Morgunblaðið - 01.05.1997, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
h
ERLENT
Þúsundir íbúa í Winnipeg flýja vegna leka í flóðvarnarg'arði
Vatnshæð að ná hámarkí
Winnipeg í Manitoba og Grand Forks í Norður-Dakóta. Reuter.
ÞÚSUNDIR íbúa Winnipeg-borgar í
Manitoba-fylki í Kanada flúðu heim-
ili sín í gær þegar flóðvatn Rauðár
tók að leka í gegn um fimm metra
háan varnargarð, sem byggður hafði
verið í skyndi á síðustu dögum við
suðvesturenda borgarinnar.
Átta þúsund manns í St.Norbert-
úthverfinu þurftu að rýma hús sín.
Fljótlega gekk að þétta lekann. Sér-
fræðingar yfirvalda höfðu spáð að
flóðið næði hámarki í Winnipeg 5.
maí, en hafa nú flýtt þeirri dagsetn-
ingu og segja borgarbúum, sem eru
um 650.000, að búast við hámarks-
vátnshæð 2. eða 3. maí. Það þýðir
þó ekki að eftir það sé öll hætta lið-
in hjá, því vatnið rennur mjög hægt
vegna þess hve flatlent er á þessum
slóðum. Gert er ráð fyrir að það
taki vatnið allt að fjórar vikur að
sjatna.
Alls hafa 28.000 Kanadamenn
fram að þessu verið knúnir til að
yfirgefa heimili sín vegna flóðsins
í Rauðá, og áður en flóðið færðist
norður fyrir landamæri Norður-
Dakóta og Manitoba höfðu 50.000
Bandaríkjamenn þurft að gera hið
sama. Tveggja kanadískra drengja
og eins manns hefur verið saknað
frá í liðinni viku, og er talið að
þeir hafi drukknað í flóðinu.
Reuter
KANADÍSKIR hermenn handlanga sandpoka til byggingar varn-
argarðs í kringum hús eitt sunnan Winnipeg.
íslenzk fjölskylda flýði flóðið
Frétzt hefur af einni íslenzkri fjöl-
skyldu, sem neyðzt hefur tii að yfir-
gefa heirnili sitt vegna flóðahættu.
Drífa Úlfarsdóttir þurfti ásamt
þremur bömum sínum að yfirgefa
heimili sitt fyrir síðustu helgi, þar
sem hverfið sem húsið er í stendur
mjög lágt við bakka Rauðár inni í
borginni. Hún hefur nú leitað skjóls
hjá vinafólki.
„Borgaryfirvöid voru að segja
fólki, sem býr næst við Rauðá og
Assiniboine-ána [sem rennur saman
við Rauðá í miðborg Winnipeg],
3.000 heimilum eða 10.000 manns,
að vera reiðubúið að yfirgefa hús-
in,“ sagði Drífa í samtali við
Morgunblaðið.
„Ég bý líka við Rauðána og fer
alltaf þangað niðureftir á hvetjum
degi að skoða,“ sagði Ingibjörg
Torfadóttir, móðir Drífu, í samtali
við Morgunblaðið, en hún hefur búið
í Winnipeg í 17 ár. „Vatnsborðið
hækkar og hækkar og ég er orðin
mjög uggandi um að það fari allt á
kaf hjá okkur líka.“
Flestir þeir sem ættir eiga að rekja
til íslands búa í Winnipeg eða norð-
an við borgina, í Selkirk og milli
stöðuvatnanna þar sem heitir „Nýja
ísland“.
Vonazt er til að flóðvarnargarðar
og ekki sízt flóðbrautin svokallaða,
sem byggð var 1968 til að veita flóð-
vatni fram hjá borginni, bjargi mest-
um hluta hennar frá tjóni, jafnvel
þótt vatnsmagnið sé nú þegar orðið
meira en árið 1950, þegar 100.000
manns þurftu að flýja heimili sín
vegna Rauðárflóðs.
Ótti borgarbúa snýr nú mest að
því að hætta er á að flæði upp úr
skólp- og veitulögnum. Borgarbúum
hefur verið ráðlagt að fjarlægja öll
verðmæti úr kjöllurum.
Lykilvitni í sprengju-
málinu í Oklahoma
Segir
McVeigh
hafa skipu-
lagt tilræðið
Denver. Reuter.
