Morgunblaðið - 22.04.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997
MORGUNBLADIÐ
:
FRÉTTIR
Sj ó vá-Almennar með 320 milljóna hagnað
Hagnaðurinn j ókst
um liðlega fimmtung
HAGNAÐUR Sjóvár-Almennra trygginga hf.
nam alls 320 milljónum króna eftir skatta á
árinu 1996, en árið áður nam hagnaðurinn 265
milljónum. Markaðurinn var hagstæður félag-
inu á margan hátt á síðasta ári sem kemur
m.a. fram í mikilli fjölgun skírteina í flestum
greinum, bæði á sviði atvinnurekstrar- og
einkatrygginga, þrátt fyrir aukna samkeppni á
vátryggingamarkaðnum, að því er fram kemur
í frétt frá félaginu.
Bókfærð iðgjöld námu 3.790 milljónum og
hækkuðu um 5,4% milli ára. Eigin iðgjöld
námu 2.725 milljónum en þau voru 2.602
millj. árið áður. Sjóvá-Almennar lækkuðu á
seinni hluta ársins iðgjöld í ökutækjatrygging-
um verulega. í ökutækjatryggingum jukust
bókfærð iðgjöld aðeins um 3% þrátt fyrir að
skírteinum hafi fjölgað um 8%. Viðskiptavinum
i Stofni voru endurgreiddar 44 milljónir af
iðgjöldum sínum vegna góðrar afkomu árið
1996.
Bókfærð tjón námu 2.560 milljónum og
hækkuðu um 5,8% milli ára. Eigin tjón námu
2.426 milljónum en þau voru 2.304 millj. árið
áður. Hlutfall hreins rekstrarkostnaðar af eigin
iðgjöldum var 21,9% en var 21,2% árið áður.
Fjármagnstekjur voru 861 milljón en voru 753
milljónir árið áður og hækkuðu um 14,5% á
milli ára.
Eigið fé hækkaði
um 2 milli ára
Hlutafé var í árslok 443 milljónir, en
hluthafar í félaginu voru 458 talsins. Eigið
fé félagsins nam 1.853 milljónum og hækk-
aði um 22% milli ára. Eiginfjárhlutfall í
árslok 1996 var 15%.
í frétt félagsins segir ennfremur að horfur
séu á því að afkoma á yfirstandandi ári verði
lakari en í fyrra. Það er í senn rakið til lægri
iðgjalda í ökutækjatryggingum, víðtækari skil-
mála í fjölskyldutryggingu og hækkunar á
tjónakostnaði vegna breytinga á skaðabótalög-
um. Þá þykja líkur á að tjónaþungi aukist vegna
góðæris í landinu.
Félagið hefur ráðist í ýmsar aðgerðir til þess
að efla samkeppnisstöðu sína og ná fram meiri
hagkvæmni í rekstri. Þar má nefna kaup félags-
ins á Húsatryggingum Reykjavíkur hf. í desem-
ber sl. og kaup á öllum hlutabréfum í Ábyrgð
hf. nýlega en bæði félögin verða sameinuð
Sjóvá-Almennum.
Aðalfundur Sjóvár-Almennra trygginga hf.
verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl nk. kl.
16 á Hótel Sögu. Þar verður lögð fram tillaga
um að hluthöfum verði greiddur 10% arður á
árinu 1997.
Skorinn á
háls með
glasi
RÁÐIST var á hálfþrítugan mann á
veitingahúsinu Kaffibarnum við
Bergstaðastræti aðfaranótt sunnu-
dags, og honum veittur alvarlegur
áverki á hálsi með glasi.
Lögreglu var tilkynnt um árásina
klukkan rúmlega eitt aðfaranótt
sunnudags.
Árásarþolandinn kvaðst hafa ver-
ið inni á staðnum þegar hávaxinn
karlmaður í svörtum leðuijakka með
klút um hálsinn hafði slegið hann
með glasi og síðan með krepptum
hnefa.
Vitni gáfu sig fram sem höfðu séð
atburðinn og kvaðst eitt þeirra hafa
orðið vart við rifrildi á milli málsað-
ila, en árásin hafi verið án sýnilegs
tilefnis.
Flytja varð manninn á slysadeild
enda áverkar hans taldir alvarlegir
í fyrstu, en eftir nánari rannsókn
var hann ekki talinn í lífshættu.
Árásarmaðurinn, sem flúði af vett-
vangi, er tuttugu og sjö ára gamall,
og vissi lögreglan í gær hver hann
er og er málið í rannsókn.
