Morgunblaðið - 22.04.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997 49
MARÍA
FRIÐFINNSDÓTTIR
+ María Frið-
finnsdóttir var
fædd í Hafnarfirði
9. júní 1929. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 13.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar Maríu
voru Steinþóra Sig-
ríður Einarsdóttir
og Friðfinnur Guð-
mundsson. Systur
Maríu voru Sigríð-
ur Friðfinnsdóttir
fædd 27. ágúst
1923, látin, og Guð-
björg Friðfinns-
dóttir, fædd 4. marz 1926.
María giftist Ögmundi Jóns-
syni, fæddur 9. ág-
úst 1917, látinn.
Börn þeirra: Guð-
björg Ögmunds-
dóttir, fædd 4. maí
1951, og Jón Finnur
Ögmundsson, fædd-
ur 29. maí 1955,
kvæntur Kristínu
Valsdóttur. Börn
þeirra eru Valur
Kristinn Jónsson,
fæddur 14. október
1984, og Maria
Klara Jónsdóttir,
fædd 15. apríl 1989.
Útför Maríu fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag og hefst athöfnin kl. 15.
Kveðja frá tengdadóttur
Nú er sál þín rós
í rósagarð Guðs
kysst af englunum
döggvið af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti.
(Ragnh. Ófeigsd.)
Elsku María.
Þakka þér fyrir að hafa alltaf
verið til staðar. Þakka þér fyrir
ástúð þína og umhyggju í okkar
garð. Eg kveð þig með söknuði.
Kristín.
Amma María er dáin.
Af hveiju, af hveiju þurfti hún
að fara svona snemma til Guðs?
Við sem áttum eftir að gera svo
margt saman. Okkur langar að
kveðja hana og þakka fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum með
henni. Hún var alltaf svo góð við
okkur og vildi allt fyrir okkur gera.
Hjálpaði okkur við heimanámið og
las fyrir okkur. Fór með okkur í
göngu, sund og hjólaferðir. Og hún
bakaði bestu pönnukökur í heimi.
Og alltaf máttum við sofa heima
hjá ömmu Maríu. Það verður skrítið
lífið án ömmu Maríu. Skrítið að
labba heim úr skólanum og sjá
hana ekki sitjandi í garðstofunni
sinni og veifa til okkar er við löbb-
um framhjá. Við vitum að nú líður
henni vel af því að nú er hún kom-
in til Guðs. Vitum að hún mun allt-
af fylgjast með okkur og passa
okkur.
Elsku amma María, við munum
alltaf sakna þín.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfí Jesú þér ég sendi
bæn frá mínu bijósti sjáðu
blíði Jesús að mér gáðu.
(Ásmundur Ein.)
SIGRIÐUR ANNA
STEFÁNSDÓTTIR
+ Sigríður Anna
Stefánsdóttir
fæddist á Skúfs-
stöðum í Hjaltadal
7. desember 1911.
Hún lést á dvalar-
heimilinu Dalbæ á
Dalvík 14. janúar sl.
Anna var elst átta
barna ly'ónanna
Rannveigar Jóns-
dóttur og Stefáns
Rögnvaldssonar.
Eftirlifandi eru
fimm systkinanna.
Árið 1945 giftist
Anna Gunnlaugi
Tryggva Kristinssyni, f. 21.
október 1916, d. 30. desember
1975, frá Hjalla á Dalvík og
bjuggu þau lengst af á Karls-
braut 24. Einkadóttir þeirra er
Jóhanna, f. 28. desember 1944.
Útför Önnu fór fram frá
Dalvíkurkirkju 24. janúar sl.
Kær mágkona hefur kvatt, sjúk-
dómsstríðinu er lokið. Kynni okkar
eru orðin löng, hafa staðið í meira
en hálfa öld. Fundum okkar bar
fyrst saman er ég var barn að aldri
og hún kom inn í okkar fjölskyldu
sem eiginkona elsta bróður míns,
Gunnlaugs. Hún reyndist mér strax
vel og bar aldrei skugga á okkar
kynni.
