Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 19
UR VERINU
Lítið fiskframboð
vegna ógæftanna
ÓGÆFTIRNAR nú í janúar hafa
haft mikil áhrif á framboð á fisk-
mörkuðum landsins en segja má
að ekki hafi gefið til sjós í rúmar
tvær vikur. Mikið af fiski barst á
markaðina fyrstu viku ársins, oft
um helmingi meira en á sama tíma
í fyrra. Þetta hefur leitt til hærra
fiskverðs, einkum á ýsu.
Veður var mjög gott fyrstu daga
mánaðarins og gátu þá allir bátar
róið, einnig krókabátar en þeir hafa
verið í banni á þessum árstíma fram
til þessa. Mikill fískur kom því á
fiskmarkaðina fyrstu 8-10 daga
ársins. Þá versnaði veður og má
segja að ótíðin hafi staðið samfellt
til dagsins í dag.
Gott framboð í upphafi árs
Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja, segir framboð af físki hafa
verið mjög gott fyrstu daga ársins
og rúmlega helmingi meira en var
á sama tíma í fyrra en á fyrstu tíu
dögunum voru seld um 800 tonn á
Fiskmarkaði Suðurnesja á móti um
350 tonnum á sama tíma í fyrra.
„Það er nóg af fiski, þetta er aðeins
spuming um gæftir. Við höfum ein-
göngu fengið fisk frá stórum troll-
og línubátum með beitningarvélar
síðustu tvær vikur. Einnig hafa
stærri netabátar komist á sjó dag
og dag. Framboð af stórum þorski
hefur því verið ágætt en aftur
minna af svokölluðum línuþorski
vegna þess að beitningarvélabát-
arnir landa ekki hjá okkur,“ segir
Ólafur.
Fiskverð hefur hækkað
Ólafur segir þetta hafa orðið til
þess að verð hafí hækkað, sérstak-
lega á ýsu. „Það er oft mikil eftir-
spurn eftir ýsu á þessum tíma og
það kom á óvart hvað verðið var í
raun lágt fyrstu dagana en það
ákvarðaðist vitaskuld af miklu
framboði. Síðan þá höfum við ekki
fengið ýsu nema af línubátunum
og ýsan farið á mjög háu verði síð-
ustu daga. Til dæmis var meðalverð
á ýsu af einum bát 103 krónur að
meðaltali á tímabilinu frá 1. til 10.
janúar. Frá 11. janúar til dagsins
í dag er meðalverðið hjá þessum
sama bát komið upp í 168 krónur."
Ógæftirnar hafa hinsvegar ekki
haft eins mikil áhrif á þorskverð
að sögn Ólafs. „Okkur vantar alltaf
þorsk. Við höfum eingöngu verið
að selja netaþorsk sem er fímm
kíló og yfir en verð á honum hefur
lækkað í salt og er meira að segja
lægra en það var fyrir árarnót,"
segir Ólafur.
Ýsan hækkað um 40%
Á Fiskmarkaði Breiðafjarðar
voru seld um 1.000 tonn i fyrstu
viku ársins en aðeins um 300 tonn
síðasta hálfa mánuðinn, nánast ein-
göngu af netabátum. Tryggvi Ótt-
arsson, framkvæmdastjóri Fisk-
markaðs Breiðafjarðar, segir að
þrátt fyrir það sé heildarsalan í jan-
úar minni en á sama tíma í fyrra
vegna þess hve langvinnur óveðra-
kaflinn hefur verið.
„Ógæftimar hafa haft þau áhrif
að smábátamir hafa ekkert getað
róið í rúmar tvær vikur en þeir
voru að físka mjög vel á línu fyrstu
dagana. Þessar miklu sveiflur hafa
haft mikil áhrif á verð og meðal-
verð á bæði ýsu og þorski hefur
hækkað. Meðalverð á ýsu hefur
hækkað um 40%, var 99 krónur
fyrir kílóið fyrstu vikuna en er um
140 krónur í dag. Þorskverðið hefur
hækkað minna, um 17%, var um
85 krónur eftir fyrstu vikuna en
er um 100 krónur núna,“ segir
Tryggvi.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Nicotmeir
Landað á
ísafírði
ísafirði. Morgunblaðið.
GUÐBJÖRG ÍS-46, skig Samherja
hf. á Akureyri, kom til ísafjarðar
á laugardagskvöld með fullfermi
úr fyrstu veiðiferð ársins. Heild-
arafli skipsins var 312 tonn af
frystri rækju að verðmæti um 44
milljónir króna. Allur afli skipsins
fékkst djúpt út af Norðurlandi og
hefur verið ákveðið að skipið
haldi sig á heimamiðum í næstu
veiðiferð. Um 157 tonn af afla
Guðbjargarinnar vars vonefnd
iðnaðarrækja.
Gott bragð
til að hætta
að reykja!
Nú er komið nýtt,ferskt og betra bragð í baráttunni
við reykingarávanann; Nicotinell nikótíntyggjó.
Ferska bragðið í Nicotinell nikótíntyggjóinu er
einmitt bragðið sem þú þarft til þess að hætta að
reykja. Nicotinell hefur sömu eiginleika og venju-
legt tyggjó og fæst bæði með ávaxta- og pipar-
myntubragði. Komdu í næsta apótek og fáðu
bækling um það hvernig Nicotinell tyggjóið
hjálpar þér best í baráttunni við tóbakið!
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 568 6044
Tyggðu frá þér tóbakið
með Nicotinell!
Nicotinell tyggigúmmi er lyf sem er notað sem hjálparefni til þess að hætta reykingum. Aðeins má nota lyfiö et reykingum er hætt. Pað inniheldur nikótín sem losnar úr því þegar tuggiö er, frásogast í
munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu. hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn en ekki má
tyggja tleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráölagt að nota lyfiö lengur en í 1 ár. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragöi og í 2 styrkleikum, 2 mg og 4 mg. Nikótfnið í Nicotinell getur valdið
aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði og hiksta. Einnig ertingu i meltingarfænjm. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicotinell tyggigúmmi án samráðs við lækni. Barnshafandi konur og
konur með barn á brjósti eiga ekki að nota nikótinlyf. Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota Nicotinell án þess að ráðfæra sig við lækni. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á
fylgiseðli sem fylgir lyfinu. Varúð - Geyma skal lyflð þar sem börn nó ekki til.