Morgunblaðið - 28.01.1997, Side 57
I
MORGUNBLÁÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997 57 <-
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
l--------------------------------------------------
I
i
í
:
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Alec Guinness
Williams í
átta hlut-
verkum
TIL STENDUR í Hollywood
að endurgera nokkrar kvik-
myndaperlur sem framleiddar
voru af Ealing kvikmyndaver-
inu á fimmta áratugnum. Hef-
ur Robin Williams verið orðað-
ur við aðalhlutverk í kvik-
myndinni „Kind Hearts and
Coronets“. Alec Guinness fór
eins og kunnugt er með aðal-
hlutverk í fyrri gerð myndar-
innar og lék hvorki meira né
minna en átta mismunandi
hlutverk. Einnig er endurgerð
á myndinni „The Lavender
Hill Mob“ í bígerð.
Af presti á Snæfellsnesi
PÉTUR Pétursson hóf íjgær
lestur á ævisögu Arna
Þórarinssonar, Á Snæ-
fellsnesi, sem Þórbergur
Þórðarson færði í letur. Hefur ver-
ið haft fyrir satt að þar hafi leitt
saman hesta sína annars vegar
lygnasti og hins vegar auðtrúasti
maður þjóðarinnar.
Um er að ræða fjórða bindi af
sex. Lestrarnir eru tuttugu talsins
og verða fluttir á virkum dögum í
Ríkisútvarpinu. Blaðamaður tók
Pétur tali af þessu tilefni og hlýddi
á sögur af presti sem rómaður var
fyrir mælsku og frásagnarsnilld.
Vansköpuð af fegurð
„í bók Ríkharðs Jónssonar grein-
ir frá því að Ámi prófastur hafi
verið daglegur gestur á vinnustofu
Ríkharðs," segir Pétur. „í einni
slíkri heimsókn kemur hann auga
á brjóstmynd af manni með pres-
takraga og segir: „Hann er með
prestakraga þessi — hvar var hann
prestur?"
„Ja, hann var prestur fyrir vest-
an á Snæfellsnesinu," svarar Rík-
harður sakleysislega.
PÉTUR Pétursson við styttuna af séra Árna.
„Allan andskotann geta þeir not-
að fyrir prest á Snæfellsnesi," rym-
ur þá í Árna.
Ríkharður kunni fleiri sögur af
Árna. Einu sinni fer hann að spyrja
um konu sem Ámi þekkti, hvort
hún hafí ekki verið falleg.
„Hún var alls ekki falleg,“ segir
þá Árni.
„Ég hef heyrt að hún hafi verið
ákaflega falleg,“ segir Ríkharður
og gefur sig hvergi.
„Hún var ekki falleg," svarar
þá Ámi. „Hún var ægilega fögur.
Það má eiginlega segja að hún
hafi verið vansköpuð af fegurð.“
Pétur hefur áður lesið þijú bindi
sem hefur verið útvarpað eins og
margir hlustendur muna vafalaust
eftir. Lesturinn hefur iðulega fallið
í góðan jarðveg. „Mér þykir vænt
um það, enda er mér nú svolítið
umhugað um sjálfan mig,“ segir
Pétur með glettnissvip.
Faðir minn kominn
í stofuna
„Ég var staddur á Rauðarárstíg
þegar bindinu á undan þessu var
útvarpað og var að bíða eftir stræt-
isvagni. Þá sé ég lágvaxna konu
sem gefur gaum að mér. Hún geng-
ur í kringum mig eins og sagt var
í sögunni um átján barna föður í
álfheimum. Svo spyr hún mig að
heiti. Þegar ég segi það glaðnar
yfir henni, hún þakkar mér fyrir
og segir: „Veistu hvað, stundum
þegar ég var að hlusta á þig lesa
söguna fannst mér eins og hann
faðir minn væri kominn í stofuna."
Þá var þetta Anna, dóttir Áma
Þórarinssonar, og mér þótti ægi-
lega vænt um að heyra þetta. Betri
dóm er vart hægt að fá.“
BÍÓIIM í BORGINIMI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Kvennaklúbburinn ★*,/i
Þrjár góðar gamanleikkonur, Hawn, Midl-
er og Keaton, fara & kostum sem konur
sem hefna sin á fyrrum eiginmönnum
sfnum. Léttmeti.
Lausnargjaldið ★ ★★
Gibson bikur auðkýSng sem lendir I því
að syni hans er rænt Snýr dæminu við
og leggur lausnarféð til höfuðs skálkun-
um. Gibsonmynd í góðum gír.
Blossi ★ Vi
Steven Seagal minnir á feitan jólasvein í
sfnum austurlensku litklæðum og gerist
se ósennilegri hasarmyndahetja með
hvetju árinu.
Hringjarinn í Notre Dame ★★★
Vönduð, falleg fiölskyldumynd byggð á
hinni sígildu sögu um tilvistarkreppu
kroppinbaksins I Frúarkirkju. Litlaus tón-
list, siyöll, íslensk talsetning.
SAMBÍÓIN ÁLFABAKKA
Dagsjjós ★ ★ Vi
Þegar sprenging verður í neðansjávar-
gongum með hroðaiegum afleiðingum,
mætir okkar maður, Stallone, á staðinn.
Og óþarft að spyija að leikslokum.
Ógleymanlegt ★ Vi
Leikstjórinn John Dahl ogLinda Fiorintino
gerajafnlélega sakamálamynd og síðasta,
The Last Seduction var góð.
