Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg DÓMNEFNDARMENN kynna valið á Dorrit Willumsen sem handhafa bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs; Jóhann Hjálmarsson, Mary-Ann Bácksbacka, Preben Meulengracht- Sorensen og Ann Marie Mai. Dorrit Willumsen hlýtur Bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs Svefnleysi söguefnisins hélt henni vakandi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. DANSKA skáldkonan Dorrit Will- umsen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í gær fyrir skáldsögu sína Bang. En roman om Herman Bang. I greinargerð dómnefndar um bókina segir: „Skáldsaga Dorrit Willumsens um Herman Bang er endurnýjun á ævisögunni sem bókmenntagrein. Með skerpu máls og fegurð þess lyftir hún í hæðir efninu um til- vist listamannsins í samtímanum með því að gæða hið sérstæða og einstaklingsbundna almennri merkingu." Verðlaunabókin fjallar um danska rithöfundinn, leikarann, leikstjórann og blaðamanninn Her- man Bang sem fæddist árið 1857 en var myrtur árið 1912 í lestar- klefa, eins og sagan segir. Að sögn Prebens Meulengracht-Sorensen, sem var annar tveggja fulltrúa Dana í dómnefnd, hefur bókinni verið tekið mjög vel í Danmörku og í Skandinavíu allri. „Hún hefur hlot- ið mjög góða dóma gagnrýnenda sem hefur þótt hún einkar skemmti- leg aflestrar þótt hún segi vissulega sorglega ævisögu Bangs.“ Ellefu góðar bækur lagðar fram Dómnefndarmenn sögðu að- spurðir að valið á milli framlagðra bóka hefði verið erfítt eins og allt- af. „Það voru ellefu góðar bækur lagðar fram og var atkvæða- greiðslan jöfn,“ sagði Mary-Ann Bácksbacka frá Finnlandi sem var formaður nefndarinnar. Þetta er í sjötta sinn sem Danir hljóta verð- launin. Verðlaunin, sem eru 350.000 danskar krónur, verða afhent í Osló 3. mars næstkomandi í tengslum við menningarráðstefnu Norðurlandaráðs. Vali nefndarinnar á verðlauna- hafa er þannig háttað að fyrst eru greidd atkvæði um allar framlagð- ar bækur en þar mega nefndar- menn ekki greiða bók frá sínu landi atkvæði. í annarri umferð er svo kosið á milli þeirra þriggja bóka sem hlutu flest atkvæðin í fyrstu umferð og þannig skorið úr um það hver hlýtur verðlaunin. í síð- ari umferð mega nefndarmenn greiða löndum sínum atkvæði. Fulltrúar íslendinga í dóm- nefndinni voru Jóhann Hjáimars- son skáld og Sigurður A. Magnús- son skáld. Þess má geta að Dorrit Willum- sen kemur til íslands 15. mars næstkomandi og verða verk henn- ar kynnt í Norræna húsinu í til- efni þess. DORRIT Willumsen handhafi bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs í ár, er þekktur og verðlaunaður rithöfundur í lieimalandi sínu Danmörku. Hún er fædd 1940, gaf fyrst út smá- sögur 1965, en vakti fyrst veru- lega eftirtekt með skáldsögunni Marie, sem kom út 1983 og fjall- ar um líf og störf Madame Tuss- auds, sem fræg varð fyrir vax- myndir sínar. Verðlaunabók Willumsen nú fjallar einnig um fræga persónu, rithöfundinn Hermann Bang, sem Willumsen segist hafa hrifist af þegar í menntaskóla. Og Willumsen á sér fleiri uppáhalds- höfunda, því í samtali við Morg- unblaðið lýsir hún hrifningu sinni á verkum Steinunn- ar Sigurðardótt- ur. Rithöfundurinn Hermann Bang hefur heillað Will- umsen síðan hún las verk hans í menntaskóla. „Þegar ég las verk hans þá fannst mér að enginn skrifaði annað eins mál og hann,“ segir hún. „Sögupersónur hans lifðu sínu eigin lífi í þögn sinni. Þær virtust ekki flæktar í sögu rit- höfundarins, heldur var það sem fyrir þær kom eins og lífið sjálft, eins og eitthvað óskipulegt, en ekki eins og uppfinning höfund- arins. En svo heillaði það mig líka að hann fór ótroðnar slóðir og var umdeildur maður á sínum tíma.“ Þó mál Bangs hafi heillað Willumsen svo mjög olli það henni þó engum erfiðleikum að finna bókinni sitt eigið mál. „Það fyrsta sem ég finn, þegar ég skrifa bók er málið. Það mál, sem mér finnst hæfa henni og hver bók hefur sitt eigið mál. Það var erfiðara með bók- inni um Madame Tussaud, því hún var ekki dönsk.“ Dómnefndin segir í umsögn sinni um verðlaunabók Willum- sen að með henni hafi hún end- urnýjað skáldsagnagreinina, sem hún skrifi í, sögulegar skáldsögur. Þegar þessi fullyrð- ing er borin undir Willumsen hlær hún mjúklega í símann og segist enn ekki hafa séð um- sögnina, því hún hafi setið við símann í allan dag. „En ég hef ekki rannsakað ævi Bangs minna heldur en ef ég hefði skrifað ævisögu hans, enda var það ætlunin í fyrstu. I þau 4-5 ár, sem ég hafði bókina I takinu var það ekki mitt eigið svefn- leysi, sem hélt mér vakandi, heldur hans.