Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1997 33
Listasafn Kópavogs
Málverk og
teikningar
Onnu-Evu
Bergman
LISTASAFN Kópavogs opnar
sýningu á málverkum og
teikningum norsku listakon-
unnar Önnu-Evu Bergman
(1909-1987) laugardaginn 3.
maí kl. 16. Anna-Eva haslaði
sér völl á alþjóðavettvangi á
sjötta áratugnum með mál-
verkum sem höfðu abstrakt
yfirbragð þótt kveikjan að
þeim væri norskt landslag,
segir í tilkynningu.
Jafnframt segir: „Anna-
Eva Bergman starfaði víða í
Evrópu með eigimanni sínum,
þýska málaranum Hans Hart-
ung. Þau hjónin voru í tengsl-
um við marga af virtustu lista-
mönnum samtímans og Anna-
Eva Bergman hélt merkar sýn-
ingar í Frakklandi, á Ítalíu og
í Noregi."
Sýningin er hingað komin
að frumkvæði Stofnunar Hart-
ung - Bergman í Antibes í
Suður-Frakklandi og norska
sendiráðsins. Hún stendur til
sunnudagsins 8. júní og er
opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 12-18.
Snorri og
Vignir
Jóhannsson
í Reykholti
SUMARDAGSKRÁ Heims-
kringlu, Reykholti, hefst laug-
ardaginn 3. maí kl. 14 með
því að opnaðar verða tvær
sýningar í safnaðarheimili
Reykholtssóknar. Um er að
ræða sýningu dr. Jónasar
Kristjánssonar um Snorra
Sturiuson og verk hans og
málverkasýningu Vignis Jó-
hannssonar myndlistarmanns.
Vignir Jóhansson sýnir olíu-
málverk tengd íslensku lands-
lagi. Maðurinn andspænis
náttúrunni er viðfangsefni
Vignis í þessum verkum. Sýn-
ingin mun standa til 15. júní.
Frá og með 1. júní verður opið
daglega frá kl. 10-20 en í
maímánuði eftir samkomulagi.
Tónleikar
Sama dag, 3. maí, heldur
Karlakór Reykjavíkur, eldri
félagar, tónleika í Reykholts-
kirkju kl. 16, ásamt karlakórn-
um Söngbræðrum. Á efnis-
skránni eru lög eftir íslenska
og erlenda höfunda.
Djass í
Hafnarborg
ÁRVISSIR djasstónleikar
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
verða í kaffi-
stofu Hafnar-
borgar kl.
15.30 í dag,
fimmtudag.
Djassveisla
Carls Möllers
skipuð kenn-
urum úr Tón-
listarskólanum
flytja léttar
djasssveiflur.
Hljómsveitina skipa auk Carls
Möllers píanóleikara Stefán
Ómar Jakobsson básúnuleik-
ari, Þórður Árnason gítarleik-
ari, Petrea Óskarsdóttir
flautuleikari, Birgir Bragason
bassaleikari og Guðmundur
Steingrímsson trommuleikari.
Carl Möller
BÓKMENNTIR
Ljód
LJÓÐ LÍÐANDI STUNDAR
eftir Sturlu Friðriksson. 82 bls.
Muninn - Islendingasagnaútgáfan.
Prentun: Oddi hf. Hafnarfirði, 1997.
NÁTTÚRUVÍSINDIN og skáld-
skapurinn hafa löngum átt samleið
í vitund íslendinga. Sturla Friðriks-
son er kunnur líffræðingur. Færri
þekkja kvæði hans; Þessi ljóðabók
er þó hans þriðja. Áður hefur hann
sent frá sér Ljóð langföruls og Ljóð
líffræðings. Yrkisefni Sturlu eru
enn hin sömu: Landið og heims-
byggðin að ógleymdu samferðafólk-
inu á lífsleiðinni. Hann hefur víða
farið og kynnst framandi þjóðum.
Að hætti eldri skálda yrkir Sturla
með ljóðstöfum og rími og slær þá
gjarnan á ljóðræna strengi. Eins
og títt er leitast hann þá við að
láta náttúrulýsingu og hrynjandi
ljóðs fléttast saman. Til marks um
það er þetta erindi úr kvæðinu Að
utan:
Hér árvatnið sytrar af syllum
og seytlar um framandi gil
og kátlega fossar um flúðir
á ferð út í móleitan hyl.
