Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ h FRETTIR Munum gæta hagsmuna íslensk- unnar „AÐ ÞVÍ er varðar stefnu gagnvart evrópskum rannsóknarverkefnum höfum við lagt áherslu á það við Evrópusambandið að við munum gæta hagsmuna íslenskunnar við nýtingu hinnar nýju upplýsinga- tækni og mótun stefnu í vísindum og rannsóknum. Þetta verkefni verður ekki leyst I eitt skipti fýrir öll, heldur er viðvarandi fyrir okkur íslendinga á meðan við tölum tungu menntamálaráðherra, þegar hann var inntur eftir afstöðu sinni til sam- starfsverkefna Evrópuríkja á sviði tungumálaverkfræði. í Morgunblaðinu á sunnudag var viðtal við Heiðar Jón Hannesson og Þorgeir Sigurðsson, starfsmenn Skýrr, um stöðu íslenskrar tungu í upplýsingaþjóðfélaginu. Þar kom fram, að íslenska er eitt sautján tungumála í svokallaðri EU- ROMAP-könnun, þar sem safnað er á einn stað öllum upplýsingum um þá sem fást við tungumálaverk- fræði, hvort sem þeir vinna við tal- gervla, þýðingarforrit, textalestrar- forrit, leiðréttingarforrit eða texta- greiningu._ í viðtalinu kom einnig fram, að íslendingar þurfí að búa til gagnagrunna um íslenskt mál, en þeir Heiðar Jón og Þorgeir telja að kostnaður við að tryggja fram- gang íslensku í tölvutækninni geti numið milljörðum á næstu árum eða áratugum. íslensku komið að „Ríkisstjómin hefur mótað al- menna stefnu um upplýsingasamfé- lagið og menntamálaráðuneytið sent frá sér sérstakt rit, í krafti upplýs- inga, um stefnu sína. Viðhorfum okk- ar gagnvart Evrópusambandinu höf- um við komið á framfæri meðal ann- ars í bréfum til Edith Cresson, sem fer með yfirstjóm rannsókna og vís- indamála I framkvæmdastjóm sam- bandsins," sagði Bjöm Bjamason. „Ég hef verið í sambandi við þá sérfræðinga sem að þessu vinna, en aðalatriðið er að koma íslensk- unni að á sem flestum sviðum. Vís- indafulltrúi ráðuneytisins í Brussel, Rögnvaldur Ólafsson, hefur unnið að þessum verkefnum og m.a. að- stoðað þá sérstaklega, sem unnið hafa að tungumálaverkfræðinni. Þannig höfum við lagt þessu lið eft- ir fremsta megni. Fjárveitingar byggjast hins vegar ekki á ágiskun- um um kostnað, heldur sértækum tillögum um einstök verkefni. Þá er óljóst hvemig kostnaðarbyrðin dreifist, en sagt hefur verið að það sé stundum dýrt að vera íslendingur og kann það enn að sannast hér.“ Bjöm sagði að mikilvægast væri að þeir sem sérfræðiþekkingu hefðu ynnu að málinu áfram. Dæmt í skattsvikamáli ÞÞÞ á Akranesi 10 mánaða fangelsi og 40 milljóna króna sekt HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands dæmdi í gær 66 ára gamlan fram- kvæmdastjóra og einkaeiganda Bif- reiðastöðvar Þórðar Þ. Þórðarsonar á Akranesi sekan um brot á skatta- lögum og skjalafals og til að sæta 10 mánaða fangelsisvist og til að greiða 40 milljóna króna sekt í ríkis- sjóð eða afplána 12 mánaða fangelsi til viðbótar. Maðurinn var sakfelldur fýrir eft- irtalin brot; að hafa vanframtalið tekjur sínar um a.m.k. 132,1 m.kr. á skattframtölum áranna og skotið undan tekjuskatts- og útsvarsstofn- um sömu ár a.m.k. 28,5 m.kr.; að hafa frá 1990-1993 lækkað Q'árhæð- ir á 120 sölureikningum fyrirtækis- ins um 47,2 m.kr. og notað reikning- ana þannig til tekjufærslu í bókhaldi og að hafa á virðisaukaskattskýrsl- um frá 1990 til 1994 vantalið virðis- aukastattskylda veltu fyrirtækis sína um að minnsta kosti 149 millj- ónir króna og skotið að minnsta kosti 35,8 milljónum króna undan virðisaukaskatti. Meðferð í skattkerfinu Skattstjóri Vesturlands óskaði í október 1994 eftir skattrannsókn á meintum skattalagabrotum fram- kvæmdastjóra Bifreiðastöðvar Þórð- ar Þ. Þórðarsonar. Rannsókn skatt- rannsóknastjóra laut að bókhaldi, tekjum, tekjuskráningu og tekju- skráningargögnum varðandi rekstur fyrirtækisins frá byijun árs til loka ágústmánaðar 1994. Færðu bók- haldi vegna rekstraráranna 1989- 1993 var ekki skilað til skattrann- sóknastjóra en tölulega var niður- staða rannsóknarinnar sú að vantal- in skattskyld velta frá janúar 1989 til ágústmánaðr 1994 hefði verið 150,4 m.kr. Vanframtalinn virðis- aukaskattur frá 1990 til ágúst 1994 36,8 m.kr. Mál fyrirtækisins hefur farið í gegnum meðferð í skattkerfínu og hefur yfírskattanefnd úrskurðað um 153 m.kr. viðbótarveltu til virð- isaukaskatts fyrir árin 1990 til