Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 13
FRÉTTIR
Sjálfstætt starfandi heimilislæknum fækkar
Ný leyfi hafa ekki
verið veitt í sjö ár
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SJÁLFSTÆTT starfandi heimilis-
læknum hefur fækkað jafnt og
þétt á undanförnum sex árum og
að sögn Ólafs F. Magnússonar,
formanns Félags sjálfstætt starf-
andi heimilislækna, FSSH, hefur
enginn heimilislæknir fengið að
hefja sjálfstæðan rekstur stofu í
Reykjavík undanfarin sjö ár.
I maí sl. sóttu tveir heimilislækn-
ar um að fá að opna sjálfstætt
rekna læknastofu í samræmi við
samning Tryggingastofnunar ríkis-
ins og Læknafélags íslands þar sem
kveðið er á um að ef læknar vilja
opna stofu í Reykjavík og nágrenni
þá þurfa þeir að fá samþykki samn-
ingsaðila og jákvæða umsögn við-
komandi héraðslæknis.
Hvað varðar heimilislæknana tvo
hefur Lúðvík Ólafsson, settur hér-
aðslæknir, gefið umsögn um að
ekki sé þörf á fleiri heimilislæknum
í sjálfstæðum rekstri í Reykjavík.
Þessu mótmælir FSSH og sendi
félagið frá sér ályktun þann 16.
desember sl. þar sem Lúðvík er
borinn þungum sökum um að hann
láti andúð sína á þessari starfsemi
ráða gjörðum sínum en ekki fagleg
sjónarmið.
í ályktuninni kemur fram að í
umsögn héraðslæknisins frá 13.
ágúst sl. var talin þörf fyrir fleiri
heimilislækna í Reykjavík. Aftur á
móti komi fram í umsögn héraðs-
læknis í þessu sama máli frá 20.
nóvember sl. að hann telji að engin
þörf sé fyrir fleiri heimilislækna í
Reykjavík.
Tryggingaráði gert að taka
stefnumótandi ákvarðanir
Lúðvík segir að hann hafi ritað
þrjú bréf um málið og þau séu í
raun samhljóða og því sé hvorki
um sinnaskipti að ræða né andúð
á sjálfstæðri starfsemi. „Ég tel að
það sé ekki þörf fyrir fleiri heimilis-
lækna sem starfa samkvæmt
samningi Tryggingastofnunar og
Læknafélags íslands. Að mínu áliti
eiga heimilislæknar að starfa við
ákveðnar starfsaðstæður sem bjóða
upp á að þeir geti nýtt menntun
sína og þekkingu, bæði sjálfum sér
og þjóðfélaginu að fullu. Þessar
starfsaðstæður er miklu frekar að
finna á heilsugæslustöðvum en á
sjálfstæðum stofum.
Undantekning er heilsugæslan í
Lágmúla en þrátt fyrir að vera
einkarekin sinnir hún ákveðnu
hverfí og er ígildi heilsugæslustöðv-
ar og er þar um gott framtak
ræða.“
Að sögn Boila Héðinssonar, for-
manns Tryggingaráðs, var sam-
þykkt hjá Tryggingaráði að fela
formanni ráðsins að hafa forgöngu
um að ráðuneytið, héraðslæknar
Reykjavíkur og Reykjaness, lækna-
félögin og Tryggingastofnun ríkis-
ins hefji viðræður um það hvernig
þessi t.vö kerfi heilsugæslustöðva
og sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna skuli starfa samhliða.
„Þetta er okkar svar við þeirri
stöðu sem komin er upp í máli lækn-
anna tveggja. Okkur er nánast gert
að taka stefnumótandi ákvörðun í
heilbrigðismálum sem er í rauninni
ekki okkar hlutverk. Við viljum
losna úr þessari klemmu og þetta
er okkar leið til þess,“ sagði Bolli.
Fyrirhuguð stækkun í
Fossvogshverfi
Fyrirhugað er að stækka heilsu-
gæslustöðina í Fossvogi þar sem
þrír heimilislæknar starfa. Áætlað
er að eftir stækkun fjölgi þeim í 5-6.
Ólafur F. Magnússon segist ekki
skilja í því hvers vegna eigi að
fjölga læknum á svæði þar sem
starfandi er einn heimilislæknir á
hveija þúsund íbúa ef engin þörf
er fyrir fleiri heimilislækna í
Reykjavík.
„Rekstur Fossvogsstöðvarinnar
var bytjaður áður en rekstur sjálf-
stætt starfandi heimilislækna hófst
í Kringlunni og það hefur alltaf
verið markmiðið að stöðin yrði
nægjanlega stór þannig að hún
gæti sinnt öliu hverfinu," segir
Lúðvík Ólafsson, settur héraðs-
læknir í Reykjavík.
Þingmenn
áminntir
um sparnað
ÓLAFUR G. Einarsson, forseti
Alþingis, tók í vikunni við Heim-
dallarhendinni af Elsu B. Vals-
dóttur formanni Heimdallar.
Heimdallarhendurnar eru pappa-
spjöld með mynd af hendi og
áletrunum til áminningar um
sparnað í ríkisrekstrinum.
í fréttatilkynningu frá Heim-
dalli segjr að höndin sé þingmönn-
um til aðstoðar við atkvæða-
greiðslur um fjárlagafrumvarpið.
„011 viljum við gleðja bömin um
jólin og færa þeim góðar gjafir.
Besta jólagjöfin sem hægt er að
færa börnunum í þessu landi er
björt framtíð án skulda og hárra
skatta. Þú getur átt þátt í að færa
þeim þessa gjöf með því að tryggja
með atkvæði þínu að fjárlög fyrir
árið 1997 verði án halla,“ segir í
bréf i Heimdellinga til þingmanna.
