Morgunblaðið - 19.12.1996, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 69
BREF TIL BLAÐSINS
Bjarnargreiði
Gunnars Birgissonar
Frá Þórði Krístleifssyni og
Stefáni J. Arngrímssyni:
GUNNAR Birgisson, stjórnarfor-
maður LÍN, gerir menntamálaráð-
herra sannkallaðan bjarnargreiða í
Morgunblaðinu um helgina með því
að minna landsmenn á að ráðherra
Þórður Stefán J.
Kristleifsson Arngrímsson
hélt því fram fyrir skömmu að
bankakostnaður námsmanna vegna
eftirágreiðslna væri óverulegur, þ.e.
að námsmaður með 400.000 kr. lán
bæri aðeins 1500 kr. kostnað i
bankanum. Tölurnar voru í kjölfarið
leiðréttar og réttar reikniaðferðir
útskýrðar. Eftirágreiðslukerfið
byggir á því að tekin eru yfirdrátt-
arlán hjá bönkum gegn framvísun
lánsloforða frá LÍN. Lánþegar bera
því fjármagnskostnað vegna óhag-
stæðra bankalána allan námstím-
ann. Hann er 10.099 kr. hjá ein-
staklingi í leiguhúsnæði á hverju
námsári, miðað við jákvæðar niður-
stöður úr prófum. Einstaklingur í
sambúð með eitt barn greiðir
12.384 kr. í bankavexti og einstætt
foreldri með tvö börn greiðir 18.853
kr. á hverju námsári miðað við sömu
forsendur. Hlekkist námsmönnum
á hækkar kostnaðurinn.
Kostnaður eykst við skakkaföll
Falli námsmaður á haustönn
þannig að lán fæst ekki afgreitt
fyrr en upptökuprófum hefur verið
náð næsta sumar á eftir tvöfaldast
vaxtakostnaðurinn. Hann verður
20.205 kr., 22.837 kr. og 37.718
kr. t ofangreindum dæmum. Við
þessar upphæðir geta bæst eftir-
stöðvar af bankaskuldum vegna
skerðingar námláns í hlutfalli við
námsframvindu á bilinu 75-100%.
Hjá ofangreindum einstaklingum
þýðir 25% skerðing eftirstöðvar á
bankavöxtum á bilinu 124.675 kr.
til 232.740 kr., auka vaxtakostnað-
ur, sem falli eða veikindum, fylgir
bætist við þessar tölur. Að auki
má nefna að fái námsmaður ekki
ábyrgðarmann á yfirdráttarlánið
fær hann enga bankafýrirgreiðslu
og vandséð er hvernig hann geti
gengið menntaveginn.
Hæðst að ráðherra?
Ráðherra hefur ekki enn birt
reikniforsendur sínar. Allir bankar
landsins nota hins vegar svipaðar
eða sömu reikniaðferðir og náms-
menn og fá sviplíkar eða sömu
niðurstöður. Þetta veit Gunnar
Birgisson. Hann gerir hins vegar
ráðleysislega tilraun til að reikna
niður bankakostnað námsmanna.
Af útreikningum hans er fyrst og
fremst ljóst að hann hefur meira
gaman af tölum og talnaleikjum
en þeim raunveruleika sem náms-
menn búa við. Af stakri snilld
bætir hann nefnilega þeirri for-
sendu inn í sína útreikninga að
námsmenn fresti yfirdráttarlánum
sínum með því að framfleyta sér
með greiðslukortum! Hugmyndin
virðist vera sú að þar sé komið
vaxtalaust lán sem lengi þannig í
vaxtaólinni. Með þessu segist
Gunnar vera að sanna að ráðherr-
ann hafi farið með réttar tölur!
Jafnvel þótt nálgast megi nið-
urstöðutölur ráðherrans með þess-
um skringireikningum má fullljóst
vera að menntamálaráðherra var
ekki að reikna greiðslukortanotkun
inn í eftirágreiðslukerfið, enda ekki
vanur að gera sig að athlægi í
opinberri umræðu. Námslán fara
nefnilega að stærstum hluta í að
greiða húsaleigu og matarkaup.
