Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Iðnaðarráðherra gangsetur harðviðarverksmiðjuna Aldin hf. á Húsavík
Kynnt fjárfest-
um erlendis
Morgunblaðið/Kristján
UNDANFARNA daga hefur verið unnið við að skipa upp óunn-
um trjábolum í Húsavikurhöfn, sem fyrirtækið Aldin hefur keypt
frá Bandaríkjunum, til vinnslu í harðviðarverksmiðju sinni.
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra gangsetti harðviðarverk-
smiðjuna Aldin hf. á Húsavík í gær
og við sama tækifæri var undirrit-
aður samstarfssamningur nokk-
urra aðila um að kynna erlendum
fjárfestum frekari möguleika á
vinnslu harðviðar á Húsavík.
Aðilar að samkomulaginu eru
auk Aldins hf., Fjárfestingarskrif-
stofa íslands, Húsavíkurbær og
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.
Þá voru kynntir nýir sölusamningar
sem Aldin hf. hefur gert við leið-
andi fyrirtæki í Evrópu um sölu á
harðviði. Tarkett í Svíþjóð, Timb-
met í Bretlandi sem er stærsti dreif-
ingaraðili harðviðar á Bretlandseyj-
um og Danish Hardwood í Dan-
mörku.
Aætluð ársvelta
170 milljónir kr.
Aldin hóf tilraunaframleiðslu við
þurrkun á harðviði fyrir um ári.
Timbrið er keypt óunnið frá Banda-
ríkjunum, sagað niður á Húsavík
og þurrkað og síðan selt mestmegn-
is á Evrópumarkaði. Verksmiðjan
er mjög vélvædd og eru allar vélar
til sögunar keyptar frá Maine í
Bandaríkjunum. Stofnkostnaður
verksmiðjunnar er um 100 milljón-
ir kr. og starfa níu manns í verk-
smiðjunni. Áætluð ársvelta er um
170 millj. kr. Helstu hluthafar eru
Kaupfélag Þingeyinga, Kaupfélag
Eyfirðinga, Karl Ásmundsson frá
New Hampshire í Bandaríkjunum,
og Trésmiðjurnar Norðurvík og
Rein. Áhersla hefur verið lögð á
að kynna ísland sem umhverfis-
vænan áfangastað til þurrkunar á
harðviði og að mati forráðamanna
fyrirtækisins felst sérstaða Aldins
í að þurrka og vinna harðvið með
þeim umhverfísvæna orkugjafa
sem jarðhitinn er.
Harðviðarvinnsla á Húsavík
byggir á aðgengi að ódýru heitu
vatni til þurrkunar. Orkukostnaður
við þurrkun á harðviði á Húsavík
er talinn um tíundi hluti af því sem
best gerist í Bandaríkjunum, að
sögn forsvarsmanna fyrirtækisins,
en þurrkun trjábolanna fer fram í
sérhönnuðum tölvustýrðum þurrk-
húsum.
Dótturfélag í Bandaríkjunum
Á síðastliðnu ári stofnaði Aldin
dótturfélag, Aldin Technologies, í
Bandaríkjunum. Félagið sér um
innkaup á hráefni og tekur virkan
þátt í sölustarfi félagsins. Aldin er
meðlimur í National Hardwood
Lumber Association, alþjóðlegum
samtökum harðviðarframleiðenda.
Þá er fyrirtækið einnig aðili að
American Hardwood Export Co-
uncil, sem eru samtök útflytjenda
á harðviði frá Bandaríkjunum.
Iðja sam-
þykkir
FÉLAGAR Iðju, félags verk-
smiðjufólks, samþykktu í gær
nýgerðan kjarasamning við
atvinnurekendur. Greiddu at-
kvæði 457 félagsmenn af
1.707 eða 26,8%.
Samningurinn var gerður
25. apríl síðastliðinn en félags-
menn höfðu í tvígang fellt fyrri
samninga. Talning atkvæða
fór fram hjá Iðju í gær og
voru 356 fýlgjandi samningn-
um eða 77,9% þeirra sem
greiddu atkvæði. Andvígir
honum voru 98 eða 21,4% og
auðir seðlar voru þrír.
Þá hafa verkfræðingar og
tæknifræðingar sem starfa hjá
ríki og Reykjavíkurborg sam-
þykkt kjarasamning sem und-
irritaður var 1. apríl síðastlið-
inn. Þetta er fýrsti samningur
þessara aðila sem felur í sér
breytt launakerfi.
Póstatkvæðagreiðsla fór
fram um samninginn og lauk
talningu síðdegis í gær.
Tæknifræðingar samþykktu
samninginn með 98,7%
greiddra atkvæða en þátttaka
í atkvæðagreiðslunni var 51%.
