Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 65
FRÉTTIR
Styrkir til eflingar dönsku
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá dönsk-íslensku
samstarfsnefndinni um styrkveit-
ingu til eflingar danskrar tungu á
Islandi:
„Frá því nefndin var skipuð í
desember 1995 hefur hún úthlutað
styrk af fjárveitingu danska þjóð-
þingsins að upphæð 3 millj. d.kr.
(u.þ.b. 35 millj. ísl. kr.) fyrir árið
1996 til styrktar dönskukennslu og
danskrar menningarmiðlunar á ís-
landi.
Nefndina skipa: fyrir hönd ís-
lenska menntamálaráðuneytisins
Sigríður Anna Þórðardóttir alþing-
ismaður og Svandís Skúladóttir
deildarstjóri, frá danska mennta-
málaráðuneytinu Niels Hummeluhr
forstjóri og Niels Heyn Christiansen
fulltrúi og fulltrúar danska sendi-
ráðsins Henning Rovsing Olsen
sendifulltrúi og Klaus Otto Kappel
sendiherra.
Á árinu hefur nefndin tekið
ákvörðun um íjárveitingu til eftir-
farandi verkefna: Að sendur yrði
danskur lektor ti! Kennaraháskóla
íslands, að sendir yrðu þrír farkenn-
arar, sem staðsettir eru á Isafjarð-
ar-, Keflavíkur- og Reykjavikur-
svæðunum, að gerð yrðu ný
kennslugögn, m.a. myndbönd, til
þjálfunar hins talaða máls, að stuðla
að þátttöku íslenskra kennaranema
og íslenskra dönskukennara í nám-
skeiðum, sem haldin eru í Dan-
mörku, og að stuðla að skólaferða-
lögum til Danmerkur.
Á fundi samstarfsnefndarinnar
17. desember var úthlutað fé til
eftirfarandi verkefna: 50.000 d.kr.
til Bókasafns Kennaraháskóla ís-
lands, 180.000 d.kr. til endur-
menntunarnámskeiða fyrir íslenska
grunnskólakennara og 60.000 d.kr.
til námskeiða í Danmörku fyrir ís-
lenska kennaranema og veittur
styrkur til kennslu og ráðgjafar
danskra háskólalektora við Háskól-
ann á Akureyri og aðra skóla á
landinu.
Ennfremur ræddi nefndin um að
leggja bæri mat á framkvæmd
verkefnisins fram til þessa, en fram-
kvæmdin byggist á fjárveitingu
danska þjóðþingsins. Áætlanir um
framhald verkefnisins byggjast á
nýrri fjárveitingu frá þjóðþinginu
að upphæð 2 millj. d.kr. fyrir árið
1997. Ákveðið var að framhald
verði á dvöl danskra lektora við
Kennaraháskólann og haldið verður
áfram að styrkja íslenska dönsku-
nema og dönskukennara til endur-
menntunamámskeiða í Danmörku
á árinu 1997. Það sama gildir um
samkomuiagið við farkennarana,
sem þeir geta átt von á að verði
sendir til annarra byggðarlaga
landsins, þar sem þörfin fyrir stuðn-
ing við dönskukennsluna er mjög
mikil.
Nefndin ákvað ennfremur að
veita 10 styrki að upphæð 35.000
ísl. kr. til námskeiða fyrir íslenska
dönskukennara í lýðháskólum í
Danmörku.
Fjöldi danskra menningarvið-
burða hefur verið styrktur á árinu
1996, og má þar m.a. nefna: Merka
sýningu um Grænlandsísinn, skóla-
tónleika danskra hljómsveita, sem
yfir 5.000 nemendur sóttu, vísna-
hljómleikaför þeirra Benny Ander-
sens og Povls Dissings, danska
djasstónleika með söngkonunni Ann
Farholt og Kvartett Pierre Dorge
og námskeið Karenar Blixen.
í áætluninni fyrir árið 1997 er
stefnt að eftirfarandi: Skólatónleik-
um á haustönn, uppfærslu verka
Carls Nielsens í orði og tónum, þjóð-
lagatónlist, djass og rokktónlist
með Bazaar tríóinu, röð fyrirlestra
Lise Norgaard, höfundar „Matador"
sjónvarpsþáttanna, og þátttöku
danskra hljómsveita m.a. í íslensk-
um djasshátíðum."
LEIÐRÉTT
Vélorka hf.
ÞAU mistök urðu í frétt í sérblaði
Morgunblaðsins Úr verinu í gær,
að nafn fyrirtækisins Vélorku hf.
misritaðist í frétt um nýjar aðalvél-
ar frá Mermaid. Vélorka er með
umboð fyrir umræddar vélar, en
ekki Vélar hf. eins og misritaðist í
fréttinni. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistökum um
leið og þau eru leiðrétt.