Og hvar kaupa námsmenn mat
nema í Bónus? Hvorugt býður upp
á greiðslukortanotkun eins og al-
þjóð veit. Húsaskjól fæst heldur
ekki á raðgreiðslum. Engu er lík-
ara en að stjórnarformaðurinn vilji
með skemmtiskrifum sínum hæð-
ast að yfirboðara sínum og strá
salti í sárin. Áður en Gunnar sting-
ur næst niður penna ætti hann að
íhuga að það er ekki til fyrirmynd-
ar að vera fyndinn á annarra kostn-
að. Allra síst á jólaföstu.
ÞÓRÐUR KRISTLEIFSSON,
formaður Bandalags íslenskra sér-
skólanema, BÍSN.
STEFÁN J. ARNGRÍMSSON,
varaformaður Bandalags íslenskra
sérskólanema, BÍSN.
Bréfkorn til Helgu
Siguij ónsdóttur
Frá Jóni Hafsteini Jónssyni:
HEIÐRAÐI kollega, Helga Sigur-
jónsdóttir.
Bestu þakkir fyrir tvær síðustu
greinar þínar, og þá ekki síður
það fyrirheit, að gefa út í bókar-
formi greinaflokk þinn, sem birtist
í Morgunblaðinu 1993. Þótt
kennsluárangur hjá mér væri ekki
lakari en hjá öðrum fann ég oft
til vanmáttar gagnvart hinum vísu
sérfræðingum, sem vissu svo vel,
hvernig átti að láta enn fleiri nem-
endur skilja það, sem reynt var
að kenna. Ég vildi gjarnan geta
náð til allra, sem mér var falið
að sinna, en töframeðul kennslu-
fræðanna voru mér óskiljanleg.
Þar sem þau áttu að hafa skilað
árangri, kom sú skýring ein í ljós
að dregið hafði verið úr kröfum
og það var ekki það sem ég taldi
vera markmiðið. Svo kom krafan
um að meðaleinkunn einstakra
námsgreina ætti ætíð að vera hin
sama, en þá sannfærðist ég um
að ekki yrði hjá því komist að
spyrna við fótum. Fyrir kom að
ég fékk tækifæri til að hlusta á
trúboðana (jafnvel postulana!
Æðsta goðið sá ég þó aldrei.),
þegar þeir af umhyggju sinni
heimsóttu framhaldsskólana með
fagnaðarerindið í pússi sínu og
veittu kennurum af fjálglegri
rausn. Sumt af því, sem þeir
reyndu að fá okkur til að líta á
sem merka nýjung fannst mér að
vísu að ég hefði alltaf vitað og
iðkað, og það hefðu einnig þeir
mætu menn gert, sem ég hafði
fyrir kennara. Dæmi um þetta er
t.d. „uppgötvunaraðferðin", sem
ég held að hver einasti kennari
grípi til, en háskalegt er að of-
nota. Hitt var þó miklu algengara
að þessir predikarar töluðu lengi
og skörulega án þess að ég (og
fleiri) vissi hvað þeir vildu segja.
Satt að segja hvarflaði stundum
að mér að þeir vissu það ekki sjálf-
ir, en lengi vel hafði ég nú ekki
hátt um það. Það var mér því
bæði léttir og örvun að lesa
greinaflokk þinn 1993. Þá sá ég
m.a. að hægt er að tala um þessa
hluti á skiljanlegu máli. Nú skrifa
svo margir þvílík reiðinnar ósköp
um skólamál í blöðin, að mér
finnst ég geti notað Morgunblaðið
sem póstleið fyrir þetta tilskrif.
Ég endurtek þakkir mínar og vona
að það verðir þú en ekki ríkjandi
valdaklíka, sem mótar skólakerfið
til næstu framtíðar. Nú hefði ver-
ið fengur að því að heyra rödd
þína í þingsölum vorum!
Með góðri kveðju.
JÓN HAFSTEINN JÓNSSON,
fv. menntaskólakennari.
