Morgunblaðið - 28.01.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 45
Klúbbur
matreiðslu-
meistara 25 ára
KLÚBBUR matreiðslumeistara
fagnar um þessar mundir 25 ára
afmæli klúbbsins. Klúbbur mat-
reiðslumeistara var stofnaður þann
16. febrúar 1972. Stofnfélagar voru
8 matreiðslumeistarar, en nú eru
I félagar í klúbbnum 60 matreiðslu-
l meistarar. Af þessu tilefni er öllum
vinum, velunnurum og styrktaraðil-
um klúbbsins á undanförnum 25
árum boðið til opins húss á Hótel
Sögu í Sunnusal, sunnudaginn 2.
febrúar frá kl. 14-17.
Tilgangur klúbbsins er að stuðla
að þekkingu á mat, matreiðslu og
til eflingar fyrir matreiðslufagið og
til að auka tengsl og kynni meðal
1 íslenskra matreiðslumeistara við
| matreiðslumeistara um gjörvallan
heim. Klúbbur matreiðslumeistara
' er aðili að Samtökum matreiðslu-
meistara á Norðurlöndunum (Fed-
eration des Chefs de cuisine
Nordique) og alheimssamtökum mat-
reiðslumeistara (World Association
of Cooks Societies).
Á vegum klúbbsins starfar keppn-
islið matreiðslumeistara sem meðal
annars tekur þátt í Ólympíukeppni
| matreiðslumeistara sem haldin er á
i fjögurra ára fresti og einnig í keppni
matreiðslumeistara á Norðurlöndun-
um.
Ráðgjafarþjón-
usta opnuð í
Hafnarfirði
OPNUÐ hefur verið ný ráðgjafar-
þjónusta sem sérhæfír sig í ráðgjöf
l fyrir aðstendendur áfengissjúklinga
og vímuefnaneyt-
enda og óvirka
áfengis- og vímu-
efnaneytendur.
Einnig er í boði
almenn viðtals-
meðferð og ráð-
gjöf. Um er að
ræða einkaviðtöl,
hópmeðferð og
námskeið.
Ráðgjafarþjón-
ustan er rekin af Gunnhildi Gunnars-
dóttir sem er félagsfræðingur frá
Háskóla íslands og fór síðan í fram-
haldsnám til Bandaríkjanna og lauk
mastersprófí í „guidance and couns-
eling“ frá Háskólanum í Idaho. Þá
hefur hún einnig stundað framhalds-
nám í fjölskyldumeðferð við Illino-
isháskóla í Chicago.
Gunnhildur hefur mikla reynslu á
sviði ráðgjafar og starfaði nú síðast
hjá SÁÁ.
Ráðgjafarþjónustan er til húsa á
Strandgötu 11 í Hafnarfírði.
DAGBÓK helgarinnar tekur mið
af snjó og slæmu veðri á starfs-
svæði lögreglunnar í Reykjavík.
Tilkynnt var um 41 umferðaróhapp,
auk 5 slysa.
Mörg innbrot
I
I
í
Tilkynnt var um 18 innbrot, 8
þjófnaði, 7 líkamsmeiðingar, eitt
rán og 9 eignarspjöll. Fíkniefni
komu við sögu í þremur málum og
afskipti voru höfð af 19 einstakling-
um vegna ósæmilegrar ölvunarhátt-
semi á almannafæri. 20 manns voru
vistaðir í fangageymslunum um
helgina.
Af innbrotum helgarinnar má
nefna innbrot í bifreiðir við Sel-
braut, á bifreiðastæði við Laugarás-
bíó og í Skeifunni. Aðfaranótt laug-
ardags var skrifstofubúnaði Stolið
í innbroti í fyrirtæki við Egilsgötu
og farið var inn í hús við Háa-
gerði, aðstöðu lækna við Klepps-
spítala.
Brotist var inn í verslun við
Laugaveg, hús við Stigahlíð, íbúð
við Unufell, fyrirtæki við Síðumúla,
Ármúla, Vagnhöfða og við Suður-
landsbraut. Þá voru 8 rúður brotnar
í skóla við Norðurfell.
Á föstudag fótbrotnaði maður er
hann datt í hálku á Skúlagötu.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið
FRÉTTIR
BJÖRG Pjetursdóttir í Toronto ásamt sýningarstúlku sem
skrýddist kjól hennar.
Tískuhönnunarkeppni
Smimoff að heflast
NÆSTA úrslitakeppni í tisku-
hönnun Smimoff verður haldin
í London í nóvember 1997 og
stefnt er að þvi að úrslitakeppni
fyrir íslenska þátttakendur verði
23. apríl nk.
Öllum nemum í fata-, tísku-
og textílhönnun er heimil þátt-
taka og þurfa þeir að senda inn
teikningar og útskýringar til
Smimoff-umboðsins á Islandi
fyrir 15. mars 1997. Þema keppn-
innar í ár ber heitið „Aldarspeg-
ill“.
