Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Opið hús og aðstoð
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri
ætlar að hafa opið hús á aðfanga-
dagskvöld. Er það einkum ætlað
þeim sem eru einir eða vegna veik-
inda og annarra ástæðna eiga erfitt
með að undirbúa jólakvöldið heima.
Margir leita eftir aðstoð
Erlingur Níelsson foringi segir að
á aðfangadagskvöld muni Hjálpræð-
isherinn bjóða upp á kvöldstund með
góðum mat, pökkum, sælgæti, kaffi
og kökum. Aðgangur er ókeypis, en
þeir sem áhuga hafa eru beðnir að
tilkynna þátttöku til Hjálpræðishers-
ins á Akureyri eigi síðar en föstudag-
inn 20. desember.
Mæðrastyrksnefnd á Akureyri
hefur einnig haft í nógu að snúast
síðustu daga en í gær höfðu um 100
heimili í bænum leitað eftir aðstoð
nefndarinnar fyrir jólin. Jóna Berta
Jónsdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd
segir ástandið síst betra en í fyrra
en þá leitaði á annað hundrað heim-
ila á Akureyri eftir aðstoð fyrir jólin.
Jóna Berta segist sjá mörg ný
andlit sem leita eftir aðstoð þetta
árið en á árum áður kom sama fólk-
ið ár eftir ár.
Velta Slippstöðvarinnar eykst um 200 milljónir króna
Starfsmönnum fjölg-
aði um 36 á árinu
Samið um viðhald
og viðgerðir á öll-
um togurnum
MHF
SLIPPSTÖÐIN hf. hefur gert samn-
ing við þýska útgerðarfyrirtækið
Mecklenburger Hochseefischerei,
MHF, dótturfyrirtæki Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf., um viðhald og
viðgerðir á öllum fimm togurum fyr-
irtækisins. Togararnir liggja nú þeg-
ar við landfestar á Akureyri og er
miðað við að verkinu verði lokið fyr-
ir febrúarlok á næsta ári.
Verkefnastaða Slippstöðvarinnar
hefur verið mjög góð allt þetta ár og
útlitið næstu tvo mánuði í það minnsta
mjög gott. Ingi Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar, seg-
ir að velta fyrirtækisins muni aukast
um 200 milljónir króna á milli ára
og verði um 800 milljónir króna í ár.
Ingi gerir einnig ráð fyrir að hagnað-
ur fyrirtækisins verði ívið meiri í ár
en í fyrra án þess þó að hann vilji
fara nánar út í tölur en hagnaður
síðasta árs nam 30 milljónum króna.
Húsnæði endurkeypt
Slippstöðin hefur nú keypt til baka
húsnæðið sem hýsir skrifstofur og
trésmíðaverkstæði fyrirtækisins af
Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði. Sjóð-
imir eignuðust húsið er Slippstöðin
fór í nauðasamninga árið 1994. Hús-
næðið, sem er um 1800 fermetrar að
stærð verður afhent Slippstöðinni nú
um áramótin. Áður fyrr var einnig
um 20 manna tæknideild í húsnæðinu
en sú deild lagðist af á mesta erfið-
leikatíma fyrirtækisins og í dag er
öll hönnununarvinna aðkeypt.
Vinna við þýska togarinn Eridan-
us, er þegar hafin en þar er jafn-
framt um stærsta verkið að ræða.
„Við erum m.a. að breyta vinnslu-
þilfarinu, stækka frystilest og frysti-
Morgunblaðið/Kristján
SLIPPSTÖÐIN hefur samið um viðhald og viðgerðir á öllum
fimm togurum þýska útgerðarfyrirtækisins Mecklenburger
Hochseefischerei. Togararnir liggja allir við bryggju á Akur-
eyri, tveir við slippkantinn og þrír við Torfunefsbryggju.
móttöku og þessu verki á að vera
lokið í janúar. Vinna við hin fíögur
skip MHF snýr meira að hefðbundnu
viðhaldi en þetta eru stór skip og
því er um ræða töluverða vinnu fyrir
okkur. Til viðbótar erum með önnur
smærri verk og það er því ljóst að
hér verður enginn verkefnaskortur
næstu vikur og mánuði."
Mörg stór verk á árinu
Ingi segir að unnið hafí verið við
mörg stór verk á þessu ári_ og nefnir
í því sambandi vinnu við Árbak EA,
þýska togarann Cuxhaven, sem er í
eigu DFFU dótturtækis Samheija hf.
í Þýskalandi, Frosta ÞH og Dalborgu
EA. „Allt hefur þetta aukið veltu fyr-
irtækisins mikið. Við höfum verið með
mikið af undirverktökum og sam-
starfsfyrirtækjum í vinnu hér og erum
búnir að byggja upp net samstarfsfyr-
irtækja í kringum okkur, sem við tök-
um inn á álagstímum. Þá höfum við
tvisvar á árinu tekið pólska vinnu-
flokka og það hefur gefist ágætlega."
