Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Unnið að sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Eyjafirði
Ólafsfirð-
ingar ekki
lengur með
ÓLAFSFIRÐINGAR ætla að svo
stöddu ekki að taka þátt í umræðum
um sameiningu sveitarfélaga við
utanverðan EyjaQörð. Fulltrúar
þeirra tilkynntu um ákvörðun sína
á fundi samstarfsnefndar sveitarfé-
laga við utanverðan Eyfjörð á Dal-
vík í gær. Fulltrúar fjögurra sveitar-
félaga, Dalvíkurbæjar, Svarfaðar-
dalshrepps, Árskógshrepps og Hrís-
eyjar munu áfram vinna að samein-
ingu þessara sveitarfélaga í eitt.
I sumarbyijun er ætlunin að fyr-
ir liggi tilhögun og fyrirkomulag
að nýju sameinuðu sveitarfélagi og
er í framhaldi af því fyrirhugað að
íbúarnir muni kjósa um sameiningu
næsta haust.
Vilja skoðanakönnun
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hefur
ítrekað fyrri afstöðu sína um að
rétt sé að huga að skoðanakönnun
meðal íbúanna samhliða næstu
sveitarstjórnarkosningum um vilja
til sameiningar og á þeim grund-
velli verði unnið. _
„Bæjarstjóm Ólafsfjarðar telur
að breyttar áherslur án þess að
forsendur hafi breyst séu ekki til
þess fallnar að styrkja áform sveit-
arfélaganna um víðtæka samein-
ingu á grundvelli bættra sam-
gangna. Fjármunum hefur verið
varið til að rannsaka möguleika á
bættum samgöngum og meðan beð-
ið er niðurstöðunnar sé það fljót-
ræði að leggja til grundvallar for-
sendur sem útiloki aðild Siglufjarð-
ar að sameiningunni. Slík ákvörðun
er til þess fallin að hafa neikvæð
áhrif á stöðu hins sameinaða sveit-
arfélags til lengri tíma,“ segir í
bókun bæjarstjórnar Ólafsfjarðar
vegna sameiningarmálsins.
Þorsteinn Ásgeirsson forseti bæj-
arstjórnar Ólafsfjarðar sagði að
Ólafsfirðingum finnist alltof hratt
farið í þessu máli. í stað þess að
kjósa um hugsanlega sameiningu
strax næsta haust hefðu Ólafsfirð-
ingar heldur kosið að hugur íbúanna
yrði kannaður við sveitarstjórnar-
kosningar á næsta ári. Það hefði
enga þýðingu að þrýsta á íbúana í
þessu máli, betra væri að kynna
málið vel og fara sér hægar, ella
væru meiri líkur á að sameiningin
yrði felld.
Unnið í jarðgangamálum
„Við erum ekki með í þessum
viðræðum í bili, en munum áfram
fylgjast með. Við höfum hugsað
okkur að vinna betur í jarðganga-
málunum, en í okkar huga er mik-
ilvægt að Siglfirðingar verði með í
einu stóru sveitarfélagi við utan-
verðan Eyjafjörð og forsenda þess
er að gerð verði göng um Héðins-
fjörð milli Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar,“ sagði Þorsteinn.
Ferðir árs-
ins kynntar
NÝTT ferðaár er að hefjast hjá
Ferðafélagi Akureyrar og af því
tilefni verður efnt til ferðakynning-
ar næstkomandi fimmtudagskvöld,
30. janúar þar sem ferðir ársins
verða kynntar í máli og myndum.
Kynningin verður í Galtalæk,
húsi Flugbjörgunarsveitarinnar og
hefst kl. 20. Boðið verður upp á
kaffi og kökur að lokinni kynningu.
Auk þess verður útivistarbúnaður
til sýnis. Aðgangseyrir er 300 krón-
ur en frítt fyrir börn. Allir eru vel-
komnir, félagsmenn jafnt sem aðrir.
Fyrsta ferð ársins verður farin
laugardaginn 1. febrúar næstkom-
andi kl. 9 en þá er ætlunin að fara
á skíðum eða fótgangandi að
Baugaseli í Barkárdal. Nánari upp-
lýsingar og skráning er á skrifstofu
félagsins á föstudag, 31. janúar frá
kl. 17.30 til 19.
íamaro-húsiðI
TIL SÖLU EÐA LEIGU
j f r' d~ ■ Ái i'ffí' ~’*Wíc** ImídíKt i ól
M'1 & -
Til sölu eða leigu er verslunarhásnæði við
Hafnarstræti 99 og 101 á Akureyri
(Amaro-húsið).
