Morgunblaðið - 19.12.1996, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Færni nemenda í 4. og 7. bekkjum í íslensku og stærðfræði skilgreind að loknum prófum
Nauðsyn að
herða á um
20% nema
Hægt að fylla
upp í eyður
eða göt sem
myndast hafa
Og
MEÐ niðurstöðum úr samræmd-
um könnunarprófum í stærðfræði
og íslensku hjá 4. og 7. bekk, sem
fram fóru í nóvemberbyijun og eru
nú að berast skólunum, er í fyrsta
sinn skilgreint hver færni nem-
enda er í hinum ýmsu námsþátt-
um.
„Niðurstöður prófanna eiga að
veita ákveðnar upplýsingar um
stöðu námsgreinarinnar um landið
allt en megintilgangur- _______
inn er að kannanimar
nýtist hveijum nemanda
og hægt verði að bregð-
ast við niðurstöðunum,“
sagði Einar Guðmunds-
son deildarstjóri hjá
Rannsóknastofnun uppeldis-
menntamála.
Ekki hærra en 9
Einar segir að ekki hafi verið
gefið hærra en 9 þar sem ein-
kunnastiginn varð að vera sá sami
alls staðar, þ.e. í námsþáttum og
í heildareinkunn. „Sumir náms-
þættir eru það stuttir að þeir bera
ekki uppi 10-kvarðann,“ sagði
hann. Allar einkunnir eru „normal-
dreifðar“, sem þýðir að þær segja
til um hver staða nemenda er mið-
að við jafnaldra sína. „Ljóst er að
herða þarf verulega á um 20%
nemenda til þess að þeir nái grund-
vallarfærni í einstökum námsþátt-
um. Þess má geta að einungis 41%
nemenda í 7. bekk hefur þá færni
í rúmfræði en t.d. móti 93% nem-
enda í tölfræði. Þessar niðurstöður
segja ekki til um hvernig nemend-
ur nýta sér aðferðirnar."
Heildarframmistaða nemenda í
íslensku er best í Reykja- ____
vík og nágrannabyggðum
bæði í 4. og 7. bekk. í
4. bekk standa nemendur
á Vestfjörðum jafnfætis
nemendum á höfuðborg-
arsvæðinu, en árangur
þeirra er mun lakari í 7. bekk. Þá
eru nemendur á Vesturlandi með
einna lakastan árangur í íslensku
á landinu bæði í 4. og 7. bekk.
í Ijós kemur að stúlkur standa
sig betur en drengir bæði í ís-
lensku og stærðfræði. Séu hóparn-
ir skoðaðir hver um sig sést að
stúlkur fá hærri einkunn í íslensku
en stærðfræði en stærðfræði er
sterkari hlið drengjanna innan síns
hóps.
Hlutur foreldra
Með niðurstöðum úr könnunar-
prófunum fá forráðamenn grunn-
skólanemenda einnig í fyrsta sinn
nýtanlegt mælitæki til að meta
________ stöðu barnanna í ein-
stökum námsþáttum.
„Með því að hafa
marktækar niðurstöður
í höndum eiga þeir að
________ geta brugðist við í sam-
r ráði við bekkjarkennara.
í upplýsingum til foreldra er lögð
áhersla á að þessi vitnisburður sé
hjálpartæki til að bæta námsstöðu
bama en ekki endanlegur dómur
um námsgetu þeirra eða frammi-
stöðu skólans. Reynt er að leggja
áherslu á að fólk nálgist þetta ják-
vætt og hafi hagsmuni barnsins í
fyrirrúmi. Umfram allt sé reynt
að bregðast við,“ sagði Einar.
Sem dæmi má nefna að tekið
er fram í leiðbeiningunum að fái
nemandi 9 þurfí að velta fyrir sér
hvort hann fáist við nægjanlega
krefjandi verkefni frá einni viku
til annarrar. „Þessir nemendur eru
ekki líklegir til að valda vandræð-
um í kennslu og gætu því
gleymst,“ segir þar.
Þurfa
sérkennslu
Fái nemendur einkunnina 1 er
staða þeirra alvarleg og tekið er
fram að þeir þurfi að fá stuðning
_________ eða sérkennslu tíma-
bundið eða til lengri
tíma. Nemendur með
einkunnina 2 þurfa
stuðningskennslu. Hjá
þeim sem fá 3 segir að
kanna þurfi hvernig
staða þeirra sé í öðrum náms-
greinum, svo og að athuga þurfí
hvort bæta megi við heimanámi.