Verkfræðingar hjá Reykjavík-
urborg samþykktu samning-
inn með 93% greiddra atkvæða
og var þátttaka 67,5% og verk-
fræðingar hjá ríkinu sam-
þykktu með 92% greiddra at-
kvæða.
Sterk viðbrögð við laginu
Kristján Björnsson tekur ekki
þátt í kosningum í Garðaprestakalli
Víðar gnð
en í Görðum
PÁLL Óskar Hjálm-
týsson, fulltrúi íslend-
inga í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarps-
stöðva í Dublin, segir
að tslendingar hafi
vakið mikla athygli
með lagj sínu og sviðs-
framkomu í Dublin.
„Ég hef fengið það
sterk og góð viðbrögð
við laginu að mér er
eiginlega hætt að
standa á sama. Aðal-
Iega hefur hópast í
kringum mig fólk frá
Spáni, Frakldandi,
Þýskalandi, Möltu,
Englandi og Dan-
mörku. Danimir vonast hreint og
beint til þess að ég vinni keppn-
ina. Mér þykir samt vænt um að
ég finn ekki fyrir neinum sleikju-
hætti, fólkið kemur til min og
segir að því finnist lagið og sviðs-
framkoman frábær og það
rökstyður alltaf af hveiju."
Páll sagði að einna markverð-
ast hefði honum þó fundist að
blaðamaður enska slúðurblaðsins
The Star sá ástæðu
til að taka við hann
viðtal. „Þetta var sér-
stakur heiður. Núna
líður mér fyrst eins
og alvöm stjörnu.
Viðtalið og myndirn-
ar birtast í heilsíðu í
blaðinu.“
Páll segir að slík
athygli gæti jafnvel
haft áhrif á úrslitin,
því Bretar og fleiri
þjóðir munu nú í
fyrsta sinn hafa al-
menna atkvæða-
greiðslu i gegnum
síma um það hvaða
stig eigi að gefa öðr-
um þátttökuþjóðum. „Ég er að
vonast til að ég eigi að græða á
því, því lagið mitt er síðast í keppn-
inni. Þegar það er búið hafa kjós-
endur heima í stofu tíu mínútur
til að ve\ja besta lagið.“
íslenska lagið stingur í stúf
Páll segir að lagið þyki stinga
í stúf við önnur Iög og það sem
tíðkast í söngvakeppninni, enda
sé það mjög öðruvísi. Hann segist
ekki geta ímyndað sér hvar Iagið
eigi eftir að lenda í keppninni.
„Eg held ég sé manna forvitnast-
ur að sjá það. Fólkið sem er hér
er fyrst og fremst Eurovision-
keppendur, aðdáendur og fjöl
miðlafulltrúar þeirra. Fólkið sem
skiptir mestu máli í þessu sam-
bandi er þeir sem sitja heima í
stofu o g horfa á keppnina. Ég hef
sagt það áður og segi það enn;
spyijum að leikslokum. Það er
aldrei að vita nema ég lendi í
tuttugasta sæti.“
Þátttökuþjóðirnar skiptast á að
halda veislur hver fyrir aðra og
í gærkvöldi var komið að íslend-
ingum.
„Hinar þjóðimar hafa haldið
veislurnar á hótelunum og eða
svipuðum stöðum. Við ætlum að
halda okkar veislu á Rumors, villt-
asta næturklúbbi í Dublin. Þar
ætlum við að troða upp, vera með
dragshow, taka gamlar Euro-
visionlummur og enda á því að
ég tek Eurovisionlagið mitt og
ýmis önnur lög sem ég á í hand-
raðanum."
Veðmangarar
hafa litla
trú á Páli
VEÐMANGARAR á írlandi hafa
litla trú á sigri íslenska lagsins í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. ísland deilir 19.-20. sæti með
Kýpur á lista yfir vinningslíkur þátt-
takenda og sigurlíkurnar eru taldar
einn á móti 32. ítalir og írar eru
efstir á listanum með líkurnar 2 á
móti 200.
Fjölmargir aðrir en veðmangar-
arnir spá þó í úrslitum og á alnetinu
eru í gangi ýmsar kannanir á gengi
laganna. Á finnskri alnetssíðu um
söngvakeppnina er listi byggður á
vinsældakosningu þeirra sem heim-
sækja síðuna og er ísland í 14. sæti.
Jafnframt er á síðunni listi byggð-
ur á hinum fyrri að viðbættum þátt-
um eins og gengi landsins í fyrri
keppnum, kynferði söngvarans, hvar
í röðinni lagið er flutt og fleira. Á
þessum lista er ísland í 10. sæti.