og með ágúst 1994. Játning Eftir lögreglurannsókn var gefín út ákæra á hendur framkvæmda- stjóra og eiganda fyrirtækisins og málið tekið til meðferðar af fjölskip- uðum héraðsdómi Vesturlands. Þar bar maðurinn að hann hefði verið framkvæmdastjóri og séð um fjár- málastjórn, úrskrift reikninga og innheimtu þeirra en bókhald hefði bókari fært samkvæmt gögnum sem maðurinn hefði sent honum á 1-2 mánaða fresti. Framkvæmdastjórinn viður- kenndi þær sakargiftir sem á hann voru bornar. Hann kvaðst hafa sent bókaranum þau gögn sem hann hefði talið að hann þyrfti með. Maðurinn kvaðst hafa verið trassi að halda til haga ýmsum gjalda- reikningum og ekki sent þá bókar- anum en bókarinn hafi jafnframt gert virðisaukaskattskýrslur, skatt- skýrslur og ársreikninga og kvaðst maðurinn hafa skrifað undir skýrsl- umar án þess að lesa þær. Hann kvaðst hafa fengið gögnin send til baka. Maðurinn viðurkenndi að hafa vanframtalið þær íjárhæðir sem honum var gefið að sök en gat ekki gefið skýringu á því af hveiju þær hefðu ekki verið tekjufærðar. Hins vegar kvað maðurinn ýmis gjöld vegna rekstrarins ekki koma fram í skattframtölum hans. Kerfisbundin brot í Iangan tíma Við ákvörðun refsingar hafði dómurinn í huga að brot mannsins voru stórfelld, maðurinn sveik um- talsverðar fjárhæðir úr ríkissjóði, brotin stóðu yfír í langan tíma, voru kerfísbundin og unnin með þeim ásetningi að koma sér hjá að standa skil á sköttum til ríkisins. Hins veg- ar verði að líta til þess að ekki verði fullyrt um raunverulegan hagnað mannsins af brotum sínum. Hæfíleg refsing var talin 10 mán- aða fangelsi en einnig var maðurinn dæmdur til að greiða 40 m.kr. sekt til ríkissjóðs og hefur álag það sem skattayfirvöld lögðu á fyrirtækið vegna brota mannsins þá verið dreg- ið frá. Greiði maðurinn ekki sektina innan 4ra vikna kemur 12 mánaða fangelsi til viðbótar í stað hennar. Manninum var einnig gert að greiða allan sakarkostnað, svo og samtals 500 þús. kr. í saksóknarlaun og málsvarnarlaun. 37,1 m.kr. I hagnað? Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdóm- ari dæmdi í málinu ásamt löggiltu endurskoðendunum Jóni Þ. Hilmars- syni og Birki Leóssyni. Hervör skilaði sératkvæði um þann hluta ákærunnar sem laut að tekjuskatti, eignarskatti og útsvari. Þar kom fram að hún teldi, and- stætt hinum dómendunum tveimur, sannað að maðurinn hefði hagnast um 37,1 m.kr. af brotum sínum á lögum um tekjuskatt og eignarskatt og útsvar. Morgunblaðið/Ásdls HEIÐURSFÉLAGAR Kvenréttindafélagsins, þær Vigdís Finnbogadóttir, Sigríður Erlendsdóttir og Björg Einarsdóttir á afmælishátíð félagsins í gær. Kvenréttindafélag íslands 90 ára Þrír heiðurs- félagar ÞRJÁR konur voru gerðar að heið- ursfélögum í Kvenréttindafélagi ís- lands á 90 ára afmælishátíð félags- ins, sem haldin var í Ráðhúsi Reykja- víkur í gær. Heiðursfélagarnir þrír eru þær Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum for- seti íslands, Sigríður Th. Erlends- dóttir sagnfræðingur og Björg Ein- arsdóttir rithöfundur. Á afmælishátíðinni fluttu ávörp Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forset- afrú, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Inga Jóna Þórðar- dóttir borgarfulltrúi. Sýnd voru atriði úr dagskrá Listaklúbbs Þjóðleikhúss- ins, „Konur með penna“, auk þess sem Sophie Schoonjans lék á hörpu og Arnbjörg Sigurðardóttir og Berg- lind María Tómasdóttir fluttu flautudúetta. veitmgastaðuiirm ódvr kostur •/ íhádeginu Snitzel Veitingastadur Víða illfært um helgina STORMUR geisaði yfir vestanvert landið á sunnudag og á Vestfjörð- um var ófært víðast hvar, en auk þess erfið færð á flestum vegum Norður- og Norðvesturlands. Á mánudag var hafist handa við að moka og var gert ráð fyrir því að fært yrði á flestum vegum landsins í dag. Nokkuð erfiðlega gekk að halda uppi innanlandsflugi hjá Flugleið- um um helgina. í gær var flogið til allra áfangastaða Flugleiða. í dag er búist við sunnan- og suðvestanstrekkingi og rigningu á vestanverðu landinu en þurru veðri austanlands. Morgunblaðið/Kristinn ÞESSIR krakkar létu veðrið ekki á sig fá og léku sér alsæl í snjóruðningum sem höfðu myndast við Bústaðaveg um helgina. } I > i i í I I I I I r L l . t P r 1 j i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.