Morgunblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 15
LANDIÐ
Könnun á bú-
rekstri á Ströndum
UM þessar mundir eru bændur í
Strandasýslu væntanlega að ljúka
við að fylla út spurningalista sem
Héraðsnefnd Strandasýslu sendi
þeim nýverið. Spurt er um allar
hliðar búreksturs og er þess vænst
að með þessum hætti fáist skýr
heildarmynd af búskap í sýslunni.
Hér er um að ræða hluta af
víðtækri könnun á möguleikum
Strandamanna til að hasla sér
völl í lífrænum eða vistvænum
búskap. Að könnuninni standa
Héraðsnefnd Strandasýslu og at-
vinnufulltrúi Vestfjarða með fjár-
hagsaðstoð frá Byggðastofnun og
Áformi, átaksverkefni Bænda-
samtaka íslands.
í frétt frá Héraðsnefnd
Strandasýslu segir að þar í sýslu
séu möguleikar á öðrum búskap
en sauðfjárbúskap takmarkaðir
ekki síst vegna fjarlægðar frá
þéttbýliskjörnum. Þetta þýði jafn-
framt að fjarlægðin frá megin-
uppistöðum mengunar sé mikil og
héraðið ætti því að henta tiltölu-
lega vel til að sinna kröfum mark-
aðarins um hreinar landbúnað-
arafurðir. Sauðfjárrækt á Strönd-
um hafi einnig haft lítil kynni af
sauðljársjúkdómum og ofbeit sé
ekki vandamál.
í fljótu bragði virðast á Strönd-
um jafnvel möguleikar á að koma
upp lífærnu samfélagi (eco-vil-
lage) þar sem öll umgengni við
náttúruna lyti lögmálum sjálf-
bærrar þróunar. Allar þessa þætti
sé verið að athuga nú, bæði innan
héraðs og með því að safna saman
upplýsingum sem gætu nýst
bændum við að gera upp hug sinn
til þessa möguleika í landbúnaði.
Stefnt er að því að vinnu við
verkefnið ljúki í sumar með út-
gáfu skýrslu sem ætti að nýtast
bændum sem handbók. Þar ættu
þeir að geta nálgast á einum stað
upplýsingar um reglugerðir, vott-
unarstofur, lífræn aðföng og bú-
hætti, aðgang að sláturhúsum og
markaðs- og sölumál auk annarra
upplýsinga sem gætu gagnast
þeim sem hafa áhuga á að breyta
búskaparháttum sínum.
Kirkjuskólaböm frá ísafirði
heimsóttu Flateyri
Flateyri - Fyrir nokkru renndu í
hlað fyrir framan Flateyrarkirkju
tvær fullar rútur. Hér voru á ferð
kirkjuskólabörn frá ísafirði ásamt
foreldrum í vorferðalagi kirkjuskól-
ans, komin í þeim tilgangi að halda
sameiginlegan kirkjuskóla með ung-
viðinu á Flateyri.
Eftir að hafa komið sér fyrir í
kirkjunni tóku bæði börn og foreldr-
ar undir í söng og hlýddu á guðs-
orð, sem sr. Gunnar Björnsson flutti.
Að messu iokinni var boðið upp á
hressingu.
ÞAU skemmtu sér vel krakkarnir frá ísafirði.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
STOFNENDUM Björgunarsveitarinnar Oks í Borgarfirði var sérstaklega boðið í 30 ára afmælishófið.
Björgunar-
sveitin Ok
30 ára
Grund - Björgunarsveitin Ok í
Borgarfirði varð 30 ára í febrúar-
mánuði sl. en haldið var upp á
afmælið í Logalandi 19. apríl sl.
Opið hús var í nýju björgunar-
sveitarstöðinni í Reykholti og þar
fór fram vígsla hússins sem sr.
Geir Waage framkvæmdi. Með
tilkomu nýja hússins gjörbreytist
aðstaða björgunarsveitarinnar til
að halda við og geyma tæki og
búnað.
Um kvöldið var boðið til mynd-
arlegs afinælishófs í Logalandi.
