkvæmdum að öllu leyti úr höndum heimamanna. Er því lagt til að sveitarfélög fjár- magni gerð vamarvirkja að hluta eins og verið hefur. Hins vegar verði Of- anflóðasjóði heimilað að veita sveitar- félögunum víkjandi lán til að standa straum af kostnaðarhlutdeild þeirra. stöðvun frá 12. ágúst til 1. septem- ber löglega, en stöðvun í september- mánuði ólöglega vegna þess að þá var nýtt kvótatímabil hafið. Allan tímann hefði fyrirtækið þó átt Rússa- físk í frystigeymslu og því virtist hann ekki hafa áhrif í þessu máli. Ef svo hefði verið hefði dómurinn væntanlega úrskurðað vinnslustöðv- un frá 12. ágúst ólöglega. Jón sagði að þessi dómur vekti þá spumingu hjá stjómendum FISK hf. hvort það hefðu verið mistök að sameina fyrirtækið, en útgerð og fiskvinnsla voru áður hvor í sínu fyrirtækinu. Hann sagðist telja ljóst að dómurinn myndi hafa áhrif á hvemig sjávarútvegsfyrirtæki FUGLALÍFIÐ er víða fjölskrúð- ugt og fagurt í Reykjavík, eins og flestir þeir vita sem eiga leið framhjá Tjörninni og líta endur, álftir, gæsir og fleiri tegundir í sæmilegu bróðerni. Ekki er laust við að þar verði stundum þröng kæmu til með að stjóma veiðum og vinnslu í framtíðinni. Dómurinn hefði ekki metið þá viðleitni fyrir- tækisins að senda skip í Smuguna til að afla aukins hráefnis og fyrir: tækið hljóti að taka mið af því. í dómnum væri ennfremur sagt að eðlilegra hefði verið að fyrirtækið hefði sagt starfsfólkinu upp störfum. Þetta kynni að leiða til þess að FISK yrði í framtíðinni með færra fólk starfandi í landi. Forsendur endurkröfu til skoðunar Margrét Tómasdóttir, fram- kvæmdastjóri Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, sagðist hafa óskað eftir upplýsingum frá verkalýðsfélaginu Fram á Sauðárkróki um hvaða ein- staklingar hefðu fengið greiddar at- vinnuleysisbætur frá 1. september til 1. október sl. Jafnframt hefði lög- fræðingi sjóðsins verið falið að skoða lögin um atvinnuleysistryggingar með hliðsjón af dómsorðum Félags- dóms. Ekki lægju því fyrir nægileg- ar upplýsingar til að hægt væri að svara því hvort sjóðurinn gerði kröfu á hendur Fiskiðjunni Skagfirðingi hf. um endurgreiðslu. Ef slík krafa yrði lögð fram yrði jafnframt að skoða önnur fyrirtæki sem lokuðu á sama tíma og beittu fyrir sig sömu röksemdum um hráefnisskort. Hún sagðist ekki geta svarað því um hvað mörg fyrirtæki væri þar að ræða. „Ég veit ekki hvort Atvinnuleys- istryggingasjóður gerir einhverja kröfu til okkar, en ef það verður fagna ég því. Þar myndi reyna á það á þingi, einkum þegar ís þrengir að því svæði sem fuglarnir hafa til umráða, eins og ljósmyndari Morgunblaðsins varð áþreifan- lega var við þegar hann brá sér niður í miðbæ til að skoða þetta vængjaða samfélag. fyrir almennum dómstólum hvort þetta var lögmætt. Við teljum að við höfum verið að gera rétta hluti og þess vegna hef ég ekki trú á að við myndum fallast á slíka kröfu,“ sagði Jón Friðriksson. FH hættir við uppsagnir Jón Karlsson, formaður verka- lýðsfélagsins Fram og varaformaður VMSÍ, sagði ljóst að Félagsdómur ætlaðist til þess að ákvæði laga um vinnslustöðvun vegna hráefnisskorts yrðu túlkuð þröngt. Hann sagðist telja að dómurinn ætti eftir að hafa víðtæk áhrif að þessu leyti. Dómur- inn yrði mikilvægt innlegg í kjara- viðræður sem nú standa yfir, en hann vildi ekki spá um hvaða breyt- ingar yrðu gerðar á aðalkjarasamn- ingi í framhaldi af honum. Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. ákvað í gær að draga til baka upp- sagnir starfsfólks, en þær áttu að taka gildi 23. desember. Fyrirtækið mun greiða fískvinnslufólki dag- vinnulaun yfir jólin, en engin fisk- vinnsla verður á vegum fyrirtækisins frá 20. desember fram yfir nýár. Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar VMSI, sagðist ekki vita um að fleiri fyrirtæki hefðu brugðist eins við. Mun minna hefði verið um uppsagnir hjá fískvinnslu- húsum um þessi jól en áður. Hann sagðist telja að þetta mætti rekja til áhrifa af baráttu fiskvinnsludeild- arinnar fyrir betri ráðningarréttind- um starfsfólks. Fyrirtækin hefðu vitað af þessu máli hjá Félagsdómi og ekki viljað grípa til uppsagna fyrr en niðurstaða hans lá fyrir. Atvinnu- leysi minnkar ATVINNULEYSI er minna í ár en í fyrra, að því er fram kom í svari Páls Péturssonar félagsmálaráðherra við fyrir- spum samflokksmanns síns, varaþingmannsins Vigdísar Hauksdóttur, í gær. Páll greindi frá því að 6.568 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá árið 1995 eða 5% af heildarmann- afla en á tímabilinu frá nóvem- ber 1995 til október á þessu ári voru atvinnulausir 5.870 talsins eða 4,4%. Ráðherra taldi m.a. hægt að rekja batnandi atvinnuástand til margvíslegra átaksverkefna ráðuneytisins í samstarfí við sveitarfélög, verkalýðsfélög og félagasamtök. Námskeið í físk- vinnslu og nýstofnaðir vinnu- klúbbar hefðu gefið góða raun, en að jafnaði hefðu tveir þriðju þátttakenda fengið vinnu. Fram kom að atvinnuleysi er algengara á höfuðborgar- svæðinu en á landsbyggðinni og meðal kvenna en karla. Hlut- fall atvinnulausra af mannafla í Reykjavík lækkaði t.a.m. úr 5,1% í 5% milli ára. Loks var greint frá því að hlutfall at- vinnulausra karla á landinu öllu hefði lækkað úr 4% í 3,3% milli ára, en kvenna úr 6,4% í 6%. Leyfum til útlendinga fjölgar MUN fleiri atvinnuleyfi fyrir útlendinga hafa verið gefin út það sem af er árinu en allt árið í fyrra. Lætur nærri að um tvö- falt fleiri leyfi sé að ræða. Flest leyfi eru veitt vegna vinnu út- lendinga í fiskvinnslu hér á landi. í lok október sl. hafði Vinnu- málaskrifstofa félagsmálaráðu- neytisins veitt 627 útlendingum ný tímabundin atvinnuleyfí, en allt árið í fyrra voru þessi leyfí 361. Þessi leyfi eru að hámarki gefin út til eins árs, en algeng- ast er að þau séu gefin út til nokkurra mánaða. Fyrstu tíu mánuði ársins voru gefín út 299 framlengd at- vinnuleyfí til útlendinga, en 376 allt árið í fyrra. Gefin voru út á fyrstu tíu mánuðum ársins 130 óbundin atvinnuleyfi, en 101 leyfi allt árið í fyrra. Er- lendir ríkisborgarar geta fengið óbundin atvinnuleyfi eftir að hafa dvalist hér á landi í þijú ár. Vinnumálaskrifstofan hefur veitt útlendingum 3 leyfí til at- vinnurekstrar hér á landi á þessu ári, en 6 slík leyfi voru gefin út í fýrra. Gefin hafa verið út 24 námsmannaleyfi til námsmanna sem vinna hér á landi á sumrin samhliða námi, en 16 slík leyfi voru gefin út á síðasta ári. Þá hafa verið gefin út 2 svokölluð vistráðningarleyfi, en 11 fengu slík leyfi í fyrra. Minna greitt í bætur TALSVERT lægri upphæð fer til greiðslu atvinnuleysisbóta á þessu ári en á því síðasta. 13. desember sl. hafði Atvinnuleys- istryggingasjóður greitt 2.608 milljónir í atvinnuleysisbætur, en allt árið í fyrra voru greidd- ar 3.245 milljónir í atvinnuleys- isbætur. í fjárlögum var reiknað með að greiddar yrðu 3.178 millj- ónir í atvinnuleysisbætur á þessu ári, en útlit er fyrir að í raun verði þessi útgjöld heldur lægri. í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að 2.790 milljónir verði greiddar í atvinnuleysisbætur. Opib í dag 10-22 Jólasveinar koma í heiinsókn kl. 16:30,17:15 og 18:00 KRINGWN /ru morgni til kvöhls Atvinnuleysistryggingasjóður íhugar kröfugerð á hendur FISK. Fi’amkvæmdastj órinn segist ekki fallast á endurkröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.