Morgunblaðið - 28.01.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 21
ERLEIMT
Sænskir hægrimenn
bíða heimkomu Bildts
Stokkhólmi. Reuter.
CARL Bildt, sem hefur verið eftir-
litsmaður alþjóðlegs uppbygging-
arstarfs í Bosníu, hyggur nú á
heimför til Svíþjóðar til að hella
sér út í stjómmálabaráttuna að
nýju. Það er ekki laust við að
hægrimenn andi léttar vegna
væntanlegrar heimkomu for-
mannsins, þar sem margir eru
þeirrar skoðunar að dvöl Bildts í
útlöndum hafi nánast skilið
Hægriflokkinn eftir í lausu lofti.
Telja flokksmenn hans tíma kom-
inn til að Bildt einbeiti sér að
stjórnmálum í Svíþjóð en gengið
verður til kosninga þar á næsta
ári.
Fjarvistir Bildts, sem hélt til
Bosníu árið 1995, kunna þó einn-
ig að hafa komið flokki hans til
góða, því Bildt þykir hafa staðið
sig vel í afar erfiðu starfi og hafa
vinsældir hans aukist heimafyrir
á sama tíma og fylgi minnihluta-
stjórnar jafnaðarmanna minnkar.
Hyggst Bildt nú nýta sér þetta
og efla alla starfsemi flokksins á
ný. Vill hann leggja áherslu á
Evrópumálin og blása nýju lífí í
þreytulega stjórnmálaumræðuna
í Svíþjóð.
„Stjórnarandstaðan hefur ekki
átt sér neinn raunverulegan leið-
toga á þingi í fjarveru Bildts og
enginn hefur farið fyrir borgara-
flokkunum," segir Olaf Ruin, pró-
fessor í stjórnmálafræði við
Hyggst ræða Evr-
ópumálin og blása
nýju lifi í stjorn-
málaumræðuna
Stokkhólmsháskóla. „Það er ekki
aðeins stjórnarandstaðan sem
þarf á honum að halda; stjórnvöld
þurfa einnig á ákveðnum manni
að halda sem hægt er að rökræða
við og beina spjótum sínum að.“
Dagsetningin ekki ákveðin
Talsmaður Bildts segir hann
ekki reiðubúinn að gefa upp hve-
nær hann hyggist snúa aftur
heim, þar sem slíkt kunni að koma
sér illa í starfmu í Bosníu. Áhrifa-
máttur embættis hans minnki
óneitanlega þegar menn viti að
hann sé á förum innan skamms
tíma. Þó sé ljóst að hann muni
snúa aftur á þessu ári.
í Svíþjóð búast flestir við því
að Bildt snúi heim í sumar, til
að vera reiðubúinn að taka þátt
í þingstörfum er þau hefjast um
miðjan september. Með því móti
gefst honum eitt ár í kosningabar-
áttuna en skiptar skoðanir eru
um hvort honum takist að leiða
borgaraflokkana til sigurs á jafn-
aðarmönnum. Þeir hafa yfir-
burðastöðu í sænskum stjórnmál-
um, þó leiðin hafi legið niður á
við að undanförnu og Hægri-
flokkurinn njóti nú svipaðs fylgis
og jafnaðarmenn, samkvæmt nýj-
ustu skoðanakönnunum. Fylgi við
jafnaðarmenn er nú komið niður
fyrir 30% og fylgi við höfuðand-
stæðingana í Hægriflokknum er
aðeins hálfu prósenti minna.
Stjómmálaskýrendur benda hins
vegar á að jafnaðarmenn hafi
fyrst og fremst misst fylgi til
Græningja og vinstrimanna, ekki
borgaraflokkana.
í augum margra Svía er Bildt
hetja sem hefur náð langt á al-
þjóðavettvangi. Ekki er að efa að
það mun koma honum vel fyrst
í stað en sumir stjórnmálaskýr-
endur segja það geta breyst á
nokkrum mánuðum eftir heim-
komuna. Hann muni án efa
hressa upp á umræðuna um mál
á borð við myntbandalag Evrópu
og kjarnorkuver, enda hafi jafn-
aðarmenn komist upp með að
taka ekki skýra afstöðu til þess-
ara mála. Óvíst sé hins vegar að
þetta auki honum vinsældir auk
þess sem hann kunni að flækjast
í óþægileg innanríkismál.
Takist Bildt ekki að vinna
kosningarnar á næsta ári, geta
stjórnmálaskýrendur sér þess til
að hann muni segja af sér for-
mennsku í Hægriflokknum og
leita fyrir sér á alþjóðavettvangi
að nýju.
Reuter
GUILHERME de Padua í réttarsalnum í Rio de Janeiro.