Þetta er haglega ort og vekur
notalega kennd í brjósti. En mynd-
málið er í raun kunnuglegra en svo
Land og ljóð
að ljóðið skírskoti út
fyrir það sem í orðun-
um felst. Hvergi ber
þó svo að skilja að
Sturla fari eftir ann-
arra forskrift í kveð-
skap sínum. Þar fer
hann eigin leiðir. Enn-
fremur má minna á -
eins og fram kemur í
ágætum inngangi - að
sum kvæðin eru ort
fyrir margt löngu,
jafnvel fyrir mörgum
áratugum. Þetta kvæði
var t.d. ort á stríðsár-
unum vestur í Banda-
ríkjunum.
Hugtækust og
minnisstæðust eru þau kvæði Sturlu
þar sem hann beinir athyglinni að
einhverju föstu og áþreifanlegu,
einhverju sem fyrir augu ber, ein-
hveiju sem hann hefur reynt sjálf-
ur, einhveiju sem hann þekkir. Þá
nýtur _ hagmælska. hans sín hvað
best. í kvæðinu / Vín getur hann
þess til að mynda að hann hafi
brugðið sér inn á kaffihúsið nafn-
kunna, Sacher, »og gætt mér á
gómsætri köku, / sem gert hefur
vertshúsið frægt.« Um Risarifið við
Ástralíu yrkir hann gagnort kvæði
og kröftugt þar sem
hann tengir hið sýni-
lega við hið sögulega.
Með vel völdum orðum
lýsir hann dulúð hafs-
ins sem býr yfir fegurð
og fjölbreytileika en
jafnframt yfir háska.
Síðra er Hundadaga-
kóngurinn í Ástralíu,
og þó er það hnyttið
vel. Efnið er byggt á
gögnum sem höfundur
kynnti sér á ferð sinni
þar um slóðir og gefur
glögga hugmynd um
ævintýramanninn sem
við íslendingar eignum
okkur í raun þótt hann
dveldist hér einungis í fáeinar vik-
ur. í Mannætur á Fiji-Eyjum slær
náttúrufræðingurinn alvörunni upp
í gamanmál og bendir á hvernig
atferli villimanna og hagsýni
Vesturlandabúa stefni í raun að
sama marki þó framferðið sé vissu-
lega ólíkt. í Rímu af Ásgeiri Bjarn-
þórssyni gefur að líta eftirminnilega
mannlýsingu jafnframt því sem
rímnastælingin bregður hressileg-
um karlahúmor yfir svipmyndina
af listamanninum sem var í senn
góður málari og atkvæðamikill per-
Sturla
Friðriksson
sónuleiki, en fór ekki troðnar slóð-
ir. Skemmtilegast er þó Ljóðabréf
frá Kanada sem Sturla skrifaði vini
sínum og veiðifélaga, Barða Frið-
rikssyni. í bréfinu lýsir Sturla ferð
vestur yfir landið þar sem leiðin lá
»yfir Klettafjöllin þver« og endaði
við Kyrrahafsströnd. Margt bar fyr-
ir sjónir á leiðinni og útmálar Sturla
það með kumpánlegum léttleika
eins og títt er í kunningjabréfum.
Hefði bréfið að skaðlausu mátt vera
bæði lengra og fyllra.
Að lokum eru svo ljóðaþýðingar,
þar á meðal Fanginn í ChiIIon kast-
ala eftir Byron. Að snúa Byron á
íslensku - víst var hægt að velja
sér auðveldari dægradvöl! En Sturla
kemst bærilega frá viðfangsefninu.
Að vísu hefur rímið á stöku stað
gerst ágengara en góðu hófi gegn-
ir; hæpið orðaval ber þess nokkur
merki. Allt um það kemst heildar-
myndin til skila, sterk og áhrifamik-
il í Byrons anda.
Vafasamt er að kvæðin í bók
þessari uppfylli kröfur þeirra sem
telja að skáldskapurinn skuli for-
takslaust fylgja tíðarandanum. Sé
á hinn bóginn mælt á kvarða hinn-
ar gömlu og grónu kveðskaparhefð-
ar sem kenndi að kvæði skuli lýsa
hlutlægum veruleika og vera auð-
skilið verður niðurstaðan önnnur,
sem sé sú að Ljóð líðandi stundar
eigi verðskuldað erindi til lesenda
og alla athygli skilið.
Erlendur Jónsson
NEMENDUR Tónmenntaskóla Reykjavíkur.