“ Dorrit Willum- sen gleðst yfir verðlaununum því þau gefi sér vinnufrið og tæki- færi til að ferðast. Og hún veit hvert hana langar að fara. Hún hyggur á Japansferð, „því það er svo heill- andi land, þar sem fara saman hefðir og nútíminn. Það er opið, en einnig torvelt að ná til þess og svo er allt svo fallegt þar.“ En nú er það undirbúningur undir næstu bók, sem á hug hennar allan, en sú bók er nútimasaga. Það er þó skemur þar til hún fer til íslands en Japan, því það var þegar ákveðið að hún heim- sækti Island og læsi upp í Nor- ræna húsinu 15. mars. Aðspurð um íslenskar bókmenntir segist hún þekkja verk Steinunnar Sig- urðardóttur og hafa lesið allt sem þýtt hafi verið eftir hana á dönsku og sænsku. „Steinunn er frábær stílisti og hefur gott skopskyn og ég kann vel að meta bæði bækumar hennar og hana sjálfa“, segir hinn glaði verðlaunahafi, sem virðist ekk- ert þreytt á símtölum, þó það sé komið undir kvöldmatarleyti og hún hafi setið við símann alveg frá því að tilkynningin um verðlaunin barst í gærmorgun. Dorrit Willumsen Bók sem dómnefnd verðlaunanna telur „endurnýjun ævisögulegrar bókmenntagreinar“ Útlagi annars staðar en í listinni Herman Bang var einn af sérstæðustu rithöfundum Dana, en líka blaðamaður, leikarí og leikstjóri. Jóliann Hjálmarsson fjallar um verðlaunaskáldsögu Dorríts Willumsens um Bang en hún er talin besta verk hennar til þessa. DORRIT Willumsen (f. 1940) er með- al þeirra dönsku rithöfunda sem eru í framvarðarsveit kynslóðar sinnar og hún hefur fengið margar viður- kenningar í heimalandinu, m.a. Stóru verð- laun Dönsku akademíunnar, Gagnrýnenda- verðlaunin, Gullna lárviðinn og verðlaun kennd við Herman Bang. Bækur eftir hana hafa áður verið tilnefndar til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs og nú kom röð- in að henni fyrir árið 1997. Upphaflega ætlaði Dorrit Willumsen að skrifa ævisögu Bangs, en tók þá ákvörðun að gera honum skil í skáldsögu. Ur varð sú bók sem dómnefnd verðlaunanna telur „endurnýjun ævisögulegrar bókmennta- greinar". Norrænir gagnrýnendur hafa lýst skáldsögunni Bang sem hátindi á ritferli Willumsens og er þá mikið sagt því að hún er bæði kunn og dáð. Herman Bang (1857-1912) ertilvalið söguefni, afar litrík persóna sem náði því að hneyksla landa sína og fleiri þjóðir með bókum sínum, blaða- skrifum og ekki síst hegðun. Bang var spjátrungur, samkynhneigt veisluljón og lifði hátt. Honum var ekki vært heima fyr- ir og reyndar ekki erlendis heldur, bann- færður fyrir bækur sínar, hrakinn land úr iandi, ofsóttur af yfírvöldum, kóngum og keisurum síns tíma. Hann var alls staðar útlagi nema í skáldskapnum og listinni þar sem hann átti heima. Bang hefst í jámbrautarklefa í Banda- ríkjunum 1912, en þar endaði rithöfundur- inn ævi sína. Til Bandaríkjanna var hann kominn til að lesa úr verkum sínum. Bang var ekki einungis einn af þekktustu rithöf- undum síns tíma á Norðurlöndum. Hann var afburða blaðamaður, leikari og leik- stjóri og vann marga sigra heima og erlend- is. Ósigrar einkalífsins vom þá fleiri. Sum- ar skáldsagna hans vom hafnar til skýj- anna, aðrar rifnar niður. Það kom sér til dæmis illa fyrir þennan fmmkvöðul impres- sjónismans að fá þá Brandesbræður, raun- sæispostulana Georg og Edvard, upp á móti sér. Bang var prestssonur. Það setti mark á hann að faðirinn var geðveikur og móðirin veiktist og lést ung. Bang skar sig snemma úr. Ljóst var fljótlega að hann var öðra vísi en aðrir drengir, hneigðir hans og gáf- ur beindust í aðrar áttir en flestra. í skáld- sögu Willumsens er lögð áhersla á að sýna listamanninn í íjandsamlegu samfélagi, erfíða tilvist skapandi og viðkvæms manns. Listin er honum allt og hann er sjálfum sér trúr og beygir sig ekki fyrir neinum. I fýsnum sínum og óreglu er stoltið honum leiðarljós. Dorrit Willumsen skrifar meistaralega og læsilega um hið vandmeðfama efni. Stíllinn er yfírvegaður, næst- um hljóðlátur. Hún styðst við heimildir sem hún hefur viðað að sér lengi, en aðferðin er skáldsagnahöfundarins. Bang verður ljóslifandi í þessari sorglegu sögu. Willum- sen tekst að gera lesandann hliðhollan honum og skilja hann. Það er vissulega rétt sem lesa má í grein- argerð dómnefndar að Willumsen tekst að „gæða hið sérstæða og einstaklingsbundna almennri merkingu“. Því má kannski bæta við að án einstaklinga sem fara aðrar leið- ir en hefðbundnar myndi heimurinn farast úr leiðindum og það er skylda okkar að leggja þá ekki í einelti eða níðast á þeim. í bókmenntunum er varla til verri draugur en stöðnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.