Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Deilt um
drottning-
arsnekkju
London. Reuter.
ELÍSABET Englandsdrottning er
sögð afar áhyggjufull út af ágrein-
ingi, sem risinn er upp milli íhalds-
flokksins og Verkamannaflokksins
um framtíð drottningarsnekkjunn-
ar. Óttast drottning, að konungs-
ijölskyldan dragist inn í ágreining
flokkanna um framtíð snekkjunn-
ar og deilan snúist upp í þrætur
um stöðu fjölskyldunnar.
Stjórn íhaldsflokksins ákvað í
síðustu viku að verja 60 milljónum
punda, jafnvirði 6,7 milljarða
króna, til smíði nýrrar snekkju.
Verkamannaflokkurinn til-
kynnti á sunnudag, að ekki kæmi
til greina, kæmist flokkurinn til
valda í næstu kosningum, að veita
fjármunum til smíði snekkju með-
an fjármuni skorti til heilbrigðis-
og menntamála.
Reuter
PAVLE patríarki fer fyrir mótmælagöngu í miðborg Belgrad i gær.
Rétttrúnaðarkirkjan í Serbíu gengur til liðs við stjórnarandstöðuna
200.000 mótmæla 1 Belgrad
Belgrad. Reuter.
ALLT AÐ 200.000 manns tóku í
gær þátt í mótmælagöngu í
Belgrad á vegum serbnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar, sem hefur nú
tekið málstað stjómarandstöðunn-
ar í deilunni um ógildingu borgar-
stjómakosninganna í nóvember.
Þetta er fjjölmennastá mótmæla-
gangan í Belgrad frá því um hálf
milljón manna safnaðist saman í
borginni fyrir hálfum mánuði, þeg-
ar nýtt ár gekk í garð samkvæmt
tímatali rétttrúnaðarkirkjunnar.
Þessi mikla þátttaka sýnir að
stjómarandstaðan lætur engan
bilbug á sér finna eftir látlaus
mótmæli í rúma tvo mánuði.
Yfírbiskup rétttrúnaðarkirkj-
unnar, Pavle patríarki, sem er á
níræðisaldri, fór fyrir göngufólkinu
ásamt tuttugu prestum. Efnt var
til göngunnar í tilefni af degi heil-
ags Sava, vemdardýrlings kenn-
ara, og gengin var um þriggja kíló-
metra leið að kirkju sem nefnd er
eftir dýrlingnum.
Þetta er fyrsta mótmælagangan
að degi til í Belgrad frá því slíkar
göngur voru bannaðar eftir að átök
biossuðu upp milli stjómarandstæð-
inga og lögreglumanna 24. desem-
ber. Yfírvöld ákváðu að leysa upp
varðhring lögreglu, sem höfðu
hindrað að námsmenn kæmust inn
í miðborgina, til að hleypa göngu-
fólkinu að kirkjunni. Námsmennim-
ir höfðu setið um lögreglumennina
dag og nótt í 8 sólarhringa.
Um 50.000 námsmenn og stuðn-
ingsmenn þeirra notuðu tækifærið
til að ganga inn í miðborgina og
voru sigri hrósandi þegar þeir sam-
einuðust göngu kirkjunnar. „Þetta
er mikill sigur fyrir okkur," hróp-
aði einn námsmannanna.
Styrkir stjórnarandstöðuna
Rétttrúnaðarkirkjan studdi
serbneska þjóðemissinna í átökun-
um eftir upplausn gömlu Júgó-
slavíu og hélt sig til hlés í margar
vikur eftir að mótmæli andstæð-
inga Slobodans Milosevic forseta
hófust. Pavle patríarki blessaði þó
þátttakendur í mótmælum náms-
manna í vikunni sem leið og prest-
ar hafa oft tekið þátt í mótmælun-
um. Stuðningur kirkjunnar styrkir
mjög stjómarandstöðuna í baráttu
hennar fyrir því að stjórnarflokkur-
inn virði sigra hennar í kosningun-
um í nóvember.
ígor ívanov, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Rússlands, ræddi síðar
um daginn við við Milosevic til að
freista þess að höggva á þann
hnút sem deilan er í. Stjómarerind-
rekar í Belgrad sögðu að heimsókn
ívanovs hefði komið á óvart en
vom efíns um að hún bæri árang-
ur. Rússnesk stjórnvöld hafa haft
náin tengsl við stjóm Milosevic og
beitt sér fyrir viðræðum um kosn-
ingadeiluna en stjórnarandstaðan
segir ekki koma til greina að semja
um málamiðlanir.
