Morgunblaðið - 28.01.1997, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Þorrasnakk
og þorraskyr
Matur og matgerð
Skjótt skipast veður í lofti segir Kristín
Gestsdóttir, en hún festi bílinn sinn í
heimreiðinni á 2. degi þorra.
ÞORRINN var
stundvís að þessu
sinni og minnti
hressilega á sig.
Sl. miðvikudag ók
ég í ljósaskiptun-
um um Garðaholtið
á leið minni heim
og hugsaði: Þetta
er bara eins og
sumardagur,
hvergi snjór eða
hálka. En næsta
laugardag voru
komnir á þriðja
metra skaflar
heimkeyrsluna hjá
mér svo rétt sá í
suma tijátoppana.
Þorrinn var fáum
kærkominn hér
áður fyrr en það
hefur breyst nú,
þegar allir sem
vettlingi geta
valdið keppast við
að skemmta sér á
Þorrablótum, þar sem svokallaður
þorramatur er á borðum, en það
er raunar hinn hefðbundni gamli
íslenski matur. Einu mætti þó bæta
á þorraborðið, það er skyr sem er
séríslenskt og var borðað á hveiju
heimili hér áður fyrr. í þessum
þætti ætla ég að bjóða upp á „þorra-
snakk“ með ídýfu en hinn svokall-
aði þorramatur hentar mjög vel í
snakk. Auk þess hrært skyr upp á
gamla mátann og nýtískulegri skyr-
búðing, en hvort tveggja er gott í
lok þorramáltíðar.
Þá er það snakkið, af mörgu er
að taka. Notið hugmyndaflugið,
möguleikamir eru óþijótandi.
Harðfískurinn hefur lengi verið við-
kennt snakk, en skemmtilegt er að
klippa hann með skærum í ferkant-
aða litla bita.
Hákarl þekkja allir unnendur þorra-
matar, en hann er líka viðurkennt
snakk. Stingið tannstönglum í bit-
ana.
Súran hval má skera í litla teninga
og stinga tannstönglum í.
Hangikjöt má skera í teninga og
stinga tannstönglum í.
Sviðasultu, blóðmör og lifrarpylsu
má skera í teninga, setja tann-
stöngla í og borða eins og það kem-
ur fyrir eða dýfa í þunna, súra ídýfu.
Sjá hér á eftir.
Hrútspunga má líka skera í ten-
inga, stinga tannstönglum í og dýfa
í áðurnefnda ídýfu.
Laufabrauðsdeig má skera undan
glasi og búa til lítil laufabrauð.
Flatbrauðsdeig má líka skera undan
glasi og búa til lítil flatbrauð, eða
skera hið keypta í litla geira.
Rófur má sjóða (ekki of lengi),
skera í teninga og setja með slátr-
inu, sviðunum, hangikjötinu og og
hrútspungunum.
Hráar rófur, hráar gulrætur og
hrátt hvítkál má skera í þunnar
sneiðar eða ræmur og dýfa í þykka
ídýfu. Sjá hér á eftir.
Þunn ídífa
Helmingi meira er
notað af matarolíu en
sítrónusafa. t.d. 1 dl
sítrónusafi og 2 dl
1 matarolía. Steinselja er
klippt út í og allt sett
í hristiglas og hrist vel.
Sósan þykknar þegar
sítrónusafinn og mata-
rolían blandast saman.
Þykk ídýfa
1 dós sýrður rjómi
1 msk. mæjonsósa
2 tsk. tómatsósa
1-2 tsk. Sweet relish eða
annað hliðstætt
_____2 skvettur af tabaskósósu__
salt milli fmgurgómanna
Allt hrært saman og sett í skál.
Hrært skyr
1 dós óhrært skyr í ferköntuðum
________dósum. (Það er hið______
________upprunalega skyr).______
1-2 msk. sykur eða meira ef hentar
1-1 ’A dl mjólk
Allt hrært vel saman, helst í hræri-
vél. Borðað með ijómablandi eða tóm-
um ijóma.
Jarðarberjaskyr-
búðingur
1 stórdósjarðarbeijaskyr
________1 lítil dós hreint skyr_
______________2egg____________
1 peli ijómi
1 pk. jarðarbeijahlaup frá Toro
2 'h dl sjóðandi vatn
1. Leysið hlaupduftið upp í helm-
ingi minna sjóðandi vatni en stendur
á pakkanum. Kælið án þess að hlaupi
saman.
2. Hrærið saman jarðarbeijaskyrið,
hreina skyrið og eggin, setjið kalt
hlaupið út í.
3. Þeytið ijómann og setjið saman
við. Hellið í skál og látið stífna.