Lausnargjaldið ★★★ (Sjá Bíóborg-
ina)
Jack ★★•/i
Misteek, sérstæð mynd um grunnskóía-
nema sem eldist á ijórföldum hraða veld-
ur aðdáendum Coppola vonbrigðum en
Robin Williams vinnur vel úr erfiðu hlut-
verki.
Djöflaeyjan ★ ★ ★ Vi
Friðrik Þór, Einar Kárason, óaðfínnanleg-
ur leikhópur og leiktjaldasmiður og reynd-
ar allir sem tengjast Djöflaeyjunni leggj-
sst á eitt að gera hana að einni bestu
mynd ársins. Endursköpun braggalífsins
er I senn fyndin, sorgleg og dramatfsk.
Saga af morðingja ★★
James Woods er eina ástæðan til að sjá
þessa tilfinningasnauöu smámynd um
fangelsisvist og afíöku eins illræmdasta
Ijöldamorðingja í sögu Bandarlkjannna.
Moll Flanders ★★
Áferðarfalleg búningamynd byggð á vin-
sælli sögu Daniels Defoe. Dáðlítil, maður
gæti eins vel flett myndabók.
HÁSKÓLABÍÓ
Dagsjjós ★★V!í
(Sjá Sambfóin, Álfabakka).
Leyndarmál og lygar ★ ★ ★ ★
Meistaraverk frá Mike Leigh um mannleg
samskipti, gleði og sorgir og undarlegar
uppákomur í lífi bresks almúgafólks.
Pörupiltar ★★
fjórir vinir verða fyrir hroðalegri Iffs-
reynslu í æsku. Stekkur áfram um nokk-
ur ár, tími hefndarmnar rennur upp. og
nær sér ekki aftur á strik.
Brimbrot ★★★•/)
Besta mynd Lars Von Tners fjallar um
nútíma píslarvott í afskekktu og þröng-
sýnu samfélagi. Myndin er á sinn hátt
kraftaverk þar sem stórkostlegur leikur
Emely Watson ber langhæst
Hamsun ★★ ★
Vel leikin og skrifuð mynd um efri ár
norska skákjjöfursins Knud Hamsun,
einkum sorgleg afskipti hans afnasistum.
Ein margra mynda uppá sfðkastið sem
líður fyrir óhóflega lengd..
Drekuhjarta ★★
Góðar brellur í lítt spennandi ævintýri
duga ekki til að bjarga handriti sem rek-
ur á reiðanum.
Gosi ★★
Ævintýrið nær ekki Ougi en er prýðileg
skemmtun yngri bíógestum sem rjóta
best ísl. talsetningarinnar.
KRINGLUBÍÓ
t hefndarhug ★★■/)
Alec Baldwin fer vel með hiutvark fyrrum
byttu og lagavarðar sem dregst á ný inni
vafasöm viðskipti við bófa og löggur.
Margt vel gert en fléttumar og persðnum-
ar of margar.
Lausnargjaldið (Sjá Bíóborgin)
LAUGARÁSBÍÓ
Samantekin ráð ★★
Stelpumar í hverEnu taka uppá að ræna
banka og haga sér nákvæm.ega eins og
strákamir í hverfinu.
Eldfim ást ★★
Hrjúf og hrá, svört kómedfa fyrir þá sem
vilja kynnast öðruvfsi, bandariskum kvik-
myndum.
Flótti ★★
Aldrei beint leiðinleg hringavitleysa þar
sem leikstjórinn, Kevin Hooks, nýtir sér
flestar klisjur „ félagamyndanna“ án þess
að bæta miklu við tegundina.
Jólahasar (Sjá Renboginn)
REGNBOGINN
Banvæn bráðavakt **Vi
Haganlega samansett, lítil spennumynd
sem skilurfátt eftiren ergóð ogfagmann-
leg.
Slá i gegn ★★★Vi
Tom Hanks slær í gegn sem handritshöf-
undur, leikari og er litlu síðri í sinu fyrsta
leikstjómarverkefni sem er söguskoðun á
hinum poppaða, sjöunda áratug, á meðan
sakleysið réð ríkjum og tekst að segja það
sem hún ætlar sér áreynslulaust
Jólahasar ★★
Amold misráðinn I enn einu gamanhlut-
verki sem haim ræður ekki við sem skyldi,
á að leika með vöðvunum. Heldur ómerki-
leg, en á sína spretti
Reykur ★★★Vi
Einfaldleiki og góð sögumennska ein-
kenna eina bestu mynd síðari ára oggera
hana að listaverki þar sem Harvey Keitel
hefur aldrei verið betri en tóbakssölumað-
ur „ú hominu“ í New York.
STJÖRNUBÍÓ
Ruglukollar ★★
Skólatnyndir teknar á beinið af öðrum
Zuckerbræðra, útkoman mjög léttvæg
fundin.
Matthildur ★★★
Frábær kvikmyndagerð um hina undur-
samlegu Matthildi, ógeðslega lélega for-
eldra hennar og skólastjórann Frerju -
sem hatar böm sérstaklega.
Djöflaeyjan ★★★,/i (Sjá Sambióin,
Álfabakka
FJÓISKYUMISKEMMIUN
VELDU
GÆÐI
VELDU
DISNEY
Þriðja og síðasta myndin í seríunni
um brjálæðingana Tímon & Púmba er
komin út! Eignastu þærallar. •