Starfsmönnum Slippstöðvarinnar
hefur jafnframt fjölgað jafnt og þétt.
í ársbyijun 1995 voru starfsmenn um
100 og meðaltalsstarfsmannafjöldi
ársins 118 heil störf. í janúar á þessu
ári voru starfsmenn 140 og um 170
þegar mest var í júní sl. í dag starfa
157 manns í stöðinni en meðalstarfs-
mannafjöldi ársins er 154 og hefur
því fíölgað um 36 milli ára. Ingi seg-
ir eifiðast að fá jámiðnaðarmenn til
starfa en þeim hafí þó fjölgað á árinu.
Áhugi á að hefja nýsmíði á ný
Á árunum 1966-1992 voru smíð-
uð 35 ný stálskip af ýmsum stærðum
í Slippstöðinni en eins og flestum er
kunnugt hefur ekki verið mikið um
nýsmíðaverkefni hjá íslenskum
skipasmíðastöðvum síðustu ár. Ingi
segir að hjá Slippstöðinni sé mikill
áhugi fyrir því að hefja nýsmíðar á
ný. „Þar horfum við m.a. á nýtt skip
Hafrannsóknastofnunar og ef ríkið
ætlar að fjárfesta í slíku skipi, er
hér kjörið tækifæri til þess að styðja
við bakið á skipaiðnaðinum í leið-
inni,“ segir hann.
Hluti af andvirði hverrar seldrar bókar rennur til
forvarnarstarfs Jafningjafræðslunnar.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
EFNISYFIRLIT
Baninan við fíknieftiin er eVki löpuð ....
S*“S1, Orra Siein, Helga»n» aegja
Sárteraðmissagóðanvin .............
_ Gulli, vinur Orra Steins .. ■
HéltaðE-taflanværihættulaus .........
_ Inga, vinkona Ona Steins
pálv Ósgar Hjálmlýsson, hljónilislanna®ur
Efnin 02 afleiðingar neyslunnar........
EmilianaTorrini, hljóiniislnnnaBur . ..
ú®SXu -
ión Amar Magnússon. ftjálsiþróttanraBnr ..
Un!BníoyiaJónssonsáltrstingo' ....
Vala Flosadóltir, frjálsíþróltamaður .
Bókin sem talar til unglinganna um djöfulskap eiturlyfjanna og til
foreldranna um gildrurnar stóru, sem lagðar eru fyrir börnin okkar á hverjum degi.
DANSAÐ VIÐ DAUÐANN er bók sem tengir saman foreldra og unglinga í umræðu
um fíkniefnavandann. Áhrifamikil bók, sem enginn leggur frá sér hálflesna.
Tillögur Alþýðu-
bandalags felldar
BREYTINGATILLÖGUR bæjarfull-
trúa Alþýðubandalagsins við fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana
voru felldar við afgreiðslu áætlunar-
innar á fundi bæjarstjórnar.
Fulltrúarnir lögðu til að Rafveita
Akureyrar myndi greiða 7 milljóna
króna arðgreiðslu í bæjarsjóð og yrði
fénu að hluta varið til að hækka
framlag til atvinnudeildar vegna ráð-
gjafar við atvinnulausa, samtals 2
milljónum, og 5 milljónir yrðu notað-
ar til umbóta í skólastarfi.
Þá lögðu fulltrúar flokksins til að
afborganir langtímaskulda á næsta
ári yrðu lækkaðar um 50 milljónir
króna. Af þeim fjármunum yrði 40
milljónum varið til framkvæmda við
viðbyggingu við Amtsbókasafn og
10 milljónir færu óskiptar til viðhalds
og endurbóta á fasteignum.
Rekstur yfirfarinn með
gagnrýnum hætti
í bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
arinnar kemur fram að vanda hefði
átt undirbúning mun betur en gert
var. Árið hafi ekki verið nýtt til að
yfirfara rekstur með gagnrýnum
hætti. Veruleg fjölgun starfa, án
þess að nokkru sé hægt að breyta
gagnvart því sem fyrir er, hækki
rekstrarkostnað og auki vandann.
Mikilvægt sé að komandi ár verði
nýtt betur til að ná skilvirkari tökum
á rekstri og þjónustu og sé sérstak-
lega mikilvægt að fylgjast náið með
kostnaði vegna nýrra þjónustuþátta
og móta sýn til næstu ára.
Bæjarfulltrúar, sem sátu hjá við
afgreiðslu áætlunarinnar fagna þó
ýmsum breytingum sem náð hafa
fram að ganga, sem og verkefnum
reynslusveitarfélags og flutningi
verkefna frá ríki til sveitarfélaga og
vonast þeir til að reynsluverkefni
leiði til enn frekari tilfiutnings verk-
efna frá ríki til sveitarfélaga.