LYKILVITNI ákæruvaldsins i rétt-
arhöldunum yfir Timothy
McVeigh, sem er ákærður fyrir að
hafa staðið að sprengjutilræðinu
við stjórnsýslubygginguna í Okla-
homa í apríl 1995, sem varð 168
manns að bana, bar fyrir réttinum
á þriðjudagskvöld að McVeigh
hefði ákveðið að sprengja bygging-
una í hefndarskyni fyrir umsátur
alríkislögreglunnar (FBI) og
vopnaeftirlitsins (ATF) um sértrú-
arsöfnuð Davids Koresh á búgarð-
inum Waco í Texas 1993, sem
endaði með stórbruna og dauða
alíra á búgarðinum.
Vitnið, Lori Fortier, var vinur
McVeighs. Hún hélt því fram fyr-
ir réttinum, að hann hefði lagt á
ráðin um að smíða sprengju, sem
hann hugðist koma fyrir í leigðum
sendibíl, með það að markmiði að
sprengja stjórnsýslubygginguna.
Hefði McVeigh valið bygginguna
þar sem hann trúði því að í henni
væru nokkrir liðsmanna FBI, sem
tekið hefðu þátt í Waco-umsátr-
inu.
♦ ♦ ♦
í kjölfar Leifs
BANDARÍSKUR rithöfundur og
ævintýramaður, Wodding Carter,
sjósetti í Phippsburg um helgina
54 metra langt skip, sem hlotið
hefur nafnið Snorri, en því hyggst
hann sigla í sumar frá Grænlandi
til Nýfundnalands, í kjölfar Leifs
Eiríkssonar.
Að því er fram kemur í Dagens
Nyheter heillaðist Carter af frá-
sögnum af fundi Vínlands sem
drengur og hyggst nú láta draum
sinn um að endurtaka ferðina,
rætast. Þar segir, að honum hafi
reynst erfitt að komast yfir ná-
kvæmar upplýsingar um skip
Leifs.
■. >i
Reuter
Loftbrú
fyrir
flóttamenn
SAMEINUÐU þjóðirnar (SÞ)
hófu í gær að flytja rúandíska
flóttamenn frá Zaire, en áform-
að er að flytja tugþúsundir
þeirra með loftbrú á þeim 60
dögum sem uppreisnarsveitir
Laurents Kabila hafa gefið SÞ
til þess. Myndin var tekin af
flóttamönnum á heimleið í Kis-
angani í austurhluta Zaire, en
loftbrúin fór hægt af stað því
ekki var hægt að senda tvær
Íljúshín-þotur SÞ frá Úganda
vegna eldsneytisskorts þar í
landi. Talið er að um 100 þúsund
hútúar hafist við suður af Kis-
angani og talið er að þeir séu
a.m.k. 250 þúsund til viðbótar
en ekki er vitað hvar þeir eru
niðurkomnir í Zaire. Talið er
að einungis takist að koma litl-
um hluta þeirra til heimkynna
sinna í Búrundí áður en frestur-
inn rennur út. Emma Bonino,
sem fer með mannúðarmál í
framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins (ESB), sakaði Ka-
bila í gær um tilraunir til þess
að útrýma hútúum á flótta í
Zaire.
Málmþjóf-
ar kveiktu
í púður-
liinnum
Tirana. Reuter.
GÍFURLEG sprenging varð í
vopnabúri albanska hersins við
bæinn Burrel í fyrrinótt með
þeim afleiðingum að a.m.k. 22
biðu bana. Talið er að hópur
manna, sem þá var í geymsl-
unni, hafi verið að reyna stela
vopnum.
Lögreglan sagði í gær, að svo
virtist sem óvart hefði kviknað
í púðurtunnum i vopna-
geymslunni, sem var neðanjarð-
ar. Gífurleg sprenging hafi orð-
ið og eldur hafi á svipstundu
fyllt neðanjarðarbyrgið og göng
úr því. Fjöldi bygginga ofanjarð-
ar hafi eyðilagst. Taldi lögregl-
an að fómarlömbum slyssins
ætti eftir að fjölga. Líklegt þyk-
ir að mennimir í geymslunni
hafi verið að reyna stela
sprengjum og skotfærum vegna
látúnshylkjanna sem gott verð
hefur fengist fyrir hjá brota-
jámskaupmönnum.
Samið um
friðsamlega
lausn
Fort Davis. Reuter.
RICHARD McLaren, leiðtogi
herskás hóps aðskilnaðarsinna
í Texas, féllst í gær á að semja
um uppgjöf, en lögreglan hafði
í fjóra daga setið um dvalar-
stað McLarens og félaga í
Davis-fjöllunum, þar sem þeir
hafa lýst yfir sjálfstæðu lýð-
veldi. Heldur hópurinn því
fram, að Texas hafi á ólög-
mætan hátt verið innlimað í
Bandaríkin árið 1945.