Síðasta tískuhönnunarkeppni
Smirnoff var haldin í Toronto í
Kanada 14. nóvember sl. Fulltrúi
Islands að þessu sinni var Björg
Pjetursdóttir. Björg var valin úr
hópi þátttakenda hérlendis í
tískuhönnunarkeppni er fram
fór í Loftkastalanum 25. maí sl.
Fulltrúar frá 31 þjóðum
kepptu í Toronto og vora þeir
valdir úr hópi 6.000 þátttakenda
í undanúrslitum. Þema keppn-
innar í Toronto var „Hin innri
sýn“.
Opið hús
Heimahlynn-
ingar
HEIMAHLYNNING verður með
samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld, þriðjudaginn 28. janúar, kl.
20-22 í húsi Krabbameinsfélags
íslands, Skógarhlíð 8.
Gestur kvöldsins verður sr.
Gunnar Matthíasson, sjúkrahús-
prestur. Kaffí og meðlæti verður á
boðstólum.
Fundur um fjöl-
miðla og mann-
réttindi
MÁLSTOFA um mannréttindi verð-
ur miðvikudaginn 29. janúar kl.
20.30 í húsi Félags bókagerðar-
manna, Hverfisgötu 21.
Á fyrstu málstofu um mannrétt-
indi á nýju ári verður fjallað um
fjölmiðla og mannréttindi. Margrét
Hlöðversdóttir, fréttamaður og lög-
fræðingur, mun fjalla um ærumeið-
10 mest seldu fólksbílar í Evrópu 1996
s
VWGolf
Fiat Punto
Ford Fiesta
GM Astra
GM Corsa
Ford Escort
VWPolo
1995
1. 660.663
2. 606.530
4. 481.888
3. 569.079
6. 460.186
5. 461.090
8. 326.093
Renault Megane 9. 240.001
Renault Clio 7. 394.040
GM Vectra 10. 239.053
Samtals 4.438.623
1996
1. 637.348
2. 552.445
3. 550.588
4. 504.158
5. 468.539
6. 459.172
7. 439.957
8. 380.301
9. 374.801
10. 363.132
4.730.441
öreyting frá 1995 (%)
-3,5 0
I 114.3
•11.4|
10 mest seldu bílar í Evrópu
MISTÖK urðu í vinnslu töflu um Morgunblaðsins sl. sunnudag, og
10 mest seldu fólksbila í Evrópu er hún endurbirt hér leiðrétt.
1996. Taflan birtist í bílablaði
ingar í skjóli fréttamennsku og
hversu langt fjölmiðlar geta gengið
í umfjöllun um einstaklinga. Páll
Þórhallsson, lögfræðingur, mun
taka fyrir það álitaefni hvort ís-
lenskir fjölmiðlar rísi undir því frelsi
sem Mannréttindasáttmáli Evrópu
veitir þeim.
Málstofa um mannréttindi mun
í vetur boða til funda um mál sem
eru ofarlega á baugi í mannrétt-
indaumræðunni hér heima og er-
lendis. Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér betur viðfangsefni mál-
stofunnar er bent á að hafa sam-
band við Mannréttindaskrifstofu
íslands.
Samtök sveitarfélaga
á Vesturlandi
Aformum um
byggingu álvers
fagnað
VEGNA fyrirhugaðrar byggingar
álvers Colombia Ventures Corporati-
on (CVC) á Grundartanga hefur
stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vest-
urlandi (SSV) samþykkt svohljóðandi
ályktun:
„íbúum á Vesturlandi hefur fækk-
að jafnt og þétt á síðustu árum. Ein
helsta ástæðan er sú að atvinnutæki-
færum til sjávar og sveita hefur
fækkað verulega án þess að ný störf
hafi komið í staðinn og mætt þeirri
þróun.
Helsta forsenda byggðar í landinu
er að næg atvinna sé til staðar.
Því fagnar stjóm SSV áformum
C.V.C. um byggingu álvers á Grund-
artanga og þá um leið fjölgun at-
vinnutækifæra í kjördæminu. Bygg-
ing álvers á Grundartanga er kjör-
dæminu til framdráttar, að því til-
skildu að framkvæmdaraðilar skuld-
bindi sig til að hlíta ákvæðum meng-
unarreglugerðar til hins ítrasta."
Umræðufundur
Islenskrar ætt-
leiðingar
FÉLAGIÐ íslensk ættleiðing hefur
nú hleypt af stokkunum nýjung að
hafa fræðslu- og rabbfund fyrir fé-
lagsmenn síðasta miðvikudag í hveij-
um mánuði.
Næsti fundur verður miðvikudag-
inn 29. janúar og verður umfjöllunar-
efnið þá félagsleg einangrun og ein-
elti, og mun Snjólaug Stefánsdóttir,
kjörmóðir og uppeldis- og fjölskyldu-
ráðgjafí, stýra umræðunum. Fundur-
inn verður haldinn á skrifstofu fé-
lagsins á Grettisgötu 6. Allir kjörfor-
eldrar velkomnir.
Frjálshyggjan
vestan hafs
HEIMDALLUR heldur í kvöld,
þriðjudaginn 28. janúar, kvöldverð-
arfund með Charles Evans, yfir-
manni upplýsingadeildar Atlas-hag-
rannsóknarstofnunarinnar í Bar.da-
ríkjunum.