Ráðgjöf Bókhald Skattskil
Skipholti 50b__si'mi 561 0244 / 898 0244 fax 561 0240
Öll bókhalds- og framtalsþjónusta af bestu gerð
■ Framtöl einstaklinga ■ Ársreikningar ■ Vsk-skýrslur
og fyrirtækja og ráðgjöf og uppgjör
RBS______________________Guniiar Haraldsson hagfræðingur
I DAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STÖÐUMYND A
SVARTUR leikur og
vinnur
Staðan kom upp
á Hoogovens mót-
inu í Wijk aan Zee
í Hollandi sem nú
stendur yfir. Pre-
drag Nikolic
(2.655), Bosníu
var með hvítt, en
heimamaðurinn
Jeroen Piket
(2.640) hafði svart
og átti leik.
29. - Rxg3! 30.
fxg3 — Hde4 31.
H8xc6 — Hxe3
32. Hxe6 - Dd5+
33. Kh2 - Dxe6
34. Db5 - Dg4 35. Hg2 -
e5 36. a4 - Hel 37. Hf2
- De4 38. Hg2 - Hal 39.
Db6 - Hxa4 40. Hf2 -
Dd5 og hvítur gafst upp.
Piket er efstur á mótinu,
heimamönnum til mikillar
gleði. Staðan eftir sjö um-
ferðir: 1. Jeroen Piket, Hol-
landi 5 ‘A v. 2.-3. Ivan
Sokolov, Bosníu og Valery
Salov, Rússlandi 4‘/z v.,
4.-6. Granda Zunjiga,
Perú, Alexander Onísjúk,
Úkraínu og Alex Yermolin-
sky, Bandaríkjunum 4 v.,
7.-9. Joel Lautier, Frakk-
landi, Viktor Kortsnoj,
Sviss og Jan Timman, Hol-
landi 3‘A v., 10.—11. Loek
Van Wely, Hollandi og Pre-
drag Nikolic, Bosníu 3 v.
12. Miguel Illescas—
Cordoba, Spáni 2'A v., 13.
Nigel Short, Englandi 2 v.,
14. Igor Glek, Rússlandi
l’A v.
í B flokki er kornungur
Frakki, Etienne Bacrot
efstur með fjóra vinninga
af fímm mögulegum, á und-
an mörgum stórmeisturum.
Bacrot varð 14 ára í síðustu
viku!
BBIDS
llmsjön Guómundur Páll
Arnarson
í NÝJASTA hefti ítalska
bridsblaðsins segir Dino
Mazza skemmtilega sögu
frá ólympíumótinu á Ródos.
Yfirskriftin er: „Ekki reyna
að kenna Martens," og er
að sjálfsögðu átt við Pól-
veijann kunna, Krzysztof
Martens. Gefum Dino orðið
í þýðingu Þórðar Sigfússon-
ar:
Suður gefur; enginn á
hættu. Norður
4 K
4 G852
♦ DG87
♦ 10653
„Útilokað; það tapast
slagur á hjarta, annar á tíg-
ul og tveir á lauf,“ sagði
áhorfandinn.
„Viltu veðja,“ sagði
Martens og fór svo að rekja
spilið:
„Spaðaútspilið er tekið í
borði, tígli spilað á kóng og
aftur tígli á drottningu og
ás austurs. Sterkasta vöm
hans er að spila trompi, sem
er tekið á kóng. Spaði er
svo trompaður og laufi spil-
að úr borði. Norður dúkkar
(best) og kóngur á slaginn.
Nú er spaðaás trompaður(I),
laufi hent í tígulgosa og síð-
asti tígullinn stunginn:
Norður
♦ -
V G
♦ -
4 1065
Vestur
4 G85
▼ D643
♦ 9653
4 D7
Austur 4 D109743 Vestur Austur
▼ 7 ♦ Á102 4 ÁG8 4 - 4 D10
▼ D64 ♦ - 4 D 111 4 - ♦ - 4 ÁG
Suður
4 Á62
4 ÁK109
♦ K4
4 K942
Þegar Pólveijar vora að
gera upp leik sinn við San
Marino, kom að spili þar
sem Pólverjar höfðu unnið
5 IMPa í þremur hjörtum,
þegar hinir fóra niður í fjór-
um. Þá bar að áhorfanda,
sem sagði: „Það var gott
hjá ykkur að stoppa í þrem-
ur.“
„Alls ekki,“ svaraði
Martens, „fjögur hjörtu
standa á borðinu".
Suður
4 -
4 ÁIO
♦ -
4 94
Nú er bara að spila laufi
og bíða eftir tveimur slög-
um.“
Áhorfandinn gerði upp
veðmálið og gekk burt, en
kom þó strax aftur og
spurði: „Hvemig má það
vera að meistaralið eins og
ykkar skuli stoppa í bút?!“
(En um leið áttaði maður-
inn sig á því að með lauf-
drottningu út hefði hann
unnið veðmáiið.)