Stofnfélögum var sérstaklega
boðið og kom góður hópur þeirra
sem stofnuðu sveitina fyrir 30
árum en stofnendur voru 48. Af
þeim eru nú 9 látnir.
Núverandj formaður, Björn
Björnsson I Ásbrún í Bæjarsveit
setti hófið cn fól síðan Þorvaldi
Jónssyni, Brekkukoti, veislustjórn
en hann flutti jafnframt ágætan
annál sveitarinnar sl. 30 ár. Á
þessum 30 árum hafa verið fjórir
formenn, fyrstur var Jón Þóris-
son, kennari í Reykholti, sem var
í forystusveit þeirra sem undir-
bjuggu stofnun sveitarinnar.
Næstur var Þorvaldur Jónsson,
Brekkukoti, siðan Bjarni Áskels-
son, sem þá bjó að Laxeyri, og
nú Björn Björnsson.
AHtígarðínn
Garðverkfæri, garðáhöld og fatnaður
H Hjólbörur FISKARS 75 Itr. 5.689- g Mosatætarar, 930-
H Limgerðisklippur STIGA 360W, 8.950- g Garðslöngur, 25m, 1.332-
H Slönguvagnar UNIFLEX, 3.408- B Garðhanskar, herra, 244-
H Strákústar m.skafti, TILBOÐ: 671- H Garðhanskar, dömu, 237-
1 Stunguskóflur AKTIV, TILBOÐ: 1.490- 1 Vinnuskyrtur, 1.290-
■ Bílaþv.kústar, 1,5m, TILBOÐ: 3.121- 1 Gallabuxur 2.197-
Opið laugardaginn 3. maí frá 10-16
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 552-8855, grænt númer 800-6288.
SmtriJerðimar
BORGA SIG!
vöfalt verögildi - margföld ánægja
Þótt flestar stóru ferðirnar okkarséu uppseldar í ár og hafi
aldrei fengið aðrar eins viðtökur, getur alltaf fallið úr sæti,
svo ekki sakar að taka upp símann og spyrja.
Auk auglýstu ferðanna erum við með fjölda annarra
í gangi um allan heim:
Fa
til
til Austurlanda
aghópa um allar trissur, t.d. til Asíu, Afríku og allt
il Astralíu, og ummælin eru mjög lofandi, farþegarnir eru
í sjöunda himni yfir að fá svo góða þjónustu á jafngóðum
kjörum.
íglingar í Karíbahafi - sérgrein okkar
50 manna hópur er á förum með vinsælum fararstjóra.
Aldrei meira pantað í Karíbahafið, allt fram á mitt næsta
ár. Fullt af fólki að halda upp á tyllidaga, afmæli eða í
brúðkaupsferðum.
G^ottþéttar nýjungar í Karíbahafi -
SIGLING + 5 STJÖRNU HÓTEL - sértilboð.
Nú er lagið að huga að ferðum haustsins og næsta árs, en
þá verða ýmsar spennandi nýjungar, s.s. Suður-Ameríka,
Austur-Afríka með KENYA OG TANZANIU o.m.fl. sem stendur
uppúr ferðaflórunni hér.
BÓKUIMARSTAÐA Á FERÐUM ÁRSIIVS:
rí/fnattreisa - umhverfis jörðina á suðurhveli -
á 33 dögum - uppseld, en spyrjið um biðlistann!
íS^statöfrar Ítalíu
9. ágúst uppseld - en 2 sæti óstaðfest!
^Oöfrar 1001 nætur í Austurlöndum
4. okt., 20 dagar, 2 sæti. laus!
Glæsilegasta Austurlandaferð sem nokkru sinni hefur boðist
á frábæru verði: KUALA LUMPUR, VIETNAM, „HÖLL GYLLTU
HESTANNA", glæsilegasti frí- og hvíldarstaður heimsins,
RIVIERA BAY RESORT,
MALACCA, „AUSTURLANDA-
HRAÐLELSTIN", SINGAPORE
og í lokin DUBAI eins og
gimsteinn við PERSAFLÓA,
LONDON.
Austurstræti 17, 4 hæð , 101 ttcykjavik.
simi 562 0400, fax 562 6564
FERÐASKRIFSTOFAN
IPIVIMA“
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS