Morgunblaðið - 01.05.1997, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 31
__________LISTIR________
Efni í mikla söngkonu
Morgunblaðið/Kristinn
JESSICA Tivens við upphaf tónleikanna í gærkvöldi.
TONUST
Háskólabíó
Einsöngstónleikar. Jessica Tivens og
Michael Garson fluttu aríur úr ýms-
um óperum og spunaverk. Miðviku-
dagurinn 30. april, 1997.
JESSICA Tivens er, þrátt fyrir
ungan aldur, vel fær söngkona,
fengið í vöggugjöf einstaklega mikla
og fagra rödd, er músikölsk og hef-
ur þegar náð töluvert sannfærandi
valdi á túlkun og söngtækni. Það
sem vantaði fyrir söng hennar var
undirleikari, sem er heima í þeirri
tónlist, sem Jessica söng, Leikur
Garsons var ótrúlega linur, bæði í
styrk og hljóðfalli og veitti söngkon-
unni nær engan stuðning. Þarna
kemur greinileg til reynsluleysi Gar-
sons í flutningi óperutónlistar, sem
er í senn leikræn og oft sérlega
ástríðufull en allt slíkt vantaði í
undirleik Garsons, sem í einu orði
sagt var „blóðlaus". Þetta er sér-
kenniiegt, því í þremur spunaverk-
um, sýndi hann sig vera leikinn pían-
ista er virkilega þorði að „snerta"
nóturnar svo um munaði í leik og
tilþrifum.
Tónleikarnir hófust á Nobles
Seigneurs úr 2. þætti óperunnar
Húgenottarnir eftir Meyerbeer og
þá tóku við þijár aríur eftir Mozart,
Batti, batti úr Don Giovanni, Deh
vieni úr Brúðkaupinu og Ach, ich
fuhls úr Töfraflautunni. Þrátt fyrir
ágætan söng vantaði skerpuna í
túlkun Jessicu Tivens en einmitt það
atriði kom sérlega fram í tveimur
aríum úr La Bohéme, þar sem dauf-
ur undirleikurinn gaf henni engan
stuðning í kynningararíu Mimíar og
Donde lieta, sem þó voru að mörgu
leyti mjög vel sungnar.
Eftir hlé lék Michael Garson þrjú
spunaverk og þá kvað við allt annan
tón og var spuni hans á köflum
skemmtilegur og kraftmikill, allt
annarrar náttúru en undirleikurinn.
Valsinn frægi, Je veux vivre, úr
Rómeó og Júlíu eftir Gounod vant-
aði þann svellandi leik, sem er aðall
þessa skemmtilegs söngverks. Besta
verk tónleikanna var Signore, asc-
olta úr Turandot eftir Puccini, en
það vantaði tregann í aríu Michaelu,
Je dis que, úr Carmen eftir Bizet. I
aríunni, Una voco poco fa, úr Rakar-
anum eftir Rossini, sýndi Jessica
Tivens að hún þegar býsna slyng
söngkona. En aftur og enn, þá var
það daufur undirleikur Garsons sem
litaði söng stúlkunnar, en þrátt fyrir
það er ljóst, að Jessica Tivens er
hreint frábært efni í mikla söng-
konu, stórsöngkonu á heimsleiksviði
óperunnar.
Jón Ásgeirsson
SfóðHeit afmælistilboð
1 tilefni ai tveggja ára afmæli BT verða ýmsar tölvuvörur á sérstöku afmælisverði út vikuna. Á laugardaginn nk.
nær afmælisgleðin hámarki þar sem afmæliskarnival verður haldið í verslun okkar.
Ftagfeeppm á laugardag
Á afmsBlishátíð BT. Tölva, laugardaginn 3. maí
verður háð flugkeppni í BT tölvum Keppnin fer
fram milli 12-14 og munu kennarar frá Fhigskólanum
Fhigtak dæma keppnina. Fljúgðu vængjum þandum
og lækkaðu flugið til skráningar að Grensásvegi
Skráning í keppnina fer fram í síma 5885900 eða
í verslun okkar.
Nokia GSM símar
Er ekki kominn tíim til að tengja ?
Nokia GSM simamir hafa
margsaimað ágæti sitt við
isfenskar aðstæður. Nú bjóðum
við þessa síma á enn betri
kjarum en áður svo að það
er engin afsokurt fyrir að vera
sambandslaus.
Afmælistilboð
Nokia 1611 28.990
Nokia 2110 36.990
Penttam 166
166 mhz Intel argjörvi 32 mb innra minni
Intel Triton II430VX kubbas. 2 mb Ati Mach skjákort
PT-2006 FIC móðurborð 12 hraða geisladrif
1700 mb harður diskur 25 watta hátalarar
Soundhlaster 16 hljóðkort Lyklaborð og mús
15' flatur hágæða litaskjár Windnws 35 fydgir með
145.990 kr
Grensásvegur 3 -108 Reykjavik
Simi: 588 5900 - Fax : 588 5905
Opnunartimi virka daga : 10:00 -19:00
Opnunartimi laugardaga : 10:00 -16:00
Hanna María Karlsdóttir,
Halldóra Geirharðsdóttir og
Egill Ólafsson í Dómínó.
Fáar sýn-
ingar eftir
á Dómínó
SENN lýkur leikári Leikfélags
Reykjavíkur og fáar sýningar eru
eftir á Dómínó Jökuls Jakobssonar.
Á morgun, föstudag, verður 40.
sýning á Dómínó.
Verkið var frumsýnt 9. janúar
sl. og hefur verið uppselt á flestar
sýningar.
„Dómínó er margslungið leikrit:
dularfullt, einfalt og flókið í senn.
Líkt og í mörgum öðrum verkum
Jökuls er lýst sálarástandi og firr-
ingu ráðvillts fólks í þjóðfélagi alls-
nægta,“ segir í kynningu.
Leikarar eru: Eggert Þorleifsson,
Egill Ólafsson, Guðrún Ásmunds-
dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir,
Hanna María Karlsdóttir og Mar-
grét Ólafsdóttir. Leikstjóri er Krist-
ín Jóhannesdóttir.
afslátt af öllum húsgögnum verslunarinnar
föstudag
laugardag (
sunnudag
—Opið---------
föstudag 9.00 -18.00
laugardag 10.00 -17.00
sunnudag 14.00 -17.00
verið leiðandi verslun með húsgögn þar sem verð, ending
og gæði hafa farið saman. í tilefni af 35 ára afmæli okkar
bjóðum við nú gott úrval af borðstofusettum, sófasettum,
hornsófum, hvíldarstólum, rúmum og mörgu fleira á
ótrúlegu verði!
TVodfull búð
af nýjum vörum!
húsqöqn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísun á
i sumar
Með hækkandi sól breytist afgreiðslutíminn hjá
Sjóvá-Almennum. Frá 1. maí verður
opið frá klukkan 8 til 16.
sjóváSÍoaliviennar
Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692