Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Mikil kuldatíð
í Bandaríkjunum
Kansasborg. Reuter.
Annan hvetur til umbóta
við embættistöku
Reuter
KOFI Annan frá Ghana sver embættiseið framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New
York á þriðjudag. Andspænis honum stendur Razali Ismail frá
Malasíu, forseti allsheijarþings SÞ.
MIKLIR kuldar eru í Bandaríkjun-
um og hafa samgöngur, skólahald
og ýmis önnur starfsemi farið úr
skorðum vegna ófærðar. Er jafn-
fallinn snjór sums staðar á annan
metra og vegna skafrennings hef-
ur gengið illa að halda vegum
opnum.
Bílar voru fastir í snjónum á
mörgum þjóðleiðum í norðanverð-
um Bandaríkjunum en vegna hríð-
arinnar var ekkert rutt í fyrradag
en það átti að reyna í gær. Var
nokkuð um fjöldaárekstra vegna
veðursins en ekki var þó vitað um
alvarleg slys.
í fyrrakvöld var 12 stiga frost
HUNDRUÐ íbúa Goma-borgar í
Austur-Zaire, sem er í höndum
uppreisnarmanna Tútsa, flúðu
þaðan í gær af ótta við árás zaír-
skra stjórnarhermanna eftir
heimkomu forseta landsins, Mob-
utu Sese Seko.
Mobutu kom til Kinshasa,
höfuðborgar Zaire, í fyrradag en
þá hafði hann verið í krabbameins-
meðferð í Evrópu í fjóra mánuði.
Hann hefur þó ekkert sagt um það
hvernig hann hyggst ná aftur því
landi, sem uppreisnarmenn hafa
lagt undir sig. Borgarbúar í Goma
í Minneapolis og veðurfræðingar
þar og annars staðar vöruðu fólk
sérstaklega við vindkælingunni.
Sögðu þeir, að frostið færi vax-
andi og næði líklega 45 gráðum á
celsíus ef vindkælingin væri tekin
með.
Frost í Texas
Þessir kuldar hafa náð suður
eftir öllum Bandaríkjunum og var
til dæmis spáð frosti í San An-
tonio í Texas. Þar var heimilis-
laust fólk, sem annars er vant að
sofa í bílum, undir brúm og á öðr-
um slíkum stöðum, farið að leita
á náðir hjálparstofnana.
sögðust hins vegar ekki treysta
því, að uppreisnarmenn gætu var-
ið borgina gerði stjórnarherinn
árás.
Yfirmaður uppreisnarmanna í
Goma sagði í gær, að koma Mobut-
us breytti engu og borgin yrði
varin kæmi til þess. Sumir borg-
arbúa höfðu þó orð á því, að ekki
væri að vita nema uppreisnarmenn
yrðu jafn gírugir og spilltir og
stjórnarhermennirnir en viður-
kenndu þó, að friður hefði ríkt í
borginni síðan hún féll þeim í
hendur.
Kveðjuræða
Boutros-Ghalis
lítt dulbúin gagn-
rýni á Bandaríkin
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
KOFI Annan hvatti til þess að Sam-
einuðu þjóðirnar yrðu reknar á hag-
kvæmari og skilvirkari hátt í ávarpi
sínu eftir að hann tók við embætti
framkvæmdastjóra stofnunarinnar á
þriðjudagskvöld.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna, sem skipað er fulltrúum 185
ríkja, samþykkti með lófataki að
Annan, sem hefur starfað hjá Sam-
einuðu þjóðunum í um 30 ár og ver-
ið aðstoðarframkvæmdastjóri með
friðargæslumál undir sinni umsjá
undanfarin ár, yrði arftaki Boutros
Boutros-Ghalis.
Annan sagði að Sameinuðu þjóð-
irnar yrðu að starfa í samræmi við
óskir aðildarríkja.
Talaði gegn vanrækslu SÞ
„Hrósið okkur þegar við höfum
betur; leiðréttið okkur þegar miður
fer,“ sagði Annan. „En umfram allt,
látið þessa ómissandi, óbætanlegu
stofnun ekki hröma, reka á reiðanum
eða hrynja vegna kæruleysis, sinnu-
leysis eða fjársveltis aðildarríkjanna.“
Annan lagði áherslu á breytingar
í ræðu sinni og sagði þær ekki að-
eins mikilvægar fyrir SÞ, heldur
heiminn ailan. „Gerum breytingar
að bandamanni okkar, ekki óvini, lít-
um á þær sem tækifæri, ekki ógn.“
Annan tekur við 1. janúar og verð-
ur 7. framkvæmdastjóri SÞ. Árslaun
hans verða 205.809 dollarar (um
13,5 milljónir króna).
Annan lofaði sérstaklega Boutros-
Ghali, sem hefði sennilega setið ann-
að fimm ára kjörtímabil hefðu
Bandaríkjamenn ekki beitt neitun-
arvaldi í nóvember á þeirri forsendu
að hann hefði ekki verið nógu áfram
um umbætur.
Hvatti til greiðslu skulda
Kveðjuræða Boutros-Ghalis var lítt
dulbúin ádrepa á skuldseiglu Banda-
ríkjamanna við Sameinuðu þjóðimar.
Hann sagði að vandræði SÞ væru
ekki vegna óstjómar eins og oft væri
haldið fram, heldur þess að þjóðir
neituðu að standa við skuldbindingar i
sínar. „Nú þegar verið er að skipa
nýjan framkvæmdastjóra ætti að
greiða allar gamlar skuldir samstund-
is eins og svo oft hefur verið lofað
undanfama mánuði," sagði Boutros-
Ghali á meðan Madeleine Albright,
fráfarandi sendiherra Bandaríkja-
manna hjá SÞ og verðandi utanríkis-
ráðherra, fylgdist svipbrigðalaus með.
