Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forsætisráðherra segir auknar líkur á afgreiðslu lífeyrissjóðafrumvarps
Umsögii ASÍ o g VSÍ ýtir
undir sátt í lífeyrismálum
Ishrun
tefur
„VIÐ leggjum ekki fram beinar til-
lögur um hvemig eigi að taka á stöðu
þeirra sem hafa greitt um lengri tíma
til séreignarsjóða og aðlögun þeirra
að nýju kerfi, en það er eðlilegt að
skoða mál þeirra sérstaklega. Við
göngum eftir sem áður út frá 10%
iðgjaldi af heildarlaunum í sam-
tryggingarsjóði og afstaða okkar til
yfirlýsingar forsætisráðherra þess
efnis er óbreytt," sagði Grétar Þor-
steinsson, forseti Alþýðusambands
íslands, í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði umsögn ASÍ og VSÍ um lifeyr-
issjóðafrumvarpið til þess fallna að
ýta undir að sættir tækjust í lífeyr-
ismálum en yfirlýsing stn stæði efn-
islega óbreytt. „Þessi umsögn eykur
líkur á að lífeyrissjóðafrumvarpið
nái fram að ganga á þessu þingi,“
sagði forsætisráðherra.
í sameiginlegri umsögn ASÍ og
VSÍ um lífeyrissjóðafrumvarpið seg-
ir að samtökin telji eðlilegt að skoða
sérstaklega stöðu þeirra sem til
lengri tíma hafi einvörðungu greitt
í séreignarsjóði að verulegu leyti og
aðlögun þeirra að nýju kerfi. Um
þetta þurfi að setja nánari reglur
sem tryggi að lífeyrir þeirra nái að
minnsta kosti tilteknu lágmarki.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði f samtali
við Morgunblaðið í gær að með þessu
væri opnað á það gagnvart þessum
hópi, þ.e. þeim sem greitt hefðu til
séreignarsjóða í lengri tíma, að ýta
til hliðar kröfu um að allir launþegar
greiði 10% af launum í sameignar-
sjóði.
Aðspurður hvort ASÍ og VSÍ væru
með þessu að leysa ríkisstjómina frá
yfirlýsingu um að tryggt verði for-
ræði hinna almennu lífeyrissjóða á
Á lista nýnasista
yfir óæskilega
einstaklinga
NORSKIR nýnasistar eru með nafn
íslensks blaðamanns, Kristjáns
Guðlaugssonar, á lista yfir óæski-
lega einstaklinga. Kristján hefur
verið blaðamaður í Noregi í 12 ár,
mikið skrifað um málefni innflytj-
enda og verið talsmað-
ur þeirra opinberlega.
Nafnalistinn fannst
síðasta laugardag þeg-
ar 7 manna hópur ný-
nasista í Stavangri var
handtekinn. „Ég læt
mér fátt um finnast en
það sem er kannski
óhugnanlegast er að
það eru tengsl á milli
þessara hópa og hægri
flokka sem bjóða fram
í þingkosningum hér,“
segir hann.
Kristján, sem vinnur
hjá Rogalands Avis,
beindi sjónum almenn-
ings að starfsemi ný-
nasistahópsins fyrir
rúmum þremur árum þegar hann
rakst á tilkynningu þar sem ungt
fólk í Noregi er hvatt til þess að
fylgja Hitler og koma svertingjum
fyrir kattamef. „Á miðanum var
númer á pósthólfí svo ég skrifaði
bréf og bað þá um að hringja, sem
þeir gerðu. Eg fór síðan og talaði
við þá. Þeir voru með svartar lamb-
húshettur með gati fyrir augu og
munn svo ég sá ekki framan í þá.
Skömmu síðar hringdu þeir í mig,
sögðust ekki ánægðir með viðtalið
sem birtist og að ég hefði gert
minna úr þeim en efni stóðu til.
Eftir það byrjaði ég að fá símhring-
ingar og bréf þar sem þeir sögðust
vita ýmislegt um mig og að ég
yrði ekki langllfur," segir Krislján.
