Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 39 f ANNA GUÐJÓNSDÓTTIR + Anna Guðjóns- dóttir fæddist á ísafirði 22. janúar 1914. Hún lést 21. janúar sl. á Öldrun- ardeild Landspítal- ans Hátúni lOb. Foreldrar hennar voru Sigríður Hall- dórsdóttir, f. á ísafirði 6. septem- ber 1868 d. 17. des- ember 1957 og Guð- jón Magnússon, f. á Hellissandi 5. apríl 1868 d. 12. febrúar 1955. Anna og tví- burabróðir hennar Páll voru yngst 12 barna þeirra hjóna. Hin voru Halldóra Mikkalína f. 26. maí 1895, Þórdís f. 29. september 1897, Ottó f. 1. nóv- ember 1900, Áslaug f. 15. sept- ember 1902, Vilhjálmur f. 13. október 1905, Karolína Magnea f. 16. april 1907, Halldór f. 4. ágúst 1908, Guðjón f. 16. janúar 1910, Sigríður f. 8. febrúar 1912, þau eru nú öll látinn. Auk þess ólu þau upp tvö barnabörn sín Friðrik Ottóson f. 20. október 1921 látinn og Karl Vil- helmsson f. 22. ág- úst 1931. Anna gift- ist 6. júní 1936 Karli Bjarnasyni f. á ísafirði 13. des- ember 1913 d. 30. nóvember 1987. Þau bjuggu á ísafirði til ársins 1953 er þau fluttu til Reykjavíkur. Anna og Karl eign- uðust sex börn. Þau eru: Geirlaug f. 1. okt. 1936 gift Herði Sófussyni, Guðjón Bjarni f. 18. ágúst 1938, Dagný f. 3. júní 1941 gift Erling Bang, Auðunn f. 20. apríl 1943 kvæntur Fríði Jónsdóttur, Sig- urður f. 23. apríl 1944 kvæntur Hallfríði Jónsdóttur og Anna f. 18. ágúst 1949 gift Erlendi Erlendssyni. Útför Ónnu verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. janúar og hefst athöfnin kl. 13.30. Anna Guðjónsdóttir var af góðu og dugmiklu fólki komin. Sigríður móðir hennar var mild, traust og stýrði barnmörgu heimili af hóg- værð og háttvísi sem henni var í blóð borin. Guðjón faðir hennar var dugnaðarforkur, skapmaður en þó hlýr og geðþekkur. Allt það besta af eðliskostum foreldranna var ríkt í lífsstarfí og skapferli Önnu. Hún ólst upp á fjöl- mennu heimili við þröngan húsa- kost eins og það var hjá flestum á þeim tíma. Systkinin fóru öll ung að heiman til hinna ýmsu starfa. Anna var ekki eftirbátur þeirra að því leyti að komung að árum fór hún að vinna almenna vinnu eins og unglingar þeirra tíma þurftu að gera. Skólagangan var ekki löng, enda voru þeir fáir sem höfðu tækifæri til langrar skólagöngu því fátækt var þar viða mikil. En þrátt fyrir þetta gekk Anna í annars konar skóla, sem kenndi henni svo margt og hún naut síðar á lífsleiðinni, sá skóli var skóli lífsins. Anna giftist 1936 Karli bróður mínum, sem lést fyrir rúmum 9 árum. Þeim varð 6 barna auðið sem öll lifa foreldra sína. Heimili þeirra var á ísafirði og þar fæddust öll bömin. Á árinu 1953 fluttist fjöl- skyldan til Reykjavíkur. Þegar Karl lést var heimili þeirra við Tjamar- ból en eftir lát hans hélt Anna heim- ili með elsta syni sínum, Guðjóni Bjama, sem hún bar sérstaka um- hyggju fyrir. En skjótt bregður sól sumri. í júlí 1992 veikist hún alvarlega og var 11. ágúst það ár lögð inn á Öldrunardeild Landspítalans við Hátún lOb og þar var hún í hálft fimmta ár. Heilsu hennar hrakaði mjög bæði líkamlega og andlega og þar lést hún einum degi fyrir 83 ára afmæli sitt. Anna Guðjónsdóttir var fyrir- myndarhúsmóðir, hljóðlát og nær- færin. Hún stjómaði heimilinu með hægð en hélt uppi góðum aga. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast í kringum hana og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, en lét aldrei niðrandi orð falla um fólk. Hún var einstök eigin- kona og móðir sem bar mikla um- hyggju fyrir bömum sínum og skyldmennum. Bömin hennar sýndu henni mikla elsku og um- hyggju og ekki síst í veikindum hennar. Slík ræktarsemi ber með sér að það er mikið gott í slíkum börnum. Nú hefur Anna blessunin fengið hvíldina, það var gott eins og komið var. Hún kvaddi síðust sinna mörgu systkina. Hún lifði lengst maka systkina minna, sem einnig eru lát- in. Það gerist margt á langri ævi. Það eru liðin meira en 40 ár frá því Anna, Karl og börnin fluttust frá ísafirði en aldrei rofna tengslin við æskustöðvamar því með sanni má segja að „römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til“. Ég er þess fullviss að hún hugsaði oft til sinna æskustöðva. ísafjörður, fjöll- in, dalimir og Pollurinn verða alltaf samofin minningu þeirra sem þar áttu heima og þótti vænt um þennan stað. Fyrir mörgum ámm eignuðust Anna, Karl og flest bama þeirra land og hús í Hattardal í Álftafirði. Þangað fóru þau hvert sumar meðan bæði lifðu. Þar áttu þau sólskins- stundir í þessum fagra dal, skógiv- öxnum. Þar var oft beijað vel. Ljós minninganna er mikils virði. Með komandi sumri og hækkandi sól veit ég og trúi að þau hjónin líti yfir Hattardalinn fagra með bros á vör. Með Önnu mágkonu minni, er horfin mikilhæf kona sem gaf starfs- þrek sitt og umhyggju manni sínum, bömum og bamabömum. Hún var ljúf, mikil mannkostakona og um- fram allt kona sem gaf frá sér hlýju og hamingju. Við Kristín biðjjum Guð að blessa minningu hennar og halda sinni vemdarhendi yfir öllum þeim sem voru henni kærir. Matthías Bjamason. Elsku amma mín, nú hefur þú loksins fengið hvíldina eftir langa sjúkralegu. Allir segja mér að vera sterk því að nú líði þér vel en þó að ég viti það er missirinn svo sár. Ég heimsótti þig á sunnudeginum og þá varst þú svo glöð að sjá mig og hélst í höndina á mér og varst að segja mér svo mikið, bara að við hefðum getað talað saman. Næsta dag varst þú orðin svo veik og við systumar komum og kvöddum þig, það var svo erfitt en þá gast þú sagt mér að ég væri orðin stór stelpa. Ég trúi að nú séuð þið afi aftur saman og Lísa mín trítlandi á eftir ykkur, og hjarta mitt segir mér að nú séuð þið ánægð. Minningamar streyma upp í huga minn, aldrei man ég eftir því að hafa séð þig reiða, ég man reyndar eftir einu atviki í Hattardal þegar Kristín systir veiddi hagamús og ákvað að baða hana og gefa henni að borða. Ég var send inn að ná í sápu og vatn. Þú horfðir á mig og spurðir hvað við ætluðum að gera við þetta, ég reyndi að ljúga en þar sem ég er hinn versti lygari sást þú strax að eitthvað var bogið við þessa sögu, en sagðir ekkert, en þegar ég kom inn að ná í ost varð ég að segja þér hvað við væmm að gera. Þú varst alltaf svo hrædd við mýs og því varst þú alls ekki kát að heyra að við væmm að baða eina úti í kofa. Þegar þið komuð til ísafjarðar í heimsókn vomm við systumar og Lísa alltaf boðnar með í Hattardal. Það vom góðir tímar og mun ég seint gleyma þeim dögum. Amma, þú varst heimsins besti kokkur og því getur enginn neitað. Alltaf þegar við vomm að koma suður var hringt vestur og spurt hvað súpu eða graut ég vildi í eftirrétt. í Sæviðarsundinu ræktaðir þú jarðarber í garðinum og þegar við komum í heimsókn fómm við systurnar og afi aðeins að líta á þau, þú varst ekkert allt of hrifin af því en þú skammaðir bara afa. Þið afi emð fyrirmynd mín, þó efa ég að ég verði nokkurn tíma eins góður kokkur og þú, það verður í besta falli „næstum því eins gott og hjá Ömmu“ eins og við segj- um vanalega. Elsku amma mín, nú kveð ég þig í síðasta sinn og því vil ég að þú vitir að ég elska þig og afa af öllu mínu hjarta og ég veit að þið vakið yfír mér, ykkar er sárt saknað. Að lokum vil ég fara með bænina sem þið afi kennduð okkur systmnum þegar við vomm litlar. Nú legg ég augun aftur 6, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Hvíl í friði. Þín dótturdóttir, Sigrún Edda. Það er svo margt sem rennur í gegnum huga minn þegar ég hugsa til hennar ömmu minnar, sem nú hefur fengið hvíldina. Við systumar eigum svo margar dásamlegar minningar um sumrin í Hattardal, þar sem hún dekraði við okkur og Lísu okkar. Ég man að mamma sendi Lísu í sveitina svo að hún grenntist við útiveru og hlaup, en Lísa bætti heldur á sig. Þegar mamma fór að kanna hvað ylli sagði amma að Lísa hefði ekki viljað morgunnmatinn fyrr en hún hellti ijóma og sykri út á hringina, svo var hádegismaturinn brytjaður og stappaður fyrir hana, þá var það miðdagskaffí, kvöldmatur og að lokum vel útilátinn skammtur af kökum með kvöldkaffinu og Lísa blómstraði vel. Það var enginn í megrun sem var í fæði hjá ömmu. Beijaferðir voru ömmu alltaf hin besta skemmtun og í einni slíkri sem við fórum í eftir að afí var fallinn frá, fór hún um allt fjall og tíndi ber, allt í einu sá hún stór og góð ber uppi á kletti og í ákafanum klifraði hún til að ná í berin en hugði ekki að sér og allt í einu hékk amma utan í klettinum og það eina sem mér datt í hug var að gerast stóll og þannig gat hún stað- ið á bakinu á mér og við leystum vandann. Hún var fljót að jafna sig og vildi halda áfram að fylla fötuna. Amma mín var mér vinkona og hjá henni leið mér vel. Við fórum saman í búðina og spjölluðum sam- an og hún hlustaði á alla mína draumóra. Nú kveð ég hana með sorg í hjarta en einnig gleði, því nú hefur hún fengið hvíld eftir svo löng og erfið veikindi og ég trúi að þau hafi hafi nú sameinast aftur. Hvíl í friði. Kristín Anna. TÖ44Um flD OPUÍ flD IJfl OIH ÍMIDWUA IIÓTÍL ÍOK fitUÚODflhl • (ííí Upplýsingar i s: 551 1247 Sonur minn, PÉTUR BJARNASON, lést á heimili sínu Röstánga f Svíþjóð, 6. janúar sl. Útförin hefur farið fram. Hjördís Pétursdóttir og vandamenn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR ÓLAFÍA ÞÓRARINSDÓTTIR, lést að kvöldi 24. janúar á Elliheimilinu Grund. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÞÓRARIIMSDÓTTIR (EBBÝ), lést á heimili sínu Háagerði 31 þann 27. janúar. Ragnar Bjarnason, Dfana Ragnars, Þorsteinn Kárason, Sigurbjörg Laufey Þorsteinsdóttir, Eyþór Guðmundsson, Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Andri Lindbergsson og barnabarnabörn. t Móðir okkar, SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Hverfisgötu 92A, Reykjavfk, lést á Hvíta bandinu, öldrunardeild, aðfaranótt 26. janúar. Guðbjörg Helgadóttir Olsen, Hafdfs H. Helgadóttir, Kristfn Helgadóttir, Hulda Elvý Helgadóttir, Ómar Þór Helgason, Helgi Helgason. t Elskulegur eiginmaður minn, KRISTJÁN ÖRN MAGNÚSSON, Hvolsvegi 28, Hvolsvelli, lést á Landspftalanum mánudaginn 27. janúar. •Erla Jónsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ BRIEM HARALDSDÓTTIR, Háteigsvegi 16, Reykjavfk, lést aðfaranótt laugardagsins 25. jan- úar. Jarðarförin fer fram frá Bústaða- kirkju fimmtudaginn 30. janúar kl. 10.30. Haraldur Konráðsson, Magnús B. Haraldsson, Björg Hulda Konráðsdóttir, Gestur Ó. Sigurðsson, Guðný B. Gestsdóttir, Sigurður M. Gestsson, Edgar Konráð Gapunay. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN RAGNA VALGEIRSDÓTTIR, Miðtúni 48, Reykjavfk, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 26. janúar. Hjörtur Guðjónsson, Þórveig Hjartardóttir, Pólína H. Hjartardóttir, Valgeir G. Hjartarson, Guðjón Hjartarson, Kristján M. Hjartarson, Signý I. Hjartardóttir, Hjörtur R. Hjartarson, Sveinbjörn Benediktsson, Grótar Sigurðarson, Valdís Harðardóttir, Kristjana Jensdóttir, Ingibjörg Höskuldsdóttir, Nanna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.