Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 24

Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FÓLKIÐ sem fékk að fara var margt þreytulegt og grét hástöfum. „Þeir láta okk- VOPNAÐIR lögreglumenn við bústað sendiherrans í gær. Þjóðverjar ur laus til að sýna að okkur verði enginn miski gerður," sagði kona í hópnum. og Bretar hafa boðið stjórnvöldum í Perú aðstoð. Liðsmenn skæruliðasamtakanna Tupac Amaru taka hundruð gísla í Lima Heimta að fangelsaðir fé- lagar verði leystir úr haldi JAPANSKA SENDIRAÐIÐ I LIMA ÞUNGVOPNAÐIR skæruliðar hótuðu að myrða um 200 gísla sem þeir tóku í bústað sendiherra Japans í Líma í Perú. Félagar i samtökum byltingarsinna, Tupac Amaru (MRTA), hafa krafist þess að félagar þeirra í fangelsi verði látnir lausir. MRTA sleppti eldra fólki og konum úr haldi í gær. Sprenging heyrðisl í sendiráðinu um kl. 14 að ísl. tíma og skæruliðamir óskuðu eftir læknisaðstoð þar sem sært fólk væri! húsinu. Lima, Madrid, Tókýó. Reuter. LIÐSMENN skæruliðasamtak- anna Tupac Amaru í Perú hertóku á þriðjudagskvöld húsakynni jap- anska sendiherrans í Lima, höfuð- borg Perú og héldu síðdegis í gær hundruðum manna í gíslingu. Kröfðust mennirnir þess að leið- togar samtakanna yrði látnir laus- ir úr haldi og fengju að fara með gíslatökunum á felustað sinn í frumskógum við Amazón. Ella yrðu gíslarnir skotnir, Ekki var ljóst hve margir voru upphaflega í húsinu en konur og aldrað fólk fengu fljótlega að yfirgefa stað- inn. Gíslatakarnir, sennilega um 20 manns, voru að sögn sumra sjónarvotta dulbúnir eins og þjón- ar, óku inn á lóðina þar sem veislu- tjaldið var og báru gestum veislu- mat og kampavín. Höfðu þeir fal- ið vopn og skotfæri í blómaskreyt- ingum og mat, þ. á m. skothylki í jólaköku. Heimildarmaður bresku sjón- varpsstöðvarinnar Sky sagði að gíslatakarnir hefðu grafið göng að húsinu og komist þannig fram hjá vörðum en ekki var ljóst hvort þeir fóru allir inn með þeim hætti. Einnig sagði hann að meðal gísl- anna væri háttsettur lögregiu- maður sem hefði yfirumsjón með baráttu gegn skæruliðahópum og hryðjuverkum í landinu. Atburðirnir hófust klukkan átta að kvöldi að staðartíma, um eitt að morgni miðvikudags að ísl. tíma. Mun hópurinn þá hafa sprengt öfluga dínamíttúpu og tvær minni, síðan var skotið eld- flaug að húsinu og kúlum látið rigna yfir það. í ringulreiðinni notuðu mennirnir tækifærið, klifu yfir múrveggi og komust þannig inn í húsið. „Við viljum að allir félagar okk- ar, sem nú sæta illri meðferð og pyntingum í dýflissum margra fangelsa, verði frelsaðir,“ sagði leiðtogi hópsins er kynnti sig sem Mejia Huerta yfirforingja. Einnig var þess krafist að endurbætur yrðu gerðar á réttarkerfinu og beinar samningaviðræður hafnar milli þeirra og stjórnvalda. „Þögnin rofin“ Hópurinn gaf aðgerðinni heitið „Þögnin rofin“. Annar skæruliði á staðnum sagði síðar í samtali við útvarpsstöð að yrði ekki fallist á kröfurnar myndu liðsmenn hópsins fyrirfara sér og taka gíslana með sér í dauðann. Skæruliðar kröfðust viðræðna við Alberto Fujimori forseta