Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stórkaupmenn mótmæla nýjum
þjónustugjöldum skipafélaganna
Umtalsverður
kostnaðarauki
fyrirtækja
FELAG íslenskra stórkaup-
mar.na mun á næstu dögum
kvarta formlega bæði við Eim-
skip og Samskip yfír nýjum þjón-
ustugjöldum sem félögin hófu
að innheimta af inn- og útflytj-
endum um áramótin. Einnig
hyggst félagið senda Samkeppn-
isstofnun erindi vegna þessa
máls.
Eimskip lagði um áramótin
460 króna afgreiðslugjald á
hverja sendingu í flutningi á
stykkjavöru og 980 króna gáma-
gjald í innflutningi. Einnig er
sérstakt gjald innheimt fyrir að
útbúa farmskjöl í útflutningi sem
er 880 krónur ef útfyllt fyrir-
mæli fýlgja, en ella 1.760 krón-
ur. Samskip fylgdu í kjölfarið
með því að leggja á 465 króna
sambærilegt afgreiðslugjald og
980 króna gámagjald.
Stefán Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
stórkaupmanna, segir að útflytj-
endur í röðum félagsmanna og
erlendir flutningsmiðlarar hafí
kvartað yfír þessum nýju gjöld-
um við félagið. Þau séu ekki lögð
á afmarkaða þjónustu nema
gjöldin fyrir farmskírteinin og
feli í sér umtalsverðan kostnað-
arauka sem skipti einhverjum
milljónatugum.
Talsverður kostnaður
við hveija sendingu
Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs
Eimskips, segir að félagið hafi
tekið í notkun nýtt gjaldskrár-
kerfí fyrir rúmu ári sem kynnt
hafí verið rækilega hjá stórkaup-
mönnum og iðnrekendum.
„Gjaldskrárkerfín eru byggð
þannig upp að menn greiða ein-
göngu gjald eftir þunga eða rúm-
máli. Hins vegar er talsverður
kostnaður við hveija sendingu
án tillits til magns og þess vegna
töldum við eðlilegt að taka upp
þjónustugjald fyrir hveija send-
ingu. Slíkt gjald er þekkt í mörg-
um greinum, bæði hjá trygg-
ingafélögum, bönkum og ýmsum
öðrum þjónustufyrirtækjum.
Þetta gjald settum við á núna í
byijun ársins til þess að mæta
vaxandi kostnaði við hveija
sendingu. Við erum stöðugt að
bæta þá þjónustu með aukinni
upplýsingagjöf til viðskiptavina.
T.d. geta innflytjendur sem það
vilja fengið senda á faxi til sín
staðfestingu á móttöku vöru í
erlendri höfn. Einnig fylgjum við
sendingum eftir erlendis þannig
að þær nái til hafnar og því
þykir okkur eðlilegt að ákveðið
fast gjald sé fyrir hveija send-
ingu. Samskip hafa fylgt í kjöl-
far okkar á ýmsan hátt á liðnum
misserum og virðast sömuleiðis
hafa fylgt í kjölfarið í þessu efni.
í sjálfu sér er það ekkert óvana-
legt á sambærilegum mörkuðum
að minni aðilinn fylgi þeim stærri
eftir við svona breytingar."
Algengt erlendis
Baldur Guðnason, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs
Samskipa, bendir á að umboðs-
menn skipafélaga erlendis inn-
heimti þjónustugjald fyrir póst-
burð, fax, síma og aðra slíka
þjónustu. „Þetta er algengt í
þessum viðskiptum erlendis en
hefur ekki tíðkast hér á landi.
Kröfur viðskiptavina hafa verið
að aukast undanfarin ár um
upplýsingar og þjónustu. Allir
innflytjendur fá tilkynningu
senda á faxi og við tökum á
okkur kostnað vegna DHL-send-
inga. Hins vegar höfum við ekki
treyst okkur til að leggja á slík
gjöld einir, en töldum eðlilegt
að fylgja í kjölfarið eftir að Eim-
skip hóf innheimtu þessara
gjalda."
Samningur Eimskips og Samskipa um Ameríkuflutninga
Samkeppnisyfirvöld
taka samninginn
til athugunar
SAMKEPPNISYFIRVOLD hafa í
hyggju að taka til athugunar samn-
ing Samskipa við Eimskip um flutn-
inga milli íslands og Bandaríkjanna,
að sögn Guðmundar Sigurðssonar,
forstöðumanns samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar.
Eins og fram kom fyrir helgi
hafa Samskip ákveðið að hætta
beinum siglingum eigin skips milli
íslands og Bandaríkjanna og samið
við Eimskip um gámaflutninga á
þessari leið. Eftir sem áður munu
Samskip þó flytja vörur til Banda-
ríkjanna í gegnum Evrópu í sam-
starfí við danska skipafélagið
Maersk.
Félag íslenskra stórkaupmanna
(FÍS) lýsti í gær yfír áhyggjum
vegna sífellt meiri samþjöppunar á
íslenska flutningamarkaðnum. í til-
kynningu sem félagið sendi frá sér
af þessu tilefni er bent á að með
samningi Samskipa og Eimskips,
sem nú hefur verið tilkynnt um,
og yfírtöku Eimskipafélagsins á
rekstri skipafélagsins Jökla hf. sé
einn og sami aðilinn þar með kom-
inn með 100% markaðshlutdeild á
siglingaleiðinni milli íslands og
Bandaríkjanna. Svo stór markaðs-
hlutdeild sé einsdæmi í siglingasög-
unni og hljóti að kalla á skoðun
samkeppnisyfírvalda.