Um er að ræða 900 fm á fyrstu hæð og 560 fm á annarri
hæð, auk 140 fm geymslurýmis á 2. hæð. Einnig er um
140 fm rými í kjallara. Mögulegt er að kaupa/leigja
húsnæðið í heilu lagi eða minni einingum. Eignin er
staðsett á besta stað í miðbæ Akureyrar.
AMARO.hf.
M:100.
Allar frekari
upplýsingar
fást á
Fasteigna-
sölunni
Byggð,
Akureyri.
Símar:
462-1744,
462-1820,
fax 462-7746.
Opið er frá
9.00-17.00
mán.-fös.
Lögmaður:
Jón Kr. Sólnes hrl.
Sölumenn:
Ágústa Ólafsdóttir,
Björn Guðmundsson.
liY(í(il)
IRKKKUGOTU4
Blað allra landsmanna!
INo«gtuiÞIafri&
- kjarni málsim!
Morgunblaðið/Kristján
SVALBAKUR EA, frystitogari Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar í gær, eftir 26 daga túr
á Vestfjarðamið og er þetta fyrsta löndun skipsins á nýju ári. Togarinn kom með rúmlega 130 tonn að
landi, aðallega þorskflök en einnig eitthvað af ufsa, ýsu, karfa og grálúðu og er aflaverðmætið um 31
milljón króna. Að sögn skipverja á Svalbak var vitlaust veður síðustu vikuna í túrnum. I gær voru starfs-
menn Eimskips að landa úr Svalbak og eins og sést á myndinni er frost á Fróni og skipið hulið klakabrynju.
Hraðfrystihús
Ólafsfjarðar
Utgerðarfélag Akureyringa hf.
Samið við Eimskip
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. hefur samið við Eimskip um
alla löndun bæði úr ísfisk- og
frystitogurum félagsins. ÚA sagði
upp öllum starfsmönnum sinum í
löndun þann 1. október sl. alls um
20 manns og buðu löndunarþjón-
ustuna út í kjölfarið. Samið var
við Eimskip á grundvelli tilboðs
félagsins frá og með síðustu ára-
mótum.
Garðar Jóhannsson, forstöðu-
maður Eimskips á Akureyri, segir
þennan samning við UA þýða auk-
in umsvif og hafa sex menn til við-
bótar verið fastráðnir hjá Eimskip
og þar af fimm starfsmenn sem
störfuðu við löndun hjá ÚA. Til _
að byrja með gildir samningur ÚA
og Eimskips til eins árs og segir
Garðar að samstarf félaganna hafi
farið ijómandi vel af stað.
Sæunn
Axels leig-
ir rekstur-
inn í 5 ár
Ólafsfírði. Morgunblaðið.
GERÐUR hefur verið leigusamn-
ingur milli Hraðfrystihúss Ólafs-
fjarðar hf. annars vegar og Sæunn-
ar Axels hf. hins vegar þess efnis
að Sæunn Axels hf. leigir allar eign-
ir Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar
næstu fimm ár.
Mikill uppgangur hefur verið hjá
fyrirtækinu Sæunn Axels hf. sem
rekur saltfiskverkun á Ólafsfirði.
Með leigusamningnum hyggst fyr-
irtækið færa út kvíarnar og hefja
rekstur frystihúss.
Starfsmenn ráðnir
á næstunni
Frystihúsið hefur verið lokað um
skeið eða frá áramótum en leigu-
taki hefur þegar hafið undirbúning
að því að koma rekstrinum í gang
aftur í breyttri mynd. Gert er ráð
fyrir að ráða starfsmenn að húsinu
að nýju á næstu vikum og að starf-
semin komist í gang svo fljótt sem
kostur er.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar seldi
Krossanesi hf. á Akureyri loðnu-
verksmiðju sína fyrr í þessum mán-
uði.
Skrif stof ustarf - Akureyri
Stórt og öflugt framleiðslufyrirtæki óskar að ráða starfsmann
á skrifstofu fyrirtækisins.
• Starfið felst í útreikningi launa og annarri launavinnslu,
símasvörun og almennum skrifstofustörfum.
• Áskilin er reynsla í launavinnslu ásamt tölvukunnáttu.
Lögð er áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð í
mannlegum samskiptum.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu okkar fyrir
31. janúar nk. þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi
og nánari upplýsingar eru veittar:
Endurskoðun Akureyri hf.
Glerárgötu 24, Akureyri - Sími 462 6600 - Fax 462 6601
Endurskoðun - Skattaráðgjöf - Rekstrarráðgjöf - Bókhald
löggiltir endurskoðendur
RÁÐNINGAR