Borgarstjórinn, kristniboðar
og biskupar
Leiðtogi umrædds nýnasista-
hóps er jafnframt talsmaður Ku
klux klan í Noregi og var settur
inn í fyrra fyrir að ráðast inn í
verslun sem selur vopn og stinga
eigandann með hnífi. Leiðtoginn
strauk úr fangelsi í vor og þegar
hann var handtekinn ásamt fleir-
um á laugardaginn var fannst list-
inn.
Auk Kristjáns eru á blaði borgar-
stjórinn í Stavangri, sem lagði bann
við starfsemi samtaka nýnasista í
borginni fyrir rúmu ári, og norskir
kristniboðar, sem
starfað hafa í ísrael.
Hafa þeir þegar orðið
fyrir barðinu á hópn-
um. „Liðsmenn nýnas-
ista hafa málað haka-
krossa og svívirðingar
á borð við „gyðinga-
svin“ á veggi þar sem
ísraelska trúboðið er
til húsa,“ segir Krist-
ján
I Noregi starfa, að
hans sögn, margir
hægri hópar, sem hafa
kveikt í heimilum fyrir
flóttamenn og sprengt
upp moskur og sýna-
gógur í Noregi. Jafn-
framt eru þeir í tengsl-
um við djöfladýrkendur, sem hafa
brennt 14 kirkjur á undanfömum
árum.
Kristján segir að lögreglan hafi
ekki viljað tilgreina í hvaða röð
„hinir óæskilegu" eru á listanum
eða gefa frekari upplýsingar.
„Þarna voru líka nöfn allra bisk-
upa, af einhveijum ástæðum, og
einnig koma fram heimilisfang,
símanúmer, vinnustaður og fjöl-
skylduhagir, til dæmis hvort við-
komandi á barn og á hvaða aldri
það er.“
Þótt Kristján segist láta sér fátt
um fínnast varð eiginkonu hans illa
við en þau eiga tíu ára son. „Þetta
fólk hefur bæði drepið og kveikt í
húsum svo maður veit aldrei hvað
því dettur næst í hug,“ segir hann.
Kristján frétti af listanum þegar
blaðamaður frá Verdens Gang
hringdi I hann á laugardaginn og
fékk málið mikla umfjöllun I norsk-
um dagblöðum, sjónvarpi og út-
varpi að hans sögn.
Segir Kristján loks að lögregla
telji ekki ástæðu til þess að hann
r\jóti sérstakrar vemdar og að hann
reikni með að það sé rétt mat.
Kristján
Guðlaugsson
10% sameiginlegu framlagi vinnu-
veitenda og launþega kvað Grétar
Þorsteinsson nei við. „Við erum ein-
faldlega að segja að leysa þurfi mál
þessa hóps. Miðað við skýrslu Seðla-
banka íslands vom reglulegir greið-
endur I séreignarsjóði innan við þijú
þúsund talsins árið 1995. Einhveijir
þeirra greiddu til sjóðanna umfram
10% skylduiðgjald I sameignarsjóði,
svo þeir sem eingöngu greiddu til
séreignarsjóða eru eitthvað færri.
Það er þessi hópur sem við viljum
líta til. Hins vegar erum við ekki
að opna fyrir að aðrir geti hafið
greiðslu 10% iðgjalds til séreignar-
sjóða, enda er undirstrikað I umsögn
okkar að gengið verði út frá að það
iðgjald renni til samtryggingar."
Grétar kvaðst ekki geta fullyrt
hvort afstaða ASÍ og VSÍ að þessu
leyti gæti greitt fyrir því að sátt
næðist um frumvarpið, en vonandi
yrði hún þó lóð á þá vogarskál.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
sagði umsögn ASI og VSÍ merkilega
og til þess fallna að ýta undir sætt-
ir. „Það þarf að athuga ýmsa fleiri
þætti en þar koma fram, en engu
að síður er umsögnin jákvætt inn-
legg I málið.“
Yfirlýsingin óhögguð
Aðspurður hvort hann liti svo á
að með umsögninni væri vikið frá
þeirri stefnu, sem staðfest hefði ver-
ið I yfirlýsingu hans, svaraði forsæt-
isráðherra að yfirlýsingin stæði
óhögguð. „Menn eru að koma til
móts við önnur sjónarmið I þjóðfélag-
inu og laga sig að umræðum sem
orðið hafa og það er fagnaðarefni
ef menn bíta sig ekki fasta. Það er
hins vegar skiljanlegt ef þeir gæta
hagsmuna sinna samtaka og um-
bjóðenda."
gönguna
HRUNIÐ hefur á efsta hluta leið-
arinnar á Everest og stigarnir sem
liggja víða yfir sprungurnar á ís-
fallinu hafa losnað og vinna sherp-
amir nú að lagfæringum, sagði
Hörður Magnússon aðstoðarmaður
fjallgöngumannanna I samtali við
Morgunblaðið I gær.
