Morgunblaðið - 28.01.1997, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
5URE! I HAVE TO
AUT06RAPH ALL
THI5 5TUFF, 5EE?
ARE VOU A 600P
SPELLER
YE5TERPAY, 50MEB0DY'
OJANTED A11JOE
SHLABOTNIK"OR /1 CAN
S0METHIN6..6IVE J 5PELL
MEABREAK! /shlABOTHIK
Hæ, strákur... vantar Svona nú, ég skal sýna
þig vinnu? Vantar mig þér... ég er að drepast í
hvað? hendinni af öllum þessum
eiginhandaráritunum.
Áttu við ...
Vissulega! Ég hef
áritað allt þetta
dót, skilurðu? Ertu
góður í stafsetn-
ingu?
í gær vildi einhver fá „Jóa
Snögga“ eða eitthvað svoleið-
is ... er það nú!
Ég get stafað það.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
„Mogginn og
gula spjaldið“
Frá Sverri Ólafssyni:
NÝLEGA barst mér greinargerð
siðanefndar Blaðamannafélagsins í
kærumáli mínu á hendur ritstjóra
Morgunblaðsins. Þetta er um margt
all sérstæð lesning og forvitnileg.
Frá upphafi var augljóst, að rit-
stjórum Moggans var mikið í mun
að forðast gagnrýni á vinnubrögð
sín. Svo mjög, að þeir treystu ekki
siðanefnd eigin stéttarfélags til að
annast málið, heldur reyndu að
flækja það sem mest þeir máttu
og tefja framgang þess með lög-
fræðingastóði sínu. Heilu Reykja-
víkurbréfin voru lögð undir réttlæt-
ingar þeirra, líkt og heimsstyijöld
væri skollin á. Vitaskuld var ein-
faldasta og um leið eina rétta leið-
in fyrir Styrmi Gunnarsson að biðj-
ast afsökunar á mistökum sínum,
en það hefði hinsvegar riðlað trú-
verðugleika hinna pólitísku for-
senda Moggans fyrir því að ritstjór-
inn bar saklausan mann fölskum
áburði. Styrmir virðist nefnilega
hafa tekið sér hið heilaga og vanda-
sama hlutverk að gerast málsvari
og pólitískur verndari eins umdeild-
asta stjórnmála- og „business“-
manns íslandssögunnar, Jóhanns
Gunnars Bergþórssonar. Hvað
veldur er mér hulin ráðgáta. Siða-
nefndin kemst að þeirri niðurstöðu,
að auðvitað sé Mogginn bullsekur
um óvönduð vinnubrögð. Rétt er
að taka fram, að verkefni siða-
nefndar samkvæmt kæru minni var
ekki að úrskurða um höfund grein-
ar sem Mogginn birti undir höfund-
ar nafni, né höfund afsökunarbréfs
undirritaðs af sama aðila sem birt-
ist fáeinum dögum síðar. Það væri
að æra óstöðugan að ætla nokkrum
manni að fínna sannleikann í orðum
og gjörðum Bjöms V. Ólasonar að
ekki sé minnst á fóstbræður hans
og ráðgjafa meðal ónefndra bæjar-
fulltrúa í Hafnarfírði. Verkefni
siðanefndar var að fjalla um brot
Mbl. á siðareglum BI, sem birtust
í athugasemd ritstjóra sem fylgdi
þessu undarlega máli. Ég hef átt
viðræður við fjölda blaðamanna um
niðurstöður nefndarinnar og allir
sem einn hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að hún sé ekki aðeins
óskiljanleg, heldur fáránleg rök-
leysa. Mogginn hafí ótvírætt brotið
alvarlega af sér og úrskurður
nefndarinnar ekki verið í neinu
samræmi við hið alvarlega brot. í
greinargerð segir m.a.: „í máli
Sverris Ólafssonar og Morgun-
blaðsins kemur að vísu annað til
og það er að blaðið segir aðferð
Sverris og Björns siðlausa. Á blaða-
maður að kanna sérstaklega sann-
leiksgildi heimildar, sem hann hef-
ur enga sérstaða ástæðu til að
rengja ef hann notar hana til að
fella siðferðilegan dóm um nafn-
greint fólk? Hér er erfiðara að fóta
sig.“ Og: „Ef ástæður til efasemda
um gildi trúverðugleika heimildar
vakna síðar ber blaðamanni hik-
laust að skýra frá þeim.“ Og:
„Dómur Morgunblaðsins er all-
þungur áfellisdómur og þess vegna
er athugasemd ritstjóranna of af-
dráttarlaus þótt dómurinn sé felld-
ur í góðri trú. Þar hefði átt að
hafa fyrirvara á borð við „ef rétt
er frá sagt“. Annar kostur hefði
verið að bíða með athugasemdina
þar til Sverri hefði verið gefínn
kostur á að bregðast við frásögn
Björns“ o.s.frv. Síðan er vitnað í
ummæli Matthíasar Johannessen í
viðtali við Alþýðublaðið. Siðanefnd-
in segir að „einhver slík ummæli
hefðu átt að birtast í Morgunblað-
inu“. Eftir stendur að Styrmir gerði
alvarleg og ámælisverð mistök.
Hann hefur ekki manndóm til að
biðjast afsökunar á mistökum sín-
um, þrátt fyrir að þau hafí skaðað
saklausan einstakling, og í hroka
sínum sló hann á útrétta sáttar-
hönd. Deila má um hvað blaðamað-
ur eigi að hafa að leiðarljósi við
samningu skrifa sinna. Þó sýnist
mér siðareglur BÍ auðskiljanlegar
og skýrar í þvl efni og allir geta
auðvitað gert mistök í lífinu, en
það skiptir hins vegar verulegu
máli, hvort við lærum af mistökun-
um og hvernig við bregðumst við
í kjölfarið. Hvað siðanefndina varð-
ar, þá kolféll hún á erfíðu prófí.
Virðist sem ótti við Moggaveldið
og hreinn og klár heigulsháttur
hafí ráðið afstöðu hennar, þegar
hún, þrátt fyrir allt sem á undan
er gengið, sleppir Mogganum með
gula spjaldið! Nefndin kemst að
þeirri undarlegu niðurstöðu, að
málsbætur Moggans séu óskir mín-
ar um að forða blaðinu frekari leið-
ingum og niðurlægingu! Þá eru það
nefndar málsbætur Mogganum í
vil, að ég og þijú óvilhöll vitni hafi
fengið birt mótmæli við ósönnum
áburði ritstjórans. Þó er hvergi tek-
ið tillit til vit'nisburðar þessara val-
inkunnu vitna í greinargerð nefnd-
arinnar. Var vitnisburður þeirra
fyrir nefndinni þá aðeins sjónarspil
af hálfu nefndarmanna? Hvernig í
veröldinni geta þetta talist máls-
bætur Morgunblaðsins? 3. grein
siðareglna hljóðar svo: „Blaða-
maður vandar upplýsingaöflun
sína, úrvinnslu og framsetningu
svo sem kostur er og sýnir fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum.
Hann forðast allt sem valdið getur
saklausu fólki, eða fólki sem um
sárt á að binda, óþarfa sársauka
eða vanvirðu." Þessa grein kýs
Styrmir Gunnarsson að hundsa og
kærir sig kollóttan um að virða.
Það er sá dómur sem í reynd stend-
ur eftir í þessu máli og sá kross
sem Styrmir Gunnarsson mun einn
þurfa að bera.
SVERRIR ÓLAFSSON
er í stjórn Jafnaðarmannafélags
Hafnarfjarðar.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. ointakið.