Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Maraþon-
tónleikar í
Kópavogi
SKÓLAKÓRARNIR fiórir í
Kársnesskóla í Kópavogi syngja
á maraþontónleikum í Félags-
heimili Kópavogs laugardaginn
3. maí. Sungið verður í tíu tíma
samfleytt, frá kl. 9-23.
Með maraþontónleikunum er
safnað í ferðasjóð fyrir Stóra-
kór Kársness, sem í eru 75
börn úr 6. og 7. bekk. Hann er
á leið til Danmerkur og tekur
þar þátt í norrænu bamakóra-
móti í Fredrikshavn og kemur
fram á tvennum tónleikum.
Skólakór Kársness, sem í eru
43 ungmenni á aldrinum 10-17
ára, verður fulltrúi íslands á
listahátíð sem haldin verður í
Toronto í Kanada í júní nk.
Einnig mun kórinn koma fram
á kórarrióti í Ottawa og syngja
á tónleikum í Halifax 17. júní.
Stjórnandi kóranna er Þór-
unn Bjömsdóttir.
Afmælistón-
leikar Tré-
smiðakórs
Reykjavíkur
V ORTÓNLEIKAR Samkórs
Trésmiðafélags Reykjavíkur
verða haldnir í Bústaðakirkju
laugardaginn 3. maí kl. 17.
Kórinn átti 25 ára afmæli í
mars sl., og em þetta 24. vor-
tónleikar kórsins. Á dagskrá
eru bæði íslensk og erlend lög.
Eins og áður verður kórnum
skipt upp í mismunandi hópa,
blandaðan kór, kvennakór og
einnig kvartett. Stjómandi er
Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Sýningu Hall-
steins að ljúka
SÝNINGU Hallsteins Sigurðs-
sonar í Ásmundarsafni, Kúla,
píramíti og skel, sem opnuð var
12. apríl sl. lýkur nú á sunnu-
dag.
Ásmundarsafn er opið dag-
lega frá kl. 10-16.
MorgunblaðiO/Golli
JÓNAS Ingimundarson verður kynnir á tónleikum Sinfóníuhlj ómsveitar íslands í Háskólabíói annað kvöld.
Jónas Ingimundarson, Sinfónían og óvæntar uppákomur í Háskólabíói
út frá tónum
Talað
ÞRIÐJU og síðustu tónleikar starfs-
ársins í Bláu tónleikaröð Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða í Háskóla-
bíói annað kvöld klukkan 20. Röðin
hefur verið með óhefðbundnu sniði í
vetur en efnisskráin hefur ekki verið
auglýst fyrirfram, heldur kynnt jafn-
óðum á tónleikunum af Jónasi Ingi-
mundarsyni píanóleikara, með spjalli
og tóndæmum sem síðan hafa leitt
til flutnings verkanna í heild. Hljóm-
sveitarstjóri að þessu sinni verður
Stefan Sanderling frá Þýskalandi.
„Þau viðbrögð sem ég hef fengið
eru mjög jákvæð," segir Jónas en
bendir á, að ef til vill sé hann ekki
rétti maðurinn til að svara því hvem-
ig til hafi tekist í vetur. „Ég hef
haldið tónleika með þessu sniði í
mörg ár, ýmist einn við píanóið eða
með hinum og þessum söngvurum
og á síðasta ári var ákveðið að kanna
hvemig þetta kæmi út á áskriftartón-
leikum Sinfóníunnar en ég hef gert
þetta með hljómsveitinni úti á landi.
Með þessu er ekki verið að gefa hinu
hefðbundna tónleikaformi langt nef,
síður en svo, en það er alltaf gaman
að prófa eitthvað öðruvísi." Að sögn
Jónasar eru tónleikamir sniðnir að
þörfum lærðra sem leikra, „tilvaldir
fyrir flölskylduna, vinnufélagana og
svo framvegis", en formið mun ekki
vera nýtt af nálinni. Leonard Bem-
stein er oft nefndur en hann mun
oft hafa haft þann háttinn á að spjalla
við áheyrendur á tónleikum í Banda-
ríkjunum. Sjaldgæfara er aftur á
móti að tekin séu tóndæmi. „Ég hef
ekki eytt miklum tíma í að rekja
ævisögur manna heldur einbeitt mér
að tónlistinni sem slíkri - talað út
frá tónunum. Ég geri mér grein fyr-
ir því að það er hættuspil að tala um
tónlist enda tekur hún við þegar orð
þrjóta - tjáir það sem við getum
ekki sagt en um leið það sem við
getum ekki þagað yfir. Það hvarflar
því ekki að mér að fullyrða að hlutim-
ir séu svona en ekki öðruvísi - ég
er að opna leið.“
í hæsta gæðaflokki
Jónas segir að hvert einasta tón-
verk sem flutt hafí verið á tónleikum
raðarinnar til þessa sé í hæsta gæða-
flokki - engin breyting verði þar á
annað kvöld. „Þetta eru verk af öllu
mögulegu tagi, stór og smá, þekkt
og óþekkt. Tónleikagestir hafa heyrt
Bolero eftir Ravel og Svipmyndir frá
Kákasus eftir Ivanov - og allt þar
á milli.“
En það er fleira sem haldið hefur
verið leyndu á tónleikum bláu raðar-
innar í vetur en efnisskránni. Á síð-
ustu tónleikum steig til að mynda
leynigestur á svið, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Diddú, sópransöngkona og tók
lagið með hljómsveitinni. „Það vakti
að sjálfsögðu mikla hrifningu," segir
Jónas, „og annað kvöld get ég upp-
lýst að eiga má von á þremur leyni-
gestum, hveijum úr sinni áttinni.“
Jónas segir að ekki hafi verið
ákveðið hvort Bláa tónleikaröðin
verði með sama sniði næsta vetur -
þess hafi þó verið farið á leit við
hann. Þess má geta að Ríkissjón-
varpið hefur myndritað fyrri tónleik-
ana og verður á vettvangi annað
kvöld. Segir Jónas að fyrirhugað sé
að gera nokkra sjónvarpsþætti sem
sendir. verði út á næstunni.