Minningar streyma fram, allar á
einn veg. Það var þessi mikla um-
hyggjusemi og góðvild í annarra
garð, sem einkenndi Önnu. Alltaf
yar munað eftir afmælisdögum eða
öðrum tilefnum, nú síðast fyrir jólin
er hún var þrotin að kröftum og
gat ekki skrifað, bað hún um að
við fengjum jólakveðju í útvarpið.
Anna var mjög gestrisin. Hún
var flink í matartilbúningi og kom
það oft á óvart hvernig hún gat
útbúið veisluborð af litlum efnum.
Þegar samgöngur við
Ólafsfjörð breyttust til
hins betra með tilkomu
ganga gegnum Ólafs-
ijarðarmúiann var það
henni mikið ánægju-
efni að fá vini og kunn-
ingja í kaffísopa, bæði
frá Ólafsfirði og Siglu-
firði, en á Siglufirði
hafði Anna einmitt
starfað alllengi.
Þau hjón Gunnlaug-
ur og Anna voru sam-
hent um að búa þeim
fallegt og snyrtilegt
heimili. Gunnlaugur
var fyrst á sjónum, en stundaði
seinni árin verkamannavinnu. Hann
var dagfarsprúður maður, léttur í
lund og hugsaði vel um að afla fyr-
ir heimilið.
Anna fór ekki varhluta af sorg-
inni. Auk þess að missa eiginmann-
inn á sextugasta aldursári, missti
hún tvo bræður sína í sama sjóslys-
inu 1963 og nokkrum árum seinna
ungan systurson sem fórst af slys-
förum og var þeim hjónum afar
kær. En Anna var trúuð kona og
æðraðist ekki. Eftir andlát Gunn-
laugs bjó hún áfram með dóttur
sinni og nú tók hún bræður sína í
fæði til að afla sér tekna: Mikla
TöuunfflÐ owm A0 sjfl um
tMINMWM
JIÖTÍL ÖOK
HÍÍTHUÍIÍIIÍT • (flf{
Upplýsingar i s: 551 1247
MIIMNIIMGAR
Við þökkum elsku Ömmu Maríu
fyrir allt. Guð blessi minningu
hennar.
Valur og María Klara.
Við fráfall Maríu Friðfinnsdóttur
nem ég staðar til að kveðja og
þakka, þakka góð og göfug kynni.
María var mikilhæf kona. Þann
tíma, sem við störfuðum saman,
urðu mannkostir hennar mér æ
ljósari. Hún var bráðgreind, yfir-
veguð, hjartahlý og hjálpsöm. At-
hafnasöm var hún, vel verki farin
og drífandi. Allt lék henni í hönd-
um, enda var hún eftirsótt til
starfa, víkingur að dugnaði.
í sjónarmiðum var hún ákveðin,
föst fyrir og glögg. Allar línur voru
hreindregnar hjá henni og kringum
hana var engin lognmolla eða hálf-
gildings sjónarmið, hún var einlæg
og heilsteypt í öllu. Ætíð var hún
fús að skoða viðhorf annarra. Þann-
ig gátum við jafnan rætt hvað sem
var opinskátt og einlægt, þó okkur
kynni að greina á í sjónarmiðum.
Einn meginburðarásinn í lífí hennar
var trúin, hún var sterktrúuð.
María var mikil móðir. Ekki
sleppti hún hendinni af börnunum
sínum, þó hún yrði einstæð, heldur
barðist og vann til að geta tryggt
þeim skólagöngu og framtíðar-
grundvöll á að standa. Enda eru
þau vel heppnuð og farsæl. Hún
gaf þeim allar hinar bestu dyggðir
í veganesti út í lífið. En nú er hún
horfin, og blessuð sé minning henn-
ar.
Kæra Guðbjörg og nafni minn,
Jón Finnur. Þið eigið alla samúð
okkar hjónanna við fráfall ástkærr-
ar móður ykkar. Guð styrki ykkur
og blessi. Hlý samúð er einnig send
öllum öðrum ástvinum, ættingjum
og vinum hennar. í ljóma ljúfra
minninga lítum við fram til endur-
fundanna á landi lifenda.