Einar Stefánsson fór úr grunn-
búðum í gærmorgun upp I þriðju
búðir og hafði Hörður eftir honum
að á parti hefði leiðin hrunið sam-
an og stigar losnað. Hann hefði
því orðið að taka á sig krók og
tafist nokkuð á leiðinni þangað.
Safna kröftum fyrir
ferðina á tindinn
Hörður sagði að á þessum
hættulegustu köflum væri reynt
að leggja leiðina þannig að menn
væru sem fljótastir þar um. Sherp-
amir fara yfír leiðina á hveijum
morgni og lagfæra þar sem þarf.
Eftir helgina safnast Islensku
fjallagarpamir saman í Dingboche
til að borða vel, safna kröftum og
rýna í veðurspá næstu daga - áður
en tindurinn verður klifinn.
-----» ♦ ♦----
Skaut sig í
lófann með
gripabyssu
MAÐUR skaut sig fyrir slysni í
höndina með byssu sem notuð er
til þess að aflífa stórgripi I slátur-
húsinu Barða á Þingeyri sl. laugar-
dag.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á ísafirði var framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins að sýna stjórn-
armönnum sláturhúsið. I sláturhús-
inu er notuð byssa til þess að aflífa
stórgripi. í henni er púðurskot sem
þrýstir 10 mm sverum og 11 cm
löngum pinna fram úr byssunni.
Vildi sýna þeim
notkun byssunnar
Framkvæmdastjórinn vildi sýna
þeim notkun byssunnar en skot
hijóp af I lófa hans. Pinninn kom
ekki út um handarbakið en tölu-
verðir áverkar urðu á hendinni.
Maðurinn var fluttur undir læknis-
hendur á ísafirði og síðan suður til
Reykjavíkur til frekari meðferðar.
Ungagildra
við Lækinn
ÞORSTEINN Sigtryggsson og
Erling Kjærnested, starfsmenn
holræsadeildar hjá Reykjavík-
urborg, komu í gær fyrir unga-
gildru við útfallið úr Tjörninni
í Lækinn. Undanfarin ár hefur
giidran verið sett niður á vorin
vegna andarunganna en þeim
hætti áður til að fara yfir grind-
ina sem þarna er og inn í ræs-
in. Standa vonir til þess að þetta
öryggistæki bjargi lífi ein-
hverra andarunga.
Morgunblaðið/Golli
Fiskbíil lokaði vegi
LOKA þurfti veginum um Kerling-
arskarð frá því um miðjan dag I
gær og fram á kvöld meðan verið
var að koma flutningabifreið sem
valt þar í fyrranótt á réttan kjöl.
Bifreiðin var lestuð um 10-15
tonnum af fiski og með tengivagn
I eftirdragi með svipuðum farmi. Á
leiðinni frá Stykkishólmi um klukk-
an fjögur I fyrrinótt ók bifreiðin
ofan I hvarf á veginum og valt á
hliðina, en vegurinn mun vera mjög
slæmur á þessum slóðum sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Bílstjórinn rotaðist við óhappið, en
komst til meðvitundar nokkru síðar
og er ekki talinn alvarlega meidd-
ur.
Farmi og bU bjargað
Sveit manna kom I gærmorgun
ásamt stórri kranabifreið frá
Reykjavlk og starfaði við það ásamt
björgunarsveitarmönnum úr Stykk-
ishólmi að bjarga farminum og
koma bifreið og tengivagni á réttan
kjöl. Undan bílnum brotnaði að
framan og er undirvaginn mikið
skemmdur, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 3. maí.