Bandaríkjamenn skulda SÞ 1,3
milljarða dollara (um 86 milljarða
króna) og er það rúmlega helmingur
þess fjár, sem ýmis aðildarríki skulda
stofnuninni. Sérfræðingar segja að
framtíð SÞ velti á því hvort skuldir
aðildarríkjanna verði greiddar og þar
séu Bandaríkjamenn í lykilstöðu.
Flýja Goma af ótta
við Mobutu forseta
Goma. Reuter.
Tákn evrósins
EVRÓIÐ, hin sameiginlega Evr-
ópumynt sem á að taka gildi i
ársbyrjun 1999, mun hljóta eigið
tákn eins og ýmsir aðrir gjald-
miðlar, til dæmis dollarinn ($),
og pundið (£), til þess að fljót-
legra sé að skrifa upphæðir í
evróum. Peningamálastofnun
Evrópu (EMI) hefur gert tillögu
um táknið, sem sjá má á mynd-
inni.
REUTERS
Þráðlaus kerfi í settum frá kr. 19.890 stgr.
Kapalkerfi í settum frá kr. 11.610stgr.
Kerfin eru viðurkennd af Fjarskiptaeftirlitinu og
hafa fengið IDEAL HOME verðlaunin fyrir frábæra
hönnun. Auðveld í uppsetningu.
Fjöldi aukahluta á hagstæðu verði, svo sem:
Reykskynjarar, símhringibúnaður, aukasírernur
o.m.fl.
Veitum tæknilega ráðgjöf, önnumst uppsetningu.
Tryggðu öryggið með ELFA !
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 s 562 2901 og 562 2900
HVERJIR UPPFYLLA SKILYRÐI FYRIR EMU-AÐILD?
Fæst ríki Evrópusambandsins uppfylla skilyrðin, sem sett eru i Maastricht-
sáttmálanum fyrir aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU),
samkvæmt nýlegu mati Deutsche Bank.
Verðbólga Fjárlaga- Heildar- Langtímavextir
innan við halli skuldir innan við
1,5% yfir innan við hins opinbera 2% yfir
meðaltali 3% af innan við 60% meðaltali
þriggja beztu VLF afVLF þriggja beztu
“I Austurríki
Uj Belgia
íj(|
Danmörk ■ j
El Finnland
I i Frakkland
Þýskaland
Grikkland
írland
n ítalfa
Lúxemborg
F*3 Holland
Portúgal
Spánn
ÍfS] Svíþjóð
Bretland
I !
I
T
I
I II
71.8%
130.6%
71.3%
63.4%
56.0%
60.3%
109.3%
75.7%
124.3%
7.8%
78.8%
70.7%
67.4%
78.7%
55.2%
|
1
I
SL
É
Tr.
Tf
6.4%
6.6%
7.3%
7.3%
6.5%
6.3%
|13.4%
7.5%
10.0%
6.6%
6.2%
9.1%
9.3%
8.4%
7.9%
REUTERS
(Síðustu tölur)
(Meðaltal 1 996)
(Meðaltal 12 mánaða
fram til júlí)
Grikkir stefna að
EMU-aðild upp
úr aldamótum
Aþenu. Reuter.
GRIKKLAND, eina Evrópusam-
bandsríkið sem ekki uppfyllir eitt
einasta skilyrði fyrir þátttöku í
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu (EMU), stefnir að því að verða
í öðrum hópi nýrra aðildarríkja
EMU upp úr aldamótunum. Breið
pólitísk samstaða er um að Grikkir
þurfi á EMU að halda og aðeins
litlir flokkar yzt á vinstrivæng
stjórnmálanna eru á móti aðild.
„Við verðum að vera í kjarnanum
ef við viljum hafa eitthvert hlutverk
í málum, sem snerta hagsmuni okk-
ar. Þetta snýst um framtíð okkar,“
segir Costas Simitis forsætisráð-
herra. „Efnahagsstefna okkar mið-
ar að því að skapa skilyrði tii að
við getum gengið í EMU með öðrum
hópi aðildarríkja árið 2000 eða
2001.“
Sósíalistaflokkurinn, undir for-
ystu Simitis, vann sigur í þingkosn-
ingum í september síðastliðnum og
boðaði stefnu aðhalds í ríkisfjármál-
um í því skyni að greiða fyrir EMU-
aðild.
Óánægja vegna niðurskurðar
og skattahækkana
Róttækur niðurskurður og
skattahækkanir í fjárlögum næsta
árs hafa orðið tilefni mótmæla og
verkfalla verkamanna og bænda.
Engu að síður viðurkenna samtök
þeirra þörfina á EMU-aðild, en þau
eru ósammála aðferðum ríkis-
stjórnarinnar.
Markmið fjárlaganna er að ná
íjárlagahallanum úr 7,6% af vergri
landsframleiðslu á þessu ári í 4,2%
á því næsta og í 2,4% árið 1998,
en til að eiga möguleika á EMU-
aðild má ríki ekki reka ríkissjóð
með meiri halla en sem nemur 3%
af VLF.
Grikkland er hins vegar langt frá
því að ná markmiðinu um að skuld-
ir hins opinbera séu ekki hærri en
60% af VLF. Hlutfallið er nú áætl-
að um 111%.
Þá hafa Grikkir enn ekki veitt
seðlabanka sínum sjálfstæði, en það
er ein forsenda EMU-aðildar. Búizt
er við að lög um sjálfstæði seðla-
bankans verði samþykkt á næsta
ári.
i
I
i
L