19 ár fyrir morð á
sj ónvarpsslj örnu
Rio de Janeiro. Reuter.
BRASILISKI leikarinn Guilherme de
Padua var á laugardag dæmdur í
19 ára fangelsi fyrir að myrða leik-
konuna Daniellu Perez. Þau voru
bæði stjörnur „Af líkama og sál“,
einni vinsælustu sápuóperu Brasilíu.
Kviðdómur í Rio de Janeiro komst
að þeirri niðurstöðu eftir að hafa
setið á rökstólum yfir nótt að de
Padua, sem var fatafella áður en
hann fór að leika í sápuóperunni,
væri sekur. De Padua var elskhugi
Perez í sjónvarpsþáttunum og þau
voru einnig elskendur í raun. Hann
og kona hans, Paula Thomaz, voru
sökuð um að hafa framið morðið.
Breytti framburðinum
De Padua játaði í upphafi að hafa
framið morðið og sagði að Perez
hefði elt sig á röndum. Hann breytti
hins vegar framburði sínum eftir að
hann skildi við Thomaz. Ekki hefur
verið réttað í máli hennar, en de
Padua hélt því fram að hún hefði
myrt Perez í afbrýðikasti. Perez var
stungin 15 sinnum með skærum.
De Padua kvaðst hafa haldið við
Perez vegna þess að móðir hennar
hefði skrifað handritið að sápuóper-
unni og hann hefði þurft að koma
sér í mjúkinn hjá móðurinni.
Fimm kviðdómendur af sjö töldu
að de Padua hefði sagt ósatt og sagði
dómarinn að hann væri „ofsamaður,
öfuguggi og heigull".
Þótt de Padua hafi verið dæmdur
í 19 ára fangelsi gæti verið að hann
yrði látinn laus eftir tvö ár. Hann
hefur þegar setið fjögur ár í fangelsi
og í Brasilíu eiga fangar rétt á
reynslulausn þegar þeir hafa afplán-
að þriðjung refsingar sinnar.
Málaferlin hafa vakið mikla at-
hygli og hefur verið líkt við réttar-
höldin yfir O.J. Simpson.
LSi vél búin:
1.3 litra rúmmáli
12 ventlum
Fjölinnsprautun
84 hestöflum
Vökva- og veltistýri
Útv./segulb. meö 4 hátölurum
Stafræn klukka
Fjarstýrö opnun á bensínloki
Dagljósabúnaður
Litaö gler
Tveggja hraöa þurrkur með
biörofa og rúöuspráutu
Afturrúðuhitari meö tímarofa
Samlitir stuöarar
Heilir hjólkoppar
Tveir styrktarbitar í huröum
Krumpusvæöi
Barnalæsingar
o.m.fl.
1/1
CC
3
O
<
2
O
CQ
<
O
É
D£
UJ
Í=
UJ
n.
1—;
Verð frá
HYunoni
til framtíðar
ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200 - BEINN SÍMI: S53 1236
995.
lítið þið ekki á samanburðartöfluna
rennið yfir staðalbúnaðinn
skoðið fjölbreyttu lánakjörin
kíkið á aukapakkana
og gaumgæfið verðið
Samanburðurinn hjálpar þér að velja rétt
3 dyra bilar HYUNDAI Accont LSi vw GolfCL TOYOTA Corollo XLi OPEL Astra GL NISSAN Almera LX
Rúmtak vélar sm2 1341 1398 1330 1389 1392
Hestöfl 84 60 75 60 87
lengd 4103 4020 4095 4051 4120
Breidd 1620 1696 1685 1691 1690
Völcva- og veltistýri J J J J/N J
Útvarp + segulb. J J N J/N J
Metallakk Innifalið 18.000 Innifalið 21.000 Innifalið
VERÐ 1.220.000 1.104.UVA) 1.199.000 1.248.000
9.742 kr. á mánuði
með kaupleigu í 36 mánuði.
Kaupverð 995.000 kr.
Útborgun(bíll/pen.) 275.000 kr.
Lokaafborgun 547.000 kr.
Komið svo
við hjá
okkur, veljið
bíl og takið
einn góðan
hring í
rólegheitum.
Þá ættuð þið
að hafa
sannfærst
um að þeir
sem eignast
Accent fá
fólksbíl
á verði
smábíls.
Xtra pakkar
- veldu þér einn
Álfelgur
VetrardekR, mottur.
hliöarlistar, bónpakki. |
Vindskeið
vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
wammmmmmmmum
GSM sími
vetrardekk, mottur,
hliðariistar, bónpakki.
Geislaspilari
vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
Meðalverömaeti pakkanna er um 80.000 kr.
en þeir fást fyrir aöeins 25.000 kr. á
PAKKADÖGUM viö kaup á Hyundai bifreiö.