Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 8
8 FIMMTUDAGUR '1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
T,
1111 IJ'S1II(£ »Cglia|UtOlonwc
i Garðaprestakalli
ItffT j ( „Kirkjan okkar 1
1 herkví átaka“
ij’GrMUAJI
NEI takk, kirkjan þolir ekki að menn klifri hver eftir bakinu á öðrum upp í predikunar-
stólinn til að boða þar frið og sátt.
Ný gerð Ariston þvottavéla
kemur bráðlega á markað
og við seljum eidri gerðirnar
með góðum afslætti!
ÖARISTON
Ck ARISTON
ÖARI5TON
4000>
tH6if~g 15 4°3(v
1200
Verö áöur kr. 69.800
Verö nú kr. 61.900
555 44117
Almenn afgreiðslá^
IKS33B3E
562 9400y
Almenn afgreiBsla'
421-70002
Almenn afgrelðsla*
568 94002
Almenn afgreiðsl^
800 40002
Grænt númer
Ráðstefna um máiefni karla
Karlar meta
stöðuna
Karlar KRUNKA
nefnist ráðstefna
sem Sólstöðuhóp-
urinn stendur fyrir í Borg-
arleikhúsinu 2. maí n.k. í
samvinnu við karlanefnd
Jafnréttisráðs. Þar verða
ýmsum málefnum karla
gerð skil í fyrirlestrum og
pallborðsumræðum. Sig-
urður Ragnarsson er fé-
lagi í Sólstöðuhópnum.
Hann var spurður hvers
vegna þessi ráðstefna
væri haldin. - Forsaga
þessarar ráðstefnu er orð-
in nokkur. Við höfum
haldið sumarhátíðir þar
sem við höfum verið með
námskeið um karlhlut-
verkið og hafa þau ævin-
lega verið fullskipuð.
Einnig gengumst við fyrir
fyrirlestri í fyrra vetur í
Norræna húsinu um svipað efni
og fyllti^t salurinn þar út úr dyr-
um. Þannig að okkur þótti ein-
sýnt að það væri mikil þörf fyrir
frekari umræður um þetta efni.
— Eru bara karlar í Sólstöðu-
hópnum
— Nei, Sólstöðuhópurinn er
fyrir bæði kynin og hefur sett
sér það markmið að stuðla að
umræðu í þjóðfélaginu um hvaða
lífsgildi við setjum hæst. Við vilj-
um vinna á móti hraða nútíma-
samfélagsins og reyna að fá fólk
til að staldra við og huga að hlut-
um eins og tengslum milli fólks,
fjölskyldunni, uppeldi barna okk-
ar, ástinni og svo mætti lengi
telja.
— Hvaða efni takið þið fyrir á
ráðstefnunni í Borgarleikhúsinu?
— Við komum víða við og höf-
um fengið til liðs við okkur fjölda
öflugra fyrirlesara, þeir eru ellefu
talsins og koma víðs vegar að
úr þjóðfélaginu.
— Eiga karlar í tilvistarkreppu?
— Nei, við viljum ekki halda
því fram að svo sé og höfum
reyndar viljað forðast það píslar-
vættistal sem okkur fínnst stund-
um hafa einkennt kynjaumræðu.
Það er margt í stöðu karla sem
vekur athygli og þörf er á að
skoða nánar. Ef litið er til töl-
fræðinnar má benda á þætti eins
og að karlmenn deyja yngri en
konur, mun fleiri karlar fara í
áfengismeðferð, fleiri karlmenn
falla fyrir eigin hendi, fleiri karl-
menn en konur eru orðaðir við
ofbeldi, drengir eiga erfíðara
uppdráttar en stúlkur í skóla og
karlmenn hafa almennt lauslegri
sambönd við fjölskylduna en kon-
ur. Þá má einnig nefna að karl-
menn hafa almennt hærri laun
en konur, þeir eru mun
fleiri í valdastöðum
þjóðfélagsins, þeir
borða öðruvísi mat og
þeir eru meira í íþrótt-
um en konur.
— Ég sé að einn fyrirlesturinn
fjallar um kynlíf karla, er það
orðið mikið vandræðamál?
— Nei, en kynlífið er auðvitað
mál fyrir okkur öll. Að mínu
mati er mikil þörf fyrir opna
umræðu um þennan þátt í lífi
karla. í mínu starfi rekst ég mik-
ið á hversu oft karlmenn eru lok-
aðir varðandi umræður um kyn-
líf. Þeirra máti að tala um kynlíf
er oftast í einhveijum hálfkær-
ingi eða tvíræðum bröndurum.
Það er ýmislegt sem verður karl-
mönnum vandasamt, má þar t.d.
nefna þær væntingar eða kröfur
sem við gerum til sjálfra okkar,
þ.e. „folahlutverkið", það er að
vera ávallt tilbúinn og fullur löng-
unar við öll möguleg og ómögu-
Sigurður Ragnarsson
►Sigurður Ragnarsson er
fæddur á Akranesi árið 1944.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1964, kennaraprófi 1966
og Cand psyk.-prófi frá
Oslóarháskóla árið 1974. Hann
hefur starfað við Barna- og
unglingageðdeild, Félagsmála-
stofnun, rak meðferðarheimili
að Torfastöðum ásamt fleirum
en er nú sjálfstætt starfandi
við Sálfræðiþjónustuna Blæ í
Reykjavík. Hann er kvæntur
Ingu Stefánsdóttur sálfræð-
ingi og eiga þau fjögur börn.
leg tækifæri. Það veldur auðvitað
mörgum mönnum býsna mikilli
kvöl þegar þeir uppgötva að þeir
geta ekki staðið undir þessum
óraunhæfu væntingum. Þá eru
ótrúlega margir karlmenn mjög
fákunnandi um eðli kynlífs og
fjölbreytileika þess. Þá á ég einn-
ig von á að það verði fjallað um
ábyrgð í kynlífí en sú undarlega
staða hefur verið uppi að kynlíf
hefur nær eingöngu verið á
ábyrgð konunnar. Þannig er
gengið út frá því að á unglingsá-
rum sé það hlutverk stúlknanna
að segja nei og konurnar eru
taldar bera fyrst og fremst
ábyrgð á því að böm verði til og
hvenær.
— Þið ætlið líka að fjalla um
karlmenn og heimili?
— Já, þar verður lögð til grund-
vallar spennandi rannsókn sem
Ingólfur Gíslason starfsmaður
karlanefndar hefur unnið. Þar
skoðar hann stöðu karla inni á
heimilinu. Það er stundum talað
um að konur rekist á ósýnilegan
glervegg þegar þær sækja upp á
--------- við í metorðastiga
þjóðfélagsins. Svipað
virðist vera upp á ten-
ingnum þegar karl-
menn seilast til
“„valda“ innan heimilis-
ins. Þeim er treyst fyrir ákveðn-
um þáttum en ýmsir hlutir, eins
og t.d. þvottavélin, hrærivélin,
ábyrgðin á hveiju börnin klæðast
og svo framvegis em handan
„glerveggsins“.
— Hvaða gagn teljið þið vera að
svona ráðstefnu?
— Við teljum að umræða sem
þessi þurfí stöðugt að vera í
gangi, hraði nútímans er slíkur
að hætta er á að okkur beri af
leið ef við reynum ekki stöðugt
að meta hvar við erum stödd og
hvert skal haldið. Við vonumst
til að karlar jafnt sem konur fjöl-
menni á ráðstefnu okkar í
Borgarleikhúsinu og við sjáum
jafnvel heilu starfshópana koma
þangað.
Hætta er á
að okkur beri
afleið