Möguleikar á
nýrri íbúða-
byggðí
Skerjafirði
MEÐ kaupum Reykjavíkurborgar á
eignum Skeljungs í Skeijafirði eru
borgaryfírvöld að tryggja það að
hægt verði að uppfylla skilyrði um
öryggi Reykjavíkurflugvallar. Því
verða allir olíugeymar fjarlægðir
af svæðinu, segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri.
„í skýrslu sem gefín var út af
Samgönguráðuneytinu fyrir fímm
árum var lagt til að flugbrautin
0125 verði lögð niður og hafa borg-
aryfirvöld lagt ríka áherslu á að
það verði gert. Með því opnast
ákveðnir möguleikar fyrir borgina
á að skipuleggja íbúðabyggð á
svæðinu en mikil eftirspurn er eftir
nýju íbúðarhúsnæði í eldri hverfum
borgarinnar,“ segir Ingibjörg Sól-
rún
„Bókin er frábær fyrir þá sem vilja fræðast
um getu sína til að ná hámarks árangri og taka
ábyrgð á eigin lífi. Án vafa er þetta ein
langbesta bók sem ég hef lesið.“
Siguringi Sigurjónsson, áfengisráðgjafi.
„Markmiðin virðast stundum jafn fjarri og
stjömumar. Brian Tracy kveikir í þér þann
eldmóð sem þarf til að ná til þeirra, koniast í
ferðina til stjamanna, okkar æðstu drauma og
markmiða."
Fanný Jónmundsdóttir,
lciðbcinandi.
„Bók Brian Tracy „Háinarks árangur" er frábær
bók. í henni setur hann fram áhrifaríkar reglur
sem gagnast öllum á leið þeiira til betra lífs.
Ég mæli óhikað með þessari bók.“
Stella Sæmundsdóttir,
verslunarstjóri Betra lífs.
„Á undanfömum ámm hef ég kynnst Brian
Tracy gegnum bækur hans, myndbönd og
hljóðsnældur.
Hann er tvímælalaust í hópi hæfustu manna á
sviði sjálfsþekkingar, tímastjómunar og
þjálfunar til árangurs.“
Thomas Möller, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Ólís.
„Brian Tracy hefur hæfileika til að gera jafnvel
stærstu ákvarðanir í lífinu auðveldar. Leit hans
eftir hámarks árangri í lífinu og list hans í að
setja fram markmið, sem auðvelt er að ná,
gerir þessa bók að nauðsynlegu lesefni fyrir
alla.“
Phil Hunter, atvinnumaður í golfi.
„Ég fagna útgáfu bókarinna Hámarks árangur
eftir Brian Tracy. Hún er tvímælalaust gott
verkfæri fyrir hvem þann sem rækta vill sjálfan
sig til árangurs. Bókin er vel skipulögð og
aðgengileg fyrir hvem þann sem vill stefna hátt
til árangurs á hvaða sviði sem er og búa við
velsæld í líftnu og hamingju“.
Hiálmar Arnason. binemaður.
„Kveiktu ekki á sjónvarpinu fyrr en þú hefur
lesið þessa bók. Sum ráðin eru milljóna virði.
Önnur verða ekki metin til fjár, t.d. besta
lækningin við óhamingju er að gera einhvem
annan hamingjusaman.“
Jón Ögmundur Þormóðsson, lögfræðingur,
höfundur bókarinnar „Fegursta kirkjan á íslandi"
„Bókin er ekki bara athyglisverð fyrir þá
lýsingu sem sett er fram á lífinu eins og við
flest lifum því. Hún er einnig holl áminning
um að þrátt fyrir mismunandi aðstæður er
sérhver einstaklingur sinnar eigin gæfu
smiður.“
Jóhann Björnsson, M.A. í heimspeki.
Bók fyrir bæði kynin í öllum aldurshópum, Fæst í öllum helstu
í hvaða starfstétt sem er, bókaverslunum landsins.
því það er aldrei of snemmt eða of seint að leita eftir Dreifingarsími:
HÁMARKS ÁRANGRI 567-3240
LEIÐARLJ*S ehf.
Leiðandi í útgáfu á sjálfsraktarefni
Afgreiðsla í Reykjavík: 567 3240.
Þorir þú
að ná HÁMARKS ÁRANGRI
í eigin lífi - og viltu gefa öðrum
tækifæri að gera siíkt hið sama?
„Þessi frábæra bók er leiðbeining til
ánægjulegra, árangursríkara og
hamingjusamara lífs. Með því að ástunda
það. sem þú getur lært af þessari bók, geturðu
orðið framúrskarandi foreldri eða uppalandi.“
Ásta Árnadóttir, listmálari.
Höfundur bókarinnar, Brian Tracy, er einn af
helstu sérfræðingum heims í velgengni og
persónulegum árangri og efni hans hefur verið
þýtt á 14 tungumál í 30 löndum. Hann hefur
einnig talað til yfir milljón karla og kvenna.
Brian Tracy hefur tileinkað líf sitt og starf
rannsóknum á mismuninum á þeim sem ná
velgengni í líft sínu og þeirra sem ná henni ekki.
„ Þessi bók er einstök í röð sjálfshjálparbóka
að því leiti að hún dregur lesandann út úr heimi
óraunhæfra draumóra og inn í raunveruleika
þar sem honum eru allir vegir færir ef hann
tileinkar sér ákveðnar meginreglur í
lífsbaráttunni.
Þessi bók er grundvallarlesning fyrir hvent
þann sem vill ráða eigin örlögum.“
Árni Þór Hilmarsson, sálfræðingur og
höfundur „Tilfinningalífs karla“ og
„Uppkomin börn alkóhólista“.