Jólakveðjur
á Suður-Skáni
í FRÉTT Mbl. 12. desember sl. var
sagt frá jólakveðjum sem hægt
væri að senda til vina og ættingja
á Suður-Skáni í gegnum Útvarp
ímon. Uppgefið var heimilisfang,
bréfasími og tölvupóstfang en þau
reyndust ekki rétt og eru þau gefin
upp hér með: Heimilisfang: Útvarp
ímon, Box 283, 201-22 Malmö,
Sverige. Bréfasími: + 46-40-93-32-
77. Tölvupóstfang: georg.frank-
lins@malmo.mail.telia.com
Stone Free
Enn bætt við
aukasýningu
SÝNINGUM á Stone Free lýkur um
áramótin. Enn hefur verið bætt við
aukasýningu og er hún 30. desem-
ber nk. kl. 22 en fljótlega varð
uppselt á hinar tvær aukasýning-
arnar sem eru 27. og 28. desember.
Nissan
ófundinn
DÖKKGRÁUM Nissan Cherry var
stolið aðfaranótt 3. desember sl. og
hefur ekkert til hans spurst.
Bíllinn er af árgerð 1985 og ber
skráningarnúmerið R-63197. Hann
hvarf frá Reynimel aðfaranótt
þriðjudagsins 3. desember og eru
þeir, sem vita hvar bíllinn er nú,
beðnir um að hafa samband við
rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík.
Frábær sjónvörp
á fínu verði
RflDÍÚBÆB
ÁRMÚLA 38 SÍMI5531133
Heimsklúbbur Ingólfs
Jólafagnaður
á Hótel Sögu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Heimsklúbbi Ingólfs:
„Heimsklúbbur Ingólfs efnir að
nýju til jólafagnaðar á aðventu í
Súlnasal Hótels Sögu föstudags-
kvöldið 20. desember fyrir félaga
Heimsklúbbsins og gesti þeirra.
Þetta er í fjórða sinn sem Heimsklúb-
burinn efnir til hátíðar af þessu tagi,
sem er í senn íslensk og alþjóðleg
og til þess fallin að auka á fjöl-
breytni og innihald jólanna, festa
fallega siði í sessi og skapa hefð.
Skemmtunin sem er bæði vönduð
og fjölbreytt er jafnframt þakkar-
gjörðarhátíð Heimsklúbbsins fyrir
gott ár sem senn er að baki og hefst
á upprifjun með myndasýningum úr
eftirminnilegum ferðum á fagra
staði Evrópu og í fjarlægum álfum
heimsins. Þarna hittast ferðafélagar
og rifja upp góð kynni hver við ann-
an og undur heimsins yfir léttum
veigum áður en sjálf hátíðarveislan
hefst með glæsilegum kvöldverði á
jólahlaðborði.
Jólatónlist og myndasýningar
verða í gangi allt kvöldið og greint
frá helstu ferðanýjungum næsta ár,
þar sem m.a. hnattreisa með nýju
sniði verður kynnt, ólík öllu öðru sem
áður hefur boðist og tekur með í
áætlun sinni marga af frægustu
stöðum og náttúruundrum heimsins.
Nokkrir af fremstu tónlistar-
mönnum landsins og félagar í
Kammersveit Reykjavíkur leika tón-
list eftir J.C. Bach. Sérstakur gestur
verður hinn heimsfrægi tónlistar-
maður og stjórnandi Roy Goodman
sem kominn er til að stjórna Kamm-
ersveitinni á jólatónleikum nk.
sunnudag.
Skemmtiatriðið „Föt og fegurð"
er sýning á fatatískunni frá bað- og
nærfatnaði til dýrindis loðfelda. Sýn-
ingarfólkið er á vegum fyrirtækisins
Johns Casablanea og í hópi þess eru
sýningarstúlkur í heimsklassa sem
eru nú í fremstu röð módela í París,
Mílanó og New York, staddar hér í
jólafríi en taka þátt í sýningunni
undir stjórn Kolbrúnar Aðalsteins-
dóttur.
Skemmtun þessi er í boði Heims-
klúbbsins, gestir greiða aðeins fyrir
veitingar en jólahlaðborðið er á sér-
stöku tilboðsverði, 2.500 kr. Auk
þess fylgir happdrættismiði og ferða-
punktar sem reiknast til frádráttar í
næstu heimsreisu. Slíkir vildarpunkt-
ar munu framvegis gilda fyrir þátt-
töku bæði á ferðakynningum og
skemmtunum Heimsklúbbsins."
JÓLATILBOÐ
a
símum
Frá kr.
.900
Bestu verðin
á aukahlutum
fyrir allar gerðir
GSM síma.
SNORRABRAUT27
SÍMI 551-3060
Ef við þekkjum innsta eðli okkar munum við finna innri
frið, en hann skapar vellíðan og heilbrigði. Við munum
eiga kærleiksrík samskipti við annað fólk og fyllast nýrri
lífsorku. Og efnisleg velsæld mun
falla okkur í skaut án átaka og
fórna.
í þýðingu Gunnars Dal
^ VtLCENGNl
Gunnar Dal er einn ástsælasti hugsuður
þjóðarinnar. Þýðing hans er vitnisburður
djúprar visku og sannrar þekkingar.