Morgunblaðið - 28.01.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 25
TÓNUST
Hallgrímskirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Daði Kolbeinsson, Joseph Ognibene
og Hörður Askelsson fluttu
samleiksverk frá barokk og
rómantíska tímanum.
Sunnudagurinn 26. janúar, 1997.
OFANKOMA og fjúk hindraði
ekki áhugafólk um tónlist, að sam-
safnast í Hallgrímskirkju, til að
hlýða á fagra tónlist, sl. sunnu-
dagskvöld en af og til mátti heyra
dimman kvöldsöng Kára gamla,
sækja sér vist í hljómnæmri kirkj-
unni.
Tónleikarnir hófust á Largo
Cantabile og Allegro úr sónötu í
C-dúr eftir flæmska flautu- og óbó-
Ljósmyndir Bruno Calle.
BRUNO Calle og Catherine
Delone um borð í skútu sinni
í Reykjavíkurhöfn.
Fyrirlestur
og kvikmynd
umeyjarvið
Suðurskautið
FALLEG rauð 35 feta seglskúta
liggur í vetur við festar í
Reykjavíkurhöfn. Eigandi
hennar Bruno Calle hefur siglt
um öll heimsins höf ásamt Cat-
herine Delone. Miðvikudaginn
29. janúar kl. 20.30 ætlar hann
að flytja fyrirlestur og sýna
kvikmynd um einstæða dvöl
sína á Kergueleneyjum sem eru
nálægt Suðurheimskautinu.
Verður það hjá Alliance Franca-
ise, sem er til húsa að Austur-
stræti 3, gengið inn frá Ingólfs-
torgi. Mun Bjarni Hinriksson
þýða fyrirlesturinn á íslensku
og aðstoða fólk sem vill spyija
Calle um ferðir hans.
Frá því í september hafa þau
Bruno Calle og Catherine Del-
one beðið vors á skútu sinni við
hlið Akraborgarinnar í Reykja-
víkurhöfn, en með hækkandi sól
hyggjast þau halda til Græn-
lands. Þessa ferð hófu þau í
nóvember 1995, sigldu fyrst
suður á bóginn og eyddu vetrin-
um á Kanaríeyjum, en ákváðu
svo að halda norður á bóginn.
Myndin um Kerguelenejjar
hefur hlotið margskonar verð-
laun og viðurkenningar. A
Kergueleneyjum suður undir
Suðurheimskauti vann Bruno
Calle á franskri rannsókna-
stofu. Síðan sneri hann þangað
aftur og dvaldi einangraður frá
umheiminum í helli, sem notað-
ur hafði verið sem skjól fyrir
skipbrotsmenn á 19. öld. I þijá
mánuði, dvaldi hann á eyjunum
og vann að gerð þessarar mynd-
ar um eyjaklasann. Hefur mynd
hans m.a. verið keypt af
franska, svissneska og íslenska
sjónvarpinu.
LISTIR
Við kvöldsöng Kára gamla
leikarann, Jean Baptiste Loeillet.
Báðir þættimir em fallegir en einna
þekktastur er largokaflinn, sem er
einstaklega ljóðrænn og söngfagur
og var hann mjög vel fluttur af
Daða Kolbeinsssyni óbóleikara.
Annað verkið var Adagio úr óbó-
konsert í d-moll eftir Alessandro
Marcello, sem J.S. Bach umritaði
og er til í hans gerð sem BWV
974. Töluverður munur er á frum-
riti og umskrift, svo að óbóröddin
hljómaði eins og ekta Bach og það
sem gerði flutninginn skemmtileg-
an var sérlega vandaður leikur
Daða og hlaðin skreyting Bachs.
Joseph Ognibene lék því næst
Konsert í D-dúr, eftir Georg Philipp
Telemann. Handel sagði um Tele-
mann, að hann væri ijótari að
semja átta radda messu, en hann
sjálfur að skrifa sendibréf. Vist er
að Telemann hefur verið fljótur að
semja þennan stutta konsert, sem
þó er bæði skemmtilegur og um
margt góð tónlist sérstaklega jað-
arþættirnir. Ognibene lék konsert-
inn mjög vel en líklega þarf að
velja meira líðandi og hljómrænna
verk fyrir mikla enduróman kirkj-
unnar, svo að vel verði notið sam-
spils horns og orgels, sem naut sín
sérlega vel í hæga þættinum.
