Morgunblaðið - 28.01.1997, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 28.01.1997, Qupperneq 56
V 56 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBOND/KVIKMYIVIDIR/UTVARP-SJONVARP „TOM CRUISE er fæddur í sitt hlutverk," í myndinni Sérsveitin. Brellur og brjálæði Sérsveitin (Mission Impossible) Spcnnumynd ★ ★ ★ Leikstjórn: Brian De Palma. Hand- rit: David Koepp og Robert Towne, eftir sjónvarpsþáttunum Mission: Impossible. Kvikmyndataka: Steph- en H. Burum. Tónlist: David Elf- man. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Jon Voight, Emmanuelle Béart, Henry Czerny, Jean Reno, Ving Rhames, Kristin Scott Thomas og Vanessa Redgrave. 106 mín. Banda- ríkin. Paramount Pictures/CIC myndbönd 1996. TOM Cruise er hér í hlutverki leyniþjónustumannsins Ethan Hunt. Njósnararnir hans eru allir drepnir, og eldhuginn Hunt ákveð- ur að finna út hver svikarinn er. Hann fær til liðs við sig tvo náunga sem hafa verið reknir úr leyniþjón- ustunni, og kunna því til verka. Verkefnið er ekki af verri endanum; komast inn fyrir múra CLA, og stela þar tölvudiski. Og trúið mér; það er ekki auðfarin ieið! Eg hef heyrt að aðdáendur sjón- varpsþáttanna séu mjög ánægðir með Sérsveitina enda er hún ekta töff- aramynd þar sem hinum ótrúleg- ustu brögðum er beitt sem aðeins háklassa njósnarar á við James Bond kunna skil á. Það þarf ekki meira en að heyra frábært upphafs- stefið til þess að hrollur fari um mann, og rétta stemmningin skap- ist. Raunar saknaði ég þess að heyra stefið ekki oftar blandað við tónlistina í myndinni eins og gert er í 007 myndunum. Sagan er í engan stað frumleg eða nýstárleg, en það skiptir heldur ekki meginmáli, heldur atriðin sjálf og brellurnar. Það eru mörg snilld- arlega gerð atriði í myndinni. Þau eru mörg bijálæðisleg og vægast sagt misjafnlega trúverðug, en það er eins og njósnamyndir eiga að vera. Veitingahúsaatriðið ber af, og gerir myndatakan þar gæfu- muninn. Myndin gerist að mestu leyti í Prag, sem gefur mörg tæki- færi til fallegrar myndatöku sem De Palma og Burum hafa ekki lát- ið fram hjá sér fara. Borgin með sínum fallegu byggingum kemur mjög vel út, og gerir myndina að miklu augnayndi sem er ekki alltaf takmarkið í njósnamyndum. Myndina prýðir skemmtilegur hópur alþjóðlegra úrvals leikara. Drottningin Vanessa Redgrave er einstaklega vel til fallin í sitt hlut- verk og kemur skemmtilega á óvart. Kóngurinn Jon Voight setur sinn virðingarblæ á myndina og Tom Cruise er fæddur í sitt hlut- verk; hann hefði ekki geta verið betri. Erfitt er að segja að aðrir leikarar fái að njóta sín, nema kannski Jean Reno sem vekur allt- af athygli, og er hér í framhalds- hlutverki úr síðustu mynd sinni Léon. Það sem gerir hinum leikur- unum erfitt fyrir, er takmörkuð persónusköpun, sem er helsti galli myndarinnar. Áhorfandinn fær í hendurnar hrúgu af persónum sem hann kann í raun engin skil á, og myndin gefur ekki tækifæri til að kynnast þeim nánar. Kemur þá fyrst upp í hugann unga eiginkon- an sem Emmanuelle Béart leikur, en hlutverk hennar býður upp á að því séu gerð nánari skil. Sérsveitin markar engin tíma- mót í gerð njósnamynda, og mun seint verða sígilt umræðuefni með- al kvikmyndaunnenda. Hún er hins vegar hin besta afþreying, og frá- bærlega gerð sem slík. Hildur Loftsdóttir MYNPBÖND Leitin að bréf- sprengj u varginum Bréfsprengjuvargurinn (Unabomber: The True Story) Sannsöguleg ★ 'A Leikstjóri: Jon Purdy. Framleið- andi: Frank Fischer. Handrit: John McGreevey. Aðalhlutverk: Robert Hays, Dean Stockwell, Tobin Bell. 82 mín. Bandarísk. Atlantis Releas- ing/Bergvík. 