Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 11
FRÉTTIR
Höfði opnaður almenningi
ÁKVEÐIÐ hefur verið að opna
Höfða, hið sög-ufræga móttökuhús
Reykjavíkurborgar, fyrir almenn-
ingi. Borgarbúum og öðrum gefst
framvegis kostur á að skoða hús-
ið í skipulögðum skoðunarferðum
fyrsta sunnudag hvers mánaðar.
Höfði hefur á síðustu árum
gegnt hlutverki móttökuhúss
Reykjavíkurborgar. Á síðasta ári
var húsið opnað almenningi tvær
helgar í tilefni þess að þá voru
10 ár frá leiðtogafundi Reagans
og Gorbatsjofs. Þá heimsóttu hús-
ið 2.000 gestir og fræddust um
sögu þess.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg er ætlunin að
bjóða framvegis upp á skipulagð-
ar ferðir um Höfða, 1. sunnudag
hvers mánaðar. Fyrsta skoðunar-
ferðin verður farin sunnudaginn
4. maí nk. kl. 13. Skrá þarf þátt-
töku þjá Upplýsingaþjónustu Ráð-
húss Reykjavíkur mánudag til
föstudags kl. 9-16. Takmarkaður
fjöldi verður í hverri ferð, há-
mark 50 manns í hveijum hópi.
Boðið verður upp á þijár ferðir
í hvert sinn. Innheimt verður 200
kr. gjald fyrir fullorðna en frítt
fyrir börn, 16 ára og yneri.
MATREIÐSLUMAÐURÁRSINS 1997
Hákon Már Örvarsson
VÍNÞJÓNN ÁRSINS 1997
Haraldur Halldórsson
HAFÐU ÞAÐ FYRSTA FLOKKS
- ÞAÐ GERUM VIÐ.
BERGSTAÐASTRÆTI 37, SÍMI: 552 57 00, FAX: 562 30 25, NETFANG: holt@centrum.is
Heimsmyndin að loknu kalda stríðinu og samruni Evrópuríkja
CHATEAUX.
Ótímabært að af-
skrifa þjóðríkið
hnignunareinkenni sé að ræða. Síð-
asta áratuginn hafa margir á Vest-
urlöndum rætt um nýjar leiðir, nýja
samfélagshyggju, þar sem reynt
verði að fínna mótvægi við einhliða
einstaklingshyggju nýfijálshyggj-
unnar. Leitað verði að félagslegum
gildum og lausnum á vandamálum,
iausnum sem ekki hefðu á sér illt
orð vegna tengsla við alræðisstefnu.
Óánægja og leit að einhverju nýju
kemur því að innan líka og ég held
að fáir stuðningsmenn þessarar nýju
samfélagshyggju séu ginkeyptir fyr-
ir því að fara í skóla í þessum efnum
til Singapore eða annarra ianda í
Suðaustur-Asíu. Það er eftirtektar-
vert að Singapore og Malasía, sem
helst hafa gagnrýnt Vesturlönd, eru
ríki sem eru í hæsta máta afsprengi
evrópskrar nýlendustefnu og eiga
sér ekki djúpar rætur í samfélagi
Asíuríkja.“
Nokkrar stofnanir Háskóla íslands efna í
maí til námskeiðs þar sem dr. Jóhann Páll
Ámason prófessor mun fjalla um ólíka
menningarheima og nútímann og reifa
kenningar um þau efni.
FRÆÐIMENN um all-
an heim hafa mikið
velt fyrir sér heims-
myndinni sem blasir
við eftir hrun
kommúnismans og
endalok kalda stríðs-
ins. Dagana 5.-9. maí
gangast nokkrar
stofnanir Háskóla ís-
lands fyrir námskeiði
sem ætlað er fræði-
mönnum og áhuga-
mönnum á sviði fé-
lagsvísinda og fleiri
greina og verður yfir-
skriftin Menningar-
heimar og nútími.
Fjallað verður um
kenningar Bandaríkjamannsins
Samuels Huntingtons sem spáir því
m.a. að árekstrar menningarheima
taki við af togstreitu kalda stríðsins,
einnig svonefnda samanburðar-
greiningu á siðmenningu, einkum í
ljósi kenninga þýska fræðimannsins
Max Webers og annarra hugsuða
sem fylgt hafa í kjölfar hans. Kenn-
ari á námskeiðinu verður dr. Jóhann
Páll Árnason sem verið hefur pró-
fessor í félagsfræði við La Trobe-
háskólann í Melbourne undanfarna
tvo áratugi og er meðal þekktustu
fræðimanna í heiminum á sínu sviði.
„Huntington hefur sætt töluverðri
gagnrýni," segir Jóhann, „en ég
held að hann hafi beint athyglinni
að vandamálum sem maður verður
að taka alvarlega þótt hans eigin
greining á þeim sé nokkuð einföld,
einkum skortir félagsfræðilegan
bakgrunn í riti hans. Mig langar til
að bera hans greiningu á samtíman-
um saman við nýleg verk félags-
fræðinga sem líta allt öðrum augum
á hlutina."
- Weber segir að stöðugt verði
einhvers konar átök í heiminum.
Geturðu lýst þessu nánar?