Tækninýjungar
skila sér illa
FÍS bendir jafnframt á að öllum
megi ljóst vera mikilvægi öflugra
samgangna á sjó og í lofti fyrir
eyríki eins og Island. „Þjóð sem
flytur út allar sínar framleiðsluvör-
ur og flytur inn flestar nauðsynjar,
bæði fjárfestingarvörur og neyslu-
vörur, á velmegun sína undir
öflugri milliríkjaverslun og þarf að
geta treyst á öruggar og hagkvæm-
ar samgöngur.
Undanfarin ár hefur í krafti sam-
keppni náðst veruleg hagræðing í
verslun sem skilað hefur neytend-
um lækkuðu vöruverði á fjölmörg-
um nauðsynjavörum. Þetta hefur
m.a. leitt til verulegrar aukningar
verslunar erlendra ferðamanna á
íslandi, enda má hér finna fyöl-
margar vörutegundir sem eru á
sambærilegu verði og í nágranna-
löndunum eða ódýrari.
Um allan heim hafa á undan-
förnum árum orðið gífurlegar
tækninýjungar í flutningastarf-
semi. Mörgum hefur þótt þessi þró-
un skiia sér seint og illa hingað til
lands. Þróunin hefur m.a. stuðlað
að þeim mikla vexti sem verið hef-
ur í heimsverslun undanfarin ár.
Mikilvægt er að við íslendingar
förum ekki á mis við þá þróun.
Það er skoðun félagsins að að-
eins með öflugri samkeppni á sem
flestum sviðum þjóðfélagsins er
tryggt að neytendur njóti hag-
kvæmustu kjara og að framþróun
og tækninýjungar séu eins og þar
best gerist.
í fréttatilkynningu skipafélag-
anna segir að samningurinn sé
gerður í því skyni að auka hagræð-
ingu á þessari siglingarleið, enda
eru tvö skip tekin út af leiðinni.
Jafnframt er ljóst að skipafélögin
tvö hafa með samningi þessum
stofnað með sér samsiglingarkerfí
sem leggur þeim ákveðnar skuld-
bindingar á herðar gagnvart við-
semjendum sínum varðandi san>
ráð, kynningu á gjaldskrám o.fl. í
ljósi þessa er það von félagsins að
ekki líði á löngu að hagræðing
þessi skili sér til notenda þjón-
ustunnar í formi lægri flutnings-
gjalda,“ segir ennfremur.
Háskóli íslands
Endurmenntunarstofnun
Sjávarútvegsfræði - nám með starfi
Námið hefst í lok febrúar 1997 og lýkur ári síðar. Skipulagið miðast við að fólk af öllu
landinu geti stundað námið samhliða vinnu sinni. Markmiðið er að sameina fræðilega
og hagnýta þekkingu á þessu sviði og er leitast við að miðla nýjustu aðferðum,
hugmyndum og rannsóknaniðurstöðum eins og þær liggja fyrir hverju sinni.
Þátttakendur:
Námið er ætlað sérfræðingum og stjómenduin í íslenskum sjávarútvegi. Það hentar bæði þeim sem
lokið hafa liáskóla- og tækniskólaprófi, sem og öllum scm hafa góða almenna menntun og starfs-
reynslu í íslenskum sjávarútvegi, s.s. framkvæmdastjórum, f)ármálastjórum, framleiðslustjórum, verk-
stjórum, útgerðarstjórum, auk starfsmanna opinberra stofnana og hagsmunasamtaka.
Námsgreinar:
Rekstrarhagfræði. Efna- og örverufræði. Fjánnál. Fiskifræði. Fiskiðnaðartækni. Gæðastjórnun og
gæðakerfi. Markaðsfræði og utanríkisverslun. Framleiðslustjórnun. Gæðakerfi. Fiskihagfræði.
Rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja. Stefnuinótun og stjórnun.
Fyrirkomulag:
Alls eru kenndar 300 stundir og er kennt þrjá daga í senn, fimmtudag, fóstudag og laugardag, einu
sinni til tvisvar í mánuði (engin kennsla í júlí og ágúst). Námið samsvarar tólf og hálfri einingu í námi
á háskólastigi.
Hennarar:
Agnar Hansson lektor HÍ, Ágúst Einarsson prófessor og alþingismaður, Gísli S. Arason lektor IIÍ,
Guðmundur Stefánsson deildarstjóri RF, Gunnar Stefánsson tölvunarfræðingur Hafrannsóknastofnun,
Haukur Alfreðsson rekstrarverkfræðingur Nýsi, Jón Freyr Jóhannsson ráðgjafi „Skref í rétta átt", Ólafur
Karvel Pálsson fiskifræðingur Hafrannsóknastofnun, Páll Jensson prófessor HÍ, Pétur K. Maack prófess-
or HÍ, Ragnar Árnason prófessor HÍ og Sigurjón Arason sérfræðingur hjá RF.
Stjórn námsins:
Valdimar K. Jónsson prófessor, Sigurjón Arason aðstoðarforstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
og Ágúst Einarsson prófessor.
Þátttökugjald:
Gjaldið er 190.000 kr. og eru kennslugögn innifalin nema ef kaupa þarf kennslubækur. Greiðslum má
dreifa á námstímann, samkvæmt nánara samkomulagi.
llmsóknarfrestur er til 10. febrúar.
Nánari upplýsingar um námið, ásamt umsóknareyðublöðum, fást hjá:
Endurmenntunarstofnun lláskóla íslands
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Sími: 525-4923- Bréfasími: 524-4080. Netfang: endurm@rhi.hi.is