Sérfræðing-
ur Sothe-
by’sí
heimsókn
DAVID Battie verður hér stadd-
ur dagana 2. og 3. maí og mun
veita ráðgjöf um verð listmuna.
Hann hefur
verið sér-
fræðingur hjá
Sotheby’s síð-
an 1976.
Hann er
kunnur sjón-
varpsmaður í
Bretlandi og
hefur komið
fram frá upp-
hafi í sjónvarpsþáttunum
Antique Roadshow sem hafa
notið mikilla vinsælda síðan
þeir hófu göngu sína. Hann
hefur ritað bækur um verð á
postulíni og ritstýrt Sotheby’s
Encyclopedia of Porcelain.
Hann hefur gert fy'ölda sjón-
varpsþátta um listaverk og flutt
fyrirlestra víða um heim og á
helstu listasöfnum í heiminum
og ritað fjölmargar bækur og
greinar um listaverk.
Vortónleikar
V ORTÓNLEIKAR Kammer-
sveitar Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar verða föstudaginn 2.
maí kl. 20 í Víðistaðakirkju.
Á efnisskránni verða „Cori-
olan“ forleikurinn eftir Ludwig
van Beethoven, tveir ungverskir
dansar eftir Johannes Brahms
og fimmta sinfónía Franz Schu-
berts. Hljómsveitarstjóri er Óli-
ver Kentish.
Portmynda-
sýningnnni
að ljúka
ÚTIVERKASÝNINGUNNI
Portmyndum lýkur nú um helg-
ina eða laugardaginn 3. maí, en
hún stendur nú í 11 innkeyrslum
við Laugaveg og Bankastræti.
Leiðarkort um sýninguna fær
fólk i hendumar í verslunum við
Laugaveginn. Einnig er hægt
að nálgast sýningarskrána á
kaffíhúsum og listasöfnum.
Pantium 133Mhz
á borði hvers
nemanda
Skjá kennara
varpað beint
á breiðtjald
Allar tolvur eru
internettengdar
um háhraðagátt
Pyrsta ilokks
leiðbeinendur
/licrosoít
Office97
Tölvunám
UDDlýsinaatækni
Kennt er þrisvar í viku i fjórar vikur.
Windows 95, Word 97, Excel 97, og
notkunarmöguleikar Internetsins.
Samtals 72 kennslustundir.
Næstu námskeið byrja 6. mai.
Ný námsgögn fylgja.
CW
ntv
$---
Bjóðum upp á Viia & Eura
rBðgrBÍú«lur
Nýi tölvu- &
viðskiptaskolinn
Hðlshrauni 2 • 220 Hainariirði • Siml S55-4980 • Fax 555-49B1 • skoliBntv.is
MEÐAL antikmuna á uppboði Carls Rarbecks verður
skápur frá 1650 skreyttur fílabeini.
Uppboð á antikmunum
CARL Rorbeck heldur uppboð á
antikmunum á Grand hótel við Sig-
tún nk. laugardag og sunnudag. Að
sögn hans verður uppboðið með öðru
sniði en tíðkast hefur og segir hann
helsta muninn að á uppboðinu séu
veruleg verðmæti í boði.
Dýrasti gripurinn á uppboðinu er
skápur með fílabeini frá árinu 1650
metinn á 1,2 milljónir króna, en tölu-
vert er um sautjándu og átjándu
aldar gripi. Nefna má gamalt breskt
silfur, postulín, gömul austurlensk
teppi og húsgögn. Hlutimir verða á
milli 150-200.
Uppboð af þessu tagi hefur
Rerbeck ekki haldið áður, en hann
hefur flutt inn mikið af austurlensk-
um teppum.
Áhuginn kviknaði i Kaupmanna-
höfn fyrir tuttugu árum. Rarbeck
kom til íslands 1989 og vann um
tíma hjá Hagkaupi. Þar hætti hann
1995 og hefur lifað á verslun síðan
og er nú búsettur I London. Hann á
ráðgjafafyrirtæki sem starfar á sviði
öryggismála.
í dag og á morgun kl. 13-19
gefst kostur á að skoða munina á
Grand hótel, en uppboðið verður sem
fyrr segir haldið þar dagana 3. og
4. maí og hefst kl. 13 báða dagana.