„Það sem mér fannst athyglis-
verðast hjá Weber er áhersla hans
á fjölbreytileikann, áframhaldandi
spennu og átök milli þess sem hann
kallar weltordnungen, mismunandi
menningarheilda innan sömu þjóðfé-
laga og sömu menningarheima.
Hann á við að efnahagskerfið,
stjórnmálakerfið, listaheimurinn og
vísindin takist á. Þessar heildir eiga
sér síðan ólík lögmál, þróast hvert
með sínum hætti og hafa tilhneig-
ingu til að samsama sig heildinni,
reyna að leggja allt sviðið undir sig,
verða allsráðandi.
Mest hefur borið á þessu I efna-
hagsmálunum en öðru hveiju hafa
menn vaknað upp við vondan draum
og áttað sig á því að stjórnmál eru
til líka og þar gilda lögmál sem falla
ekki í sama farveg og efnahagskerfið.
Gömlu guðirnir rísa upp
Sama er að segja um þróun nú-
tíma vísinda og tækni, Weber segir
að þar rísi gömlu guðirnir upp aft-
ur. Nútímamenningin hefur á vissan
hátt horfið á ný til fjölgyðishyggju
en guðirnir eru orðnir ópersónulegir.
Það má vel hugsa sér að fást við
árekstra milli þjóðríkja og menning-
arheima í framhaldi af þessum kenn-
ingum Webers.“
- Hvað viltu segja um þjóðríkis-
hugmyndina, á ísland sér vænlega
framtíð sem þjóðríki?
„A.m.k. framtíð, hvort hún er
vænleg er undir mörgu
komið sem erfítt er að
sjá fyrir. Ég held að það
sé ótímabært að tala um
endanlegan ósigur þjóð-
ríkisins. Það hefur auð-
vitað margt gerst sem
hefur skert vald þess á
ýmsum sviðum, einkum
í efnahagslífínu, mögu-
leikar þjóðríkisins á að
marka sína eigin stefnu
í þeim efnum fara dvín-
andi, því er ekki að neita.
Það nær þó ekki í sama
mæli til allra þjóðríkja,
fer talsvert eftir stærð
þeirra og stöðu.
í Evrópu hefur efna-
hagslegur samruni gengið miklu
hraðar fyrir sig en stjórnmálalegur.
Ég get ekki hugsað mér að sú þróun
sem við erum nú vitni að leiði til
þess að Evrópuríkin sameinist í ein-
hverri pólitískri heild sem kæmi end-
anlega í staðinn fyrir þjóðríkin á
svæðinu. Við verðum um fyrirsjáan-
lega framtíð að reikna með spennu
milli samrunaþróunar á efnahags-
sviðinu og áframhaldandi sundur-
leitni í stjórnmálunum. Það sannað-
ist í málum Júgóslavíu að Evrópurík-
in eru ekki fær um að fylgja sameig-
inlegri utanríkisstefnu."
- Verða áfram hnattræn átök eins
og í kalda stríðinu og hvað mun þá
valda þeim, hvetjir munu slást?
„Ég held ekki að við getum gert
ráð fyrir því að heilir menningar-
heimar fari að slást sem slíkir. Það
er samt erfítt að svara þessari spurn-
ingu með ótvíræðum hætti. Við lifum
á umskiptatímabili núna og það er
auðvelt að benda á eitthvað sem
gæti leitt til mikilla átaka, viðskipta-
stríða og baráttu um markaði. Inn
í þetta kemur líka gamaldags valda-
barátta um svæði, samkeppni um
pólitísk og hernaðarleg áhrifasvæði.
Það má að vísu gera ráð fyrir því
að hnattræn þróun í viðskiptum og
markaðsleit setji nokkur takmörk
við því hvað hægt sé að ganga langt
í átökum en jafnframt verða menn
að vara sig á því að leggja of mikið
upp úr því. Alþjóðleg viðskipti juk-
ust einnig mjög síðustu áratugina
fyrir fyrri heimsstyijöld og þeir voru
ófáir sem héldu að styrjöld af þeirri
tegund væri orðin óhugsandi af
efnahagslegum ástæðum. Það gerð-
ist nú samt. Þá komu til þættir sem
menn höfðu tilhneigingu til að
gleyma, þeir héldu að efnahagslegir
þættir réðu öllu.“
ísland og Singapore
- Á smáþjóð eins og við að leita
sér að fyrirmynd t.d. meðal Asíu-
þjóða þar sem uppgangurinn er svo
mikill?
„Það held ég varla, ég á erfitt
með að hugsa mér ísland sem
Singapore norðursins. Ef það er til
eitthvert módel sem við ættum að
halla okkur að hygg ég að það sé
réttara að íhuga hvað sé enn eftir
af því skandínavíska, hvað sé hægt
að gera við það. Það er verið að
taka það til uppskurðar, það er rétt
en það merkir ekki að rétt sé að
afskrifa það með öllu.
Það er rétt að í sumum Asíulönd-
um hafa menn gagnrýnt þjóðir Vest-
urlanda fyrir taumlaust einstakl-
ingsfrelsi, þeir hafa sagt að um
Jóhann Páll
Árnason