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Ósk um lestur
GUÐRÚN Guðmunds-
dóttir hringdi og vildi
koma á framfæri ósk til
Ríkisútvarpsins um að
Ragnheiður Steindórs-
dóttir leikkona verði látin
halda áfram að lesa sög-
una um Kristínu Lafr-
ansdóttur eftir Sigríði
Undset.
Tapað/fundið
Frakki tekinn
í misgripum
Á ÞORRABLÓTI eldri
borgara laugardaginn
25. janúar sl. var dökk-
blár Melka herrafrakki
tekinn í misgripum í Gjá-
bakka. Þetta er mjög
bagalegt því bíllyklar
eigandans vora í vasan-
um. Því era allir herrar
sem fóra af þorrablótinu
í dökkbláum herrafrakka
beðnir um að skoða í
vasana og hafa samband
við Gjábakka í s.
554-3400.
Gæludýr
Kisubörnin kátu
VIÐ ERUM bömin henn-
ar Dimmu, en hún er síð-
hærð lítil og nett. Við
eram rúmlega átta vikna
lubbar, fjörag og snyrti-
leg, og eram vön krökk-
um. Mamma okkar er
lasin og því þurfum við
að komast á heimili hjá
góðum dýravinum og
verðum tilbúin til brott-
farar laugardaginn 1.
febrúar. Fjölskyldan
okkar tekur við umsókn-
um í síma 555-4409 í dag
og næstu daga.
ÞRÍR fallegir kettlingar,
tveir högnar og ein læða,
fást gefins. Sérstaklega
fallegir og kassavanir.
Upplýsingar í síma
566-7562 eftir kl. 5 á
daginn.
Með morgunkaffinu
en það var fyrir fimm árum.
KENNARINN er eitthvað klikkaður. í dag sagði
hann að 40% myndu falla á reikningsprófi, en við
erum bara 26 í bekknum..
Víkveiji skrifar...
IMÖGULEIKHÚSINU við Hlemm
er rekin athyglisverð starfsemi.
Þar er eina leikhúsið á íslandi, sem
heldur uppi reglulegum leiksýning-
um fyrir börn og unglinga, ýmist á
staðnum eða með því að fara með
leiksýningar þangað, sem böm og
unglinga er að finna.
Möguleikhúsið er einkaframtak
nokkurra ungra leikara, sem hafa
komið upp ágætu leikhúsi í hluta
þess húsnæðis, þar sem áður var
bílaverkstæði Sveins Egilssonar hf.
Sú sýningarstarfsemi, sem fram fer
í leikhúsinu, er ótrúlega fjölbreytt.
Þótt meira sé lagt í leiksýningar
fyrir börn og unglinga í Þjóðleikhús-
inu, svo að dæmi sé nefnt, fer ekki
á milli mála, að forráðamenn Mögu-
Ieikhússins halda uppi merkilegri
starfsemi, sem vert er að gefa
gaum. Fátt er skemmtilegra en fara
á leiksýningar fyrir börn, ekki bara
til þess að fylgjast með sýningunum
heldur og ekki síður til þess að fylgj-
ast með viðbrögðum áhorfenda.
xxx
EKKI var við öðru að búast en
flokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins, sem haldinn var sl. laug-
ardag, tæki ákvörðun um að hætta
útgáfu Alþýðublaðsins. Það er í
samræmi við þá þróun, sem orðið
hefur á blaðamarkaðnum, að stjórn-
málaflokkar hafa gefizt upp við
blaðaútgáfu.
Hitt er umhugsunarefni hvers
vegna þeir reyna ekki fyrir sér um
útgáfu tímarita, sem þyrftu ekki
að koma út nema 3-4 sinnum á
ári og gætu verið vettvangur fyrir
dýpri umfjöllun einstakra flokks-
manna um þjóðfélagsmál. Ungir
Sjálfstæðismenn gefa raunar út
tímaritið Stefni af töluverðum
myndarskap. Slík tímaritaútgáfa
getur þjónað ákveðnum tilgangi
fyrir stjórnmálaflokka, þótt hún
tryggi þeim ekki að rödd þeirra
heyrist daglega. En aðrir fjölmiðlar
sjá um þann þátt málsins. Talsmenn
stjórnmálaflokkanna eiga ekki í
neinum vandræðum með að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri,
þótt þeir standi ekki að útgáfu dag-
blaða.
xxx
AÐ ER alltaf eitthvað að ger-
ast, sem minnir okkur með
þægilegum hætti á liðna tíð. Slík
áhrif hafði auglýsing í Morgunblað-
inu í fyrradag á Víkveija. Það var
auglýsing frá Sósíalistafélaginu um
Verkalýðssöngvakeppni. Þátttaka í
keppninni er öllum opin og söngvar
eiga að hafa borizt fyrir 1. febrúar
nk.