Ave Maria eftir þá J.S. Bach og
Charles Gounod hljómaði fallega í
samleik orgels og óbós. Sama má
segja um rómönsu, op.36, eftir
Camille Saint-Saéns og sérlega fal-
legt lag, Canto Serioso, eftir Carl
Nielsen, sem Ognibene lék mjög
fallega. Rómantíska tónlistin átti
betra samspil við óman kirkjunnar
og í rapsódíu, op.127, eftir orgel-
snillingin Joseph Gabriel Rhein-
berger, hljómaði óbóið mjög glæsi-
lega. Andante úr ófullgerðri
sónötu, fyrir hom og píanó frá
1888, eftir Richard Strauss, var
sérlega vel flutt en umritun píanó-
hlutverksins var unnin af orgelleik-
aranum. Tónleikunum lauk með
tvíleikskonsert eftir fiðluleikarann
Tommaso Albinoni, er var það gott
tónskáld, að J.S. Bach þótti þess
vert, að taka nokkur stefja hans
að láni. Konsertinn er lífleg tónlist
og þó enduróman kirkjunnar brygði
á samleikinn nokkurri slikju endur-
ómunar, var hann í heild glæsilega
fluttur.
Líklega þarf, eins og fyrr er
getið, að miða val verkefna nokkuð
við mikla enduróman Hallgríms-
kirkju og þá er næsta víst, að vel
færi á samleik blásturshljóðfæra
og orgels. Þó þarf að gæta þess,
að oft getur hljómur orgelsins ver-
ið of líkur samleikshljóðfærunum,
eins og sérstaklega mátti t.d. heyra
í samleiknum á milli orgelsins og
hornsins. Raddskipan orgelsins
getur að þessu leyti verið nokkuð
vandamál en raddval Harðar var
að öðru leyti mjög gott og samleik-
ur hans allur hinn besti.
Jón Ásgeirsson
Tilboðsdagar
Kahns
Kahrs
A tilboðsdögum Egils Árnasonar er glæsilegt úrval af parketi,
innihuröum, gólfflísum og loftaþiljum á afar hagstæðu verði.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða eingöngu vandaðar vörur
og úrvals þjónustu. Góður smekkur þarfekki að vera dýr!
Tilboðsverð á parketi
Eik Bergen kvistótt 2.990 kr./m2
Beyki Herning kvistótt 2.990 kr./m2
Eik Stuttgart natur 3.100 kr. /m2
Beyki Stuttgart natur 3.100 kr./m2
Merbau Stokkholm 3.990 kr./m2
20-30% afsláttnr af öllu gegnheilu parketi - 50 tegundir.
Eik rustic 10 mm, 2. fl. verð áður 1.866 kr./m2, verð nú 1.306 kr./m2.
Hlynur rustic 10 mm, 2. fl. verð áður 2.695 kr./tti2, verð nú 1.887 kr./m2.
► Nýjung!
Káhrs Linné - 8 mm samlímt gólfefni í eik, beyki, kirsuberjaviöi
og hlyni, verb 2.490 kr./m2.
# Ringo innihurðir, þýsk hágœðavara á sérstöku tilboðsverði,
80 sttt mahonyhurð ttieð kartni 17.102 kr.
# 20-40% afsláttur af gólfflísutn
# 20-30% afsláttur afTerhume loftaþiljum
rmgd
1N N 1 H U R Ð I R
TERHURNE
^CHTAÞLLHJR
Umbobsmenn um landib:
Dropinn, Keflavík - S.G. búöin, Selfossi - Byggingavöruverslun Steinars
Árnasonar, Selfossi - Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli - Brimnes,
Vestmannaeyjum - K.A.S.K. járnvörudeild, Höfn í Hornafirði - Verslunin Vík,
Neskaupstað - Viðarkjör, Egilsstöðum - Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði -
K.F. Þingeyinga, Húsavík - Teppahúsið, Akureyri - Verslunin Valberg,
Ólafsfirði - Byggingarfélagið Berg, Siglufiröi - Kaupfélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki - Kaupfólag Húnvetninga, Blönduósi - Kaupfélag V-Húnvetninga,
Hvammstanga - Núpur, ísafirði - Byggir, Patreksfirði - Litabúðln, Ólafsvík -
Verslunin Hamar, Grundarfirði - Skipavík, Stykkishólmi - Kaupfélag
Borgfirðinga, Borgarnesi - Byggingarhúsið, Akranesi - Teppaland, Mörkinni
4, Reykjavík - Björninn, Borgartúni 2, Reykjavík
NÁTTÚRUSTEINN
Egill
Arnason hf
Ármúli 8-10* Sími: 581 2111 • Fax: 568 0311
mamm
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
TIL. 3G /VJÁÍMAÐA