SÉRA Kristján Björnsson, sóknar-
prestur á Hvammstanga, hefur
ákveðið að taka ekki þátt í prests-
kosningunum sem stefnt er að því
að fram fari í Garðaprestakalli þann
31. maí. „Það er víðar guð en í
Görðum og ég er þannig innstilltur
að mér finnst að prestur, sóknar-
nefnd og starfslið kirkjunnar eigi
að vera samstiga í því að efla ein-
ingu og frið,“ segir Kristján en hann
telur að hluti sóknarnefndar Garða-
sóknar berjist svo eindregið fyrir
kjöri séra Árnar Bárðar Jónssonar
að það geti teflt einingu prestakalls-
ins pg starfsfriði í tvlsýnu.
„Ég sætti mig út af fyrir sig við
niðurstöðu kjörmannakosningar sem
var um daginn og hlýt að virða rétt
kjósenda til að fara fram á almenn-
ar kosningar en það er komið í ljós
í mínum huga að hluti sóknarnefnd-
ar í Garðasókn sem var meðal kjör-
manna er harðákveðinn í því að fá
einn frambjóðandann, sér Örn Bárð
Jónsson, og hefur nú lýst yfir stuðn-
ingi við hann. Þetta fólk vill séra
Örn Bárð og engan annan og hefur
komið fram í blöðum sem yfirlýstir
stuðningsmenn hans og það þykir
mér óeðlilegt af þessum embættis-
mönnum.“
Eindreginn ásetningur
„Þetta er hluti virkustu sóknar-
nefndarinnar í stærstu sókninni I
prestakallinu. Sóknarnefndin er,
ásamt starfsliði I kirkjunni, nánasti
samstarfsaðili sóknarprestsins og
það yrði lítill sigur að vinna kosning-
arnar og þurfa síðan að glíma við
það að ná sáttum við þá aðila sem
ættu að starfa saman af heilum
huga að því verkefni að byggja upp
söfnuðinn og sjálfan sig I þjónustu
við guð.“
Kristján segist hafa heyrt I við-
tölum við þetta fólk og með skilaboð-
um og ábendingum sem honum hafi
verið bornar að þetta sé eindreginn
ásetningur þess. „Þessi framganga
tiltölulega lítils hóps innan sóknar-
nefndar Garðasóknar hefur orðið til
þess að nú virðist stefna í óefni inn-
an prestakallsins."
í Garðaprestakalli eru þrjár sókn-
ir. Garðasókn, sem er langstærst,
Bessastaðasókn og Kálfatjarnar-
sókn, sem nær yfir Voga og Vatns-
leysuströnd.
Séra Gunnar Kristjánsson, próf-
astur í Kjalarnessprófastsdæmi,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
yfirferð undirskriftarlista um prest-
kosningar í Garðaprestakalli væri
lokið. 2.194 nöfn voru á undirskrift-
arlista, þar af voru 179 nöfn ógild
en til þess að fullnægja skilyrðum
um þátttöku 25% sóknarbarna þurfti
1.693 undirskriftir og er því skilyrði
vel fullnægt.
Tveir aðrir dregið
sig til baka
Séra Gunnar Kristjánsson sagði
að kjörskrá yrði lögð fram föstudag-
inn 2. maí og lægi frammi í tvær
vikur en utankjörstaðakosning hefst
16. maí. Prófastur sagði að sér hefði
aðeins borist formleg afturköllun á
umsókn frá séra Bjarna Karlssyni
en aðrir sem vildu draga sig til baka
hefðu frest til 10. maí til þess.
Auk séra Kristjáns hefur séra
Yrsa Þórðardóttir á Fáskrúðsfirði
lýst yfir því að hún taki ekki þátt í
prestskosningum. Aðrir umsækjend-
ur um prestakallið eru séra Örn
Bárður Jónsson, fræðslustjóri þjóð-
kirkjunnar, og Hans M. Hafsteinsson
guðfræðingur.
Til að prestskosning sé bindandi
þarf helmingur sóknarbarna að taka
þátt í kosningu og einn frambjóð-
andi að hljóta helming greiddra at-
kvæða.
UPPBOÐ
á antikmunum og öðrum verðmætum.
Hlutir frá 16., 17. og 18. öld.
Annað eins hefur aldrei sést á íslandi!
Sýning á mununum í dag og á morgun milli
kl. 13 og 19 á Grand Hótel, Sigtúni.
fe
HOTEi
REYKJAVIK
Uppboðið haldið laugardaginn 3. maí og
sunnudaginn 4. maí.
Páll Óskar
Hjálmtýsson
I
)
I
)
)
I
>
>
I
l