Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 50

Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 50
' 50 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg dóttir okkar og systir, SANDRA SIF JÓHANNSDÓTTIR, lést á heimili sínu þriðjudaginn 17. des- ember. Jóhann Helgason, Halldóra Pétursdóttir, Davfð Örn Jóhannsson, Elvar Þór Jóhannsson. Maðurinn minn, ÁGÚST MÁR VALDIMARSSON, Hringbraut 27, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 17. desember. Ragnheiður Hjartardóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF GUÐMUNDSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Frakkastíg 5, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 17. desember. Guðlaugur Þorbergsson, Helgi Þorbergsson, Ebba Þóra Hvannberg, Guðmundur Ingi Þorbergsson, Jutta Thorbergsson, Ágústa Þorbergsdóttir, Rúnar Halldórsson og barnabörn. + Útför föður okkar, sonar og bróður, EINARS INGA FRIÐRIKSSONAR, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 20. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins. Hermann Ingi Einarsson, Karen Ösp Einarsdóttir, Steinar Smári Einarsson, Málfríður Ólafsdóttir, Guðrún Blöndal, Gylfi Magnússon, Ólafur Ólafsson, Erna Jónsdóttir, Þórir Örn Ólafsson, Hólmfrfður Benediktsdóttir, Jóni'na Ólafsdóttir, Jóhannes Þorgeirsson, Sólrún Jóhannsdóttir. svaraði með hægðinni: Heyrðu, tal- aðu bara. Þú hefur svo gaman af að tala. Hermann varð landbúnaðarráð- herra í ríkisstjórn Steingríms Steinþórssonar árið 1953. Dæmið var þá talið standa þannig, að hvorki Hermann né Ólafur Thors gátu orðið forsætisráðherrar vegna þess að hvorugur vildi vinna undir hinum. Varð nokkur leit að forsæt- isráðherraefni og Kjartan Ólafsson í Hafnarfirði jafnvel nefndur til sögunnar. Síðan varð samkomulag um Steingrím. Talið var að forysta Framsóknar hefði verið í hálf- gerðri stjórnarandstöðu þennan tíma. En svo mikið er víst að Her- mann Jónasson undi því vel að vera landbúnaðarráðherra. Hann var maður jarðarinnar og gróðurs- ins. Menningin vex í lundi nýrra skóga var honum kær ljóðlína og vitnaði þá í fyrsta ráðherrann. Hermann leigði sér land strax árið 1940 í Fossvogi undir skógrækt. Þarna kom hann upp gróðrarstöð og hafði þijá menn í vinnu þegar mest var umleikis á vorin. Þarna var einkum ræktað birki og greni. Þeir eru orðnir margir Hermanns- skógarnir víða um land, sem eiga ættir að rekja til gróðrarstöðvar- innar í Fossvogi. Árið 1947 eignuð- ust Hermann og Vigdís jörðina Klett í Borgarfirði. Þar bjó Vigdís manni sínum griðastað ekki síður en að Tjarnargötu 42. Þar ræktuðu þau skógarlund mikinn og þéttan og þar dvöldu þau á sumrin eftir að Hermann hætti afskiptum af pólitík. Hann sagði af sér for- mennsku í flokknum 1962, þegar Eysteinn Jónsson tók við og hafði engin teljandi afskipti af stjórn- málum eftir það. Hann varð þó við + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN FARESTVEIT, Garðatorgi 17, Garðabæ, áðurtil heimilis á Laugarásvegi 66, sem andaðist miðvikudaginn 11. desem- ber sl., verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni föstudaginn 20. desember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hennar sérstaklega, er bent á líknarstofn- anir. Steinar Farestveit, Cecilia Wenner, Arthur Knut Farestveit, Dröfn Farestveit, Edda Farestveit, Gunnsteinn Gíslason, Gerða Farestveit, Þórður G. Guðmundsson, Hákon Einar Farestveit, Guðrún Farestveit. barnabörn og barnabarnabörn. Amma okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og frænka, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Þórsgötu 19, Reykjavík, andaðist