Morgunblaðið - 01.05.1997, Page 1
96 SIÐUR B/C
97. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR1. MAÍ1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Persson
fær morð-
hótanir
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur á nýjan leik borist
morðhótun frá samtökum sem
nefna sig „Við sem byggðum Sví-
þjóð“. Þau sendu honum morðhót-
anir í lok síðasta árs og komu
ennfremur fyrir sprengihleðslum í
verslanamiðstöðvum, að því er seg-
ir í Aftenposten.
Hótunin nú tengist 1. maí-
hátíðahöldum en Persson verður
ræðumaður í göngu í Gautaborg.
Var sent bréf til Göteborgs-Posten.
„Svíþjóð — sökkvandi skip“ eru
upphafsorð bréfsins. „Nú eru liðnir
fjórir mánuðir frá því að við kröfð-
umst ákveðinna aðgerða af hendi
stjórnar jafnaðarmanna, með
sprengjuhótunum. Með sínum
vanalega hroka hefur forsætisráð-
herrann, Göran Persson, hunsað
okkur.“ Þvínæst segir að öflug
sprengihleðsla muni springa nærri
honum.
Sænska öryggislögreglan telur
fullvíst að stór hluti þeirra sem
standa að baki þessum hótunum
séu ekki heilir á geði. Þær upplýs-
ingar sem hópurinn hefur gefið um
sig er að í honum séu aðallega elli-
lífeyrisþegar úr verkamannastétt.
Nýtt bólu-
efni ver
apa gegn
alnæmi
Fíladelfía. Reuter.
VÍSINDAMÖNNUM í Banda-
ríkjunum hefur tekist að búa
til bóluefni, sem ver sjimpansa
gegn alnæmisveirunni. Skýra
þeir frá þessu í nýjasta hefti
af tímaritinu Nature Medicine
og telja, að þetta muni ryðja
brautina fyrir sams konar
bóluefni fyrir menn.
David Weiner, einn vísinda-
mannanna, sem starfa við
Pennsylvaniu-háskóla, sagði,
að bóluefnið byggðist á svo-
kallaðri DNA-tækni og með
því hefði tekist að vetja tvo
sjimpansa. Voru þeir
sprautaðir með mjög stórum
skammti af alnæmisveirum og
voru jákvæðir sex til átta vik-
um síðar. Var við því búist
enda er gangurinn yfírleitt sá
með önnur bóluefni en 11
mánuðum síðar fundust engin
ummerki um veiruna.
Bóluefnið er gert úr 75%
af erfðaefni alnæmisveirunnar
og er það „veikt" og sprautað
í sjúklinginn. Örvar það
ónæmiskerfið, mótefnamynd-
un og átfrumur, sem leita
uppi og ráðast gegn veirunni
inni í frumunum. Þetta er
sama ferlið og þegar notaðar
eru lifandi en veiktar veirur
en Weiner segir, að sá sé
munurinn, að engin hætta sé
á, að DNA-bóluefnið geti
breyst í smitefni.
Morgunblaðið/RAX
Hugsanlegt að 18 ára valdatíð breska Ihaldsflokksins ljúki í dag
Kannanir benda til stórsig-
urs Yerkamannaflokksins
London. Morgunblaðið.
EINNI lengstu kosningabaráttu þessarar aldar
er lokið á Bretlandi og leiðtogar flokkanna hafa
sagt sitt síðasta orð áður en breskir kjósendur
ganga að kjörborðinu eftir linnulitla kosninga-
fundi í sex vikur. Notuðu John Major forsætis-
ráðherra og Tony Blair, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, tækifærið í gærkvöldi til að höfða til
óákveðinna kjósenda. Þeir sögðu, að úrslitin
væru ekki ráðin en skoðanakannanir benda hins
vegar til þess gangstæða. Samkvæmt þeim er
útilokað, að íhaldsmönnum takist að vinna upp
forskot Verkamannaflokksins og voru frétta-
skýrendur þeirrar skoðunar, að eini óvissuþáttur-
inn væri hversu stóran meirihluta Blair fengi í
neðri deild breska þingsins.
Stórsigur blasir við Blair þótt skoðanakönnun
dagblaðsins The Daily Telegraph, sem birtist í
dag, bendi til þess, að forskot Verkamanna-
flokksins á íhaldsflokkinn hafi minnkað. Blair
skoraði í gær á stuðningsmenn sína að slaka
hvergi á.
Hvatningar leiðtoganna
John Major sagði í gær, að örlög Bretlands
myndu ráðast í dag og biðlaði til kjósenda: „Ekki
Munurinn á stóru
flokkunum 10 til 20
prósentustig
kasta því sem við höfum afrekað á glæ í augna-
blikskæruleysi," sagði forsætisráðherrann og
bætti við, að kosningabarátta Verkamanna-
flokksins væri eitt blekkingarbragð.
Major neitaði í gær að horfast í augu við
það, að sennilega væri 18 ára valdatíð Ihalds-
flokksins á enda en Robin Oakley, fréttamaður
BBC, breska ríkisútvarpsins, sagði í samtali við
Morgunbiaðið, að á undanfömum tveimur sólar-
hringum hefði íhaldsleiðtoginn gert sér grein
fyrir því að úrslitin væru ráðin og allt hans fas
bæri því vitni. Blair varaði sína stuðningsmenn
enn einu sinni við því að sofna á verðinum en
á blaðamannafundi sínum í gærmorgun gat
hann ekki varist brosi þegar spurt var um vænt-
ingar hans. „Það væri ekki of djúpt í árinni tek-
ið að segja að ég fyndi til eftirvæntingar." Þetta
er það næsta sem hann hefur komist því að
hrósa sigri.
Paddy Ashdown, leiðtogi frjálslyndra demó-
krata, var kokhraustur í gær og sagði, að í vænd-
um væri tímamótasigur flokks síns. Hann neitaði
þó að segja hvað hann gerði sér vonir um að
vinna mörg sæti en flestir eru sammála um að
færri en 30 megi túlka sem ósigur fyrir hann.
Munurinn 10 til 20 stig
Samkvæmt skoðanakönnunum í Daily Tel-
egraph nýtur Verkamannaflokkurinn fylgis 46%
og íhaldsflokkurinn 33% og er munurinn sýnu
minni en í skoðanakönnun í sama blaði í gær.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem Guardian birti
í dag er munurinn aðeins 10 prósentustig. Sá
munur myndi hins vegar nægja Verkamanna-
flokknum til að ná 50 sæta meirihluta. Skoðana-
kannanir, sem greint var frá í gærkvöldi, sýna
allt frá 10 til 20 prósentustiga mun. Verði mun-
urinn 12 prósentustig er Verkamannaflokknum
spáð 150 sæta meirihluta og standist sú könn-
un, sem sýnir 20 prósentustiga mun, mun Verka-
mannaflokkurinn ná 285 sæta meirihluta sam-
kvæmt útreikningum BBC.