Vortónleikar Tónmenntaskóla Reykjavíkur
TÓNMENNTASKÓLI Reykjavíkur heldur tvenna
vortónleika í maí.
Fyrri tónleikar skólans verða laugardaginn 3.
maí kl. 14 í íslensku óperunni. Þar koma einkum
fram í einleik og samleik yngri nemendur. Síð-
ari tónleikar Tónmenntaskólans verða laugar-
daginn 10. maí kl. 14 í Islensku óperunni. Þar
koma fram eldri nemendur í samleik og einleik
auk þess sem nokkur kammermúsíklög verða
leikin.
Nýlistasafnið
„Perception“
MYNDLISTARSÝNINGIN „Per-
ception" verður opnuð laugardag-
inn 3. maí kl. 16, í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg, með sjö erlendum
myndlistarmönnum og einum ís-
lenskum. Sýning þessi er í boði
safnsins og hefur verið í undir-
búningi síðastliðin tvö ár.
Þeir sem sýna eru: Arie Berkul-
in, Theo Kuypers, Willem Jakobs,
Kees Verschuren og Ellen Jezz
frá Hollandi, Beate Ratmayr og
Franz Suess frá Austurríki svo
og G.R. Lúðvíksson frá Islandi,
sem einnig er umsjónamaður sýn-
ingarinnar.
Verkin sem sýnd verða eru af
ýmsu tagi; skúlptúrar, innsetning-
ar, ljósmyndir, tölvuverk og
gjörningar svo eitthvað sé nefnt.
Listamennirnir hafa unnið flest
verkanna sérstaklega fyrir þessa
sýningu og komið með verkin með
sér að utan, eða unnið þau eftir
að hafa komið til landsins, segir
í kynningu.
Sýningunni lýkur 18. maí og
er opin daglega eins og dagskrá
safnsins segir til um.
Nýjar hljómplötur
• ÚT er kominn hljómdiskurinn
Jónasarlög. Lög Atla Heimis
Sveinssonar við Ijóð Jónasar
Hallgrímssonar.
Atli Heimir Sveins-
son tónskáld hefur
samið ný lög við
nokkur þekktustu ljóð
Jónasar. Þau voru
frumflutt síðastliðið
sumar í lítilli sveita-
kirkju, Skarðskirkju í
Landsveit, og síðan
víðar, m.a. í Bakka-
kirkju í Öxnadal,
sóknarkirkju Hrauns
í Öxnadal þar sem
Jónas fæddist. Nú eru
lögin komin út á
hljómdiski, alls tutt-
ugu ogtvö aðtölu.
Meðal þeirra má
nefna Sáuð þið hana systur mína,
Vísur íslendinga, og Nú andar
suðrið.
Flytjendur laganna eru Signý
Sæmundsdóttir, söngur, Sigur-
laug Eðvaldsdóttir, fiðla, Anna
Guðný Guðmundsdóttir, píanó,
Sigurður Ingvi Snorrason, klari-
netta, og Hávar Tryggvason,
kontrabassi. Tónmeistari er
Bjarni Rúnar Bjarnason, en
tæknimenn Hreinn
Valdimarsson og Ge-
org Magnússon.
Hljómplötunni
fylgir ítarlegur bækl-
ingur með þeim ljóð-
um Jónasar sem flutt
eru á hljómdiskinum,
hugleiðingu Atla
Heimis Sveinssonar
um tilurð laganna og
Jónas Hallgrímsson
og loks hugleiðingu
Sigurðar Ingva Snor-
rasonar klarinettu-
leikara um Jónas og
Atla Heimi. Ennfrem-
ur eru kynningar,
umfjöllun um lista-
mennina og efnislýsingar ljóð-
annaþýddaráensku.
Jónasarlög. LögAtla Heimis
Sveinssonar við ljóðJónasar
Hallgrímssonar er 56 mínútur
og 5 sekúndur að lengd.
Utgefandi er Mál og menning.
Verðkr. 1.980.
STYRKURTIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður urn Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk tilframhaldsnáms
erlendis á n&sta skólaári 1997-1998.
Veittur verður styrkur að upphæð kr. 500.000.-
Verður þetta fimmta úthlutun úr sjóðnum.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform sendist fyrir 25. maí nk. til
formanns sjóðsins:
Erlendar Einarssonar,
Selvogsgrunni 27,
104 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjanda.