Morgunblaðið - 19.12.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofn-
ana fyrir næsta ár samþykkt
Tekjur rúmir 2
milljarðar kr.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrar-
bæjar fyrir næsta ár hefur verið sam-
þykkt í bæjarstjórn. Tekjur bæjar-
sjóðs verða á næsta ári 2.004 milljón-
ir og rekstrargjöldin nema sam-
kvæmt áætluninni 1.567 milljónum.
Langmest fer til fræðslumála, um
621 milljón króna, um 332 fara til
félagsmála, tæpar 100 milljónir vegna
yfírstjómar bæjarins, um 97 milljónir
í menningarmál, 93 milljónir til íþrótta-
og tómstundamála, um 95 milljónir til
umhverfísmála, um 78 vegna gatna
og holræsa, um 54 vegna hreinlætis-
mála, 52 í skipulags og byggingamál
og um 40 milljónir í atvinnumál svo
helstu málafiokkar séu nefndir.
Gjaldfærð flárfesting á næsta ári
nemur 198,8 milljónum króna og
eignfærð fjárfesting 268,5 milljónum
króna.
Meðal verkefna næsta árs má
nefna að áætlað er að 111 milljónir
króna fari til framkvæmda við grunn-
skóla bæjarins og 28 við framhalds-
skóla. Til framkvæmda við Amts-
bókasafn fara 10 milljónir króna,
tæpar 58 vegna framkvæmda við
Sundlaug Akureyrar og í viðbyggingu
við ráðhús bæjarins fara 55 milljónir.
Jakob Bjömsson bæjarstjóri segir
að það sem einkenni flárhagsáætiun-
ina öðru fremur séu áhrif eignasöl-
unnar í kjölfar sölu hlutabréfa bæjar-
ins í Útgerðarfélagi Akureyringa.
Skuldir Framkvæmdasjóðs, um 600
milljónir, verða greiddar upp og 100
milljónir lagðar í sjóðinn. Þá verða
greiddar niður um 400 milljónir króna
af skuldum bæjarsjóðs. Sjóðurinn
mun áfram eiga um 20% af hlutabréf-
um í ÚA sem að söluvirði nú eru um
963 milljónir.
Ymis nýmæli
Bæjarstjóri segir að ýmis nýmæli
séu í fjárhagsáætluninni, m.a. verði
leikskólum ekki lokað næsta sumar,
námsmannaafsláttur á leikskólum
verður tekinn upp að nýju, sambýli
fyrir geðfatlaða verður opnað í
Snægili á næsta ári og þá verða
úrbætur gerðar í málefnum heilabil-
aðra, m.a. með rúmum á Dvalarheim-
ilinu Hlíð og þá er fyrirhugað að
brejAa sambýli aldraðra í sambýli
fyrir slíka sjúklinga.
Jakob nefndi einnig að tekin hefur
verið upp 20 milljóna króna fjárveit-
ing til endurbóta í Samkomuhúsi og
fjárveiting er einnig til framkvæmda
við geymsluhúsnæði við Amtsbóka-
safn. Loks nefndi hann að á næsta
og þar næsta ári verði veitt fé í sér-
stakt umhverfisátak í bænum.
„Það má líka nefna að við erum
að lækka staðgreiðslu í útsvari um
0,2%, hitaveita lækkar um áramót
um 2% og rafveita um 3%,“ segir
Jakob en tekjur bæjarsjóðs og stofn-
ana lækka samtals um 50 milljónir
í kjölfar lækkunarinnar.
------♦ ♦ ♦
Hátíðarkvöld í Hlöðunni
Björg Þórhalls-
dóttir syngur
HÁTÍÐARKVÖLD verður í Hlöð-
unni, Öngulsstöðum, annað kvöld,
föstudagskvöldið 20. desember og
verður húsið opnað kl. 21.
Björg Þórhallsdóttir söngkona
flytur nokkur lög við undirleik Helgu
Bryndísar Magnúsdóttur og séra
Hannes Örn Blandon verður með
hugvekju. Sérstakur gestur Bjargar
verður Óskar Pétursson.
Aðgangseyrir er 600 krónur. Enn
stendur yfír í Hlöðunni sýning Þor-
gerðar Sigurðardóttur á tréristum
en hún nefnist Bænir og brauð.
Akureyrarbær
Samkeppni um heildarskipulag
Naustahverfis á Akureyri - forval
Skipulagsnefnd Akureyrar efnir til forvals vegna fyrirhugaörar sam-
keppni um heildarskipulag svonefnds Naustahverfis, sem er framtíö-
arbyggingarland bæjarins suöur frá núverandi byggð að Kjarna-
skógi. Valdar verða 5 vinnustofur til þátttöku og verður greidd þókn-
un fyrir hverja tilögu. Að auki verða veitt fyrstu verðlaun. Keppnis-
tími verður frá s.hl. janúar og fram í apríl (3 mánuðir). Samkeppnin
er haldin í samræmi við samkeppnisreglur Arkitektafélags Islands.