Morgunblaðið/Golli
Ótímabært vorblót
Tekju- og eignaskattsfrumvarpið
Nauðsynleg
ákvæði afgreidd
fyrir mánaðamót
Sexfaldur
lottóvirm-
ingnr
ENGINN var með fimm tölur
réttar í Lottóinu á laugardags-
kvöld, en þá var upphæð
fyrsta vinnings um 19,5 millj-
ónir króna. Potturinn verður
því sexfaldur næstu helgi í
fyrsta sinn í sögu íslenskrar
getspár og býst Bolli Val-
garðsson markaðsstjóri við að
vinningurinn verði 30-35
milljónir.
Tíu manns hlutu hins vegar
bónusvinninginn og fékk hver
rúmlega 130.000 krónur. Um
260 manns hlutu þriðja vinn-
ing, tæplega níu þúsund krón-
ur á mann og 8.845 manns
hlutu fjórða vinning, sex hund-
ruð krónur.
Bolii segir að um 800.000
raðir hafi verið seldar fyrir
Lottóið síðasta laugardag. „En
líkurnar á því að einhver sé
með fimm rétta eru einn á
móti 530.000 röðum. Fyrsti
vinningur hefði því átt að fara
út samkvæmt þessari reikn-
ingsformúlu," segir hann. „Það
sem gerðist hins vegar var að
vinningsmiðinn var prentaður
út á sölustað á höfuðborgar-
svæðinu en sá sem keypti þann
miða, vildi velja tölurnar sjálfur
og lét því ógilda miðann með
vinningstölunum."
Peningaskáp-
ur fannst aftur
VEGFARENDUR í Heiðmörk til-
kynntu í gærmorgun lögreglu um
peningaskáp sem þar lá og bar
hann öll ummerki þess að hafa ver-
ið opnaður af einhveijum sem ekki
þekkti til skápsins.
Þegar málið var kannað kom í
ljós að um var að ræða peningaskáp
sem stolið var frá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda í innbroti í janúar
síðastliðnum. Innbrotið hafði verið
upplýst og skápurinn fundist þar
sem þjófamir skildu hann eftir, á
áðurgreindum stað.
Búið hafði verið að gera sam-
komulag við dráttarbílafyrirtæki
um að koma skápnum til Sorpu,
enda lítt til þess fallinn að sinna
upphaflegu hlutverki sínu.
Starfsmenn fyrirtækisins höfðu
reynt tvívegis í vetur, en þurft frá
að hverfa, að sögn vegna snjóa.
Skápurinn hafði síðan gleymst.
ÖFGAR íslensks veðurfars eru al-
ræmdar og hvort sem sést til sólar
fáein andartök eða ekki sést út
úr augum í hriðarbyl, er öruggast
að spyrja að leikslokum. Þannig
töldu sumir vorið komið á sunnu-
dag, eins og ungmennin sem börðu
trumbur í einkavorblóti á Austur-
ÁÆTLUN Flugleiða komst í samt
lag í gær eftir verkfall flugmanna
hjá félaginu sem stóð í rúman sólar-
hring. Fulltrúar Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna og Flugleiða skrif-
uðu undir nýjan kjarasamning hjá
ríkissáttasemjara um hálftvöleytið
aðfaranótt sunnudagsins. Báðir aðil-
ar hafa lýst sig sátta við samninginn.
Lítið bar á milli samningsaðila
þegar viðræðum var slitið undir
morgun á laugardag en þá hafði
m.a. verið fjallað um nýjar hugmynd-
ir ríkissáttasemjara. Á laugardag
ræddust fulltrúar beggja aðila við,
fyrst á óformlegum fundi hjá sátta-
semjara undir kvöldmat og á form-
legum fundi klukkan 21 þegar sýnt
þótti að takast mætti að ná saman.
Var samningum lokið um klukkan
velli í sólríku en svölu veðri, en
skiptu snarlega um skoðun þegar
snjó tók að kyngja niður í gær uns
jörð var algrá. I raun er ágætt að
hafa þá reglu í huga þegar rætt
er um veðurfar á Islandi, að því
eina sem hægt er að treysta er
að engu er að treysta.
hálftvö. Þórir Einarsson kveðst feg-
inn að þessari deilu sé nú lokið, enda
hafi þarna verið um lengsta fund að
ræða sem hann hefði setið, nærri 40
tíma. Segir hann að það muni um
hvert og eitt mál sem takist að losna
við úr húsinu og nóg sé eftir. Þórir
segir ágreining hafa staðið milli að-
ila þegar fundi var slitið á laugar-
dagsmorgninum, freistandi hafí verið
að reyna að ljúka málinu vegna
þeirra miklu hagsmuna sem voru í
húfi en hvíldin hafi verið öllum nauð-
synleg enda tekið dijúgan tíma að
ljúka samningsgerðinni á laugar-
dagskvöldinu.