Zajedno, bandalag serbneskra
stjórnarandstöðuflokka, átti í gær
að taka við völdum í Nis, næst-
stærstu borg landsins og einni af
14 borgum og bæjum þar sem
kosningar vom lýstar ógildar í
nóvember. Stjórnin féllst síðar á
að viðurkenna úrslitin.
Afstaða Majors til
EMU æ neikvæðari
London. The Daily Telegraph, Reuter.
AFSTAÐA Johns Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, til Efnahags-
og myntbandalags Evrópu (EMU)
hefur orðið æ neikvæðari undan-
fama daga. Margir af þingmönnum
íhaldsflokksins vísa til nýlegra
ummæla Majors er þeir segjast
munu beijast gegn aðild Bretlands
að EMU í komandi þingkosningum.
í viðtali við Major í New Yorker
Magazine, sem kom út um helgina,
lætur forsætisráðherrann í fyrsta
sinn í ljós beinar efasemdir um
ágæti áformaðs Evrópsks seðla-
banka: „Ég vildi ekki vilja vera.^jár-
málaráðherrann, sem færi í ræðu-
stól í þinginu og segði: „Jæja, ég
hef ekki neina ir leiðinlegt að þeir
skuli hafa hækkað um þijú pró-
sent, en það kemur mér ekki við
lengur, strákar.“ Þetta eru rök fyr-
ir því að fara aldrei inn [í EMU]
og við verðum að horfast í augu
við þau á einhveiju stigi," segir
Major.
Neikvæðari tónn í Clarke
Tónninn í Kenneth Clarke fjár-
málaráðherra, sem til þessa hefur
þótt hlynntur EMU-aðild og ekki
viljað útiloka aðild Bretlands, er
sömuleiðis neikvæðari en verið hef-
ur. Fjármálaráðherrann sagði í við-
EVROI
tali við BBC á sunnudag að það
væri „mjög ólíklegt" að myntbanda-
lagið gæti tekið gildi 1. janúar
1999, eins og að er stefnt. „Ég
held að það sé ólíklegt að nokkur
byiji 1. janúar 1999 — ekki útilok-
að, en ólíklegt," sagði hann. Ráð-
herrann bætti við að önnur aðildar-
ríki ESB yrðu að halda fast við
skilyrði Maastricht-sáttmálans um
frammistöðu í efnahagsmálum. Ef
þau neyddust hins vegar til að
beygja reglumar „ættu þau ekki
að fara af stað og við ættum að
sjálfsögðu ekki að fylgja þeim eft-
ir.“
Margir þingmenn íhaldsflokks-
ins undirbúa nú persónulegar
stefnuyfírlýsingar fyrir þingkosn-
ingarnar, sem haldnar verða eigi
síðar en í maí. Talið er að allt að
100 frambjóðendur muni lýsa and-
stöðu við EMU-aðild Bretlands.
„Það er í fullu samræmi við rök-
semdir forsætisráðherrans að við
útilokum aðild að myntbandalag-
inu í persónulegum yfirlýsingum
okkar,“ sagði Bill Cash, einn af
leiðtogum ESB-andstæðinga í
íhaldsflokknum. „Major hefur
réttilega dregið í efa réttmæti þess
að setja stjórn brezkra málefna í
hendur Evrópska seðlabankans."
Blair tekur undir áhyggjur af
því að reglur verði svelgðar
Tony Blair, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði aftur á móti
I viðtali við BBC að í hans flokki
yrði ekki liðið að frambjóðendur
gæfu út persónulegar kosningayfir-
lýsingar. „Það væri rangt og það
væri brot á reglum Verkamanna-
flokksins," sagði hann. „Ef slíkt
gerist, hvort sem það er í íhalds-
flokknum eða Verkamannaflokkn-
um, vita kjósendur einfaldlega ekki
hveiju þeir eru að greiða atkvæði."
Blair tók undir áhyggjur íhalds-
manna af því að önnur ESB-ríki
uppfylltu ekki efnahagsleg skilyrði
fyrir þátttöku í EMU og myndu
reyna að komast framhjá þeim.