1996. Bönnuð börnum yngrienl6ára. EFTIR 17 ára árangurslausa leit að hinum svokalla ,Unabom- ber“, þeim er sendi fjölda póst- sprengja sem kost- uðu þrjá menn lífíð og slasaði aðra lífshættulega, taldi alríkislögreglan sig hafa loksins fundið hann á síð- asta ári. Sá ákærði er Theodore Kacz- ynski (enn hefur ekki verið réttað yfír honum), einbúi á óbyggða- svæði Montana-fylkis. Bréfsprengjuvargurinn rekur, allt frá upphafi til enda, leit lög- reglumannsins Ben Jeffries (ein- hverra hluta vegna ekki rétt nafn þess sem stjórnaði leitinni í raun) af hinum seka. Þessi mynd sýnir að kvikmyndagerðarmenn vinna Þessi kona er alnafna söngkonunnar heimsfrægu. Ef hún væri ekki með rétt starfsheiti í símaskránni þá ætti hún á hættu að vera ónáðuð af villtum aðdáendum Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu. Björk Guðmundsdóttir landslagsarkitekt Símaskráin 1997 verður í einu bindi og mikil áhersla lögð á að hún innihaldi sem réttastar upplýsingar. Rétthafar síma - jafnt einstaklingar sem fyrirtæki - þurfa sjálfir að óska eftir öðrum breytingum en þeim sem orsakast af flutningi. Vinsamlegast athugið skráninguna og sendið inn breytingar ef með þarf hið fyrsta. Eyðublað er á blaðsíðu 30 í Símaskránni 1996. Upplýsingar eru veittar í síma 550 6620 og faxnúmer er 550 6629. Rétt skal vera rétt! PÓSTUR OG SÍMI HF 1997 MYNDIN um bréfsprengju- varginn er gerð eftir sann- sögulegum atburðum. hraðar en alríkislögreglan. Ekki er liðið ár síðan leitin tók enda en samt hefur verið gerð um hana kvikmynd. Það er augljóst að málið hefur talist einkar áhugavert efni í kvik- mynd en þegar upp er staðið kem- ur í ljós, í það minnsta af þessari mynd að dæma, að það er afar óspennandi. Síendurtekin frásögn af móttökum sprengjanna er þreytandi. Lögreglunni gengur ekkert að finna vísbendingar sem benda á hinn seka og í rauninni bar vinna hennar lítinn ávöxt því það var fyrst og fremst bróður sprengjuvargsins að þakka að leit- in tók enda. Höfundar myndarinnar virðast vinna samviskusamlega úr heim- ildum en efnistökin eru fremur þurr og á köflum ber myndin keim heimildarmyndar eða öllu heldur þáttaraðarinnar 911. Kannski hefði efnið betur hentað slíkum þætti en heilli kvikmynd. Þrátt fyrir það má vel mæla með Bréf- sprengjuvarginum við þá sem fýs- ir að vita meira um eitt sér- stakasta fréttaefni síðastliðins árs. Skarphéðinn Guðmundsson Tungllöggan (Lunar Cop) 'h Fresh (Fresh) ★ ★'A Af hundum og köttum (The Truth About Cats and Dogs) ★★ Stepford eiginmennirnir (The Stepford Husbands) 'h Elst við dreka (Chasing the Dragon) ★V2 Njósnað mikið (Spy Hard) ★ Hvítur maður (White Man) ★ ★V2 Barnfóstruklúbburinn (The Baby-sitters Club) ★ ★ Geggjuð mamma (Murderous Intent) ★‘/2 Bert (Bert) ★ ★'/2 Holur reyr (Hollow Reed) ★ ★ ★ lllt eðli (Natural Enemy) ★‘/2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.