Sólveig,
Jón Hjörleifur Jónsson.
umhyggju sýndi Anna öldruðum
foreldrum sínum og taldi ekki eftir
sér að hlúa að þeim.
Anna gekk í kvennadeild Slysa-
varnafélagsins á Dalvík og starfaði
þar ötullega. Anna flutti ung með
foreldrum sínum í Skeggstaði í
Svarfaðardal, en þaðan var faðir
hennar ættaður. Síðan lá leiðin til
Dalvíkur, þar sem hún bjó alla tíð
síðan. Hún fór snemma að heiman
að vinna fyrir sér og var komin í
vinnumennsku innan við fermingu
á Hrafnsstöðum í sömu sveit.
Önnu verður sárt saknað er við
fjölskylda mín komum norður næst
en það var frá fyrstu tíð fastur lið-
ur _að gista hjá þeim hjónum.
Á kveðjustund er okkur öllum
efst í huga þakklæti fyrir allar góð-
ar stundir. Ég vil einnig þakka
henni hlýhug og góðvild við aldraða
móður mína, sem var orðin ekkja
þegar þær kynntust.
Eg bið Önnu Guðs blessunar í
nýjum heimkynnum og bið Guð að
styrkja Jóhönnu á komandi tímum.
Elín S. Kristinsdóttir.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN GUNNLAUGSSON
læknlr,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarnesskirkju
miðvikudaginn 30. apríl kl. 15.00.
Karen Oktavia Kaldalóns Jónsdóttir, Henrik Friis,
Þorbjörg Kaldalóns Jónsdóttir Balys,
Elsa Kirstín Kaldalóns Jónsdóttir,
Sólveig Kaldalóns Jónsdóttir,
Gunnlaugur A. Jónsson,
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson,
Margrét Kaldalóns Jónsdóttir,
Þórhallur Kaldalóns Jónsson,
Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson,
Helge Grane Madsen,
Guðrún H. Brynleifsdóttir,
Helga Kristinsdóttir,
barna- og barnabarnabörn.
Gunnþóra Ólafsdóttir,
Berglind Gunnarsdóttir,
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
VILBORG SIGURRÓS
ÞÓRÐARDÓTTIR,
Kambsvegi 17,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavikur laugardaginn
19. apríi sl.
Dóra S. Jónsdóttir, Magnús Magnússon,
Edda Björg Jónsdóttir, Jón Ingi Sigurmundsson,
Ragna Kristln Jónsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
t
Elskulegur sambýlismaður minn, sonur, faðir
og fósturfaðir,
JÓHANNES ÞÓR JÓNSSON,
Hraunbæ 162,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. apríl.
Sæunn Guðrún Guðmundsdóttir,
Sigurveig Jóhannesdóttir,
Helga Sólveig Jóhannesdóttir,
Jóhanna Steinunn Jóhannesdóttir,
Jón Ólafur Jóhannesson,
Gunnhildur Ásta Gunnarsdóttir,
Guðrún Rósa Gunnarsdóttir,
Elberg Þorvaldsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRÐUR M. KRISTENSEN,
Bogahlíð 22,
lést á Kumbaravogi laugardaginn 19. apríl.
Kristín Eiríksdóttir,
Kristján Þórðarson,
Ásdís Þórðardóttir, Eliert Karlsson,
Anna Marfa Þórðardóttir,
og barnabörn.
- t
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁGÚSTA ÁGÚSTSDÓTTIR,
sem andaðist á Reykjalundi 12. aprll, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22.
apríl kl. 13.30.
Þeir sem vildu heiðra minningu hennar eru
beðnir að láta Oddssjóð á Reykjalundi njóta
minningargjafa (sími 566 6200).
(ris Ástmundsdóttir,
Ástmundur Agnar Norland,
Guðlaug Ástmundsdóttir, Níels Indriðason,
Björn Ástmundsson, Guðmunda Arnórsdóttir,
Ásta I. Ástmundsdóttir, Örn Sigurðsson,
börn og barnabörn.