Evans mun kynna Atlas-stofnun-
ina og tengsl hennar við hugmynda-
stofnanir víðs vegar um heim, tengd-
ar fijálshyggjunni, að því er kemur
fram í fréttatilkynningu frá Heim-
dalli. Einnig verður rætt um stjóm-
málastöðuna vestan hafs.
Fundurinn, sem verður með
óformlegum hætti, verður haldinn í
Djúpinu (kjallara veitingastaðarins
Hornsins) kl. 19.30 í kvöld.
Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík 24.- 27. janúar.
Annasamt vegna ófærð-
ar og vonskuveðurs
á slysadeild. Um kvöldið voru aðilar
staðnir að því að stela eldsneyti af
bifreiðum í Álakvísl. Þeir voru
handteknir. Þá voru tveir menn
færðir á lögreglustöð eftir að fíkni-
efni fundust í fórum þeirra er þeir
voru stöðvaðir í akstri á Bústaða-
vegi.
Ókumaður og farþegi vom fluttir
á slysadeild með sjúkrabifreið eftir
harðan árekstur tveggja bifreiða á
Strandvegi skömmu fyrir miðnætti.
Stálu stöðumæli
Aðfaranótt laugardags voru tveir
menn færðir í fangageymslu eftir
slagsmál á veitingastað við Póst-
hússtræti. Eftirlitsmenn vínveit-
ingahúsa töldu gesti út af veitinga-
húsi við Austurstræti. Um of marga
gesti reyndist vera að ræða í húsinu.
Tveir menn á bifreið voru hand-
teknir á Sölvhólsgötu. Þeir höfðu
verið staðnir að því að stela þar
stöðumæli. Ökumaðurinn er grun-
aður um ölvunarakstur.
Á laugardagsmorgun voru tveir
menn færðir á lögreglustöð eftir
að lítilsháttar af fíkniefnum hafði
fundist við húsleit í húsi við Einars-
nes. Kona datt í hálku fýrir utan
verslun í Skeifunni og var flutt á
slysadeild með sjúkrabifreið. Hund-
ur stal ruslapoka í Reykjabyggð
síðdegis á laugardag og bar hann
heim að nálægum bæ.
Ökumaður og farþegi voru fluttir
á slyadeild eftir harðan árekstur
tveggja bifreiða á Gullinbrú. Þrennt
var flutt á slysadeild eftir árekstur
tveggja bifreiða á gatnamótum
Bústaðavegar og Háaleitisbrautar
á laugardagskvöld. Bifreið stöðvað-
ist á staur í Ártúnsbrekku.
Aðrar lentu út af við Rafstöðvar-
veg og við Vesturlandsveg. Drengur
klemmdi löngutöng í húsi við Kapla-
skjólsveg með þeim afleiðingum að
nöglin fór af. Lögreglumenn óku
honum á slysadeild.
Unnu skemmdir á bílum
Um nóttina skar kona sig á fæti
á glerbroti í Hjaltabakka. Henni var
ekið á slysadeild. Undir morgun
voru fimm piltar handteknir í Lækj-
argötu eftir að þeir höfðu skemmt
sér við að vinna þar skemmdir á
tveimur bifreiðum. Piltarnir voru
selfluttir á móti lögreglu heima-
byggðar þeirra. Annars sáust ungl-
ingar ekki í miðborginni um helg-
ina, ekki frekar en endranær und-
anfarna mánuði. Ástæða er til að
vekja athygli á því að þar hefur
orðið mikil og jákvæð breyting til
hins betra í þeim efnum.
Mönnum var bjargað út úr fyrir-
tæki við Fossháls á sunnudag. Þeir
höfðu lokast inni er lyklamir höfðu
gleymst í skránni að utanverðu.
Maður féll í hálku við Eiðistorg og
skarst á höfði. Hann var fluttur á
slysadeild.
Ástand
ökutækja skoðað
Lögreglan hefur ákveðið að beina
á næstunni athyglinni sérstaklega
að ástandi ökutækja, s.s. dekkja-
og ljósabúnaði svo og skoðun þeirra.
Jafnframt hefur verið ákveðið að
undirbúa kynningarfundi fyrir lög-
reglumenn í samstarfi við fulltrúa
Vinnueftirlits ríkisins og Vegagerð
ríkisins, annars vegar um merking-
ar á ökutækjum er ílytja hættuleg-
an farm og hins vegar um ökurita.
Um helgina var kvartað yfir
akstri vélsleða innanbæjar, í Elliða-
árdal og í Bláfjöllum. Af því tilefni
er rétt að geta þess að skv. umferð-
arlögum svo og lögreglusamþykkt-
um er akstur vélsleða í þéttbýli
bannaður. Þá liggja fyrir samþykkt-
ir borgarstjómar um bann við akstri
vélsleða í Elliðaárdal og á skíða-
svæðunum í Bláfjöllum. Vélsleða-
fólk er hvatt til að virða þessar
reglur svo og samþykktir.