„Þessir nemendur eiga á hættu
að dragast enn meira aftur úr sé
ekki brugðist við.“
Það sem einnig er sérstakt við
39% nem-
enda fá villu
fyrir stóran
staf í„svo“
Fást i öllum helstu bókaverslunum
Meðaltöl einkunna í íslensku og skipting einstakra námsþátta
Meðaltöl
heildareinkunnar
I íslensku
Meðaltöl einkunnar
í stafsetningu
Meðaltöl einkunnar
í lestrarhraða
Meðaltöl einkunnar
í lesskilníngi
MEÐ því að bera saman heildarframmistöðu nemenda í íslensku og frammistöðu þeirra í einstökum námsþáttum er
hægt að sjá hvaða þættir það eru sem draga landshluta niður eða hækka þá upp. Sem dæmi má nefna aðheildar-
frammistaða nemenda í stafsetningu í Reykjavík er betri en heildarframmistaða þeirra í íslensku í 7. bekk. Á Suður-
nesjum er frammistaða nemenda í 4. bekk aftur á móti lakari í lesskilningi en heildarframmistaða þeirra gefur til kynna.
f
einkunnablöð nemenda í stærð-
fræði er að á þeim sést hvernig
þeir standa sig í námsefni sem
þeir eiga að hafa lokið einum,
tveimur og þremur árum áður. A
þannig að vera hægt að fylla upp
í þær eyður eða göt sem hugsan-
lega hafa myndast hjá barninu
til að hægt verði að byggja ofan
á kunnáttu þess áfram. „Þegar
göt myndast í kunnáttu nemenda
er erfitt að byggja ofan á. Er það
einn þáttur þess sem stuðlar að
því að bilið stækkar milli nemanda
og jafnaldra hans og gerir námið
þar af leiðandi erfiðara og
þyngra.“
Hlutur skóla
Sérhver skóli fær auk einkunna
eigin nemenda meðaltal einstakra
landshluta og á landinu öllu og
hefur því tækifæri til að bregðast
við. „Ef bekkur er undir lands-
meðaltali t.d. í stafsetningu og
fyrir ofan meðaltal í lesskilningi
þarf kennari að skoða hvort það
geti skýrst af áherslum í kennslu.
Ef hann er fyrir neðan meðaltal
í öllum þáttum eru það ákveðin
skilaboð, sem gætu skýrst í nem-
endahópnum að einhveiju leyti en
einnig gæti það skýrst af áherslu
í kennslu kennarans," sagði Einar
og bætti við að vegna þess að
meðaltalið væri stillt á 5 sé auð-
veldara að bera saman einkunnir
á milli greina en t.d. í samræmd-
um prófum í 10. bekk þar sem
einkunnin 8 í ensku geti verið
slakari en 7 í stærðfræði.
Niðurstöður einstakra skóla
ekki birtar
Á næstu dögum munu líta
dagsins ljós skýrslur um niður-
stöður, sem sendar verða til skóla,
foreldraráða, sveitarstjórna og
skólaskrifstofa. í þeim verða með-
al annars birt prófin auk ýmissa
annarra upplýsinga. „Meðal nýj-
unga þar má nefna að auk þess
að tilgreina hversu stór hluti nem-
enda gat tiltekin orð í stafsetn-
ingu höfum við villugreint úr-
lausnirnar. Þar kemur t.d. fram
að 39% nemenda í 4. bekk fær
villu fyrir að skrifa stóran upp-
hafsstaf í orðinu „svo“ og 23%
nemenda skrifa lítinn upphafsstaf
í „Húsavík". Ég tel mjög mikil-
vægt fyrir kennara að geta séð
þarna hvers konar villur eru al-
gengastar."
Einar segir að enn um sinn
verði ekki birtar niðurstöður ein-
stakra skóla en umræður um þessi
mál hafi verið í gangi um nokk-
urt skeið. „Meðaltölin verða birt,
en hvenær, hver gerir það og með
hvaða hætti þau verða látin fara
er ekki endanlega ákveðið. Víst
er að upplýsingar um frammi-
stöðu einstakra skóla verða gefn-
ar, en ekki að sinni,“ sagði Einar
og benti á að lög um upplýsinga-
skyldu taki ekki gildi fyrr en um
áramót.