Tilgangur útbjóðanda með samkepninni er að fá fram ferskar,
raunhæfar tillögur að megindráttum hins nýja bæjarhluta og öðlast
með því yfirsýn yfir þá möguleika, sem keppnissvæðið býður upp
á. Sérstaklega er vonast til að niðurstaða samkeppninnar geti vísað
til framtíðar á nýrri öld með tilliti til þróunar búsetu, lífs- og atvinnu-
hátta, og jafnvægis byggðar og náttúru (sjálfbærrar þróunar). I
frumáætlunum hefur verið gert ráð fyrir um 2.000 íbúðum í Nausta-
hverfi og að það skiptist í tvö skólahverfi. Skipulagsnefnd hefur lýst
vilja til þess að hafa samstarf við verðlaunahafa um gerð skipulags-
ramma hverfisins.
Val keppenda mun byggjast á mati á faglegri hæfni vinnustofanna
og geta þeirra til að takast á við verkefnið. Leitast verður við að
velja til þátttöku ólíkar vinnustofur, bæði hvað snertir aldur og
reynslu, með það í huga að tryggja fjölbreytni í tillögunum.
Vinnustofur, sem áhuga hafa á þátttöku í samkeppninni skulu gera
grein fyrir hæfni sinni til að takast verkið á hendur með greinargerð
á allt að tveim A4-síðum, sem senda skal í lokuðu umslagi merktu
„Naustahverfi - forval,
Akureyrarbær, bæjarlögmaður, Geislagötu 9, 600 Akureyri," fyrir
kl. 16.00 fimmtudaginn 9. janúar 1997. I greinargerðinni skal
skýra frá: 1) Nafni og heimilisfangi vinnustofu, 2) nafni og
starfsheiti starfsmanna er stjórna myndu verkefninu, 3) starfsreynslu
viðkomandi starfsmanna, 4) dæmum um verk vinnustofunnar/-
starfsmanna, 5) árangri í samkeppnum, 6) öðru starfsfólki og
ráðgjöfum, 7) öðrum atriðum, er máli kunna að skipta, s.s.
sjónarmiðum eða áherslum í starfi vinnustofunnar. Sérstök
forvalsnefnd, óháð dómnefnd, mun velja þátttakendur úr hópi
umsækjenda.
Skipulagsstjóri.
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 15
IFramlag
þitt
skiptir
öllu máli
* ANDARLIFRARTERRINE „FOIE GRAS“
MEÐ FÍKJUMARMELAÐl
* RISTAÐUR HUMARÁ SÍTRÓNURISOTTO
MEÐ PARMEGGIANÖ TUILLES
* GRÆNERTUSEYÐl
Mffi GEITAOSTSRAVIOLI
* DÁDÝRÁ STEINSELJURÓTARMAUKl
OG SÚKKULAÐIHINDBERJASÓSU
* CRÉME BRULÉE
* BANANA OG SÚKKULAÐI NAPOLÉONS
MEÐ ANANAS-TRÖNUBERJA COMPOT
OG DÖKKRI ROMM SABAYONNE
6.950 KR.
★ ★ ★
ANDARLIFRARTERRINE
„FOIE GRAS“ MEÐ FÍKJUMARMELAÐl
1.195 KR
KÁLFACARPACCIO MEÐ POMMERY
PASTA OG TARRAGON JUICE
925 KR.
BARRI LIE DE VIN MEÐ KRISTÖLLUÐUM
TÓMÖTUM OG TÓMATSABAYON N E
91*5 KR
RISTAÐUR HUMARÁ SÍTRÓNURISOTTÓ
MEÐ PARMEGGIANO TUILLES
1.395 KR '
LAMBARIFJUR MEÐ SOUFFLE,
GRILLUÐUM KARTÖFLUM OG
PAPRl KUÓLÍFU SÓSU
2.200 KR
DÁDÝRÁ STEINSELJURÓTARMAUKl
OG SÚKKULAÐIHINDBERJASÓSU
3.995 kr > '
NAUTALUNDIRMEÐ SNIGLUM
í CHÁTEAUNEUF DU PAPE OG
ROQUEFORT RJÓMASÓSU
2.700 KR
STOKKANDARBRINGA
MEÐ RÚSÍNUM, VALHNETUM
OG KONÍAKS'MADEIRA „EPJCE“ SÓSU
3.390 KR
SMÁKJÚKLINGUR „POUSSIN”
MEÐ KARDIMOMMUM, APPELSÍNUM
OG KREMUÐU SAVOYKÁLl
2.450 KR
EFTIRRÉTTIR
SÚKKULAÐI DUMPLINGS MEÐ MALTÍS
650 KR
BANANA OG SÚKKULAÐl NAPOLÉONS
MEÐ ANANAS-TRÖNUBERjA COMPOT
OG DÖKKRI ROMM SABAYONNE A
675 KR.
NOUGAT RJÓMAIS
Á PÁSSION APRI'KÓSUCOULIS
640 KR .
I
f
%
M
GRÆNERTUSEYÐI MEÐ
ÖEITAOSTSRAVIOLI
650 KR —
R
BORÐAPAN TANIR
í SÍMA 552 5700