og yrði þeim útvarpað beint. Forsetinn sagði fréttamönnum að innanríkis- ráðherra landsins væri í sambandi við skæruliðana og reyndi að finna friðsamlega lausn. Utanríkisráð- herra Japans hafði á hinn bóginn eftir sendiherra sínum, sem hringdi úr prísundinni, að hann sæi engin merki um að viðræður væru í gangi eða nokkrar tilraunir til að finna lausn. Um 60 Japanar munu vera meðal gíslanna. Þeim sem haldið var eftir var leyft að hringja í ættingja og vini. Sendiherrann, Morihisa Aoki, hringdi í útvarpsstöð. „Það er eng- inn særður, ekkert að okkur,“ sagði hann og taldi að gíslatakamir væru vel vopnaðir. „Eg get ekki sagt allt sem ég vil núna,“ bætti hann síðan við. Hann mælti á spænsku að fyrirskipun skæruliðanna. Misvísandi fréttir bárust af því hve margir hefðu verið í húsinu þegar atlagan hófst, í fyrstu var sagt að þeir hefðu verið um 800 en síðar var nefnd talan 600. Fuji- mori forseti sagði að um 200 manns væru enn í gíslingu en um 170 hefði verið sleppt. Síðdegis barst símbréf frá utanríkisráðherra Perú, Francisco Tudela, sem er í húsinu, og sagði hann að gíslarnir væru nær 500. Þörf væri á læknis- hjálp en einn gíslatakanna mun hafa særst á fæti. Meðal gíslanna voru auk utan- ríkisráðherra Perú annar ráðherra, forseti hæstaréttar landsins og sendiherrar Japans, Þýskalands og Austurríkis, einnig var talið að sendiherrar Brasilíu, Bólivíu, Kúbu, Venezúela og Suður-Kóreu væru í hópnum auk margra ann- arra sendiráðsmanna. Fujimori forseti ræddi við forsætisráðherra Japans, Ryutaro Hashimoto, i síma og lagði hinn síðamefndi áherslu á að allt yrði gert til að tryggja öryggi gíslanna. Ráðamenn í Bret- landi og Þýskalandi buðu Fujimori sérfræðiaðstoð en liðsmenn sér- sveita Breta, SAS, þykja mjög vel þjálfaðar í að fást við vanda af þessu tagi. Spánverjar vöruðu Yinstri- og byltingarsinnaðir skæruliðar í Perú kenna sig við síðasta Inkakónginn Tolla kókaín og deila um hugmyndafræði SKÆRULIÐASAMTÖKIN Tupac Amaru voru stofnuð í Lima 1984 og eru einn af mörgum slíkum hópum í Rómönsku Ameríku sem boða marxisma og byltingu. Þau stóðu fyrir fjölda tih-æða í Perú næstu tvö árin en hafa síðan að mestu verið í skugga annars hóps, Skínandi stígs (Sendero Luminoso), sem stofnaður var á sjöunda ára- tugnum. Lengi hvíldi mikil leynd yfir Stígnum er kennir sig við maóisma. Leiðtogar Stígsins fyrir- líta keppinautana og saka þá um hugmyndafræðilega villu og svik en Tupac Amaru er undir miklum áhrifum Kúbveija. Lögreglan í Lima gerði skyndiárás á hús í borg- inni í fyrra og handtók þá rúman tug liðsmanna Tupac Amaru. Sögðu yfírvöld að mennirnir hefðu ráðgert gíslatöku til að fá leiðtoga sína leysta úr haldi. Meðal hinna handteknu var bandarísk kona, Lori Berenson, sem viðurkennir að hafa starfað með hópnum en segir hann aðeins vilja bæta hag fátækra, hún hafi ekkert ólöglegt aðhafst. Berenson var dæmd í lífstíðar fangelsi og segist ekki hafa hlotið réttláta málsmeðferð en herréttur dæmir í málum af þessu tagi. Yfirvöld hafa viðurkennt að hundruð saklausra manna hafi verið