„Launaliður samnings flugmanna
Flugleiða hækkar svipað og í flestum
öðrum samningum að undanförnu,"
sagði Kristján Egilsson, formaður
SAMKOMULAG náðist í efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis í gær
um að aðskilja þá hluta tekju- og
eignaskattsfrumvarps ríkisstjórn-
arinnar sem bundnir eru við næstu
mánaðamót frá meginhlutanum og
samþykkja þá þegar í þessari viku.
Ákvæðin sem skilin verða frá varða
breytingar á innheimtuhlutfalli í
staðgreiðslu, persónuafslátt og sjó-
mannaafslátt. Gert er ráð fyrir að
aðrir hlutar frumvarpsins verði
afgreiddir úr nefndinni í næstu
viku.
Á fundi nefndarinnar í gærmorg-
un lögðu stjórnarliðar til að frum-
varpið allt yrði samþykkt í vikunni.
Einar Oddur Kristjánsson, Sjálf-
stæðisflokki, sem er einn nefndar-
manna, segir að meirihlutinn hafi
litið svo á að það væri mögulegt
vegna þess að tillögur ríkisstjómar-
innar hafi þegar verið vel kynntar
FÍA. Samningurinn gildir til 15.
mars 2000. Er hækkunin 4,7% við
undirskrift, 4% um næstu áramót og
3,65% í ársbyijun 1999. Ný ákvæði
komu inn um bakvaktir flugmanna,
næturflug, tryggingamál og útfærslu
á vinnutíma. Þá náðist samkomulag
um umræðugrundvöll vegna samn-
ingsgerðar sem framundan er vegna
Flugfélags íslands verði af rekstri
þess. FÍA hyggst kalla sína menn á
fund á fimmtudagskvöld og verður
samningurinn kynntur og greidd at-
kvæði um hann þar. Kristján segir
að nú liggi fyrir að semja um kjör
flugmanna hjá íslandsflugi, Flugfé-
lagi Norðurlands og flugskólunum.
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra Flugleiða, segir að á annan
tug ferða milli íslands og áfangastaða
og ræddar. Einnig séu litlar líkur á
að Alþingi geti gert stórvægilegar
breytingar á frumvarpinu vegna
þess að það er hluti af samkomu-
lagi ríkisstjómar og aðila vinnu-
markaðarins.
Full sátt í nefndinni
Einar segir þó að full sátt hafi
orðið í nefndinni um það að fresta
samþykki meginhluta frumvarps-
ins, samkvæmt ósk stjórnarand-
stæðinga, eftir að tryggt var að
nauðsynlegir hlutir frumvarpsins
yrðu afgreiddir fyrir mánaðamót.
Ágúst Einarsson, Þingflokki
jafnaðarmanna, sem er varafor-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar, bendir á að frumvarpið
hafí áhrif á skattamál allt fram til
aldamóta og því hafí verið ástæða
til þess að það fengi fulla þinglega
meðferð.
Flugleiða erlendis hafi fallið niður á
laugardag auk alls innanlandsflugs.
Hægt var að koma allmörgum farþeg-
um beint milli Evrópu og Bandaríkj-
anna með öðrum flugfélögum. „Þegar
svo er missa Flugleiðir tekjurnar af
þeim farþegum og það þarf í mörgum
tilvikum að greiða mismun vegna
dýrari fargjalda þeirra félaga. Það
er um stórupphæðir að ræða þegar
við erum að tala um farþega úr heilli
vél, vel á annað hundrað manns og
teljum við að kostnaður vegna verk-
fallsins hlaupi á tugum milljóna
króna,“ segir Einar. Hann segir mikil-
vægt, nú þegar búið er að semja við
flugmenn og flugvirkja, að Ijúka gerð
nýs kjarasamnings við flugfreyjur en
fundir hafa staðið hjá sáttasemjara,
m.a. einn i gær.
Aætlun Flugleiða í samt lag eftir verkfall flugmanna
Ný ákvæði um bakvaktir en
sömu hækkanir og hjá öðrum
I
I
1
I
■