„Við höfum alltaf gert mönnum
Ijóst að slíkt mætti ekki gerast og
að Bretland yrði þá ekki með,“ sagði
hann.
Styrkja
sjónvarps-
efni um
Evrópumál
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hyggst á fundi
f Brussel í dag bjóða 60 fram-
leiðendum sjónvarpsefnis í Evr-
ópu styrki til að gera heimilda-
þætti um hinn nýja Evrópu-
gjaldmiðil evró, innri markað
Evrópusambandsins og ríkja-
ráðstefnu sambandsins, sem nú
stendur yfir. Alls verða 20 millj-
ónir ECU (um 1,6 mil(jarðar
króna) til ráðstöfunar.
Yves-Thibault de Silguy, sem
fer með peningamál í fram-
kvæmdastjórn ESB, segir að
Evrópusambandið verði að
standa sig betur við að kynna
fyrir borgurum aðildarríkjanna
hvað þeir græði á Evrópusam-
starfinu. „Aðalvandamálið er
skortur á upplýsingum," segir
de Silguy og bendir á að 80-90%
fbúa ESB-ríkjanna telji sig illa
upplýsta um evróið og Efna-
hags- og myntbandalag Evrópu.
Framkvæmdastjórnin er
þeirrar skoðunar að það sé
einkum fáfræði, sem ýti undir
andstöðu við Evrópusamrun-
ann.
Skoða enn
skattamál
Steffi Graf
ÞÝSKIR saksóknarar sögðust
í gær enn vera kanna hvort
ástæða væri til að höfða mál
á hendur tennisstjömunni
Steffi Graf vegna skattalaga-
brota. Heldur hún fram sak-
leysi og segir faðir sinn, Peter
Graf, alfarið hafa séð um fjár-
mál hennar. Einu afskipti
hennar hafi verið að undirrita
skattframtalið. Dómari, sem
dæmdi Peter Graf til tæpra
fjögurra ára fangelsisvistar í
síðustu viku, lagði til í úr-
skurði sínum, að öllum mála-
rekstri á hendur Steffi yrði
hætt. Saksóknarinn í Mann-
heim, Hubert Jobski, sagði í
gær, að þau tilmæli hefðu
enga þýðingu.
Tyrkir leyfa
höfuðklúta
TYRKNESKA stjórnin
áformar að aflétta banni við
því að konur, sem starfa hjá
opinberum fyrirtækjum og
stofnunum, og námsmenn
hylji andlit sitt með höfuð-
slæðu. Upplýsti aðstoðarmað-
ur Necmettins Erbakans for-
sætisráðherra þetta í gær.
Samkvæmt núgildandi lögum
geta yfirmenn opinberra fyr-
irtækja refsað konum fyrir
að sveipa höfuðið slæðu í
vinnu og vikið þeim úr starfí
fyrir ítrekuð brot. Háskóla-
rektorum er sömuleiðis heim-
ilt að banna slæðunotkun í
skólum sínum.
Skattheimtan
hættusöm
HÆTTUR þær sem blasa við
rússneskum skattheimtu-
mönnum koma rækilega f ljós
í nýrri skýrslu ríkisskatt-
stjóra. Samkvæmt henni voru
26 skattaheimtumenn drepnir
við störf sín á síðasta ári, 74
slösuðust, sex var rænt og
heimili 41 voru brennd. Auk-
inheldur voru framin sprengj-
utilræði eða skotárásir í 18
skattstofum. Ríkisskattstjór-
inn bjóst ekki við að þetta ár
yrði nokkuð skárra.
Major vill
kjósa í maí
JOHN Major, forsætisráð-
herra Bretlands, er staðráðinn
í að efna ekki til þingkosninga
fyrr en í maí. Itrekaði hann
þessa skoðun sína á ríkis-
stjómarfundi, sem haldinn
var á sveitasetri forsætisráð-
herrans í gær.
Dauði konu
rannsakaður
ÞÝSK yfirvöld fengu heimild
ættingja til að láta kryfja lík
41 árs konu, sem lést í síð-
ustu viku, en gmnur leikur á
að hún hafi látist af völdum
afbrigðis Creutzfeldt-Jakob
veiki sem nátengd þykir kúa-
riðu. Niðurstaða krufningar-
innar getur ráðið því hvort
ráðist verður í viðamikla slátr-
un allt að 14 þúsund kálfa
sem innfluttar breskar og
svissneskar kýr bára.