Morgunblaðið - 19.12.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Góð þorskveiði á línu
Milosevic varar
námsmenn við
Belgrad. Reuter.
SERBNESKIR stjórnarandstæð-
ingar sögðust á þriðjudag vera viss-
ir um, að mótmælin síðustu vikur
hefðu komið á samstöðu, sem myndi
neyða Slobodan Milosevic, forseta
Serbíu, til að viðurkenna sigur
stjórnarandstöðunnar í sveitar-
stjórnarkosningunum. Milosevic
varaði hins vegar námsmenn við í
gær að ýta undir afskipti erlendra
ríkja af serbneskum innanríkismál-
um.
Talsmaður stjórnarandstöðunnar
sagði, að í fyrstu hefðu menn ekki
verið vissir um, að mótmælin ent-
úst út vikuna en nú væri fimmta
vikan hafin og mótmælendum fjölg-
aði stöðugt. Augljóst væri, að Mil-
osevic væri farinn að óttast um sinn
hag.
Milosevic átti á þriðjudag fund
með fulltrúum námsmanna og
kvaðst mundu láta kanna ásakanir
þeirra urn stórfelld kosningasvik
sósíalista. Hann varaði þá hins veg-
ar við að ýta undir afskipti erlendra
ríkja.
Milosevic ónauðsynlegur?
Miroljub Labus, frammámaður í
einum stjórnarandstöðuflokknum,
sagði á þriðjudag eftir viðræður í
Washington, að Bandaríkjastjórn
teldi Milosevic ekki lengur nauðsyn-
legan til að tryggja frið í Bosníu.
Sagði hann, að embættismenn í
bandaríska utanríkisráðuneytinu
hefðu lýst yfir fullum stuðningi við
serbnesku stjórnarandstöðuna ef
hún kæmi á lýðræði í landinu.
MJÖG góð þorskveiði hefur verið
á línu hjá bátum frá Bakkafirði
að undanförnu. Hafa bátarnir ver-
ið með að jafnaði 200 til 250 kíló
á bala, róður eftir róður. Hér er
Kristín HF 165 á línunni fyrir
sunnan Viðvík. Kristján Jónsson,
skipstjóri og útgerðarmaður, er í
önnum með gogginn, en þennan
dag réri Kristján með 8 bala og
fiskaði á þá rúm 1.800 kíló af
þokkalegum fiski.
Utflutningur á óunnum
þorski eykst um fjórðung
ÚTFLUTNINGUR á óunnum þorski
á fiskmarkaðina í Bretlapdi hefur
aukizt á haustmánuðum. í lok nóv-
ember hafði því verið flutt meira
utan af þorski á þessa markaði en
á sama tíma í fyrra, en þessi útflutn-
ingur hefur farið minnkandi ár frá
ári frá því á síðasta áratug. Alls
fóru 2.145 tonn utan þetta tímabil,
sem er 26% aukning miðað við sama
tíma í fýrra, samkvæmt upplýsing-
um frá LÍÚ.
Allt síðasta ár fór 1.831 tonn af
óunnum þorski á fiskmarkaðina í
Hull og Grimsby svo ljóst er að út-
flutningurinn verður meiri í ár en í
fyrra. Mestu munar nú að í október
fóru 300 tonn utan og 548 í nóvem-
ber, en það er nálægt því að vera
þrefalt meira en í sömu mánuðum í
fyrra.
Þorskverð á
fiskmörkuðum
heima og úti
Kr/kg. 1996
Veröáíslandi
ggg Verð i Englandi
T I j j ; i j ] ; I T
J ’ F Nl' a'm' j' J ' Á' S' O' n'
Verðið í nóvember var að meðal-
tali 140 krónur, sem er 3% hærra en
í fyrra í krónum talið, en 4% lægra
miðað við pundið. Meðalverð allt
þetta ár í krónum talið er 132 krón-
ur.
Sala á þorski á innlendum fisk-
mörkuðum hefur einnig aukizt milli
ára. Til loka nóvember í ár höfðu
33.513 tonn farið um innlendu mark-
aðina, en 31.040 á sama tíma
Verð að meðaltali í ár er 93 krón-
ur, sem er 3% lækkun frá meðal-
verði síðasta árs. Mesta sala á inn-
lendu mörkuðunum í einum mánuði
í ár var í marz, 4.662 tonn og er
það eini mánuðurinn sem salan hef-
ur farið yfir 4.000 tonnin. Minnst
var svo selt í ágúst eða 1.636 tonn.
í fyrra var mest af þorski selt í
maí, 4.893 tonn.
Mf Veislustjóri
Ingólfur
Guðbrandsson.
f Súlnasal, Hótels Sögu §
föstudaginn 20. des.
kl. 19.30
Tryggið ykkur þátttöku í glæsilegum
mannfagnaði á heimsvísu nk.
föstudagskvöld, þar sem sönn gleði og
jólastemmning ríkir og brugðið
er upp myndum af undrum heimsins í
fyrri og nýjum ferðum.
Félagar Heimsklúbbsins:
Munið ferðapunktana fyrir þátttöku
ykkar. Takið með gesti og pantið borð
í tíma á Hótel Sögu, sími 552 9900.
Aðgangur ókeypis fyrir matargesti.
Aðeins veitingar greiddar, veislu-
kvöldverður á lækkuðu verði.
FLUGLEIDIR
Tramlur hkmhur feti*/ILi[i
W HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17.4. hæð 101 Revkiavík. sími 562-0400. fax 562-6564
Reuter
Hlutum úr Challenger
skolar á land
TVEIMUR stórum hlutum úr
flaki geimferjunnar Challenger,
sem fórst yfir Flórída fyrir tæp-
um ellefu árum, hefur skolað á
land, skammt sunnan við
Kennedy geimvísindastofnunina
á Flórídaskaga. Hlutarnir sem
fundust á Cocoa-strönd voru úr
vængjum ferjunnar, annar var
4,1 x 2,5 metrar, hinn 1,5 x 3
metrar.
fJÖÚÐB MECIWt
LNvÁiAOO M MJO v
;1'l So fitll<
Brak geimfeijunnar kom nið-
ur um 56 km undan landi og
náðist um helmingur hennar
upp af hafsbotni skömmu eftir
slysið. Nokkrum minni hlutum
Challenger hefur skolað á land
frá því geimfeijan sprakk
skömmu eftir flugtak árið 1986,
en nokkuð er nú um liðið frá
því að síðustu hlutarnir fundust.
Sögðu vísindamenn bandarísku
geimvísindastofnunarinnar,
NASA, að hlutarnir úr Chall-
enger væru auðþekkjanlegir á
hitaþolnum flögum sem vængur-
inn væri lagður.