Um áramótin tekur einnig gildi
reglugerð sem kveður á um fyrir-
komulag og framkvæmd sam-
ræmdra prófa. „Þar kemur fram
að gefnar skuli út heildarniður-
stöður prófanna og þeim dreift
til ákveðinna aðila. Þar skuli
koma fram meðaltöl einstakra
skóla eftir prófum, meðaltöl allra
skóla og aðrar upplýsingar sem
þarf til að skýra niðurstöðurnar
og auðvelda túlkun á þeim, þann-
ig að þessar upplýsingar eru á
næsta leiti. Það þarf hins vegar
að vanda framsetningu þeirra og
að mínu mati ekki hægt að birta
þær án útskýringa.“
Námsþættir í stærðfræði
, 4. bekkur
* 7. bekkur
100
90
80
70
£
£ g’
■O => '*0
& g’œ
CQ “ CQ
C .t; ^
S1
Hefurvald á
grundvallarfærni
Vantar nokkuð á
grundvallarfærni
Vantar verulega á
grundvallarfærni
í FLOKKNUM reikningur og aðgerðir er könnuð grundvallarfærni í sam-
lagningu, frádrætti, deilingu og margföldun. i talnaskilningi er könnuð
meðferð talna, s.s. að setja rétta tölu í eyðu. í stærðfræðihugtökum er
kannaður hvort skilningur sé á orðum eins og summa, mismunur o.fl. I
tölfræði er könnuð grunnfærni í gerð og lesturs súlurita o.fl.
Einkunnir úr samræmdu
íslensku
Stærðfræði (meðaltal)
könnunarprófi í stærðfræði og
í 4. og 7. bekk
íslenska (meðaltal)
4. bekkur
7. bekkur
4. bekkur
7. bekkur
Nágr. Rvk. 5,2 Nágr. Rvk. 5,2 Nágr. Rvk. 5,2 Nágr. Rvk. 5,2
Reykjavík 5,0 Reykjavík 5,1 Reykjavík 5,2 Reykjavík 5,2
Vestfirðir 5,0 Norðurl.vestra 5,0 Vestfiröir 5,2 Austurland 5,1
Norðurl.vestra 5,0 Suðurland 4,9 Norðurl.eystra 4,9 Norðurl.eystra 4,9
Norðurl.eystra 4,9 Norðurl.eyslra 4,7 Norðurl.vestra 4,8 Suðurland 4,9
Suðurnes 4,8 Austurland 4,7 Austurland 4,8 Norðurl.vestra 4,8
Vesturland 4,8 Suðurnes 4,6 Suðurnes 4,7 Vesturland 4,4
Austurland 4,7 Vesturland 4,6 Vesturland 4,6 Vestfirðir 4,4
Suðurland 4,6 Vestfirðir 4,5 Suðurland 4,4 Suðurnes 4,3
REYKJAVÍK og nágrannabyggðir halda sér í efstu sætum í íslensku og
stærðfræði í báðum bekkjardeildum en samanlagt býr um helmingur
nemenda á þessu svæði. Athyglisvert er að sjá að nemendur á Vest-
fjörðum eru ofarlega bæði í stærðfræði og íslensku í 4. bekk en í 7. bekk
er farið að halla undan fæti. Samkvæmt niðurstöðum samræmdra prófa
í 10. bekk á undanförnum árum hefur þessi landshluti verið mjög
neðarlega.
Á Norðurlandi vestra standa nemendur í stað á milli 4. og 7. bekkja en
reynslan hefur sýnt að staða þeirra í 10. bekk á undanförnum árum er
heldur slakari en hér er. Eitthvað virðist því fara úrskeiðis á
unglingastigi. Einnig er athyglisvert að á Suðurlandi og Austurlandi
bæta nemendur heldur stöðu sína í báðum greinum og ástæða gæti
verið til að kanna hvort fara megi kröftugra af stað í yngstu bekkjum.
Þá má geta þess að í leiðbeiningabæklingi til foreldra sem fylgir
niðurstöðum prófanna kemur fram að árangur nemenda með einkunnir á
bilinu 4-6 sé viðunandi miðað við jafnaldra þeirra. Nánast sé öruggt að í
þessum hópi séu nemendur, sem náð geti betri árangri. Foreldrar þurfi
að skoða vandlega og velta fyrir sér leiðum til að bæta árangur í
samvinnu við kennara. Efling heimanáms undir eftirliti og stjórn bekkjar-
kennara kann að vera rétt fyrir marga þessara nemenda," segir þar.
I
i
i
I