Forsvars-
menn
lánasjóðs
gleymnir
Frá Hildigunni Rúnarsdóttur:
VEGNA bréfs frá Gunnari Birg-
issyni í Morgunblaðinu þann
15.12.96, þar sem hann fjallar
um vaxtagreiðslur námslána.
Gunnar skrifar: „Staðreyndin er
sú að á öllum Norðurlöndum,
nema Noregi greiða menn vexti
af námslánum sínum á námstíma.
Danir og Svíar hafa þó t.d. aldrei
verið taldir andfélagslegir gagn-
vart námsmönnum.“ Þetta er satt
og rétt, en herra Gunnar gleymir
algerlega að geta þess að (að
minnsta kosti í Danmörku) þarf
fólk yfirleitt ekki að taka náms-
lán, þar sem það dregur fram líf-
ið - reyndar ekki auðveldlega,
en lifir þó - á námsstyrkjunum
sínum, sem það þarf aldrei að
borga til baka! Hvernig stendur
nú á því að forsvarsmenn lána-
sjóðsins gleyma að nefna þetta?
Spyr sá sem ekki veit!
HILDIGUNNUR RÚNARSDÓTTIR,
Njálsgötu 6, Reykjavík.
yfirburða
hljómtæki
RflDÍÓBÆR
ÁRMÚLA 38 SÍMI5531133
ÍSLENSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
Við framleiðum reiðtygi
á íslenska hestinn,
Þar á meðal
hnakkinn SMÁRA.
Verið velkomin!
HESTAVÖRUR
SÍÐUMÚLA 34,
108 Reykjavík.
Sími / Fax 588-3540
Söðlasmiður, Pétur Þórarinsson.
NÝSMÍÐI, VIÐGERÐIR, VERSLUN.
miiÁa
Opið um helgar kl. 11-17
Qpið VIRKA DAGA kl. 12-18
..i jolapakkann Iff-lTMkm
Snúrustýrðir bílar kr. 950,- smábílar kr, 180,- dúkkur
kr. 500,- Múmínálfahús kr. 4800,- Yess drengjaarm-
bandsúr kr, 3500,- E'legal barnahúfur kr. 490,- 7C
síðkjólar kr. 2990,- dömukjólar kr. 1600,- sokkar kr. 50,-
Chantelle undirfatasett kr. 1000,- armbönd frá kr. 600,-
dömu og herrapeysur frá kr, 990,- þrír 14k gullhúðaðir
skartgripir að eigin vali kr. 1990,- handmáluð glervara
frá kr. 300,- stofuklukkur kr. 7600,- jóladúkar kr. 790,-
Kerfajólaseríur kr. 490,- boröklukkur kr. 1500,- borð-
speglar kr. 1500,- úrval af jólabókum frá kr. 200,-
barnakjólar kr. 1200,- bílabraut kr. 999,- Martines a
skólatöskur kr. 1400,- svartar vafteraðar úlpur með
loðkraga kr. 3990,- barnaskíðagallar kr. 1900,- skíða-
vettlingar kr. 500,- seríur kr. 125,- koparvara frá kr. 200,-
jólamatinn
Gott verð
Mikil gæði
*
handa öllum *
Lambakjöt, svínakjöt, hangikjöt, síld, reyktur og
grafinn lax, humar. rœkjur, kartöflur, laufabrauð,
jólakökur, tertur, ný og kœst skata, hákarl,
saltfiskur, harðfiskur og margt, margt fleira, 7C
■ffr..
Komdu í Kolaportið
-þar sem allt fæst
í jólapakkann ^
og jólamatinn
á góðuverði
7Á
ARS ÞÓRS í KoUpORTÍNU
LAUGAHDAG KL. 15:00- 16:00
Rúnar Þór kynnir nýjan disk
með ljúfri og rómantískri
tónlist. Áritaður diskur með
Rúnari Þór er jólagjöfm í ár.
Jólahús og jólabílar
Okeypis
í #róbær
leiktæki
aíla virka
daga kl. 12-18
JÓLA
KOLAPORTIÐ
opið virka daga kl. 12-18
til jóla