á Borgarspítalanum að morgni 16. desember. Jarðarförin auglýst sfðar. Arnþór Halldórsson, Marinó Árnason, Sigurður Halldórsson, Hansi'na Guðmundsdóttir, Baldur Öxdal Halldórsson, Þórir Marinósson, Kristveig Halldórsdóttir, Atli Marinósson, Kristveig Baldursdóttir, Árni Marinósson, Valgerður Marinósdóttir og fjölskyldur. áskorun um að verða enn í fram- boði á Vestfjörðum 1963. Hermann sótti ekki ráðgjöf til margra, en það kom fyrir að hann bæri hugmyndir undir menn og leit- aði álits þeirra. Vinstri stjómin var síðasta afsprengi hugmyndafræði, sem Hermann átti til að gamna sér við, þegar draumar um gamla valdatíð sóttu að. Stjórn hinna vinn- andi stétta hafði staðið vel að mál- um. Nú var undirbúið nýtt valda- skeið með vinstri mönnum í land- inu. Hermann hafði ekki mikið breyst, en vinstri mennirnir voru nú aðrir en menn á borð við Harald Guðmundsson, ráðherra. Alið hafði verið á stéttaheift í nokkurn tíma án þess að nokkur hamlaði á móti eða leitaði jafnvægis. Enn fóru Al- þýðuflokkur og Framsókn saman með það í huga að sameinaðir fengju þeir tveir styrk til að stjórna. Það gekk ekki eftir, en Hermann myndaði engu að síður vinstri stjóm án þess að sérstakra væntinga yrði vart. Við myndun hennar kom fram, að Hermann hafði ekki lengur hit- ann úr krötum til stjórnarmyndun- arverka. Hann varð að viðurkenna, að kommúnistar, þ.e. Alþýðubanda- lagið, réðu launþegahreyfingunni. Hann varð að segja Alþýðuflokkn- um þetta upp í opið geðið, banda- lagsflokknum sjálfum úr kosning- unum, til skýringar á því hvað hann gerði lítið með það sem kratar sögðu við stjórnarmyndunina. Eftir- leikurinn varð auðveldur og sýnu happaminni en þegar Hermann neitaði þjóðnýtingunni 1936. Hann fór fyrir Alþýðusambandsþing og flutti mál sitt og ríkisstjórnarinnar. Og þar brast boginn í hendi hans. Hermann var aldrei deigur maður og aldrei svifaseinn ef heiður hans og flokks hans var með í spili. Hann sagði af sér á stundinni og mættu margir af því læra í stað þess að hnoðast áfram sigraðir af stéttkjörnum pótintátum úti í bæ. Þau urðu örlög þessa hrausta manns, Hermanns Jónassonar, að hann greindist með Parkinsonveiki skömmu eftir að hann hætti þing- mennsku. Hún ágerðist svo með árunum, þótt hann leitaði lækninga. Síðustu árin . lítið sem ekkert tal- að. Vigdís kona hans var alltaf við hlið hans, bæði heima og á gjör- gæsludeild Landspítalans. Her- mann brást vel við veikindum sín- um. Þegar ljóst var að hann mundi ekki komast á fætur aftur og ekk- ert var hægt að gera honum til bjargar sagði hann við gamlan vin sinn „Enginn skyldi vorkenna mér, lífið hefur gefið mér svo mikið,“ Hermann andaðist árið 1976. RADIX EHF. Grandavegi 47 107 Reykjavík Sínii 561-8477 Fax 561-8477 - Tempur heilsakoddinn Einstakir þrýstijöfnunarciginleikarTempur-efnisins gera það að verkura að Tempur-koddinn tryggir hryggsúlunni rétta stöðu í svefni, lagar sig að hnlðinu og veitir hálsvöðvum stuðning þannig að höfuð og háls eru í sinni náttúrulegu stöðu. Blóðflæðið hclst óáreitt vegna þrýstijöfnunar- eiginleika efnisins. Tempur-efnið er þróað af NASA (Geimvísindastofnun Bandaríkjanna) til þess að ná hámarksþrýstijöfnun og þægindum fyrir geimfara. • Spurðu sjúkraþjálfarann þinn eða sjúkranuddarann um Tempur-koddann og -dýnuna. • Tempur dýnur eru notaðar á álagsrúmum sjúkrahúsa um allan heim. Komið og skoðið Tempur kodda og dýnur. Efnið er einstakt og eitthvað sem þið hafið ekki komið við áður. Afgreiðslutími: Mánudaga - föstudaga kl. 13.00 - 17.30 laugardaga kl. 11.00 - 15.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.