McLaren, sem lýsir sér sem
„sendiherra lýðveldisins Tex-
as“, kvaðst njóta friðhelgi sem
erindreki erlends ríkis og vildi
ræða við Janet Reno, dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna,
en ekki fulltrúa yfirvalda í
Texas.
A.m.k. 120 vopnaðir lög-
reglumenn hafa setið um fylg-
snið síðustu daga.
Ungir Spánvetjar sífellt háðari foreldrum sí num
Yfirgefa ekki foreldra-
húsin fyrr en um þrítugt
Malaga. Morgunblaðið.
UNGT fólk á Spáni verður sífellt
háðara foreldrum sínum og dvelst
nú lengur í foreldrahúsum en áður.
Samkvæmt nýrri könnun sem gerð
var í Andalúsíu á Suður-Spáni og
birt var dögunum eru synirnir að
meðaltali þrítugir þegar þeir yfirgefa
heimili foreldra sinna og taka að lifa
sjálfstæðu lífi. Meðalaldur kvenna í
þessu samhengi er 28 ár.
Könnun þessa gerði Æskulýðs-
stofnun Andalúsíu og segir í greinar-
gerð með henni að þær tölur sem
fyrir liggi um meðalaldur ungs fólks
er það kveður foreldrahúsin séu svip-
aðar og fengist hafi í öðrum sjálfs-
stjómarhéruðum Spánar.
„Nýjar kynslóðir" en svo nefnist
ungliðahreyfing Þjóðarflokks Jose
Maria Aznar, forsætisráðherra
Spánar, hefur vakið sérstaka at-
hygli á tölum þessum og freistað
þess að nýta sér þær til að koma
höggi á Sósíalistaflokkinn (PSOE)
sem hélt um valdataumana á Spáni
í 14 ár fram til ársins 1996. Hagur
unga fólksins á Spáni hefur nú um
nokkurt skeið verið pólitískt deilu-
efni enda yfir allan vafa hafið að
það mikla atvinnuleysi sem Spán-
veijar eiga við að glíma hefur bitn-
að mjög á ungu fólki í landinu.
„Óeðlileg þróun“
Pedro Calvo, forseti ungliða-
hreyfingar Þjóðarflokksins, segir
að tölurnar frá Andalúsíu leiði í ljós
að ungt fólk á Spáni sé mun lengur
háð foreldrum sínum en eðlilegt og
heppilegt megi teljast. Aðstæður í
þjóðfélaginu geri hinum ungu ill-
mögulegt og jafnvel ókleift að hefja
sjálfstætt líf. Kannanir af margvís-
legum toga leiði ítrekað í ljós að
sífellt erfiðara verði fyrir ungt fólk
að eignast íbúð þar eð það fái ekki
notið fjármálalegs sjálfstæðis. Þetta
geri að verkum að pör geti ekki
hafið fjölskyldulíf, sem aftur hafi í
för með sér miður æskilegar hliðar-
verkanir í samfélaginu.
Sósíalistum kennt um
Calvo kennir Sósíalistaflokknum
um hvemig komið er fyrir ungu
fólki í landinu. í 14 ára stjórnartíð
I
l
i
l
1
I
»
I
I
l
I
hans, á árunum 1982-1996, undir
forystu Felipe Gonzalez, hafi hvað
eftir annað verið gripið til ráðastaf-
ana í efnahags- og atvinnumálum
sem einkum hafi bitnað á ungum
Spánveijum. Gonzalez hafi einfald-
lega aldrei leitt hugann að því
hvernig bæta mætti afkomu og
auka möguleika ungs fólks í land-
inu. „Sósíalistar beittu sér fyrir
breytingum á vinnulöggjöfinni sem
vann beinlínis gegn hagsmunum
hinna ungu. Nú liggur fyrir sam-
komulag sem mun aftur bæta stöðu
okkar á vinnumarkaðinum,“ sagði
Calvo og vísaði þar til sáttmála sem
verkalýðsfélög og atvinnurekendur
hafa gert með sér um breytingar
á vinnulöggjöfinni, sem ætlað er
að bæta til muna atvinnumöguleika
hinna yngri á sama tíma og aukinn
sveigjanleiki verður innleiddur
hvað uppsagnarákvæði varðar.
Samningurinn bíður enn staðfest-
ingar stjórnvalda en vonir eru
bundnar við að hann geti komið
að verulegu gagni í glímunni við
atvinnuleysið.
t
I
c
.