fangelsuð í bar- áttunni gegn skæruliðum en neita að taka mál Berenson upp á ný. Skínandi stígur olli miklum usla undir lok níunda áratugarins og virtist um hríð ætla að takast að brjóta endanlega niður stjómkerfí landsins með árásum sínum. Al- berto Fujimori forseti, sem var kjörinn 1990 og beitti síðar miður lýðræðislegum aðferðum við að halda völdum, gerði það að helsta markmiði sínu að brjóta skæruliða á bak aftur. Leiðtogar Tupac Am- aru og Skínandi stígs, Victor Polay og Abimael Guzman, náðust báðir 1992 og hafa síðan verið í fang- elsi. Taldi stjórn Fujimoris að stutt væri í lokasigur á skæruliðum en gíslatakan á þriðjudagskvöld hefur bundið enda á þær vonir. Um 30.000 manns, aðallega óbreyttir borgarar, eru sagðir hafa faliið í átökunum í Perú frá því um Polay Guzman 1980 og stjórnvöld segjast hafa fangelsað um 8.000 liðsmenn hreyfínganna tveggja. Efnalega tjónið er mikið fyrir land sem ekki var auðugt fyrir, skiptir tugum milljarða króna. Um 200 liðsmenn? Samtök Polays heita fullu nafni Byltingarhreyfíng Tupac Amaru (MRTA) og höfðu allt að 1.000 menn undir vopnum er mest var en heimildarmenn álíta að þeir séu vart meira en 200 núna. Frum- kvöðlarnir voru einkum vinstrisinn- aðir stúdentar. Samtökin kenna sig við uppreisnarmann úr röðum indí- ána er barðist gegn yfirráðum Spánveija í Perú seint á 18. öld og breiddist uppreisn hans til Bóliv- íu og Argentínu áður hann náðist og var pyntaður til dauða. Upp- reisnarleiðtoginn kallaði sig Tupac Amaru II. og var afkomandi ann- ars Tupac Amaru en sá var síðasti konungur Inkanna í Perú og var uppi á 16. öld. Tupac Amaru beitti ýmsum að- ferðum í baráttu sinni á níunda áratugnum. Bankar voru rændir, fulltrúum stórfyrirtækja var rænt og krafist lausnargjalds og gerðar sprengjuárásir á sendiráð og skyndibitastaði, tákn heimsvalda- stefnu Bandaríkjanna. Stuðnings- menn sögðu að samtökin fetuðu í fótspor Hróa hattar, þau rændu frá þeim ríku og gæfu fátækum. Helstu bækistöðvar beggja hreyfínganna í Perú eru í Huallaga- dal í austurhluta landsins þar sem framleiðsla og sala á fíkniefnum eru einn helsti atvinnuvegurinn. Vitað er að oft hefur komið til átaka milli Tupac Amaru og Skín- andi stígs er barist hafa um réttinn til að tolla kókaínviðskiptin í daln- um. Fujimori forseti er af japönskum ættum og hafa samskipti Perú- manna og Japana aukist mjög í stjórnartíð hans, honum hefur tek- ist að fá japönsk stjómvöld til að veita landinu stór lán. Samtímis þessum opinberu tengslum hafa vinstrisinnaðir hryðjuverkamenn í báðum löndunum haft með sér samráð, að sögn sérfræðinga í slík- um málum. Lítið er þó vitað um þessi mál með vissu. í júní fram- seldi Perú til Japans Kazue Yoshi- mura, konu sem grunuð var um aðild að árás samtaka Rauðu her- deildanna á franska sendiráðið í Haag árið 1974 og í fyrra var ann- ar Japani, Yukiko Ekita, handtek- inn í Rúmeníu með fölsuð skilríki frá Perú. Heimildir: The New York Times, Reuter o.fl. I I I ) I I I I E I t : i i : I I : i I E I 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.